Flutningur
18. ágúst 2007 klukkan 03:39
Hef ákveðið að flytja mig um set hér á veraldarvefnum og bið ég fólk velkomið á nýja síðu. Ástæða flutningsins er sú að þar get ég í ríkari mæli skellt inn myndum á örskot stundu.
Slóðin á nýja og betri síðu er eftirfarandi: (ath ég á eftir að bæta hana upp með tenglum o.þ.h. þegar líða tekur á haustið)
Nýja slóðin er:
www.123.is/aevar

Óheppinn
18. ágúst 2007 klukkan 00:08
Bevítans óheppni var það hjá mér þegar ég komst að því núna áðan að ég kemst ekki á stórskemmtilega ráðstefnu í mývó nú um helgina ! Ég meina, hver er það sem gæfi ekki útlim af sér, til þess að komast á þessa ráðstefnu, sem er fjölþjóðleg ráðstefna um rannsóknir á setningagerð í norrænum málum & mállýskum ? En ég get huggað mig við það að þessi stórmerkilega ráðstefna verður að öllum líkindum gefin út á tvöföldum dvd-disk og líklega komin inn á torrentið hjá mér strax eftir helgi.
Liverpool fá í heimsókn um helgina lið Chelsea. Þeir eru margir sem vilja meina það að ég sé alltaf að baktryggja mig með spám um mitt lið, en enn og aftur sanna ég það að svo er ekki, ég spái Liverpool sumsagt sannfærandi sigri gegn Chelsea, 3-0, þar sem Torres setur 2 og Riise 1.
Annars er fátt merkilegt að frétta héðan af víkinni, hér gengur allt sinn vanagang eins og venjulega. Hitti reyndar túrista um daginn sem hafði virkilega gaman af að keyra hólasand, fyrir þá sem ekki hafa ekið þann veg, er það vegurinn sem er á milli Húsavíkur og Mývatns. Þar er að finna ógeðslega holóttan veg, sem er m.v. lengd með flestu blindhæðir á landinu. Þar geturðu horft á sand allsstaðar, alla leiðina. Hann mátti nú eiga það þessi túristi reyndar, að hann var geysilega sérstakur.
Hitti Greskó í dag, hann er komin með hækju. Hann sagði mér sögu af sér, sem snerist um það að hann hefði dottið þrisvar sinnum og var hann með risastórt sár á enninu. Fyrr í vetur kveiknaði í íbúðinni hans og allt skemmdist, og var það ógleymanlegt þegar mér var sagt að þegar Greskó var fluttur út úr íbúðinni, hafi hann verið skellihlægjandi og búinn að fá sér í allar tær.
Ég gerði mig að eilífðarfífli í kvöld þegar ég renndi upp á golfvöll. Það vildi þannig til að á 2.holu þá var ég á eftir fólki (1 kona og 2 karlmenn) og sló ég ágætt teighögg sem endaði á miðri braut og gekk ég í átt að kúlu og sá að fólkið beið eftir mér, og vissi ég þá að þau ætluðu að bjóða mér að fara framúr. Kaldur svitinn rann um ennið á mér og á báðum hliðum við pungin. Þá sagði einmitt konan, viltu ekki bara fara á undan okkur, ég svaraði því játandi og þakkaði fyrir. Þegar ég svo tók sjö-járnið og tók þessi svakalegu æfingahögg þá var ég tilbúinn í höggið sjálft. Ég ætlaði svo hrikalega mikið að slá kúlunni ofan í holuna og sýna þessu fólki hvað ég væri yfirnáttúrulega sterkur og ævintýralega góður. Svo kom höggið....ég leit að sjálfsögðu upp áður en ég sló, sem þýddi að ég brenndi svo hrikalega á kúluna og þjappaði kylfuhausnum svo langt niður í grasið að ég þurfti að nota báðar hendur til þess að ná honum upp úr grasinu. Ég leit í átt að fólkinu sem leit strax undan (sem þýddi að þau vildu ekki gera mér það að horfa á mig og segja e-ð) sem er svo óþolandi ! Ég auðvitað horfði á kylfuna og velti henni fyrir mér, með þá von að þau væru vangefin og myndu trúa því að kylfan hefði klikkað, en ekki ég. Ég tók svo níu-járn og kom henni að læknum og hjartað í mér hefur aldrei haft svona mikið að gera þegar ég labbaði í átt frá fólkinu. Í þessum skrifuðu orðum er ég þess fullviss að fólkið er að drekka sig blindfullt og hlægja af óförum mínum !
En jæja, best að fara að drífa sig í sturtu og fá sér jafnvel a.m.k. tvo til viðbótar við þá tvo sem ég hef nú þegar fengið mér.
ps. Endilega leggið spána mína á minnið og sjáið hvað ég er merkilega góður spámaður !

Styttist í gæsina
14. ágúst 2007 klukkan 01:02
Já, það styttist í gæsaveiðar, núna nákvæmlega, samkvæmt almanakinu eru 6 dagar í fyrsta flug, þ.e.a.s. hægt er að taka t.d. morgunflugið á mánudaginn. Ég sé fram á það að stunda veiðarnar í minna mæli en áður, þar sem minn helsti veiðifélagi Gauji "miða" hyggst ala manninn í borginni stórhættulegu næsta vetur. Það þýðir hinsvegar ekki að við förum ekki í okkar rómuðu langanesferð, þangað sem við höfum farið 1x á ári undanfarin 5 ár. Ég reyndar ligg með tromp upp í erminni með hugsanlega veiðifélaga á þessu seasoni, en það er annarsvegar bæjarfulltrúi í Norðuþing og svo forstöðumaður Katla-vallar, eða golfvallarins í Norðurþing.
En að öðru, út í póllandi fékk ég mér móttakara til þess að ná inn í sjónvarpið mitt erlendum stöðvum, eitt smáatriði beið mín þ.a.l. hérna á klakanum, en það var að fá mér krúttulegan gervihnattadisk til þess að setja hér upp. Eftir þær framkvæmdir (ætla að leyfa mér að kalla það framkvæmdir að setja upp disk, m.v. tímann og þolinmæðina sem ég gaf í þetta) hugsa ég að ég væri líklegri til þess að borða góðan slatta af tánöglum af ókunnugum heldur en að setja upp og stilla disk aftur ! Þetta byrjaði semsagt einn miðvikudagsmorgun þegar ég fór í verslun hér í bæ og pantaði mér meterslangan gervihnattadisk. Morgunin eftir var þessi elskulegi diskur mættur á víkina og stillti ég klukkuna stundvíslega klukkan 08:45 til þess að tannbursta og svo að ná í diskinn, allt gekk vel og ég komst heim með hann þar sem ég byrjaði að setja hann saman, þ.e. festa við sjálfan diskin svona græ eitthvað. Því næst dreif ég mig með hann út og kom honum fyrir á veggfestingu sem ég hafði fjárfest mér í erlendis. Það gerðist að sjálfsögðu aldrei neitt, þannig að ég fór grátandi niður í verslunina og fékk þar til gerðan mæli til þess að stilla gráðurnar og áttirnar, en þar sem ég er svo sannarlega á mjög erfiðum útivelli þegar kemur að gráðum og áttum, þá endaði þetta með símtali við einn félaga minn út í bæ. Ég svosem þarf ekkert að taka það fram en þegar verslunarmaðurinn spurði mig í byrjun hvort ég gæti séð um þetta einn, kom svipur á mig og svaraði ég honum því til að þetta væri nú auðvelt verk. En já, seinna kom maðurinn og mældi þetta allt saman út, þ.e. hvar þessi andsk...gervihnöttur væri, frá mínum bæjardyrum séð var hann örlítið vinstra megin við einn ljósastaur en það þýddi á mælinum 168° í austur eða e-ð svoleiðis. Svo þegar við komumst að því að þessi bevítans gervihnöttur var of "langt til vinstri" vegna handriðisins sem diskurinn var settur á, þurfti ég að bíða eftir næsta degi til þess að lengja veggfestinguna. Það var því gríðarlega pirraður og ofboðslega óþolinmóður maður sem lagðist til hvílu þetta fimmtudagskvöld.(Þar sem bókstaflega allur dagurinn fór í þetta, ég gaf mér korter til þess að borða en svo hélt ég áfram til 21:30 að finna út úr þessu) En ég mætti tvíefldur til leiks með tannburstann klukkan rétt rúmlega átta morgunin eftir, föstudag og ætlaði ég að gleyma "gærdeginum" og fara bara og láta lengja veggfestinguna og gera þetta allt saman aftur og ná þá loksins myndinni í sjónvarpið. Ég fór semsagt heim aftur eftir að hafa græjað festinguna, festi hana á handriðið, skellti disknum á og byrjaði að fínstilla (að ég hélt)...jújú, hann var þarna rétt vinstra megin við ljósastaurinn en ennþá gerðist ekki neitt, bara svartur ljótur skjár á sjónvarpinu hjá mér. Þegar ég fann svo að sá pirringur sem greip um sig hjá mér deginum áður, var á hraðri leið til mín aftur, brunaði ég niður í verslun og dróg verslunarmanninn út og setti hann upp í bíl og sagði honum að prófa þetta. Þessi maður tók upp sama mælinn og ég hafði útilokað sem gallaðan deginum áður, og þennan sama morgun....og hvað gerðist, eftir tæplega 10 mínútur hafði hann náð mynd á skjáinn og allt eins og þetta átti að vera.
Eins mikið og það var frábært að ná loksins mynd á skjáinn hjá mér, þá leið mér frekar illa(stóð út í horni, niðurlútur og otaði stórutá hægri fótar í einhvern skófatnað í forstofunni hjá mér þegar maðurinn var að útskýra hvernig hann hafði gert þetta), mér leið semsagt illa vegna þess að á fimmtudeginum höfðu unnusta mín og fósturbarn horft upp á mig vera að bagsla við þetta, og hafði ég gert þeim grein fyrir því þegar ég "gafst upp" um kvöldið, að þetta verk væri ekki í mannlegu valdi að framkvæma. En hvað kenndi þetta manni ? Jú, ef maður kann ekki eitthvað, en langar ofboðslega að kunna það, og manni er boðin aðstoð við málið í byrjun, þá er best að segja bara "já, endilega hreint, það væri frábært af því að ég hef aldrei gert svona áður og kann það þ.a.l. alls ekki". Í stað þess á ekki að segja eins og ég "neineinei, ég finn auðveldlega út úr þessu"
En nú í dag, er diskurinn enn á sínum stað og gæðin bara í góðu lagi.
En já, Liverpool náði sannfærandi sigri á ofmetnum Aston Villa mönnum um nýliðna helgi, með glæsilegum 1-2 sigri þar sem Steven Gerrard, besti miðjumaður heims undanfarin og komandi ár tryggði rauða hernum sigurinn með hágæða aukaspyrnu. Brynjar Björn hringdi hinsvegar í mömmu sína í breiðholtið eftir leik sinna manna í Reading og sagði henni þar frá því að hans lið hefði fengið 1 stig á Old Trafford.
Bið að heilsa
p.s. í tilefni af umræðunni um gervihnattadiskinn, þá er komin ný könnun sem gott væri að allir svöruðu hreinskilningslega

Örstutt ferðasaga - enski að byrja
11. ágúst 2007 klukkan 12:53
Við komumst heilu og höldnu heim á þriðjudaginn s.l. og til að gera ákaflega langa sögu stutta um dauðadrukkna pólska karlmenn með þykkt og massíft yfirvaraskegg stutta þá gekk ferðin vel í flesta staði. Ferðin var kannski helst til of löng, en fyrir þá sem mig þekkja, þá er ég ákaflega heimakær maður og saknaði víkinnar minnar töluvert þegar var komið á seinni hluta ferðarinnar, enda var ég búinn að flestu sem ég persónulega ætlaði mér, þ.e. að kaupa mér gullkeðjur, fá mér tattoo, og skoða Auswitch. Seinni hluti ferðarinnar fór aðallega fram í íbúðum aldraðra frænkna Aniu og voru þetta meira svona sýningarheimsóknir, þ.e. Ania að sýna þessum frænkum sínum þennan huggulega, massaða, skemmtilega, barngóða mann sinn. Þær áttu það allar sameiginlegt þessar frænkur hennar, að tala sitt tungumál ákaflega hratt, svo hratt að ég skildi bara ekki neitt, en þegar þær svo stoppuðu og að sjálfsögðu brostu hlýtt til mín þá sendi ég þeim á móti fallegt bros eins og ég hafi skilið hvert einasta orð sem þær sögðu. Skoðaði einmitt stærstu útrýmingabúðir nasista og var það mögnuð lífsreynsla, frekar en skemmtileg. Fór ákveðinn hrollur um mann þegar maður var komin niður í kjallarann t.d. En já ferðin gekk vel og ferðalagið til baka, þ.e. þessir rúmu 23 tímar gengu ákaflega vel.
En að enska boltanum, sem byrjar nú í dag, þá er langlíkegast að fólk spái Man.Utd titlinum, enda búnir að eyða miklum fjármunum í leikmenn og því eðlilegast m.t.t. þess og einnig að þeir eru ríkjandi meistarar að spá þeim titlinum á nýjan leik. Liverpool á í dag leik á Villa Park í Birmingham, en þessi tvö lið ákváðu á síðustu leiktíð að spila leiðinlegasta knattspyrnuleik í sögu enska boltans, einmitt á Villa Park en ég spái poolurunum sigri í dag, 0-2 og mörkin skorar Fernando Torres. Annars er spáin hjá mér hérna til hliðar á síðunni svona ef fólk vill ekki þurfa að spá mikið í það sjálft hvernig þetta endar í vor.

Kvedja fra pollandi
27. júlí 2007 klukkan 13:11
Jaeja, bara koma herna inn sarafaum ordum heimalandi Bogdans, sem eins og allir vita gerdi islenska landslidid i handbolta ad heimsmeisturum ! (var reyndar i b-keppni en tad tarf ekkert ad koma fram)
Jaeja, tad sem a daga mina hefur runnid sidan eg kom er eftirfarandi:
a) Brann illa a strondinni, tad illa ad litlir krakkar foru naestum tvi ad grata !
b) Buinn ad drekka mikinn og godan bjor i ferdinni, tetta er 2 tegundir sem eg hef synt svona mestan ahuga, annarsvegar Lech og hinsvegar Zywiec.
c) Einnig er eg buinn ad borda mikid i ferdinni, svo folk tarf ekki lengur ad hafa ahyggjur af tvi ad eg bordi ekki neitt !
d) i ljosi lida b og c, ta er ljost ad tyngdin a mer hefur farid toluvert upp a vid, og sumir myndu kalla mig feitan, en eg myndi miklu frekar kalla mig roskin
e) Buinn ad fara i auswitch og Birkeneu og skoda tar svona tad helsta. Tad var kannski ekki beint skemmtilegt, en tilfinningin var meira svona mognud.
f) For i borg sem heitir Czenstenhowka, sem eru u.t.b. 300.000 manna torp herna i pollandi, og tar er ad finna eina fraegustu kirkju heims, Jara Gura het hun ad mig minnir. Tar helt hann nun Joi Palli pafi heitinn fjolmargar raedur.
g) Buinn ad taka slatta af myndum i ferdinnni og er eg sattur vid taer velflestar.
h) Forum m.a. i Gdansk i dyragard, og var tad agaett, skemmtilegra ad skoda flodhesta, tygrisdyr og girafa tar heldur en geitur og haenur i husdyragardinum.
j) Tad er ljost tegar madur gengur um gotur og straeti i pollandi ad polverjar verda seint sagdir vera ad drukkna ur peningum, maetti alveg senda teim nokkrum Byko-baeklingin vid taekifaeri. Einnig kemur tad i ljos tegar kemur ad samgongum hverskonar. Slaemir vegir og lestarsamgongur frekar slakar. Vid t.d. keyptum okkur saeti a 1.classa a leidinni heim aftur til Ustka. En vagninn sem var tileinkadur fyrsta classa vard rafmagnslaus og tannig var tad bara, og vid ferdudumst tetta ad nottu til, og ta er kalt i pollandi, og tarna var skilhelviti kalt og munadi litlu ad eg faeri og laesi yfir hausamotunum a tessu lestarlidi tarna a vel valinni islensku, en kurteisin og tolinmaedin kom upp i mer.
k) Afall ferdarinnar er hinsvegar audvitad tad ad eg er tobakslaus, efri vorin a mer hefur ekki fengid tobak a sig ad innan, i 10 daga nuna sletta, og hun er virkilega farin ad okyrrast. En hringdi i guddu litlu systir a midvikudaginn og hun sendi mer einar 3 dosir, sem eg vona innilega ad skili ser til min a morgun !
En jaeja, aetli eg lati tetta ekki duga hedan i bili, vona ad tid hafid tad gott og vona ad maerudagarnir fari vel fram a gomlu vik.

Kveðjublogg
12. júlí 2007 klukkan 17:15
Langaði að kveðja með örfáum myndum af þeim stað, þar sem ég verð. Það liggur auðvitað ljóst fyrir að ég verð svipað brúnn og Robert Parish þegar ég kem tvíefldur til leiks um miðjan ágúst. Einnig ætla ég að gerast svolítið djarfur og spá því að ég drekki a.m.k. 4 bjóra (2 ltr) í ferðinni.

Sumarblogg
06. júlí 2007 klukkan 22:36
Jæja, þá er sumarið hálfnað og ágætt að gera það upp og hvað sé framundan.
Byrjum bara á boltanum. Fernando Torres eða eins og hann er jafnan kallaður "besti leikmaður heims fyrr og síðar" gekk til liðs við Liverpool F.C. nú á dögunum og eru þetta næstum því jafn frábærar fréttir og þegar ég fékk staðfestingu á því að framleiðsla á Basic Instinct 2 væru að hefjast. Ég spái því strax núna að hann eigi eftir að verða markakóngur premier league 2 tímabil í röð. Svo var Andriy Voronin að skrifa undir samning við Liverpool sem er einnig hugsa ég bara ágætt, er nefninlega búinn að vera að velta þessum viðkunnalega síðhærða úkraínubúa fyrir mér undanfarið og komist að því að m.v. að hann kostar ekki neitt, þá skilar hann sínu, u.þ.b. 15 mörk hjá honum í öllum keppnum í vetur. Lucas, fyrirliði u-21 brasilíska landsliðinu gekk einnig til liðs við Liverpool fyrir örfáum misserum og er hann talinn gríðarlegt efni. (reyndar eins og allir brasilíu og argentínumenn sem keyptir eru til evrópu). Svo auðvitað þurfti Benitez að kaupa 20 15 ára stráka svona til þess að 1 þeirra slái í gegn og hann geti á sínum elliárum eignað sér árangur þess stráks.
Það sem hefur verið að gerast utan Liverpool, er auðvitað það fyrst og fremst að Derby County keypti á dögunum eina leikmann Norwich City sem eitthvað varið er í, þ.e. Robert Earnshaw. Það vill nefninlega svo ofboðslega skemmtilega til að fyrir örfáum dögum var haldinn fundur hjá Nigel Worthington og þar mætti ástríðufullur stuðningsmaður Norwich City og var Earnshaw nefndur á nafn og hvort stuðningsmenn fuglanna þyrftu einhverjar áhyggur að hafa að því hvort hann væri á förum frá Carrow. Það stóð ekki á svari hjá fyrrv. videokóng íslands, svarið var nei, og gat hann þess nánast, að það væri jafn miklar líkur á því að Earnshaw færi frá Norwich eins og að Bjarni Fel hætti að halda með Arsenal ! Manchester United fengu krullhærða miðvallarleikmanninn Owen Hargreaves frá Bayern, djöflarnir ákváðu í leiðinni að gefa Bæjurum 17 milljónir punda. Sennilega hefur það verið vegna Hargreaves, þrátt fyrir að hann sé í mesta lagi metin á 1,75-2,5 m.punda.
Sven Göran Eriksson tekin við Manchester City. Það sem hefur komið mér minnst á óvart það sem af er, er hversu óspennandi allt í kringum Middlesbrough er ennþá !
En já, svo við snúum okkur að öðru en boltanum. Ferðalag til Póllands næsta föstudag, mitt annað ferðalag þangað á 1/2 ári sem er hið besta mál. Reyndar erfitt ferðalag framundan, þ.e. fljúga frá egilsstöðum á föst.morgni, fljúga frá Köben á föst.kvöldi og fljúga svo frá Varsjá til Gdansk seinna um kvöldið.
En allt svipað að frétta héðan af víkinni, hugsanlega utan við að Rúnar Ara er að keyra rútu í sumar, en ekki í lauginni ! En ég er svona rétt að jafna mig á því núna.
Læt þetta nægja í bili og get því miður engu lofað um blogg áður en haldið er á vit ævintýranna um n.k. helgi.

Íslenska landsliðið í sæti nr.109 !
13. júní 2007 klukkan 12:46
Jæja, er ekki bara komið gott af Eyjólfi Sverrissyni. Það er nú bara þannig að þegar þjóðir eins og Lichtenstein og Haiti, Bahrain, Gabon eiga að teljast sterkari en íslenska landsliðið í fótbolta, þá er eitthvað mikið að. Ég er bara búinn að fá leið á þessum vælukjóa sem Eyjólfur Sverrison er. Hagnaður KSÍ undanfarin ár gerir það að verkum að auðvelt ætti að vera fyrir sambandið að horfa út fyrir landsteinana þegar leita á að þjálfara. Það kæmi hinsvegar 0% á óvart ef að KSÍ teldi það best fyrir landsliðið að halda Eyjólfi. Það er í lagi að nefna stjóra eins og Gerard Houllier, nú eða Roy Evans, sem ég er viss um að næði glæstum árangri með landsliðið. En já, þjóðir sem telja sig eiga sjens í okkur í fótbolta, geta verið, samkvæmt nýjum FIFA-lista, Sudan, Malta, Kazakhstan Taíland og fleiri þjóðir.
En jæja, eins og væntanlega flest ykkar hafa frétt, þá er ég komin á fullt í golfið og búinn að fá símtöl hvaðanæva af landinu, frá virtum golfklúbbum sem berjast um að fá plattan sinn, á Dunlop settið mitt. Ég hinsvegar, gaf klúbbnum mínum loforð, þ.e. GH um að ég yrði a.m.k. þetta seasonið skráður hjá þeim. Er einmitt að fara að taka þátt í móti í kvöld, landsbankamótinu sem verður svipað auðvelt og að drekka kók. Ætli ég taki ekki 2-3 æfingahringi núna svona rétt til upphitunar, en sérstaklega vegna þess að Geoff McKinley ritstjóri golftímaritsins, WorldWide Golf, sem er söluhæsta golftímarit í heiminum í dag verður á katlavelli á eftir og vildi e-ð fá að ræða við mig um völlinn og bara velli almennt í heiminum.
Bið að helsa Nonna

Gleypt´ann teskeið !
30. maí 2007 klukkan 09:16
Sérstaklega viðburðaríkir dagar undanfarið ! Mikið að gerast í boltanum og Samfylking og Sjálfstæðisflokkurinn að reyna að koma sér saman um málefnin. Samuel Eto mætir ekki í viðtal þessa dagana öðruvísi en að leggjast á hnén, með þá ósk heitasta að Liverpool kaupi hann ! Einnig er líklegt að Florence Malouda, franskur landsliðsmaður hjá Lyon, skrifi undir hjá Liverpool fljótlega. Þannig að spennandi tímar framundan á Anfield í sumar vonandi.
"Það verður okkar fyrsta verk, ef við náum í ríkisstjórn, að ísland verði tekið af lista hinna viljugu þjóða, tengdum árásum bandaríkjamanna á írak" Þetta sagði Samfylkingarforingin Ingibjörg Sólrún í kosningabaráttunni. Nú hinsvegar, stendur snyrtilegum stöfum í stjórnarsáttmálanum, að ákvörðun fyrrv. ríkisstjórnar sé hörmuð. Búið. Einnig, m.v. nýjan samgönguráðherra Kristján Möller, þá má allt eins búast við leiðindum í sumar þegar maður þarf, af einhverjum óþörfum ástæðum að fara til akureyrar, vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng. Kristján Möller, 1.maður á lista Samfylkingarinnar hélt því fram í sínum sannfæringarræðum, að bora í gegnum Vaðlaheiðina, væri svipað einfalt og að anda að sér loftinu. En heyrðu....nú er þessi sami Kristján Möller orðin samgöngumálaráðherra, og er því í bestu hugsanlegri aðstöðu allra íslendinga til þess að standa við þessi fyrri orð sín, en hvað ? Jú, nú eftir kosningar, þá á þarf allt í einu að fara eftir samningum sem búið er að undirrita í vegamálum á íslandi og á meðan hann heldur því fram, horfir hann skömmustulega niður í kjöltu sína, og þæfir málflutning sinn í kosningabaráttunni á þennan hátt. Það er nú hægt að sjá þetta ennþá á www.skarpur.is Kristján vildi hafa þau gjaldfrjáls, og m.v. hvernig hann talaði um hvað það væri sjálfsagt, þá fékk maður það á tilfinninguna, að til þess að veiða fleiri atkvæði, þá var stutt í að Kristján myndi lofa fólki pening ef það færi þarna í gegn. Semsagt, þegar maður kæmi að göngunum, stæði maður með þúsund kall eða e-ð svipað og rétti manni áður en maður færi í gegn. Ég held, utan við Sigurjón Þórðar, að Kristján Möller hafi verið yfirlýsingaglaðasti stjórnarandstæðingurinn á síðustu kjörtímabilum. Þess vegna, verður það bæði ljúft og sætt, að fylgjast með því hvernig Kristjáni farnast í nýja djobbinu.
En já, þetta átti nú ekki alfarið að snúast um þetta hér að ofan. En það blossuðu víst upp slagsmál á bauksa um helgina, og voru okkar menn í s-inu sínu það kvöldið. Við búum við það, húsvíkingar, að eiga fullt fullt af hetjum í okkar röðum, sem tilbúnir eru að fórna sér fyrir málstaðin. Á meðan þeir voru að snúa upp á puttana á aðkomumönnum, þá sló ég til og ákvað að baka, vaknaði líka upp í þessu svakalega bakstursstuði á sunnudagsmorgunin ! Ákvað að gera pizzusnúða, skellti í einfalda uppskrift, en ákvað svo fljótlega, að vel athuguðu máli, að þessir snúðar kláruðust ævinlega á mettíma hjá mér, að "dobbla" hana, og gerði því tvöfalda uppskrift af þessum snúðum, og upphófust þá heilmikil fagnaðarlæti og gestir sem heimsóttu laugarholt 3.c. á sunnudag, fóru pakksaddir af snúðum. Ég þarf nú ekkert að fara neitt leynt með það, en það er mín spá, að eftir ca. 5-7 ár, þá verði vörunúmerið á pizzusnúðunum hjá mér, orðið vinsælla vörumerki en Coca-Cola Company er í dag ! En bakstursverkfærin fóru svo ekkert í þvott eftir þessar aðgerðir, heldur ákvað ég að græja Sjónvarpskökur líka, gerði 2 þannig og ekki urðu fagnaðarhrópin minni þá. Eftir þetta gekk ég gríðarsáttur í sturtu og hugsaði um það hvað ég væri frábær bakari, það tók mig u.þ.b. 30mín. Svo um kvöldið ákvað ég að gera túnfisksalat, frekar stóra uppskrift og bara svo fólk hafi það á hreinu, að þá er túnfisksalat ekki það sama og túnfisksalat ! Ég er með ákveðin hráefni í salatinu, sem gerir það verkum að salatið hjá mér er 3-4 sinnum betra en þau salöt sem fást í matvöruverslunum í dag. En vegna þess að e-ð er þetta farið að spyrjast út, þ.e. hversu frábært brauð það er, sem kemur út úr ofninum hjá mér í sífellu, þá get ég upplýst það hér, að í framleiðslu eru derhúfur sem snúa að bakstrinum hjá mér og er ég vel reiðubúinn til þess að gefa örfáar þannig til útvalda.
En jæja, best að fara að ristað brauð með ost og bláberjasultu, verður að vera búbótarsulta ! Sultan sú ber höfuð og herðar yfir aðrar sultutýpur.
Verið nú góð hvert við annað, og ég fór í golf í gær, nenni svo engan veginn að segja frá því núna, kemur væntanlega golf-pistill bara næst.

Uppgjör !
24. maí 2007 klukkan 11:44
Þá er það ljóst, AC Milan urðu Evrópumeistarar í gærkvöldi með ósanngjörnum sigri á Liverpool. Já, hiklaust segi ég ósanngjörnum sigri vegna þess að Milan átti ekkert í leiknum, skoraði heppnismark á 45´mín, eða rétt áður en leikmenn gengu til búningsherbergja. Varðandi seinna markið hjá Inzagi, þá var reyndar lítið við því að segja, en reyndar verður að segjast sem svo að vörnin okkar átti kannski ekki sinn allra besta leik, og kom þar bersýnilega í ljós hversu öflugur, og vanmetin þáttur Sami Hyypia hefur verið undanfarin ár. Ástæða þess að hann er gagnrýndur, er sú einvörðungu að hann sé orðin svo hægur ! Menn geta ekki fundið neina aðra skýringu, en vegna þeirra gagnrýni höfum við haft innanborðs gríðarlega hæga leikmenn á tímabilinu, t.d. er hægt að nefna Zenden, Alonso, svo hef ég ekki tekið eftir þessum ofboðslega hraða sem Carragher ræður yfir. Auðvitað er þægilegt að koma með svona fullyrðingu fram núna eftir leik, en það er bara þannig að fólk með blindrastafi ætti auðvelt með að spila leikmann eins og Inzagi rangstæðan. Svo ákvað dómari leiksins að bæta við 3 mínútum, en þegar klukkan rétt slefaði yfir 92mín ákvað hann bara að hætta þessu, enda er þetta þjóðverjagerpi hálfviti. En jæja, þýðir ekkert að gráta vegna þessa leiks, stórir tímar framundan hjá klúbbnum og fyrsta heila tímabil liðsins framundan, þar sem þeir verða í eigu þeirra Gilletts og Hicks.Hvað gerist í sumar - Hverjir fara - Hverjir koma ?
Fyrir nokkrum dögum, varð það ljóst að bæði Robbie Fowler og Jerzy Dudek kveðja Anfield í sumar. Ég mun sakna þeirra beggja virkilega mikið, enda báðir á sinn hátt einstakir leikmenn. Robbie Fowler auðvitað með tæplega 200 mörk í úrvaldsdeildinni á bakinu. Svo þakka ég Jerzy Dudek fyrir evróputitilinn fyrir 2 árum, í magnaðasta úrslitaleik í sögu meist.deildarinnar. En já, Mark Gonzalez kveður líka, sem og Bodjewin Zenden, sem er mjög gott ! Zenden er sá leikmaður Liverpool sem ég hef aldrei skilið að sé í sífellu í byrjunarliðinu ! Hann átti ágætis leik gegn Chelsea í seinni leiknum í undanúrslitunum, en þá er framlag hans til Liverpool síðan hann kom þangað, upptalið. Veit svosem ekkert með að selja Riise, en þátttaka hans í velflestum leikjum liðsins, er ávísun á metnaðarleysi. Hann er frekar takmarkaður leikmaður, ekkert sérstakur varnarmaður, á stundum mörk, og þau eru þá reyndar stundum falleg, en sóknarlega séð er hann bara allt í lagi, ekkert meira en það. Ég hef nú í gegnum tíðina verið aðdáandi Xabi Alonso, en svo virðist sem hann hefur eitthvað dalað, sendingarnar hjá honum, sem eiga að vera hans helsta vörumerki, hafa mistekist, skipti eftir skipti hjá honum í vetur. Ég nenni ekki að vera halda enn einn pistilinn um Luis Garcia. Jermaine Pennant virðist vera vaxandi leikmaður, og hefur hann eflst, eftir því sem á tímabilið leið og var bara t.a.m. býsna sprækur í leiknum í gærkvöldi. Hann reyndar, ásamt Mascherano, menn leiksins í gær að margra mati og get ég fyllilega tekið undir það. En jæja, að framlínunni, mér væri svo nákvæmlega sama um það, ef ég læsi um það að öll sóknarlínan hjá Liverpool færi frá Anfield. Craig Bellamy, Peter Crouch og Dirk Kuyt eru bara ekki búnir að standa sig nægjanlega vel á klúbbnum og kæmi mér það verulega á óvart, ef Benitez skipti a.m.k. ekki tveimur af þeim út fyrir nýja menn.
Liverpool hefur gengið frá kaupum á einum leikmanni, sá heitir Lucas og er hann brasilískur landsliðsmaður, spilar sem fyrirliði Gremio. Þessi leikmaður á víst að vera rosalega efnilegur, en hverjir eru það ekki sem keyptir eru þarna frá S-Ameríku til Evrópu. Þeir sem nefndir hafa verið oft og títt undanfarna mánuði, eða síðan Gillett og Hicks tóku við Liverpool, eru m.a. Samuel Eto, David Villa, Fernando Torres og auðvitað talsvert fleiri. Rafael Benitez hefur sagt það að til þess að fá gæðaleikmenn, þarf að klófesta þá strax og er það auðvitað hárrétt hjá honum.
Vangaveltur fyrir næsta tímabil
Ljóst er að ef Liverpool fær til sín, e-ð af heimsklassaleikmönnum þá verða þeir í titilbaráttunni heima fyrir næsta tímabil 2007/8. Ég ætla a.m.k. að spá þeim velgengni á næsta tímabili, með breiðari leikmannahóp og sterkari, og "ruslið" verði horfið af braut. Ég spái þeim því englandsmeistaratitli og sigri í deildarbikarnum á næsta tímabili. Því að þrátt fyrir vonbrigðin í gærkvöldi, þá eru bjartir tímar framundan hjá sigursælasta liði bretlandseyja, með tilkomu nýrra eiganda, sem eiga fyrir dýfu á ísinn sinn.