Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Jólin koma...Jólin koma (verður að raula þetta eins og í laginu)

06. desember 2006 klukkan 14:50
Já, ég er nú aldeilis sérdeilis logandi hræddur um það, að jólin séu að næsta leyti ! Alltaf þegar aðventan gengur í garð, aðeins örfáir dagar í laufabrauðsgerð, Hafliði Jósteins búinn að draga upp úr kommóðunni sinni jólasveinabúning, jólalögin farin að yfirtaka útvarpið hjá manni, bæjarstarfsmenn búnir að hengja upp jólaljósin m.a. þá minnir það mann á að hátíð ljóss og friðar eru við það að ganga í garð !


Þau skylduverk sem maður þarf að vera búinn að gera fyrir hver jól, sem ég er búinn að gera fyrir þessi jól eru eftirfarandi:

- Búinn að taka fram jólatréð og búinn að skreyta það.


Þá er það upptalið og eins og sjá má, þá á ég heilan helling eftir að gera á næstu dögum og vikum til þess að uppfylla þau skylirði sem jólin draga á eftir sér. Ég á t.d. eftir að kaupa allar jólagjafir, kaupa og skrifa jólakort, kaupa mat, kaupa gos, kaupa toblerone o.s.frv.o.s.frv.

Skrýtið samt með það, hvað maður er árstíðarbundin með hina ýmsu hluti, s.s. Toblerone-ið, nú finnst mér Toblerone mjög gott súkkulaði, alltaf gott þegar hvítu flögurnar í því ágæta súkkulaði klessist upp á milli tannanna á manni og maður er a.m.k. 2-3 daga að losna við það, ef maður á ekki tannþráð. Ég reyndar nota tannþráð, svo ekki á ég við það hvimleiða vandamál að stríða. Sömu sögu er að segja um laufabrauð, mér finnst fínt að fá mér laufabrauð (tek einmitt 30 kökur þetta seasonið), en einungis borða ég það um jólin. Mér finnst reyndar bollur ekki góða, þið vitið, svona vatnsdeigsbollur og gerbollur o.þ.h. bollur, en fullt af fólki borðar þær einungis dagana í kringum bolludaginn. En já, nóg af því, ég er @líst búinn að skreyta jólatréð og gerði ég það undir ljúfum tónum íslenskra tónlistarmanna og voru það helst lög á borð við "Líður að jólum" með Stebba Hilmars og "Litla Jólabarn" með Andreu Gylfa sem auðvelduðu mér verkið, eina sem vantaði upp á var heitt kakó. Stefni að því að klára að skrifa jólakort fljótlega og ætla ég skrifa talsvert mikið af jólakortum. Ég er búinn að fá 1 stk jólakort fyrir þessi jólin, ég hyggst ekki senda henni/þeim til baka, en einhver gilsstaðarkona sendi mér jólakort með boðskap jesús og guði og fleirum, frétti að margir aðrir hafi verið þess heiður aðnjótandi að fá jólakort frá þessari konu einnig.


Sheik Mohammed bin Rashid Al Maktoum er hugsanlegur kaupandi að Liverpool F.C. Held að þetta sé hinn vænsti kall þrátt fyrir yfirlýsingar frá stuðningsmönnum annarra klúbba um að svo sé ekki. Það var einmitt m.a. hádegisfundur í gærdag og ljóst er að fullt af fólki er afbrýðisamt út í stuðningsmenn Liverpool, vegna þessara hugsanlegu kaupa. Menn segja að þessi Sheik sé allt að því hryðjuverkamaður, en kommon, eins og ég sagði á fundinum þá væri auðvita auðvelt að finna e-ð að honum, auðvitað hefur hann stigið feilspor í lífinu en hann á nú skilið annað tækifæri, bara eins og Árni Johnsen. Nú á dögum, þar sem geisar stríð út um víða veröld þá bara verðum við að finna það góða við náungan endrum og sinnum, og fullyrði ég að Sheik þessi er bara flottur kall.


Svo minni ég fólk á að Robbie Fowler skoraði bæði mörkin í 2-3 tapi gegn Galatasaray í gærkv. en Liverpool spilaði með varaliðið sitt (fyrir utan Fowler) enda fyrir lifandi löngu komið upp úr þessum erfiða riðli sem það var í.
Fín sending stefán

Guðs vegir eru órannsakarlegir(",)...2svar að verki í Tyrklandi á Midvikudagskvöld...Behold,The Almyghty GOD..Robert Bernard Fowler...komdu svo með nýja könnun drengur
es..ég er GEYSI þakklátur fyrir þetta Gilstafólk:)
#1
07. desember 2006 klukkan 21:04
 
Anna panna
Hvað fæ ég í jólagjöf ??
#2
12. desember 2006 klukkan 06:45

Skrifa athugasemd