(skiptiborð) "Bakarískeðja ÆÞÆ góðan dag"
06. nóvember 2006 klukkan 21:40
Já, ákvað það þennan daginn að engin af þeim uppskriftum sem ég ætlaði mér að baka yrði í dag. Þess í stað ákvað ég að gera Skinkuhorn. Tók auðvitað út hvað ég átti í bakarahillusamstæðunni minni, og kom það auðvitað ekkert á óvart að ég átti ca 80% af þeim hráefnum sem þurfti í skinkuhornin. Hitti litla stelpu sem heitir Erla Björk og hún sagði mér frá sinni reynslu af skinkuhornum og saman spjölluðum við um skinkuhorn í góðar 15-20mín. Ég spurði hana að því hvort ætti að notast við smjörlíki í stað smjörs í verkið og hvort þyrfti ekki að nota bökunarpappír þegar hornin væru að bakast. Auðvitað var stelpan með þetta allt á kristaltæru, þ.e. hvernig átti að framleiða skinkuhorn.Þrátt fyrir að vera frábær bakari, er alltaf gaman að hlusta á reynslusögur annarra sem handleika kökukeflið og gat ég nýtt mér sitthvað af því sem Erla hafði að segja og færi ég henni bestu þakkir fyrir það :)
Allavega, þá hefur skúffukakan frá því um daginn slegið það rækilega í gegn að síminn hjá mér hefur vart stoppað, og hafa það verið kvenfélagskonur í stórum stíl að óska eftir allskonar uppskriftum. Ég hef, þó glaður hefði ég viljað, ekki getað svarað miklu í þeim efnum, því það er með mig, eins og Jamie Oliver, að við notumst voða lítið við einhverjar sérstakar og heilagar uppskriftir. Þó eru enn nokkrir afbrýðisamir aðilar þarna úti sem geta vart skilið það (og vilja það kannski ekki bara) að ég er frábær að baka, og nota hvert tækifæri til að draga það í efa að ég geti bakað. Ég hef því, eftir að hafa sofið á því í nótt, ákveðið að sýna fólki myndir af þessu öllu saman í dag. Fólk getur farið hérna í myndir, uppi til hægri og valið þar "Nóg að gera á stóru heimili" held ég, og séð það hversu öflugur í eldhúsinu ég er !
En jæja, best að fara að huga að næsta bakstri og þeir sem það vilja, geta leitað til mín og ég þá reynt að baka það sem fólkið vill, en eins staðan er akkúrat núna eru næstu 2 vikur uppbókaðar...1 brúðkaup, 2 fimmtugsafmæli og fleira á döfinni.
Fín sending Stefán
Lesandi ;)
Þú er svo heilbrigður Ævar minn ;) ha ha ha,,,,,en góðar myndir :)
#1
07. nóvember 2006 klukkan 00:11
Aðalsteinn J.
Maður spyr sig, hvað veldur?
Í mínum huga er þetta auðvelt, þetta eru pólsku áhrifin!
Í mínum huga er þetta auðvelt, þetta eru pólsku áhrifin!
#2
07. nóvember 2006 klukkan 00:37
Ævar Þ.
Þakka hlýleg orð í minn garð lesandi kær.
Aðalsteinn, aldrei að vita nema maður bjóði þér fljótlega í skinkuhorn, nú eða skúffuköku ! Þetta comment frá þér bar fyrst og síðast keim af mikilli afbrýðisemi, sem ég var reyndar búinn að búa mig undir af hálfu ýmissa manna. Mér er það kært að bjóða félögum mínum í bakkelsi til mín, við jafnvel eins og einn fótboltaleik eða svo. Ég virðist hafa þetta bakarablóð í blóðinu :)

#3
07. nóvember 2006 klukkan 01:37
hæhæ... kallinn... bíð spenntur eftir að koma á víkina og fá þá hugsanlega heimabakað bakkelsi hjá þér...
#4
07. nóvember 2006 klukkan 03:53
Andri B
jahérna......hvað er í gangi? Ertu þá ekki byrjaður á heimatilbúna jólakransinum? ;)
#5
07. nóvember 2006 klukkan 08:01
Ævar Þ.
Áhugavert innlegg hérna frá Andra, og aldrei að vita nema maður búi sér til 1 jólakrans.
Stéttarfélagið í þing.sýslum hafa samkvæmt mínum heimildum haldið svona föndurkvöld í byrjun desember, og þar koma saman margar ábyrgar húsmæður saman og tala sig saman um jólaföndur, m.a. jólakransa. Ég tel talsverðar líkur á að undirritaður mæti á þannig samkomu og búi til eins og einn krúttlegan jólakrans, enda á þetta ekki að kosta nema 1.000 kall þar sem allt er innifalið, sem er enginn peningur m.v. áhugaverðar samræður við húsmæður um m.a. jólakransa fyrri ára :)

#6
07. nóvember 2006 klukkan 20:27
Andri B
hehehe enda áhugaverður maður!
#7
07. nóvember 2006 klukkan 22:30
Erla Björk
Ævar minn ég vild bara þakka þér innilega fyrir nýbökuðu skinkuhornin sem að þú færðir mér í vinnuna og segja þér í leiðinni að þetta voru BESTU skinkuhorn sem að ég hef smakkað og ég er ekki að ljúga!!!Þú átt svo framtíðina fyrir þér í bakstri,núna ertu búin að finna réttu hilluna í lífinu ekki spurning;)Hlakka til að koma í heimabakaða pizzu á næstunni:)
#8
08. nóvember 2006 klukkan 16:37
valdi
hvenar kemuru inná eyri og setur í einn ofn eða svo?
#9
08. nóvember 2006 klukkan 18:12
Takk fyrir gleðina sem þessi færsla veitti mér! Verst að geta ekki smakkað miðað við hvað þetta er girnilegt á myndunum.
#10
08. nóvember 2006 klukkan 18:52
Guðrún María
Hahaha !! Líst vel á þig brósi ;0) Það er eins gott að maður fái að smakka bakkelsið hjá þér þegar ég kíki næst á víkina !
Heyrumst :)
Heyrumst :)
#11
09. nóvember 2006 klukkan 06:28
Ævar Þ.
Hvað segirðu Erla ??..BESTU skinkuhornin já ! Jaaa, þetta eru nú ekki dónaleg skilaboð frá neytenda skinkuhornanna minna, ég segi nú bara ekki annað ! :) En pizzan verður bökuð fljótlega, og ekki þarf að velkjast í vafa um það að botninn verður aðeins unnin úr bestu fáanlegu hráefnum, ekkert svona tilbúið Kristjáns-dæmi !
Já Þórdís, mér bara fannst ég knúinn til þess að setja inn myndir af þessu, því eins og ég kom að, þá eru aðilar þarna úti sem af einskærri afbrýðisemi, hafa dregið baksturshæfileika mína í stóran efa ! En þú færð heimboð þegar þú kemur á víkina :)
Ég skal skella í deig fyrir ykkur systir góð og valdi, því ekki vil ég að litla frænka mín fái baksturslaust uppeldi. (það þýðir ekkert að malda í móginn og tala um litlu flötu súkkulaðikökurnar ykkar, það er ekkert mál að fara í haggarann og versla sér þessar kökur sem aðeins þarf að setja í ofn í 30mín) :)
...en ítreka þessi skilaboð frá Erlu, þar sem hún talar um...já BESTU skinkuhorn sem hún hefur smakkað ! :)

#12
09. nóvember 2006 klukkan 13:18
hahah þú ert pottþétt eitthvað þroskaheftur....tekur myndir af þér að baka skinkuhorn....æji!!....ég verð samt að fá smá smakk þegar ég kem um jólin....:)
#13
09. nóvember 2006 klukkan 18:47
Ævar Þ.
Ástæðurnar fyrir myndatökunni af þessum miklu afrekum mínum með sleifina í hönd, eru tvær.
1. Fólk í dag er hætt að draga það í efa, þegar ég segist vera að baka.
2. Gott líka að þegar maður er að spá í að baka, og hugsar með sér...neineinei, ég kemst aldrei yfir þessa uppskrift...þá er nú sérdeilis fínt að fara inn í myndamöppuna "Frábærar bakstursmyndir af mér" og sannfærast um að ekkert stöðvar mig í að baka ljúffengar tertur eða kökur ! :)
..er einmitt núna að gera klárt fyrir snúðabakstur.

#14
10. nóvember 2006 klukkan 13:53
Ævar...ertu bara að baka handa þér...þetta hljómar eins og þú eigir 3 konur og 15 börn!!!
#15
10. nóvember 2006 klukkan 18:02
Ævar Þ.
Tinna þú veist það ósköp vel að sá sjúkdómur sem ég hef staðið í, undanfarin ár er þess eðlis að ég verð að borða mikið. Hef nú verið feiminn við að tjá mig um þetta mál, en ágætt að þú komst svona óbeint inn á þetta. En ég get allavega upplýst það nú að ég er laus úr viðjum Anorexíunnar og hef fengið lyst á öðru en vatni og gúrkum. Þannig að nei, er hvorki með þremur kvenmönnum eða á 15 börn :)
#16
10. nóvember 2006 klukkan 21:18
Anna
Hey verður mér kannski boðið í mat ef að ég kem norður í land....gæti verið í nokkra daga þar sem að maður er alltaf veðurtepptur þarna :)
Kveðja úr borginni:)
Kveðja úr borginni:)
#17
12. nóvember 2006 klukkan 07:26
gudda sys
farðu að blogga drengur !!
#18
13. nóvember 2006 klukkan 05:08
Hahah geturðu ekki skellt þér í borgina og bakað þar líka ;) Skal með glöðu geði lána þér eldhúsið hjá mér hehe ;)
Annars er ég nú sjálf alveg ágætis baksturkona ;) Hef allavega fengiðp hrós fyrir að vera myndarleg í bakstrinum...en held ég þurfi að fara á námskeið í eldamennsku :/ Kannski betra áður en maður nær sér í almennilegt mannsefni ;)
En bið kærlega vel að heilsa á víkina sem og eyrina ;)

#20
13. nóvember 2006 klukkan 16:18