Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Er víst nokkuð bjart yfir Betlehem

22. desember 2006 klukkan 05:57
Já, okkar maður, Jón Sverrir, kom sá og sigraði í gær, þegar hann brunaði fram af brú einhversstaðar í eyjafirðinum, vegna flóðanna þarna.

M.v. fréttaflutning af þessu máli, kæmi mér verulega á óvart ef sjónvarpsstöðvarnar á íslandi sameinuðust ekki í svona "allir saman" þátt um jólin og söfnuðu fyrir fólk pening, t.d. fólkinu sem missti hestana sína þrjá. Þetta myndi minna á útsendinguna sem stöðvarnar héldu þarna um árið þegar flóðin þarna fyrir austan áttu sér stað.
Ég er enn ákveðnari í þeirri skoðun minni að Þóra Kristín Ásgeirsdóttir fréttakona á stöð2 sé, ásamt sennilega Birni Þorlákssyni á sömu stöð, séu leiðinlegustu fréttamenn sem mynduð hafa verið !
En já, allavega, Jón Sverrir keyrði fram af brú, og samkvæmt vitnum þá er það kraftaverki líkast að hann skyldi halda lífi.


En jæja, flestar fjölskyldur landsins farnar að selja börnin sín vegna eyðsluseminnar fyrir jólin og neita að styrkja björgunarsveitir landsins eftir jólin með kaupum á rakettum af því að "ég get bara horft á nágrannan gera þetta". Held að það væri ráð fyrir Inga Sveinbjörns, Dedda og þessa kalla að selja rakettur fyrir jólin, er viss um að söluaðilar fengu meira í kassann ef það yrði gert.

Ég sjálfur er einmitt komin í sannfærandi frí, langt framyfir áramót og lítur það bara nokkuð vel út skal ég segja ykkur, fríið byrjar á morgun þegar ég ætla að þykjast virka "gloralegur" þegar ég ætla að tengja bakhátalaranna fyrir karl föður minn, spái því að mín sérstæða þolinmæði muni sigra að lokum.

Liverpool fær Watford í heimsókn á laugardaginn, og verður ljóst eftir þá viðureign að leikmenn Watford komi ekki til með að eiga gleðileg jól, því auðvitað munu leikmenn Liverpool sigra þenna leik sannfærandi, ég er reyndar svartsýnn fyrir leikinn og spái leiknum ekki nema 3-0 fyrir Liverpool en bjartsýnin kemur máske á morgun.

Læt þetta duga í bili, og mun væntanlega kasta kveðju á ykkur fyrir jól.

fín sending stefán
 
sneiðin
Það mundi ekki duga að selja alla flugelda heimsins til að standa undir kostnaði að bjarga íslendingum frá þessari geggjun og ómanneskjuhætti.
Þetta verða rauð liverpool jól,vittu til.
Þetta er Grímur Gíslason sem talar frá Blönduósi
#1
22. desember 2006 klukkan 18:36
 
Aðalsteinn J.
Hvers vegna ferðu í svona langt frí Ævar?
#2
23. desember 2006 klukkan 18:48
 
Ævar Þ.
Hef haft það fyrir vana minn undanfarin ár, ef frá eru talin síðustu jól, að taka mér sannfærandi frí, og það er ástæðan fyrir þessu fríi mínu þetta árið.
#3
24. desember 2006 klukkan 02:22

Skrifa athugasemd