Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Eftir 75 ár - Gleðileg Jól

24. desember 2006 klukkan 15:19
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1243522

Á ofangreindri vefslóð gefur að líta grein við 100 ára gamla konu, sem kveðst hafa skemmt sér vel þegar hún var yngri, þ.e. þegar jólahátíðin gekk í garð. Þarna talar hún um að hafa fengið nýja sokka, og nýja peysu, sem móðir hennar hafi að sjálfsögðu saumað á sig, og systkini sín. Ekki voru keyptar einhverjar sérstakar gjafir handa börnunum, eins og tíðkast svo sannarlega í dag.

Hvernig verður þetta eftir 75 ár, ætli maður verði í viðtali við einhvern fjölmiðilinn um það hvernig jólin voru hjá mér í gamla og daga. (og ætli þær sögur yrðu gamaldags)

"Já, ég aldist nú upp á Húsavík, en þá var mikið mannlíf þar á þeim tíma, ekki svona sumarbústaðabyggð eins og er þar nú. Uppáhaldsgjafir okkar krakkanna voru iPod, nýjir tölvuleikir, levis, diesel eða gabba fatnaður. Þá fóru allir út fyrir jólin og eyddu miklum pening við jólagjafakaup. Bankastofnanir þá, lánuðu fólki fullt fullt af peningum sem það gat svo eytt í jólagjafir. Í þá daga, þótti gott að kaupa rakettur og skjóta þeim svo upp, þegar nýja árið gekk í garð. Þá var nú gaman einnig."

Svo er maður spurður af því hvort aðrar breytingar hafa orðið frá þessum tíma ? (75 árum seinna)

"Já, ég er nú aldeilis hræddur um það, mikið af fólki gekk til messu þessa daga, og þá horfði fólk á sjónvarp, á messur og jólamyndir. En þá horfði fólk á sjónvörp sem voru ekki nema 50" sjónvörp. Ekki þessa risaskjái sem nú eru að færa sig inn á öll heimili."

Semsagt, e-ð verður nú sennilega búið að breytast í jólahefðinni eftir ca. 75 ár. Tímarnir breytast og mennirnir með hvíslaði lítill fugl mér um daginn.

Læt þetta verða lokaorðin, og tók ég þá ákvörðun í gærdag eftir að jólakortin (sem ég var búinn að ákveða að yrðu engin af minni hálfu) hlóðust inn um lúguna hjá mér að senda nokkur kort, en þau kort sem ég hef fengið send frá stórreykjavíkursvæðinu, sem og af landsbyggðinni vil ég þakka fyrir og óska þeim aðilum sérsaklega gleðilegra jóla, og gæfuríks komandi árs. En þetta verða nú samt ekki nema 10-15 kort sem ég ætla að hlaupa með í dag.

Gleðileg Jól og farsælt komandi ár kæru lesendur, og megi þið fylgja slóð frelsara ykkar, Jesús Krists á næstu árum og hlýða þeim boðskap sem hann kann ykkur að færa

 3D Santa 





Skrifa athugasemd