Hvernig datt þér þetta eiginlega í hug ?
19. október 2006 klukkan 03:10
Jú svara ég. Þannig var það nú kaldan október mánuð s.l. að ég, ásamt mági mínum vorum staddir heima hjá þeim síðarnefnda og vorum við e-ð svona að baggsa við þetta kerfi og vorum við búnir að bíða í einar 31mín eftir svari og vorum við til skiptis búnir að þurfa að hlusta á allan þann sora sem tónlist almennt í heiminum hefur alið af sér. Þá kviknaði þessi hugmynd. En áður hafði ég pælt verulega í þessu, þ.e. ætti ég ekki bara að láta að verða af þessu. En það var þegar ég hringdi í annað símanúmer og valdi þar annan takka en ég hafði þurft að velja til að fá þá þjónustu sem ég óskaði mér, ég beið og beið...bara beið og beið, en svo lifnaði ég nú aldeilis við þegar í símann loksins svaraði 14-15 ára stelpa sem aldist aðeins upp við það í nútímatæknivæðingu að spila Snake í gemsann sinn. Hún sagði við mig eftir rúmar 20mín í bið, "heyrðu, jááááá, best ég gefi þér sambandi við tæknimann" ! Áður en ég gat svarað þessari hugmynd stúlkunnar þá hafði hún gefið mér samband við tæknideild, og við tók enn eitt hörmungarlagið....ég skellti á og blótaði þessari þjónustu áður en ég taldi upp á 2.000 til þess að jafna mig !
Þetta er klárlega málið ! Ég veit reyndar ósköp vel að Sverrir gluggaþvottamaður ætlaði að vera í dag á Bahamas, röltandi um á sundskýlu með bjór í annarri og mellu í hinni eftir gróðrastíuna sem gluggaþvotturinn átti að færa honum. En þetta er svo þúsund sinnum betri hugmynd en sú hugmynd Sverris, þ.e. að búa til þolanlegan playlista í símann á meðan maður bíður eftir svari frá þjónustufulltrúa !
En jæja, þýðir ekki að standa hágrátandi utan í Bjössa bónda varðandi þessa þjónustu, ekkert sem hann getur gert í þessu, annað en að vera bara þolinmóður, og þann þátt á ég ákaflega auðvelt með !
Kristján Loftsson, sá ágæti maður, er byrjaður að miða á hvalgreyin aftur, nú á að veiða held ég 9 hvali af einhverri tegund og 30 af annarri. Alltaf gaman af Kristjáni, alltaf e-ð svo rólegur í tíðinni og ekki til dónaskapur hjá honum. Horfir alltaf (með bæði augun þegar þess gefst kostur) á það jákvæða við hlutina og orðar hlutina á svo sanngjarnan og notalegan hátt.
Skil ekki þetta brölt á manninum, að skjóta hvali sem er jafn erfitt að koma í sölu og ef ég ætti tóma kókflösku og stæði fyrir utan félagsþjónustan og ætlaðist til að fá fyrir hana 15.000 kjell !
En jæja..Crouch skoraði að sjálfsögðu í kvöld fyrir Liverpool og gaman væri nú að heyra í þeim sem í gegnum tíðina hafa aldrei haft neina trú á Croucherator ! Hann og Fowler saman í framlínunni yrði svipað og Sharon Stone og Zeta-Jones í klámmynd !!
Já, Þórhildur Þorleifs kom öllum að óvörum og bauð sig fram í prófkjör samfylkingarinnar í dag ! Mig svimaði bara við þessar fréttir og leið eins og ömmu Jón Odds og Jón Bjarna fyrst, þegar henni var sagt að strákarnir hefðu lent undir ruslabílnum !
Fariði vel með ykkur og munið eftir faðir vorinu
fín sending Stefán

Eftir að ég byrjaði að vinna hjá Mömmu ehf þurfti ég mikið að vera í símasambandi við þjónustuver Vodafone. Einhverra hluta vegna þá var bara spilað Norah Jones. BARA. Það var leiðinlegt til lengdar. Sem betur fer þurfti ég ekki að bíða lengi. Ef ég hefði þurft að hringja svona oft í Símann hefði ég lært öll lögin hennar utan af. Mig langar það alls ekki.
Púúú á hvalveiðar!!!