Kompás - Liverpool
12. febrúar 2007 klukkan 09:03
Það hefur aldeilis farið mikið fyrir Sigmundi Erni, ofurfréttamanni og Jóhannesi Kristjánssyni fréttamanni undanfarið í fréttaskýringarþættinum Kompás. Fyrst negla þeir Gumma í byrginu og seinna nappa þeir barnaníðinga við iðju sína og á svona þáttur fyllilega rétt á sér. Þess vegna var það svolítið skrýtið m.v. þættina undanfarna vikur að heyra í auglýsingu frá Kompás nú fyrir helgi "er of mikið vatn í kjötinu þínu?". Sú umræða á vissulega rétt á sér, þ.e. hvort kaupmenn og þá sérstaklega kjötvinnsluframleiðendur eru að svína á okkur almúganum. Ég bjóst hinsvegar við fyrirsögnum eins og "Hópreið á Bessastöðum" eða "Bullandi vændi í 101" o.s.frv.
En já, Liverpool gerði sér lítið fyrir og skeit upp á haus gegn Newcastle um helgina og voru það vonbrigði, þrátt fyrir að ég hafi sett X á þann leik. Ég er hinsvegar komin með lausnir á getuleysi poolarana, og í þeirri upptalningu ber fyrst að nefna tvo leikmenn sem kunna ekki knattspyrnu. Það eru svona 100% líkur á því að fólk sem veit hvernig rangstaða virkar, veit hvaða menn er verið að ræða, þá John Arne Riise og Bodjewin Zenden. Ekki hef ég hugmynd um það af hverju verið er að notast við slíka leikmenn. Hinsvegar ef það er hugmyndin að vinna aldrei neitt, þá er kjörið tækifæri fyrir þau lið að verða sér úti um þjónustu þessra manna. Svo er ég á því að skipta eigi út öllu sóknarliðinu okkar, Bellamy, Kuyt og Crouch. Að sjálfsögðu nefni ég ekki hér Robbie Fowler, þar sem hann hefur lítið sem ekkert spilað á þessu tímabili. Ástæðurnar fyrir þessu eru:
Craig Bellamy - Ótrúlega hraður leikmaður eru rökin fyrir því að hafa hann í liðinu, og m.t.t. þess er vert að koma því að, að Evert Víglundsson var eldsnöggur með Völlurunum hérna fyrir örfáum árum síðar. Bellamy þarf a.m.k. 4 dauðafæri í leik til þess að skora 1 mark og er það tölfræði sem ekki er hægt að búa við.
Dirk Kuyt - "Hann vinnur svo ofboðslega vel fyrir liðið" er áhrifarík lýsing á leikmanni og þá er hann í liðinu. Miðjumenn mega vinna vel fyrir lið sitt en sóknarmenn þurfa að skila boltanum í netmöskva andstæðinga sinna, en Kuyt er einn af fáum sóknarmönnum sem virðist ekki þurfa að uppfylla það skilyrði fyrir veru sinni í liðinu.
Peter Crouch - Ég þarf ekkert að útskýra þetta. Var hinsvegar gaman að hlusta á heimska lýsandan um helgina, þegar Crouch var á bekknum og hann nefnir það að Crouch komi kannski inn á þrátt fyrir að aðeins 10 dagar séu í Barcelona leikinn !! Hvað var það ! Það semsagt var verið að hvíla slánan fyrir leikina gegn Barcelona, ef svo er, þá þurfa leikmenn, stjórnarmenn, þjálfarar, stuðningsmenn og bara allir þeir sem koma að einhverju leiti að Barcelona ekki óttast Liverpool.
Jæja, þýðir lítið að gráta utan í skyrtuna hjá bjössa bónda varðandi þetta, stutt í Nou Camp og þá er best að láta hendur standa fram úr ermum og senda slummu í lófana og klára þessa ofdekruðu súkkulaðistráka frá Barcelona. (Vek athygli á því að Eidur Smari er svo sannarlega einn af þeim(auk þess að vera ofmetin)).
Gangið hægt yfir þröskuld gleðinnar og munið að ekki má setja hvítan þvott í vél samhliða dökkum.
Það er Gylfi Fannar Albertsson sem kveður héðan frá Breiðavík.