Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Þetta eru bestu skinn

30. október 2006 klukkan 13:39

Ótrúlegt hvað íbúar höfuðborgarsvæðisins eru miklar skræfur. Þetta lýsir sér langbest í því að ekki má úrkoman vera hvít á lit, þá æða allir inn í Everest og kaupa sér fokdýrar flíspeysur og flísbuxur til þess að verjast þessum veðurofsa. Þetta hefur nú verið rætt áður en alltaf þegar ´óveður´ er á suðurlandinu senda fjölmiðlarnir 1 fréttamann ásamt tökumanni, upp í litlu kaffistofu og fréttamaðurinn stendur á veginum og um hann blæs örltítill vindur og hann er í tilfinnangalegu sjokki yfir þessu ástandi sem skapast hefur. Talar um að 2 bílar hafi farið útaf (það er nú bara vegna þess að reykvískir bílstjórar eru slakir bílstjórar) og einungis Guðshjálp bjargar ástandinu. Allar björgunarsveitir höfuðborgarsvæðisins eru kallaðar til, og í startholunum bíða sjúkraflutningamennirnir ef til þess kemur að vindhraðinn fari yfir 15 m/sek.

Það þyrfti að senda 1 aðila úr björgunarsveitinni héðan til þess að halda smá tölu fyrir þetta lið þarna fyrir sunnan, sá aðili gæti t.d. verið Friðrik í Húsasmiðjunni eða jafnvel Gunnar Sigurð Jósteinsson (sem sagði Ólafi Ragnari það svo eftirminnilega hérna um árið að alltaf væri sól á Húsavík, grísinn heyrði þetta ekki og bað Jósteinsson Hreiðarsson að endurtaka það sem hann sagði og Gunnar krosslaggði hendur sínar og bjó til ´skítaglottið´ fræga og sagði honum það aftur að það væri alltaf sól á Húsavík). Auk þess að senda þá Friðrik eða Gunna Sigga, þá væri ágætt ef Ingi Sveinbjörn færi með í þá ferð, og spái ég því að Ingi færi ekki eftir þjóðvegi 1, hann færi yfir svona 15 fjöll á leiðinni, og gist yrði í ca. 3-4 björgunarsveitakofum á leiðinni.

Dreif mig um helgina á bauksa, kominn tími til þess að maður lyfti sér aðeins upp. Þokkalegt um manninn þarna niðurfrá og hljómsveitin Outloud lék fyrir dansi, en hljómsveitin þurfti reyndar að hætta spileríi fyrr en áætlað var vegna þess að hljómborðsleikarinn var laminn af húsvískum hetjum. Þekki ekki þetta mál alveg til fullnustu en þarna kemur það fram spái ég, þ.e. þetta skammdegisþunglyndi sem svo mikið er talað um. Fólk gleymir sér í ruglinu og byrjar að drekka, og er bara harðákveðið í því að best væri nú að lemja einhvern í kvöld. Menn ganga um staðinn ráfandi og reikandi eftir færi á slagsmálum, og ef svo óheppilega vill til að einhver hugsanlega kannski ef til vill rekur sig óvart utan í einhvern er litið á það sem miskunnarlausa árás og henni verður bara að vera svarað með höggi/höggum.

En jæja, best að fara að drífa sig í hjólabuxurnar, setja á sig svitabandið, blanda sér herba og drífa sig út í þetta hefðbundna mánudagsjogg. Ætla að lengja hringinn hjá mér núna og taka 12 km.

Leikmennirnir verða að vinna vinnuna sína. The players have to work their work
                                                                                                -Guðjón Þórðarson

vá hvað deginum yrði bjargað ef ég sæi þig úti að hlaupa í hjólabuxum!
#1
30. október 2006 klukkan 18:40
Ertu alveg viss Þórdís?

Ég hugsa að mér kæmi ekki dúr á auga næstu nætur ef svo vildi til að ég myndi sjá Ævar Þór í hjólabuxum og með svitaband.

Andskotinn, nú er þessi mynd föst í huganum á mér!
#2
30. október 2006 klukkan 22:26
Sammála Degi...þetta verður það síðasta sem ég sé í huga mínum þegar ég sofna í kvöld og það fyrsta sem ég sé þegar ég vakna....ég er ekki að segja að halda því fram Ævar að þetta yrði eitthvað ósexý, bara pínu skrýtið!!
#3
30. október 2006 klukkan 22:44
Ég flissaði dátt þegar ég innskotið um Gunna Sigga og hæst virtan Ólaf Gr. Grímsson... óborganlegt
#4
31. október 2006 klukkan 03:44
 
Ævar Þ.
Gat verið að perrinn hafi komið upp í dísu ! Aldrei má maður segja frá einhverju svona :)

En hvað er að þessu ! Fólk kemur hérna og lætur mig líta út eins og ég hafi aldrei æft íþróttir ! Eftir að hafa lesið þetta þá virkilega spáði ég í það, þ.e. hvort ég hafi ekki örugglega æft á sínum tíma hand-fót- og körfubolta og jújú, þetta æfði ég af mikilli kostgæfni :)

Myndi segja að þetta með Gunna Sigga og Hr. Ólaf sé ein af hans bestu frammistöðum, þ.e. higgarans.
#5
31. október 2006 klukkan 17:25
Það er nú óóótrúlegt, en satt að mér finnst kuldinn hér á suðurlandsundirlendinu mikið kaldari en fyrir norðan, rigningin er líka mikið mun blautari :)
En ég verð nú að tjá mig aðeins um Gunna Sigga (vonandi verður hann ekki vondur við mig fyrir vikið) en ég hitti hann eitthvert sinnið sem ég var fyrir norðan og já, maðurinn ætti að fá sér túlk eða skrifblokk þannig að maður skilji allt sem kemur út. Ég veit að ég er stundum (kannski oft) slæmur en boy o boy þetta var hreint skelfilegt. Þannig að ég skil vel að Hr. Ó. R. G. hafi lent í vanda með kallinn.
#6
31. október 2006 klukkan 23:13
Hey Ævar! Þú getur nú ekki alhæft svona að allir reykvíkingar séu lélegir bílstjórar! Ég er nú hinn best bílstjóri, svo ég segi sjálf frá ;) En get þó verið sammála þér að meirihluti borgarbúa séu alveg hörmulegir bílstjórar...en mundu bara...Ég er undantekning! hehe :)

En það er aldeilis hvað tískan á Húsó er orðin smekkleg...bara farinn að ganga aftur í hjólabuxum..eða við skulum segja hlaupa ;) Verð að segja að það er ekki mjög fallegt...hjólabuxur og svitaband...en hvað get ég sagt...Ég er bara borgarbarn út í eitt :)

Bestur kveðjur..
þín uppáhaldsfrænka í borginni! :o)
#7
01. nóvember 2006 klukkan 17:23
 
Dagur
Ég bý nú í borg bleytunnar og verð að segja að þá Íslendinga sem klæðast ljótustu fötum af öllum Íslendingum er nánast alla að finna í Reykjavík :)

Ég tel mig ekki vera Reykvíking þannig að ég tók þetta bílstjóra komment ekkert til mín. Enda aldrei lent í tjóni á þeim 11 árum sem ég hef haft bílpróf :)
#8
01. nóvember 2006 klukkan 18:18
 
Ævar Þ.
Já Stjáni, hvur hefur sinn djöful að draga í þessum efnum en Higgaranum hefur nú farið heilmikið fram svona á seinni árum :)

Fyrst að þú Erla mín ert svona náskyld meiraprófsbílstjóra þá ert þú eflaust fyrirmynd margra kynsystra þinna í umferðinni :)

Ég veit til þess að eftir þessi venjubundnu jogg min þessa mánudags-miðvikudags-fimmtudags-laugardags- og sunnudagsmorgna í hjólabuxum þá hafa fataverslanir hér í bæ verið að rýma til í hillum fyrir hjólabuxum og svitaböndum :)

...ég hef séð til þín Dagur í umferðinni, heldurðu að það sé einhver tilviljun að þú sért komin með nickname-ið Dagur "Bangsi" sem sennilega er skýrskotun í Róbert Bangsa ! :)
#9
01. nóvember 2006 klukkan 22:51
 
Erla Björk
Hæ Ævar minn,vildi bara kvitta fyrir mig;) síðan finnst mér allt í lagi að þú farir að blogga um hvað þú saknir mín ógó mikið í Olís:)
Bið að heilsa!
#10
02. nóvember 2006 klukkan 20:19
 
Ævar Þ.
Erla mín, ég á bara svo erfitt með að skrifa um söknuðin sem brýst um innan í mér, að ég hef mig bara varla í það mál hnökralaust. Mér líður svipað og Indriða þegar hann hafði sig ekki einu sinni lengur í að taka slátur ! :) En ég geri þennan söknuð upp fljótlega hérna á síðunni, því amma mín sagði mér það einu sinni að það þýddi ekkert að bæla tilfinningarnar innra með sér, maður þyrfti að spúa þeim bara út, hvort sem þær voru góðar eða slæmar :)
#11
02. nóvember 2006 klukkan 22:35
 
Erla Björk
Og veistu það er alveg rétt hjá ömmu þinni,,komdu bara með það Ævar hleyptu þessum tilfinningum út!Hlakka til að lesa næsta blogg;)
Bið að heilsa Hrólf!
#12
03. nóvember 2006 klukkan 14:08

Skrifa athugasemd