Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Að versla

19. desember 2006 klukkan 07:26
Jæja..flestar jólagjafir komnar í hús, og er ég nokkuð sáttur við það sem ég er búinn að ákveða að gleðja mína vini og ættingja með um þessi jólin, aðeins gjöfin handa litlu frænku minni  , henni Olgu Maríu eftir og ljóst er að það verða ekki vandræði að velja gjöf sem hún verður glöð með :)

En allavega, að deginum sem nú er að líða, vaknaði upp óvenjuglaður í bragði, arkaði framúr eins og Sharon Stone væri að bíða eftir mér ! Dauðhreinsaði allar stýrur í báðum augunum mínum áður en ég burstaði tanngarðinn í mér vel og vandlega. Örstuttu síðar hringir Hrólfur í mig og segist vera á leiðinni og ég allur fuðrast upp, vegna þess að ég var á leiðinni inn á akureyri, þar sem m.a. eru umferðarljós.

@líst, við drífum okkur inneftir, og ræðum ýmsa hluti á leiðinni og marga hverja ansi hreint skemmtilega og erum svo mættir inneftir og röltum hlægjandi inn um rafmagnsdyrnar á glerártorginu (þá leið mér eins og samkynhneigðum). Hrólfur þurfti að byrja á því að kasta af sér, og ég beið eftir honum og síðan fengum við okkur að borða og svoleiðis, versluðum af okkur aleiguna, enduðum á horninu naktir og fórum að selja okkur gömlum ekkjum, máske ekki alveg. Það var þó eitt sem kom fyrir mig, sem ég hef ekki lent í áður, þ.e. hef ekki fengið svona nautsterka tilfinningu fyrir því áður, en það var þegar ég gekk um búðirnar með kerruna mína blístrandi jólalög hægri vinstri, þá fannst mér alltaf gamalt fólk eða fólk sem á, af einhverjum ástæðum hægara um vik en margir aðrir, keyra kerrunni sinni fyrir framan mig og tafði það mig talsvert, stútfullur af jólaanda, brosti bara til þessara gamlingja, já og hinna líka.

En já, stutt yfirgrip yfir daginn er á þessa leið = Keyrðum inneftir, versluðum í glerártorgi - ellingsen - Byko - jmj og átvr. Þetta var hin besta ferð og er ég viss um að Hrólfur deili þessari skoðun minni, að þetta sé ein af betri akureyrarferðum sem farnar hafa verið.

Það var reyndar eitt óheppilegt sem kom niður á (nei upp á), en það var þegar ég verslaði gjöfina fyrir mína elskulegu foreldra, það var þannig að Hrólfur skrapp frá á meðan ég fjárfesti í gjöfinni og gekk það allt gríðarlega vel. Svo beið ég í "forstofunni" í Byko og er þar að finna svona aðstöðu fyrir fólk sem vill pakka inn hlutnum sem það verslaði. Ég stóð þarna hugsi í þónokkurn tíma, áður en ég lét til skarar skríða, þ.e. að pakka þessu hlut inn. Ég hefst handa við að kynna mér hvernig þetta dót virkar, og svo næ ég pappírnum í gegn og byrja að reyna að böggla pappírnum utan um kassann, fyrsta tilraun misheppnaðist algjörlega, svo ég lít í kringum mig, og sé að enginn hafði upplifað þessa hörmulegu reynslu karlmanns á aldrinum 24 ára við að reyna að pakka kassa í pappír. Þannig að ég reyni aftur, en niðurstaðan er sú sama, þ.e. þetta klúðraðist. Þarna var ég frekar "frústíreitaður", og lít til hliðar þar sem standa 2 (tvær) konur að fylgjast með mér, og ég svona brosi til þeirra með þá von í brjósti að þær myndu hjálpa mér, en þeim stakk ekki bros á vör (og hefur aldrei gert spái ég, óhamingjusömustu og leiðinlegustu konur á akureyri) og hristu bara hausinn yfir þessu. Ég leit undan, og lét eins og þetta "ignore" þeirra hefði engin áhrif á mig, en það gerði það svo sannarlega. Gaman samt að segja frá því, að þegar ég kom heim frá akureyri, læsti ég útidyrahurðinni og pakkaði þessu öllu saman inn og árangurinn er stórfenglegur !

fín sending stefán
Treysti því að þið félagarnir hafi verið gáfulegir þegar mín jólagjöf var valin. Vona að þú hafir ekki haft slæm áhrif á Hrólf.
#1
21. desember 2006 klukkan 01:12
Þarna þykist ég þekkja akureyskar konur. "Fokkjú-svipurinn" akureyski er alræmdur og lýsir sér í stuttu máli þannig að kvenfólkið lætur munninn hverfa og augnlokin síga lítið eitt. Þær horfa dágóða stund beint í augun á manni eða uns maður heyrir greinilega (með hugsanaflutningi) "fokkjú..fokkjú..fokkjú"

Hef séð margar þarna innra sem eru fastar svona.

Klikkað lið
#2
22. desember 2006 klukkan 03:30
 
Ævar Þ.
Hrólfur valdi handa þér Þórdís einstaklega fallega jólagjöf, ég táraðist satt best að segja þegar hann sagði mér að "þetta er handa Þórdísi frænku". Hann dettur stundum inn í þennan gír, þ.e. þann rómantíska, og er ég þess fullviss, að hann gæti fengið hvaða kvenmann sem er, til þess að breyta lögheimili sínu í Melstaður !

En já Jói, þetta var sko "fokk-jú" svipur og þær endurtóku hann margoft ! Ég losnaði fyrst við hann úr hausnum á mér þegar ég sá Bergstein á Húsabakka skreyta híbýli sín.
#3
22. desember 2006 klukkan 04:34

Skrifa athugasemd