Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Tæknileg mistök

20. nóvember 2006 klukkan 12:35

Jájá Árni. Tæknileg mistök, hárrétt hjá þér.

Það kom bersýnilega í ljós í fréttatímum í gærkvöldi hvað ég hafði að sjálfsögðu rétt fyrir mér nú um daginn þegar ég tók fyrir "veðurofsa" á höfuðborgarsvæðinu. Fyrsta frétt í fréttatímum dagsins í gær var um snjókomuna í reykjavík. Ég hjó sérstaklega eftir spurningum fréttamanns á RÚV (og fannst mér með heilmiklum ólíkindum að ég, ásamt einhverjum öðrum erum að borga þessum fréttamanni laun fyrir störf sín), en þannig var að hún stóð þarna og talaði um þessar "náttúruhamfarir" þeirra sunnanmanna og við hliðina á henni stóð maður með skóflu, svona staðlaðar skóflur örugglega sem björgunarsveitir í reykjavík hafa sent í öll hús í reykjavík vegna þessa óveðurs. Allavega, þá stendur hún þarna við hliðina á honum og komu m.a. 2 spurningar, fyrsta spurningin var "Er mikill snjór" og spurning nr.2 var "Ertu búinn að vera lengi að moka". Okey, ef um væri að ræða atvinnufræði hjá Ingólfi, eða starfskynningu hjá fólki sem væri á meðferðarheimili, þá tæki ég þessar spurningar góðar og gildar, en þarna stendur hún og spyr um það hvort mikið sé um snjó. Það er a.m.k. þannig hjá mér, að ég spyr spurninga sem ég bersýnilega veit ekki svarið við, en ef ég stend úti, þar sem mikill/lítill snjór er, þá hef ég alveg dómgreind í að segja mér það sjálfur. Það kæmi nú aldeilis skrýtinn svipur á nágrannan ef ég færi út, og hlypi að næstu útidyrahurð, og dinglaði þar bjöllunni og spyrði ábúandann þar hvort væri mikill snjór eða lítill snjór. En já, aðalatriði málsins er að mikið óveður skall á í reykjavík, og fóru fréttastofur landsins, sem hafa, kannski eðlilega, höfuðstöðvar sínar í reykjavík heilmikinn í að tilkynna fólki um þennan veðurofsa sem skapaðist. Það kom svona 10.000 sinnum verra veður hérna á víkinni um daginn, og ekki man ég eftir að Bogi Ágústs eða Sigmundur Ernir hafi verið hér á svæðinu til þess að horfa á fólk moka snjó (fyrir utan hvað það er óendanlega pirrandi) og spyrja þá að því, hvort mikið væri um snjó !

En já, aðeins að pólitíkinni, Árni Djónsen er mættur aftur til þingstarfa, eftir næsta vor. Mörgum finnst það pirrandi að maður sem misnotaði aðstöðu sína illilega á sínum tíma, á launum hjá skattgreiðendum þessa lands, skuli geta dottið inn á þing aftur. En þetta voru víst bara tæknileg mistök á vestmannaeyingnum knáa, reyndar að hans sögn. Frjálsyndi flokkurinn er rasista-flokkur, þeir opnuðu innflytjendaumræðuna á svo vitlausum stað að það nær ekki nokkuri tali, þeir fimmfölduðu held ég fylgi sitt, og hef ég komist að því hvaða þjóðfélagshópar það eru, sem hrönnuðust (þó ekki Hrönn Kára) á bak við Magnús Þór og félaga í frjálsynda. Ég ætla ekki að tilgreina hvaða hópar það eru, sem eru svo obboðslega glærir að þeir sjá ekki að þetta útspil er eitt það lágkúrulegasta sem ég man eftir.

Liverpool - Liverpool F.C. eru búnir að skíta upp á herðar. Stjóri liðsins, sem hefur einhvern þann alleiðinlegasta hreim sem ég veit um, talar um að þetta sé allt í lagi, í 99 leikjum af 100, þá hefðum við sigrað lélegt lið Middlesbrough ! Nákvæmlega þarna, er vert að spá aðeins í hlutina og spyrja hvort Rafael Benitez sé:

a) Heilaskemmdur
b) Dópisti
c) Með ólæknandi blindu
d) Veruleikafirrtur
d) Meinilla innrættur

Ég ætla ekki að taka sterkara til orða en svo að hann sé á villgötum með þetta lið, en alltaf er hægt að sjá ljósið í myrkrinu. En ljósið í myrkrinu er ekki að finna í Reina, Riise, Carragher, Gonzalez, Zenden, Pennant, Bellamy og Crouch svo dæmi séu tekin.

Ég er orðinn svo pirraður á gengi Liverpool að ég finn það ekki einu sinni hjá mér að baka !

Núna er ég líka orðinn svo pirraður á gengi Liverpool að ég finn það ekki lengur hjá mér að skrifa meira.

fín sending Stefán

 
gmaría sys
hahaha flott blogg hjá þér bróðir kær :)
hvenær eigum við annars að fara að hittast ?
call me !
#1
20. nóvember 2006 klukkan 14:33
 
Aðalsteinn J.
Ég finn hjá mér þörf til að setja örlitla athugasemd hér um gengi Liverpool og þau orð sem þú hefur um liðið og stjórann hér. Ég vil meina að með þessum orðum sé þú loksins búinn að gefa þetta fræga gula spjald til Rafa sem svo lengi hefur verið í umræðunni. Þetta eru stór orð af þinni hendi sem verða ekki túlkuð á neinn annan hátt en að þú sért óánægður og gefir Rafa gult spjald!
#2
20. nóvember 2006 klukkan 17:14
 
Guli Videkongurinn
Það er greinilegt að menn hafa gerst sekir um óhóflega bjartsýni og eru nú loks að éta oní sig stóru orðin. Einnig gott að sjá að þú ert loksins farinn að jafna þig eftir 3-0 tapið og ert farin að hafa andlega heilsu til að skella þér fram á ritvöllinn á ný :)

Tek undir með Alla. Þetta er augljóslega gula spjaldið! Og svei mér þá ef þetta er ekki bara ósk um það rauða líka! Ég vil svo benda á að Worthy er á lausu ;)
#3
20. nóvember 2006 klukkan 17:21
 
Ævar Þ.
Gudda ég kem við fyrsta tækifæri, svo ég tali nú ekki um það tækifæri er þú veitir uppáhaldsbróður þínum góðan afslátt af nýju 400 vélinni ! :)

Þessa taktík þekki ég mætavel hjá ykkur félögum, þ.e. að hringja sín á milli og láta svo til skarar skríða sitt í hvoru lagi, annar í grundagarðinum og hinn á nesinu. Þetta er ákaflega einfalt, Benitez er á villigötum með liðið, það þýðir ekki að maður eigi að veifa gulum og rauðum spjöldum, það er tækifærismennska að hætti frjálslyndra, ég styð ekki þannig aðgerðir. Minni á að saur Alex Ferguson var á villigötum í að verða 10 ár án þess að árangur náðist !
#4
20. nóvember 2006 klukkan 20:35
 
Aðalsteinn J.
Hvenær voru þessi 10 ár? En það er gott að þú ætlir að gefa Rafa svo langan sjens. Við þurfum þá ekki að hafa áhyggjur af góðu gengi Liverpool á meðan.
#5
20. nóvember 2006 klukkan 23:55
 
Ævar Þ.
Á árunum milli 1967 og 1993 vann United efstu deild í englandi aldrei ! Ef minnið er ekki að svíkja mig, þá tekur Ferguson við United 1986, og erum við að tala um 7 ár, eða eins og ég sagði í að verða 10 ár. Hinsvegar, skal ég fyrstur manna viðurkenna að árangur Ferguson var ágætur á 10.áratugnum.

Góðu gengi Liverpool segirðu, telst það ekki gott gengi lengur að verða evrópumeistari ? Ég get svosem skilið það vel ef United menn telja þá keppni ekki með lengur, þar sem þeir hafa sigrað þá keppni jafnoft og Nottingham Forest.
#6
21. nóvember 2006 klukkan 01:38
 
Aðalsteinn J.
Þolinmæði á stjórum er semsé mæld í árum án meistaratitla (í deild). Hvað er Rafa búinn að vera með liðið lengi, tvo tímabil er það ekki. Ekki verður hann meistari í ár. Þannig að þetta eru hartnær hálfur áratugur sem hann hefur þegar klúðrað því að gera Liverpool að enskum meisturum.

Hvað á hann að fá langan tíma?
#7
21. nóvember 2006 klukkan 05:40
 
Ævar Þ.
Næstu 2 leikir í deild eru gegn City og Portsmouth heima. Ef að verða ekki 6 stig úr þeim leikjum þá get ég gefið Benitez þetta fræga gula spjald sem þið viljið að ég ólmur gefi honum.
#8
21. nóvember 2006 klukkan 05:54

Skrifa athugasemd