Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Í tilfefni af þessu

30. janúar 2007 klukkan 16:13

Það er búið að rigna á þvottinn hjá þér í heila viku !

Jæja, skrifa þetta hérna með miklum skömmustusvip, vegna gífurlegs annríkis undanfari misseri.

Er undanfarið búinn að vera að berjast við alveg hreint óstöðvandi hósta, ég hósta bara og hósta, sem hefur svo leitt út í dúndrandi eyrnaverks.

Jónína Ben var í kastljósinu um daginn, þar sem hún var að segja fólki frá stólpípuaðgerðum, hún taldi þetta mjög gott, þar sem hellingur af saur safnaðist saman í þörmunum okkar og hún var viss um að þessar aðferðir myndu ná þessum glerhörðu kögglum sem myndast í útjaðri þarmanna betur en aðrar lækningar. Svo lauk hún máli sínu á því að segja okkur að þegar Elvis Presley kallinn dó þá hafi innihaldið af saur í honum, vegið 60kg.

Vek athygli á því að þetta var orðrétt svona, og hafði ég ekki matarlyst í ca.2 daga á eftir, og er þetta eflaust tilraun hennar til þess að klekkja á Baug.

Magga Sverris (sem er einmitt dóttir Sverris Hermanns, sem er einmitt bróðir Þuríðar Hermanns, sem er einmitt systir Kaju heitinnar Hermanns, sem er einmitt amma Kela, sem heitir einmitt réttu nafni Áskell Geir) fékk ekki varaformanninn, heldur var Magnús Þór endurkjörinn. Ég tel þessi úrslit mjög hagstæð fyrir aðra stjórnmálaflokka.

Ég fór erlendis um áramótin og er að leggja lokahönd á ferðasögu sem mun birtast hérna innan tíðar.

Ég er nokkurn veginn búinn að ákveða að skipta um blogg-vettvang, halla (vilhjálms) mér að Himma á 123 fljótlega.

Í fyrradag fékk ég slæmar fréttir, að tölvan mín væri hrunin, ég seig niður á hnén og fórnaði höndum í átt til himins og spurði af hverju ! Ég grét voða voða mikið og svaf einkennilega um nóttina og dreymdi mig að einhver kom til mín, og sagði við  mig í sífellu "reddaðu þessu bara" "reddaðu þessu bara" "reddaðu þessu bara" með svona ljúfri rödd, en ég svaraði á móti "en það er búið að dæma hana ónýta" en alltaf fékk ég þessi fyrrnefndu comment til baka. Svo vaknaði ég, búinn að slefa alla hægri höndina á mér út í munnvatni og horslími (sem kom upp úr hálsinum mínum), og byrjaði ég því daginn á að þrífa hana og tók ég mér korter í það. Deginum áður, voru 2 tölvusérfræðingar búnir einmitt að dæma hana ónýta (99% öruggt) og byrjaði ég því á að rölta til pabba og fara á netið og skoða mig um á tölvusíðum o.þ.h. með það fyrir augum að versla mér 1 stk tölvu. Komst að því að sú tölva sem ég var búinn að mæla út, kostaði svipað og 3-4 heimsóknir til tannlæknis. Ég var því á milli steins og sleggju, ætti ég að bara að versla mér hana, eða að fá mér e-ð ódýrara. En jæja, sá lyklaborð þarna á borði, og ætlaði að prófa þetta 1% sem eftir var af voninni um að gamla tölvan væri bara í fínu lagi.

Viti menn (og konur líka okey), plöggaði lyklaborðinu í, og tölvan ræsti sig ! Þetta þýðir það að ég trúi á kraftaverk. Þetta var svipuð tilfinning og þegar ég sé að Luis Garcia erekki í leikmannahóp Liverpool eða þá að honum er skipt útaf í leikjum.

fréttir herma Aevar ad thú sért ekki ad standa thig í vinnunni? er thad rétt? midad vid mínar heimildir thá raed ég thig sko ekki aftur í vinnu!!

kvedja úr Sólinni..:D
#1
05. febrúar 2007 klukkan 06:08
 
Ævar Þ.
Ég hef tekið þessa vinnu gríðarlega alvarlega og hef að mínu áliti staðið mig einkar vel, þannig að þínar heimildir, sem mig grunar að ég viti hverjar eru, eru einfaldlega ekki réttar :)

kveðja til brasilíu úr ca. -2 gráðum :)
#2
05. febrúar 2007 klukkan 17:29

Skrifa athugasemd