Sammála!
Skrifaði hins vegar komment við síðustu færslu á sömu stundu og þessi kom inn! Þar óskaði ég eftir fréttaskýringu á atburðum liðinnar helgar frá Portúgal!
Átti Rise ekki pottþétt skilið að vera laminn með golfkylfu? Hann er svo leiðinlegur að það hlýtur að vera...
Klámfíklar á Hótel Sögu...og í egils líka
19. febrúar 2007 klukkan 09:43
Já, þetta er svona sem fullt fullt af fólki (þó aðallega kvenþjóðinni) upplifir glæpamennina sem stýra Hótel Sögu. Þeir gerðu sig seka um að samþykkja 150 manna hóp (sem þau reyndar vissu ekkert hver væru) til sín nú í mars ! Nú hefur komið í ljós að um er að ræða klámjöfra og klámleikara ! Stór hluti af þessu fullt fullt af fólki hefur fordæmt þessa heimsókn og margir hverjir ætla aldrei að versla við Hótel Sögu aftur ! Þetta eru þeir sömu og hættu að versla við ölgerð egils skallagrímssonar, vegna auglýsingar um lite-bjór, þar sem rassar á bæði kvenfólki og karlmönnum voru sýndir einungis. Allt saman hluti af hrottalegri klámvæðingu. Ef ég ætti Hótel Sögu og til mín bærust einhverjir tölvupóstar sem allir væru undirritaðir frá fólki sem vill bara horfa á stubbanna og söguna um munaðarleysingjan Annie, og í því bréfi væri það harmað að þetta fólk myndi gista hjá mér, hvað myndi ég gera ? Ætti ég að senda t.d. Ron Jeremy tölvupóst "hello, exskjús mí mister, bött æ hef tú tell jú ðett, ðett jú end jor frends ken nott slíp on mæ hótel bíkos mení mení pípol hér on æsland dónt vont tú hef jú"
Ýmsir ráðamenn þjóðarinnar hafa komið í viðtöl og sagst harma þessa heimsókn einnig sumir sagt þetta hreinlega óþolandi. Enda hvað eiga þeir annað að segja, ég get t.d. með engu móti séð Jón Sigurðsson segja í viðtali í tilefni af þessu "hvað er þetta eiginlega (smá svona hlátur hjá Nonna), eins og þetta fólk megi ekki koma hingað og skoða sig um og búa til eins og einn krassandi klámara" Stjórnmálamenn eru bara svo langt í frá hlutlausir yfir svona fréttum. Myndu t.d. aldraðar konur með permanett kjósa slíka aðila. Nei.
Ég allavega sé ekkert því til fyrirstöðu að þetta fólk mæti á klakann, nú, ef þetta fólk ætlar sér að sprengja landið okkar upp, eins og þetta er farið að líta út hjá mörgum (helst öfgafullum feminístum) þá er það auðvitað ekki gott mál. En ef þetta fer eins og ég býst við, að þau komi hingað labbi um á bíkini (stelpurnar bara vonandi) á hótelinu, taki rútu í bláa lónið og taki þar upp einn klámara er það bara í fínu lagi. Auk þess er þetta góð auglýsing fyrir landið okkar og kannski að ímynd okkar breytist til hins betra á nýjan leik, eftir að íslensk stjórnvöld tóku þá heimskulegu ákvörðun að veiða hvali aftur, sem nb hefur kostað okkur skildingin og mun kosta okkur miklu miklu fleiri skildinga !
Læt þetta gott heita í bili - gott í bili

Dagur
Ég hef nákvæmlega ekkert á móti því að þetta fólk komi hingað. Það skal hins vegar tekið fram að það er ekki fyrirhugað að taka upp klámmynd hér á landi. Of dýrt segja skipuleggjendur samkomunnar. Það er hins vegar ekki lokum fyrir það skotið að taka nokkrar ljósmyndir af nöktu fólki.
Ég sé ekki af hverju það ætti að vera vandamál, það hefur verið gert oft á tíðum hér á landi og oftar en ekki falið bakvið list. Menn hafa tekið upp á því t.d. að skíta á hvort annað og kallað það list, þar með er allt í lagi að gera svoleiðis.
Hér á landi eru einnig ýmsir perrar að taka myndir af nöktum börnum og ég held að fólk ætti frekar að eyða kröftum sínum í uppræta þá glæpamenn.

#3
19. febrúar 2007 klukkan 13:13
Haha góður pistill. Ég bý einmitt hérna í næsta nágrenni þar sem meint hneisa í Íslandssögunni mun eiga sér stað. Bíð spennt:)
#4
19. febrúar 2007 klukkan 15:57
Ævar Þ.
"Ég hef bara séð nýjustu myndina! Hún er hund leiðinleg. Að hugsa sér hvert heimurinn er að stefna þegar fólk hefur gaman af svona kvikmyndum! Þessi mynd er jafn fyrirsjáanleg og ef maður horfir á hvítan vegg og hann er áfram hvítur..."
Varð að taka þetta af síðasta pistli, en þetta er svar Andra við Rocky ! haha Ég er í öllum meginatriðum sammála þessari nálgun Andra, en vonandi hættir ekki Dagur að reka augun hérna inn :)
Heilinn í Bellamy er jafnstór og meðalbrauðmynsla og sannaði hann það þarna í portúgal ! Það versta hinsvegar við þetta allt saman er það að Riise er samt sem áður leikfær.

#5
19. febrúar 2007 klukkan 22:42
Dagur
Það kæmi mér nákvæmlega ekkert á óvart að sjá ykkur félagana (Andra og Ævar) labba niður Laugarveginn síðar á árinu íklædda sjóliðabúningum eða einhverju álíka á Gay Pride.
#6
19. febrúar 2007 klukkan 23:39
Ævar Þ.
Eitt er a.m.k. alveg kristaltært frá mínum bæjardyrum, og það er það að frekar labbaði ég nakin niður Laugaveginn og teymdur í keðju af Friðriki Ómar eða Bergþóri Pálssyni en að fara sérferð inn á akureyri til þess að sjá útbrunnin leikara boxa. Svo tala um það í marga daga á eftir hvað myndin hafi verið glæsileg og svalt þegar rocky hafi verið komin með einhvern annan svipað útbrunnin út í ´kaðlana´ og barið hann kaldan þar. Ef ég eignast einhverntíman son, þá finnst mér líklegt að hann horfi kannski á rocky, en þá aðeins þegar hann er á bilinu 9-13 ára.
#7
20. febrúar 2007 klukkan 07:32
Aðalsteinn J.
Rocky Balboa er besta mynd sem hefur verið gerð á þessari öld!
Þetta eru sannindi sem verða ekki hrakin.

#8
20. febrúar 2007 klukkan 10:37
Dagur
heir heir
Hlustið á manninn sem kenndur er við Krist!!!

#9
20. febrúar 2007 klukkan 13:13
Bara svona þannig að ég komi hérna sem hlutlaus maður og bendi ykkur á þá staðreynd að nýju föt keisarans eru engin! Hann er allsber...
Ég fór á þessi mynd með gjörsamlega núllstilltar vonir. Hef ekki séð fyrri myndirnar og vissi í raun ekkert hvað ég var að fara að horfa á. Eftir 15 mínútur veit maður ekki bara á hvað maður er að horfa heldur einnig hvernig það kemur til með að þróast!
Alveg fannst mér þessum tíma einstaklega illa varið...

#10
20. febrúar 2007 klukkan 22:37
Dagur
Það eru auðvitað grundvallar mistök þín og vil ég meina vitleysisháttur að hafa ekki séð gömlu myndirnar sem löngu eru búnar að skrá nafn sitt í sögubækurnar!!! Og ekki af ástæðulausu!!!
#11
21. febrúar 2007 klukkan 00:36
Aðalsteinn J.
Ekki séð gömlu myndirnar!!!!!
Þetta er álíka fáránlegt eins og að sjá "Return of the king" án þess að hafa séð fyrri myndirnar og segja svo: "Ég skildi ekkert hvað er merkilegt við þessa mynd, hvað er málið með þennan hring? Því er hann svo merkilegur, kostaði hann svona mikið eða? Og hvað er málið með þennan Frodo, hann er ekki einu sinni með skegg"

#12
21. febrúar 2007 klukkan 09:54
Ævar Þ.
Er ekki nóg að verið sé að verja Rocky hérna á síðunni eins og um Shawshank sé að ræða ! Það þarf ekki að blanda þessu andskotans hringadrottinsbulli við líka, kvikmyndum sem heltóku fullt af fólki sem snerust nánast ekki um neitt. Þær myndir snerust í aðalatriðum um einmitt þennan nautheimskulega hring, álfa og fígúrum sem líktust geimverum. Allir voða voða spenntir yfir þessu, og "þóttust" bíða eftir þessu allt árið. Svo var einn í pik-nikinu á sumrin sem "allt í einu" mundi eftir þessu bulli, og sagði þá fyrstur manna öskrandi "djöfull var síðasta hringadrottinsmynd góð og ég get ekki beðið eftir næstu jólum" Þá svona hugsuðu allir "aahh, af hverju datt mér þetta ekki í hug á undan" en sögðu svo "jáááááááá, þetta er besta mynd í heimi" og kepptust um að verða fyrstir til þess að halda uppi lofsamlegri ræðu um þetta.
Auk þess man ég ekki til þess að þessi ofmetni leikstjóri hafi sent nokkuð frá sér eftir þennan voðalega, æðislega, yndislega, besta o.s.frv. "þríleik" !
Nú er í tísku að tala fallega um umhverfið og sennilega verður hægt að finna þjóðgarða á ruslahaugum fljótlega, svo æðisgengin er öll þessi náttúra okkar, og ef einhver stjórnmálamaður talar svo mikið sé um álver eða rask á grasi verða allir æfir. Þetta er svona svipað, umhverfisást (margra hverja tækifærisbundin, einungis vg sem einhvern áhuga hefur á henni) landsmanna, sem og þetta lord of the rings dæmi.

#13
21. febrúar 2007 klukkan 11:29
Dagur
Ég held að Ævar sé eingöngu bitur og sár yfir þeirri staðreynd að hann hafi ekki enn gefið sér tíma til að horfa á Lord of the Rings, sem eru klárlega einu bestu myndir sem gerðar hafa verið. Ég held að Ævar óttist fyrst og fremst að skilja ekki söguþráðinn, það sé það sem haldi honum frá því að horfa á þessi meistaraverk.
#14
21. febrúar 2007 klukkan 12:34
guðrún maría
Takk fyrir heimsóknina í vinnuna í dag, hefði verið gaman að sjá meira af ykkur samt sem áður.. eeen sumir þurftu að drífa sig svolítið hehe ;0)
Knús*
Knús*
#15
21. febrúar 2007 klukkan 17:49
Ævar Þ.
Dagur - Isss, ekki hefði ég nú þungar áhyggjur af því. Ég hef þvert á móti heimildir fyrir því, að þú eigir í miklum vandræðum með ´fatta´ hverskonar kvikmyndir. Þegar t.d. farið var í bíó hérna áður fyrr inn á eyri, spurðirðu og spurðirðu þann sem fór með þér, út í myndina og þegar þið nálguðust Tjörn varstu aðeins farinn að botna í þessu. Alltaf þegar sú mynd kom út á vhs eða dvd tókstu hana svo og horfðir á hana í annað skiptið og þá fyrst skildurðu myndina.
Gudda - Það var ekkert, en sástu samt mig ekki allan ?

#16
22. febrúar 2007 klukkan 07:39
Þetta er náttúrulega út í hött! Fyrir það fyrsta er það skömm fyrir LOTR að nefna þær myndir í sömu andrá og hinn ómögulega og heilaskemmda Rocky! Svipað og þegar mönnum dettur í hug að nefna hinn geysilega ofmetna leikmann Ronaldinho í sömu andrá og Cris Ronaldo.
Ég hélt ég hefði sagt að myndin hefði verið svo fyrirsjáanleg! Eruð þið að meina að ég hefði þurft að horfa á hinar myndirnar til að kynnast karakternum eða?
Eftir 25 min af þessari mynd, vissi ég nákvæmlega hvað myndi gerast restina af myndinni. Hann og sonur hans yrðu like this, hann myndi berjast við blökkumanns skrattann og svo framvegis! Eina sem maður vissi ekki svo glöggt var hvort hann myndi vinna bardagann eða ekki, hallaðist þó að tapi.
Þessi óvissa kom sannarlega ekki að sök þar sem vitað mál var að hann myndi standa uppi sem "sigurvegari" sama hvernig bardaginn færi.
Svona svipað og allar hollywood myndir c.a.
Mjög klassískt að fórna þúsund manns til að bjarga 2 manneskjum. Svo kemur fallegur endir þar sem allir eru glaðir!
Ég held að þið ættuð frekar að lesa góða bók en að horfa á svona vitleysu!!!

#17
22. febrúar 2007 klukkan 11:18
Dagur
Að mínu mati ert þú ekki dómbær á þessa mynd Andri. Ástæðan er akkurat sú að þú hefur ekki séð fyrri myndirnar.
Er ekki alveg eins hægt að segja að LOTR hafi verið fyrirsjáanleg? Það vissu allir að þeir félagar myndu koma hringnum í eldfjallið. Samt sem áður eru þetta frábærar myndir. Líkt og allar Rocky myndirnar nema Rocky V.

#18
22. febrúar 2007 klukkan 13:45
Aðalsteinn J.
Laukrétt hjá Degi. Með sömu rökum mætti segja að velflestar myndir séu fyrirsjáanlegar. Maður hafði t.d. göttfílíng um að John McClaine mundi standa uppi sem hetja í Die Hard myndunum, og að öllum líkindum að sættast við konu sína í leiðinni. Og jú, það gerðist í þeim öllum. Þetta eru engu að síður með snilldarlegri myndum sem gerðar hafa verið.
Nú er ljóst að Klámráðstefnunni hefur verið úthýst. Ég skil ekkert í þessu. Ég tók eftir því að Ingibjörg. S.G. fór hamförum um þetta mál í ræðustól Alþingis (ég veit ekki alveg hvað þetta mál hafði að gera þangað en svona er þetta bara). Ingibjörg talar líka oft um samanburð á okkur Íslendingum "og þeim þjóðum sem við viljum bera okkur saman við" og á þar við hin norðurlöndin. Hvers vegna á þetta ekki við hérna? Ekkert hinna norðurlandanna hefði látið detta sér í hug að bregðast svona við! En svona er þetta bara, við erum hálfgerðir púrítanar. Líklega er stutt í að við bönnum tónlist.

#19
22. febrúar 2007 klukkan 14:10
Ævar Þ.
"Er ekki alveg eins hægt að segja að LOTR hafi verið fyrirsjáanleg? Það vissu allir að þeir félagar myndu koma hringnum í eldfjallið."
Hárrétt hjá íþróttafréttamanninum ! :)
Hárrétt hjá íþróttafréttamanninum ! :)
#20
23. febrúar 2007 klukkan 08:17
Dagur
Það þýðir ekkert að lesa eingöngu það sem mann langar til að lesa Ævar minn. Klára setninguna :)
#21
23. febrúar 2007 klukkan 10:23
Alli og Dagur þið eruð eins og verstu Liverpool aðdáendur núna!
Með því að einfalda mjög mikið það sem ég sagði er hægt að yfirfæra þetta yfir á allar myndir þ.e. að þær séu fyrirsjánalegar með örfáum undantekningum sbr Arlington Road sem er btw snilldar mynd því hún kemur á óvart.
Að bera 75% teiknaða ævintýramynd saman við Rocky lýsir öngþveiti ykkar við að verjast mynd sem þið horfðuð á blindaðir af einhverjum fyrirframgerðum hugmyndum!
Þegar ég tala um að myndin hafi verið fyrirsjáanleg þá er ég ekki að tala um þessa allra einföldustu útgáfu sem þið talið um!
Það sem ég er að tala um er að frá c.a. 25 min (man ekki nákvæma mínútu) þá er ALLT svo augljóst í myndinni. Það er búið að kynna blökkumanninn sem besta boxara vetrarbrautarinnar, búið að kynna konuna sem verður síðan góð vinkona hans, búið að sýna erfiðleika í sambandi við son hans etc.
Þetta er allt saman komið fram snemma í myndinni og viti menn hvað gerist? Hann fer að æfa, nær betra sambandi við soninn, eignast góða vinkonu og endar þetta á bardaga þar sem hann tapar en er samt hetjan?
Hvað sá maður ekki koma? Ekki neitt...
p.s. það er hægt að kaupa Steven Seagal safnið í BT á slikk.
Mikið betri leikari og miklu betri myndir.

#22
23. febrúar 2007 klukkan 11:13
Það er óþolandi hér á landi hversu mikið púritísk viðhorf þykja eðlileg.