Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Liverpool F.C.

07. febrúar 2007 klukkan 09:39
Á meðan ég verslaði mér straujárn og straubretti nú um daginn í rumfó,  þá versluðu George Gillett og Tom Hicks sér Liverpool F.C.

Síðustu vikur og mánuðir hafa verið skrýtnir, Rick Parry, hægri hönd David Moores aðaleiganda Liverpool til fimmtán ára, hefur verið gjarn á að koma fram í fjölmiðlum og upphefja furstana frá Dubai. Talað var um að þau kaup væru svo gott sem frágengin, og aðeins smáatriði væru eftir, og leit þetta smáatriði svipað út og þegar maður verslar sér bíl, og aðeins ætti eftir að útvega manni smurbók með bílnum. Svo kom nafni raksápunnar til sögunnar, en hafði hann lagt fram tilboð í klúbbinn áður, en nú var hann komin með félaga sér við hlið til þess að fjármagna kaupin, sá maður er Tom Hicks.

Í gærkvöldi fór ég svona létt yfir það hvaða menn þetta eru, og fæ ég ekki betur séð en að þetta séu hinir vænstu kallar, m.a. hefur Hicks starfað lítillega með George W. Bush jr. og eru það nú aldeilis meðmæli. Gillett fór illa út úr því snemma á tíunda áratugnum, og lenti í smá fjárhagskröggum en hefur svo náð sér upp úr þeim vandræðum. En með það fyrir augum, þá minni ég á að Björgólfur Guðmundsson lenti einnig illa í því fyrir nokkuð mörgum árum síðan, en allir vita nú á hverju hann lifir í dag, þ.e. yfirdráttaokurvöxtum og fleirum skemmtilegum vöxtum sem þjóðfélagsþegnar í þessu landi þurfa að búa við.

Aðilar, sem gagnrýnt hafa þessi kaup, segja aðeins eitt, "þetta eru einhverjir kanar". Fleira hefur það nú ekki verið, ég hef lengi verið mjög hrifin af flest öllu því sem Bandaríkjamenn hafa gert, og á t.d. bandaríska fánan sem blasir við í stofunni hjá mér, því til sönnunar.

Hinsvegar, skal ég viðurkenna það, að mér leist ekkert illa á þessa fursta þarna frá Dubai svona við "fyrstu kynni", en m.t.t. til þess að aðal-sheikin þarna er augljóslega ofdekraður mömmustrákur sem fékk alltaf dýfu á ísinn sinn þegar hann var lítill strákur, þá er ég ánægður með að hann hafi farið í fýlu. Ástæður þess að ekki var gengið að þeim kaupum, voru m.a. þær að David Moores voru settir afarkostir, þ.e.a.s. hann fékk 12 tíma til þess að ákveða sig, og við það sætti Moores sig ekki við. Einnig vakti það talsverða athygli að "topparnir" frá Dubai létu aldrei sjá sig, en létu þess í stað einhverjar möppurottur fljúga til Liverpool til þess að taka út bókhaldið á Anfield. Þetta fór einnig ekki vel í þá félaga, Parry og Moores.

Eftir stendur að nýjir eigendur Liverpool, þeir Gillett og Hicks, gerðu David Moores að heiðursforseta Liverpool F.C. fyrir lífstíð. Einnig mun Rick Parry sinna áfram því starfi sem hann hefur unnið á Mersey og er það vel, enda augljóslega klár kall með Liverpool-hjartað á hárréttum stað. Tom Hicks þykir einn af þeim klárustu í bransanum, þegar smíða á nýja leikvanga, og var hans aðkoma að þessu máli, eitt af þeim atriðum sem sannfærðu Parry og Moores um að réttir kaupendur væru fundnir, gríðarlegir fjármunir eru að baki þessum kaupum, en rétt að taka fram að með þessum kaupum, skuldbundu þeir félagar sig ekki á nokkurn hátt, og er Liverpool því ekki skuldsett félag, sem verður að teljast mjög gott, ef mið er tekið af öðrum svipuðum viðskiptum með knattspyrnufélög.

Margir poolara eru viðkvæmir fyrir nafninu Anfield, ég er það ekki og eins og Gillett benti á, að ef fengist gott verð fyrir nafnið, þá væri það vel hugsandi að selja það, ef það myndi skila til baka svosem einum mjög góðum knattspyrnumanni. Þessu er ég algerlega sammála.

Talsvert hefur verið talað um að Rafael Benitez fái nú að kaupa þá leikmenn sem hann dreymir um, og hafa margar mjög ótrúverðugar fréttasíður bent á að Benitez fái um 150m.punda til þess að kaupa leikmenn, og hans fyrsta takmark verði David Villa frá Valencia. Þessum fréttum tek ég að sjálfsögðu mjög varlega, og trúi ég því ekki að heimurinn sé svona einfaldur. Vissulega fær Benitez þykkara veski þegar kaupa á leikmenn, en að það verði e-ð í þá átt sem talað hefur verið um á fyrrgreindum vefsíðum, dreg ég í mikin efa.

Þegar við hvolfum svo öllu þessu saman við botnin, þá get ég lýst því yfir að mér líst mjög vel á þessa menn, og spái því að áframhald verði á velgengni Liverpool F.C., og spái því einnig að þeir 18 englandsmeistaratitlar sem komnir eru á Anfield, nái tveimur tugum á næstu 5 árum (þetta season talið með) 
Sem fyrr þá vantar ekki bjartsýnina í púlarana! Reyndar óvenju svartsýnt af þér Ævar að spá bara tveimur titlum á næstu 4.5 árum, reyndar eru þetta "bara" deildar titlar, ekki teknir með allir CL titlarnir og FC cup og hvað þetta heitir.

Ég er alveg sammála þér með Anfield nafnið, hins vegar yrði það eitt það síðasta sem ég myndi samþykkja að selja Old Trafford nafnið og skýra síðan nýjan völl eftir einhverju flugfélagi eða eitthvað álíka!!! Þar er botninum náð finnst mér.

Að lokum þá er ég nokk viss um að þetta hafi verið margfalt skárra að fá þessa kana frekar en einhverja ofdekraða asna frá Dubai eða hvaða sem þeir voru...
#1
07. febrúar 2007 klukkan 19:46
 
Guðrún María
Sæll brói.. bara rétt að skilja eftir mig spor :)
Verðum í bandi*
#2
07. febrúar 2007 klukkan 22:12
 
Ævar Þ.
Þakka þér fyrir litla systir mín :)

Já, sammála þér varðandi nafnið á vellinum, í stað þess að segja "djöfull verður gaman að upplifa söngin á Anfield" þá kannski segir maður "djöfull verður gaman að upplifa söngin á British Airways"

Annars hef ég hingað til þótt hógvær maður þegar kemur að Liverpool og því þarf þetta ekkert að koma á óvart. En ég get alveg nefnt það einnig hér, að á næstu 5 árum, verðum við tvisvar sinnum englandsmeistarar, tvisvar evrópumeistarar og þrisvar sinnum bikarmeistarar.
#3
08. febrúar 2007 klukkan 09:17
Ha ha ha
Er ekki viss um að það geti allir tekið undir þetta með hógværðina:)
Þú verður að átta þig á því að þú sagðir að þetta tímabil væri meðtalið og ekki verða lfc bikarmeistarar í ár. Því hafa þeir fjögur season til að vinna 3 sinnum. Þeir eru enn þá í smá séns í deild og cl.
Það verður fróðlegt að sjá hvernig spáin rætist!!!
Hér með er þetta blogg ásamt athugasemdum vistað til þess að gulltryggja að fimm árum síðar verða þetta aðgengilegar upplýsingar...
#4
08. febrúar 2007 klukkan 10:02
 
Jói Brill
HeyrHeyr Ævar...mikil ánægja með Gillett og co
#5
08. febrúar 2007 klukkan 11:05

Skrifa athugasemd