Könnun

Hefurđu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Bush er fínn

14. desember 2006 klukkan 12:48

Síðustu dagar hafa verið einkar skemmtilegir, búinn að afreka heilmargt frá því síðast, í þessum jólaundirbúningi. En það sem ég er búinn að gera er að kaupa jólakort & skrifa á nokkur þeirra. Þá er það upptalið. Ég þarf nú sennilega ekki að kaupa nema að hámarki 7 gjafir þessi jólin, sem er nokkuð vel sloppið.

Þessir dagar hafa þó ekki verið áfallalausir, svolítið sérstakt og spúggí mál hefur blossað upp hérna, framleiðendur í hinni snobblausu hollywood gætu tekið þetta mál upp á sína arma og búið til eina mynd eða svo. Heiti myndarinnar gæti verið "The Car". Því einn daginn þegar ég svaf á koddanum mínum hringdi síminn eins og enginn væri morgundagurinn, og var ég þónokkrum sinnum búinn að gefa sá hinum sama afsvar, þ.e. ákvað að sofa lengur. En hann lét sér ekki segjast og bara hringdi og hringdi, þannig að ég snéri mér við tók upp símann og svaraði. Tilefnið var það að bakkað hafði verið á bílinn hjá mér. Alltaf gott að vakna upp við þannig fréttir. Samtalinu lauk, og ég svaf aðeins lengur.
6-7 dögum seinna er ég sofandi, jafn vært og í fyrra skiptið, þegar síminn byrjar að hringja og hringja og hringja og hringja og hringja. Tilefnið var að búið var að bakka á bílinn hjá mér, og var það enginn annar en Haukur Hauksson, oft kallaður Snúlli.
En já, sagan búinn.



Fór í laufabrauð um daginn, og þarf vart að taka fram að allt gekk ótrúlega vel og talaði fólk um að þetta hefði gengið sérstaklega vel þetta skiptið. Setningar eins og "Djöfull munaði um þig Æbbi", "Bíddu, ert þú höfundur laufabrauðsins Ævar?" hljómuðu eftir laufabrauðsgerðina ! Án þess að monta mig e-ð af kunnáttu minni í laufabrauðinu þá voru þetta mjög eðlilega spurningar.

Fréttirnar um daginn, þegar maðurinn lést í slysinu þarna á vesturlandsvegi held ég að það hafi verið, eru býsna sérstakar. Fólk sem sá gjörsamlega handónýta bíla þarna við veginn hringdi víst snælduvitlaust í lögguna og sagði henni að drulla sér í burtu svo þeir gætu haldið leið sinni áfram ! Þetta segir manni eingöngu það að allar geðdeildir eru svo sneisafullar og væri ráð fyrir heilbr.ráðherra að fjölga rúmum og styrkja þennan þátt í kerfinu. En hvað er þetta eiginlega ? Mín spá er að þetta sé vegna jólanna, fólk að farast úr stressi og rugli, ekki búið að kaupa neinar jólagjafir, visa-reikningurinn hleðst upp í aðdraganda jólanna, börnin að gera foreldranna geðveika vegna krafna þeirra um 100.000.-kr jólagjafir og svo deyr maður og 2 bílar í hassi og fólk einfaldlega gleymir sér í bulli og hringir á lögregluna og segir henni til syndanna ! 

En já, að skemmtilegri fréttum, ég leyfði bragðlaukunum mínum að njóta lífsins um helgina, en þeir fengu eftir töluverðan þrýsting á mig, að prófa að fá á sig jólabjórinn frá viking. Það er vægt til orða tekið að segja að þeir hafi verið hæstánægðir með mig þá, og hoppuðu þeir um af gleði í þónokkurn tíma á eftir. En ég gaf þeim loforð um það að þetta yrði ekki eina skiptið sem þeir fengu jólavíkingin á sig.



Jæja...læt þetta duga í bili og vona að þið hafið það sérstaklega gott og endilega hreint látið það vera að hringja í lögguna og segja henni að hypja sig í burtu ef hún er að klippa í sundur bíla með stórslösuðu fólki þar fyrir innan.

Barcelona..ég er sáttur,sheikinn sáttur..allir sáttir(",)..klára þá bara af strax..
#1
15. desember 2006 klukkan 18:17

Skrifa athugasemd