Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

23. október 2006 klukkan 13:49
Það hefur ekki farið framhjá neinum 4 ára og eldri að við íslendingar erum byrjaðir að veiða hvali á nýjan leik. Tilgangurinn er sá að við eigum að nýta auðlindir okkar og ekki láta einhverjar aðrar þjóðir segja okkur hvað við megum gera og hvað við megum ekki gera !

Kristján Loftsson, alskeggjaði titturinn þarna sem á þessa báta alla, fundaði með Einar Kr. sjávarútvegsráðherra og fékk að vita það áður en allir aðrir að Einar Kr. ætlaði að heimila hvalveiðar. Sama dag og það var ákveðið, var Kristján búinn að ráða til sín fullt af eldgömlum köllum, sem hér áður fyrr höfðu skotið fullt af hvölum. Þeir græjuðu Hval 9 og voru svona að dorma e-ð í rvk-höfn þangað til að þessi ákvörðun var gerð opinber. Þá hringdi Einar Kr. í félaga sinn Kristján og lét hann vita af þessu. Kristján bein upp í Hvalfjörð til þess að ná í byssuna sína, og svo héldu þeir á haf út.

Svo eftir talsverðan tíma, fundu þeir fyrir eina langreyði sem átti víst eftir u.þ.b. 10mín eftir ólifaða, en þá dræpist hún af náttúrulögum orsökum. Þeir brunuðu í átt að henni, skutu hana og hringdu svo í land og þetta spurðist út, og fóru fjölmiðlar á rellu í átt að Hval 9 og mynduðu hvalinn við Hval 9. Svo þegar heim var komið, n.t.t. í Hvalfjörðinn þá beið fólk klappandi og margir geðsjúklingar með tárin í augunum, en samkvæmt mínum heimildum þá fékk mikið af fólki dagvistarleyfi frá ýmsum geðdeildum landsins þennan dag. Einar Kr. og Halldór Blöndal, voru þar fremstir í flokki, klappandi höndum og sögðu frá því að um gleðidag væri að ræða. Rökin sem hvalveiðisinnar nota eru m.a. eftirfarandi

- Nýta auðlindir okkar ! (af því við eigum þessa hvali bara er það ekki)
- Við gerum sko bara það sem við viljum gera og látum enga aðra segja okkur fyrir verkum
- Við ætlum að selja kjötið til Japans. (svo þegar það er sagt að ekkert hefur gengið hjá nojurunum að selja kjötið til Japans, fer fólk bara í fýlu og segist bara víst ætla að selja það til Japans)
- Allt í lagi að fækka þessum hvölum e-ð ! (Langreyðar eru í útrýmingarhættu)

Skipstjóri Hvals 9 missti það svo út úr sér að sú langreyða sem veiddist sé nú bara sennilega óæt. Jájá, okei, það er alltlæ, förum bara og náum í fleiri og fleiri hvali, og hvað með það þó þetta gæti haft áhrif á einhverja ímynd og hvað með það þó að margar þjóðir í heiminum hafi hreinlega fordæmt þessar veiðar. Þetta virkar svona á mig eins og maður með mikla minnimáttarkennd, sem segir voða lítið edrú, en þegar áfengið er komið í blóðið hjá honum, þá brýst fram í honum mikil árásarhneigð, og fer að lemja fólk. Semsagt, þá held ég að þetta stafi af heilmikilli minnimáttarkennd íslendinga. Við ætlum sko ekkert að láta aðrar þjóðir segja okkur að við megum ekkert veiða hvali, Stjáni Lofts má bara víst skjóta hvali.

En já, Liverpool.

Árangur Liverpool F.C. er það sem af er þessu tímabili, 3 sigrar, 2 jafntefli og 4 ósigrar í deildinni. "We just need a little bit more confident" segir Benitez, hann hefur reyndar hjakkast á þessu í talsverðan tíma sem er að verða ansi hreint leiðigjarnt. Þeir leikmenn í Liverpool sem kæmust varla fyrir á bekknum á Magna eru t.d. Luis Garcia, Peter Crouch, Jamie Carragher, John Arne Riise, Xabi Alonso og Jose Reina. Ef að þessir aðilar vita ekki hvernig sæðið úr Benitez er á bragðið, þá yrði það stórfrétt ! Það er orðið skemmtilegra að skipta um á rúminu heldur en að setjast fyrir framan skjáinn og horfa á þetta skítlélega lið. Ef að þetta breytist ekki mjög fljótt, og ekki bara sigrar í næstu leikjum, heldur til tilbreytingar, sannfærandi sigrar fari að sjást, þá ætla ég að segja upp áskriftinni að enska boltanum og fara að leggja meiri áherslu á önnur áhugamál, s.s. klettaklifur og köfun.

Jæja..ætla að skunda með emil inn á eikureyri og versla kannski eitthvað af heiðursmanninum Jóhannesi Jónssyni

fín sending stefán (betri en hjá Alonso) 
í tengla með skurinn..og komdu med nýja könnun...kristján Loftson er klárlega maður þessa árs(",)...
#1
25. október 2006 klukkan 04:58
Já mér finnst að það ætti að sæma Krisján Loftsson fálkaorðunni. Þetta eru menn sem vita hvað þeir syngja, Kristján og Einar K.
#2
25. október 2006 klukkan 22:19
 
Höddi s
Blessaður Æbbi , Eg var í hvalfirðinum s.l þriðjudag þegar hvalur 9 kom að landi, þarna var mikil mannfjöldi og stemmingin mögnuð og vart þarf að minnast á það að bros skein af hverju einasta andliti enda gleðiefni.
#3
26. október 2006 klukkan 06:22
Ertu búinn að snúa baki við Jamie Carragher?? Ég hélt að hann væri "sá útvaldi" hjá ykkur Liverpool mönnum!!!

Ég hef nú hitt marga Liverpool menn sem hafa hreinlega fengið úr honum við það eitt að heyra nafn hans minnst og þetta hafa ávallt verið hálfvandræðaleg augnablik.
#4
27. október 2006 klukkan 04:03
...Dagur..vert þú ekkert að skrifa hér..leyfðu okkur bara að vera í friði...
#5
27. október 2006 klukkan 04:19
 
Dagur
Ert þú kannski líka búinn að snúa baki við Carragher Jói sem-átti-nafna-í-unglingasápu-í-gamla-daga-sem-ég-man-ekki-hvað-hét-akkurat-núna??
#6
27. október 2006 klukkan 21:01
 
Ævar Þ.
Ég hef nú aldrei verið að missa mig neitt í gleðinni varðandi Carragher. Ég hef t.d. bent á þá einföldu staðreynd að Sami Hyypia er betri varnarmaður en Carra, þó Carra sé með hjartað á hárréttum stað..en það var Steffen Freund reyndar líka.
#7
27. október 2006 klukkan 22:50
Hyypia er alls ekki betri en Carragher. Ég trúi ekki að ég sé að taka upp hanskann fyrir þennan mann sem ég gjörsamlega þoli ekki, en Carragher er mun betri en Hyypia, sem gat ekki blautann á síðustu leiktíð og hefur ekkert getað það sem af er þessari.
#8
27. október 2006 klukkan 23:34
 
Ævar Þ.
Þetta er nákvæmlega málið. Sami Hyypia gerði sig sekan um ein "mistök" allt síðasta tímabil, og menn eru ennþá að tala um það, en það var þegar Drogba ´klobbaði´ Hyypia. Hann er búinn að vera kjölfestan í þessu liði undanfarin og á síðasta tímabili einnig, og leiddi hann m.a. annars liðið til sigurs í F.A. cup en þar sigruðum við m.a. Man.Utd sannfærandi og Chelsea örugglega.

....og ef ég spái aðeins í þetta, þá veit ég hreinlega ekki hver það á að vera, sem er betri en Hyypia þegar kemur að varnarleik, en eitt er víst, að ekki er það Rio "nasastóri" Ferdinand sem lengi hefur verið einn ofmetnasti leikmaður englendinga í gegnum tíðina, hugsanlega að David Platt frátöldum.
#9
28. október 2006 klukkan 02:44
Jahérna, ég er ekki frá því að eitthvað hafi slegið saman hjá þér Ævar minn. Það má ekki minnast á þetta Liverpool lið og gagnrýna einn leikmann þá ferðu að snúa þessu upp í einhverja samkeppni milli Liverpool og Manchester United. Mér líður eins og að ég sé að rífast við fimm ára strák, nema hvað að ég nenni ekki einu sinni að rífast við þig um þetta, enda ekki svara vert.

Er ekki allt í lagi Ævar minn?
#10
28. október 2006 klukkan 04:29
 
Ævar Þ.
Jahérna hér ! Mér finnst nú eins og ég hafi verið að svara "pabbi minn er sterkari en pabbi þinn" strák.

Þessa umræðu startaðir varðandi sæðislosun hjá poolurum þegar minnst væri á Carragher. Ég tel að Sami Hyypia sé betri en Carragher, og finnst mér Hyypia vera besti miðvörður deildarinnar. (en skal viðurkenna það að Hyypia hefur lengi verið einn af mínum uppáhaldsleikmönnum) þannig að jújú, allt í fínu allavega hérna megin :)
#11
28. október 2006 klukkan 10:49

Skrifa athugasemd