Það sem á daga mína hefur drifið...
...er vinna - sofa - og baka ![]()
Ég hef ákveðið að gefa bakstrinum hjá mér undanfarið einkun.
1. Man fyrst þegar ég ákvað að baka bara eins og það hafi gerst í gær (það eru nú ekki nema held ég 3 vikur síðan (en ég er mjög gleyminn samt)) Var að rölta frá tannburstanum og stærsta vandamálið í þeirri gönguferð var það, hvort ég ætti að halda áfram á St.Andrews, þ.e.a.s. á 3 hring í Tiger Woods leiknum, eða þá hvort ég ætti að halda áfram að brillera með Liverpool í FIFA í PS2. Ég labba hægt og man ég eftir því að ég fékk hausverk af þessum vangaveltum. Staðnæmist fyrir framan nýja sófann minn, og horfi upp í loft, lít í kringum mig og þar er amma mín heitin á vegg, og ég les það svo greinilega á vörum hennar, "ævar minn, hvernig væri það nú ef þú færir bara að baka" ? Ég svaraði henni í huganum "jú, veistu amma, best ég geri það bara".
2. Dreif mig niður í búð og verslaði mér í skúffuköku og bjó hana til og til svo sannarlega gamans má geta að þetta var mín fyrsta skúffukaka og þegar ég beit í fyrsta bitann af henni, þá leit þetta út eins og um væri að ræða mína þúsundustu skúffköku. Einkun 9,0 (ekki 10,0 vegna þess að ég notaði ótæpilega mikið af kókosmjöli)
3. Næst á dagskrá, eftir að hafa brillerað svona með skúffukökuna, voru skinkuhorn. Þau tókust einnig allt að því óaðfinnanlega. Ef ég ætti að ´krítisera´ sjálfan mig á einhvern hátt, þá er hægt að segja sem svo að það voru mistök að hafa ekki skinkubita/kurl í þeim, en skinkusmyrjan gerði það að verkum að hornin brögðuðust átakanlega vel. Einkun 9,0
4. Súkkulaðisnúðarnir voru næstir á dagskrá, fyrsta uppskrift gekk eins og í sögu og velti ég því alvarlega fyrir mér hvort ég gæti jafnvel gert þetta blindandi ! Þegar ég svo deildi þeim út í bæ, upphófust mikil fagnaðarlæti, og gekk fólk berseksgang í að hæla þessum snúðum, sumir meira að segja gengu svo langt að segja að um bestu snúða sem þau höfðu smakkað væri að ræða. Einkun 10,0
5. Þá dundi yfir mig áfallið ! Ég gerði aftur snúðana, og þarna greinilega var ég farinn að álíta mig sem týnda bakarann. Gerdeigið, sem eins og flestir vita á að vera mjúkt og helst örlítið blautt eftir ´lyftingu´ hafði svo lítið sem ekkert lyft sér og þá voru góð ráð dýr. En ég hafði ekki þessi ráð en hélt engu að síður ótrauður áfram með uppskriftina og kláraði að baka þessa snúða, þeir voru frekar harðir og grunar mig að annaðhvort hafi ég sett of mikið af hveiti í skálina, eða þá að smjörlíkið sem ég bræddi og mjólkin sem ég hitaði hafi ekki verið nógu heitt þegar ég skellti því skálina. Einkun 6,0 (6,0 fyrir að hafa ekki gefist upp og fleygt deiginu í ruslið ásamt öllum þeim áhöldum sem ég hef verslað undanfarið í tilefni af bakstursáráttu minni)
6. Eftir töluverðar vangaveltur um það sem fór úrskeiðis við síðasta bakstur var haldið áfram í gærdag. Ég ákvað að gera svona snúða, en þó ekki súkkulaðisnúða, ákvað að gera skinkusnúða. Til að gera langa sögu stutta, þá brögðuðust þeir snúðar eins vel og hægt var að hugsa sér. Ég hringdi í mína nánustu og sagði þeim frá þessu og vildu þeir eðlilega endilega fá að smakka á þessu lostæti sem ég hafði búið til og einn þeirra skoðaði meira að segja hendurnar á mér og vildi fá að vita hvaða töfrar væru þar að finna. Einkun 10,0
7. Nú, fljótlega upp úr hádegi var búið að ráðast svo harkalega á snúðanna að þeir kláruðust fljótt. Við því var brugðist fljótt, ég skellti því í aðra uppskrift bara og hafði hana örlítið stærri, og ekki þarf að spyrja að því hvernig það tókst, svo ég vitni nú í hana móður mína orðrétt "æji takk elskan mín, ég verð nú bara að fá þig til að baka fyrir mig alltaf" Já, þið sáuð rétt, móðir mín notaði orðið ´alltaf´ við þetta tilefni. Einkun 10,0
Nú hef ég ákveðið það eftir töluverðar bollalegginar á kaffihúsum bæjarins að baka 6 sortir fyrir þessi jól. Sortirnar hafa þó enn ekki verið ákveðnar en fyrr en seinna mun ég upplýsa hvaða sortir það verða sem munu prýða kökuílát margra heimila víðsvegar af á landinu nú um hátíðirnar.
Ætla að leyfa nokkrum myndum að fylgja með þessum skrifum![]()
![]()
![]()
![]()
fín sending stefán
hlakka til að smakka skinkusnúðana, er búin að heyra að þeir séu skuggalega góðir ;0)
Kem að öllum líkindum ekki um helgina svo ég verð að redda hrærivélinni til þín á einhvern hátt. (Þú veist, þessi sem ég ætla að lána þér ;)
Heyrumst
Gudda sys - Reikna með að byrja jólabaksturinn ekki seinna en á þriðjudaginn, svo við verðum að koma henni frá ómenningunni og yfir í menninguna helst ekki seinna en á mánudaginn.
Videokóngur - Þetta eru nú ekki handónýt skilaboð frá þér, sérstaklega hjó ég eftir því að undir hrjúfu yfirborðinu búi mjúkur og feminískur maður. Þetta fannst mér einstaklega vel að orði komist, og þakka ég góðar kveðjur.
Ég hreinlega trúi ekki að þú getir bakað eitthvað gott. Ég smakkaði hjá þér um daginn súkkulaðisnúða, sennilega sinni árganginn, þeir voru eins og þú lýsir hér að ofan "frekar harðir" ég hefði lýst þeim sem mjög hörðum og á barmi þess að vera ætir. Held ég að þessi bakstur hafi sýnt þitt rétta eðli..hitt er bara skáldskapur því það hefur enginn utan fjölskyldunar smakkað neitt annað. Og auðvitað stendu fjölskylda þín með þér í þessu. En ég er auðvitað alltaf tilbúinn að aðstoða vini mína og þess vegna tel ég gáfulegast að ég og kollegi minnn Steini bakari lítum við hjá þér um jólin og ráðleggjum þér við baksturinn.
Góðar stundir.