Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Þeir koma ekki !!

23. febrúar 2007 klukkan 08:38
Þá er það ljóst, Bændasamtökin hafa neitað ca.150 manns um gistingu, af því að borgarstjóri vildi þá ekki og ekki heldur fullt af stjórnmálamönnum. Samkvæmt þessum Haraldi, formanni bændasamtakanna þá var það ekki útaf fólkinu sjálfu endilega, bara vegna utanaðkomandi þrýstings ! Hvað er það eiginlega ! Hingað til, þegar staðið hafa yfir umræður um bændasamtökin, þá hafa nú margir vilja koma höggi á þau samtök en ég alltaf varið þau með kjafti og klóm. Nú er hinsvegar svo komið að ég ætla mér ekki að gera það áfram. Ég meina, ef þessi vitleysisumræða hefði ekki farið fram, hefði þá Villi borgarstjóri látið hafa eftir sér að hann vildi þetta fólk ekki, hefði hann stigið fyrstur fram og fordæmt heimsókn þessa fólks ! Nei og aftur nei. Hefði það einhverju breytt ef um hefði verið að ræða 10 klámframleiðendur ?! Eða 5, eða 2 ? Var þetta fólk líklegt til þess að fara rænandi og hnupplandi um götur rvk, eða berjandi mann og annan ?

Nú held ég t.d. að notkun einhverra fíkniefna er leyfileg í Hollandi, ætlum við að banna hollendingum að sækja landið, vegna þess að einhverjar líkur eru á því að þeir hafi reykt gras ? Svo fullyrðingarnar í kringum þessa heimsókn eru svo ótrúlegar, fullyrt hefur verið að þetta fólk standi í mannsali, kvenfyrirlitningu o.s.frv.o.s.frv. en oftast nær, þar sem klámmynd er gerð, þar er typpi. Ef að atriðið er t.d. 2 konur á móti 1 karlmanni, þá er talað um kvenfyrirlitningu. Aldrei hef ég heyrt um karlfyrirlitningu í því sambandi. En þessi andskotans bændasamtök (sem neituðu þessu fólki um gistingu til þess eins og fá kannski hærri styrki frá ríkinu) ætla núna að fara að velja fólk á herbergi. Hvernig verður þá útfyllingarskjalið þið vitið "Nafn, Eftirnafn, Heimili, Greiðslukort," verður þar að finna spurningar eins og "hefur viðkomandi horft á klámmynd?" "Ætlarðu að vera í G-streng á íslandi?" "Þekkirðu framleiðenda klámmynda?" o.s.frv.o.s.frv. Ef þú svara einni spurningu af þessum játandi, þá máttu eiga von á því að afrit af umsókninni verði send feministafélagi íslands og þau ákveði hvort þú megir koma inn í landið, og hvert verður svarið...aha, nei !

Alveg er ég nú viss um það, að frændur mínir austur í þistilfirði höfðu ekkert með þessa ákvörðun að gera hjá bændasamtökunum !

Allavega hefur einn stjórnmálamaður stutt heimsókn þessa fólks hingað og er sá hinn sami einmitt bóndasonur héðan af tjörnesinu.
 
Feministi
Ekki skil ég Ævar minn hvaða horn þú berð í síðu feminista. Það voru fyrst og fremst stjórnmálaöfl sem urðu þess valdandi að þessi hópur klámfíkla eins og þú orðaðir það sjálfur, kemur ekki til íslands.
#1
23. febrúar 2007 klukkan 11:28
 
Dagur
Alltaf gaman þegar fólk skrifar ekki undir nafni.

En annars er ég alveg sammála því að það voru fyrst og fremst stjórnmálaöfl sem þrýstu á bændasamtökin að leyfa þessu fólki ekki að dvelja á hóteli þeirra samtaka. Bændasamtökin hefðu bara ekki átt að láta undan þrýstingi. Það á ekki að draga ferðamenn sem hingað koma til lands í dylka.

Þetta minnir mig töluvert á myndina Minority Report, þar sem reynt var að koma í veg fyrir glæp fyrirfram. Það kom hvergi fram í dagskrá þessa hóps að fólkið væri hingað komið til lands til að taka upp klámmynd. Talskona hópsins sagði að lögreglunni væri velkomið að vera hópnum samferða. Af hverju ekki að leyfa þessu fólki að koma, hafa lögreglu með þeim í för og ef lög yrðu brotin þá er allt í lagi að gera eitthvað í því.
#2
23. febrúar 2007 klukkan 12:36
 
Sneiðin
Get nú hvergi séð að Ævar sé neitt á móti feministum.
Mér finnst þó ég sé hlynntur jafnrétti í allri sinni mynd ,oft á tíðum sem feministar fari útfyrir málefnin í ályktunum sínum.
Er samt alveg á því að ákvörðun hótelsins hafi ekki verið tekin vegna þrýstings frá feministum eingöngu.
#3
23. febrúar 2007 klukkan 12:49
 
Dagur
Fór að pæla í einu. Ef að MTV tónlistar verðlaunin verða haldin hér á landi í framtíðinni, eins og hefur verið rætt um, komast þá allir gestir hátíðarinnar til þess að vera viðstaddir? Segjum sem svo að R. Kelly væri boðaður. Hann kæmist líklega ekki inní landið miðað við sakaferil sinn. Liam Gallagher, söngvari Oasis, hefur nú oftar verið tekinn með dóp meðferðis. Hann kæmist sennilega ekki heldur. Snoop Dog ætti ekki fræðilegan möguleika að stíga fæti hér á land þar sem hann hefur bæði verið tekinn með eiturlyf og framleitt klámmyndir. Og svo mætti lengi telja.

Ég geri a.m.k. ráð fyrir að stjórnvöld myndu beita sér fyrir því að þetta fólk fengi ekki gistingu hér á landi miðað við fyrri dæmi. Munurinn er að vísu sá að enginn þeirra sem ætlaði að koma hingað út af þessari ráðstefnu hefur (að mér vitandi) verið ákærður fyrir mannsal, vændi eða neitt þess háttar.
#4
23. febrúar 2007 klukkan 18:32
Þetta er mimunun á hæsta stig!!! Rasismi og fordómar eru það ekki vinsæl orð í dag? Kom ekki Ron Jeramy hingað um árið? Ekki held ég að hann hafi gist hjá ættingjum þá, né á götunni!
#5
23. febrúar 2007 klukkan 18:53
 
Dagur
Góður punktur hjá Andra B. Ég var búinn að gleyma því að Ron Jeremy hafi komið hingað um árið.
#6
23. febrúar 2007 klukkan 19:11
 
Aðalsteinn J.
Ég var sko ekki búinn að gleyma því. Þvílík snilld. Ég fór og sá hann í Háskólabíói. Stórkostlegur maður.
#7
24. febrúar 2007 klukkan 18:40
 
Bryndís H
sæll ævar hér er smá fróðleiksmoli fyrir þig og Guðjón:) ef þið voruð ekki búnir að sjá þetta;)

Sharon Stone ótvíræður sigurvegari á skammarverðlaunahátíð Hollywood

Bandaríska kvikmyndastjarnan Sharon Stone var ótvíræður sigurvegari þegar Gullnu hindberjaverðlaunin, eða Razzies-verðlaunin eins og þau eru oftast nefnd, voru veitt í Hollywood í nótt. Mynd hennar, Basic Instinct 2, fékk fern verðlaun, þar á meðal fyrir versta leik leikkonu í aðalhlutverki og myndin var einnig valin sú versta á síðasta ári.
#8
25. febrúar 2007 klukkan 13:25
 
Ævar Þ.
Ég hef ekkert út á feminista að setja, þó síður sé, margt starf innan þeirra samtaka sem gott er. En það er eins og með þá og aðra, ég á erfitt með að þola hverslags öfgar.

Athyglisverðir punktar hjá Degi varðandi MTV-hátíðina sem og Jereymy umræðuna hjá Andra og hvert orð rétt í því.

Bryndís mín, þú veist það auðvitað að svona kjör, eins og þessi Razzies-verðlaun eru auðvitað algerlega ómarktæk, því

a) ef kosið er um þetta, þá gera það konur mestmegnis, og þær auðvitað eru öfundsjúkar út í glæsilegan vöxt Sharon Stone og vilja því með einhverju móti koma höggi á þessa bestu leikkonu sögunnar.

b) ef það eru einhverjir sérstakir dómarar sem dæma um þetta, þá eru konur sem hafa 75% vægi og ekki dæma þær Sharon Stone vel, sbr lið a. Nokkrir karlar eru í þessu en þeir þora ekki að upphefja drottninguna af ótta við að þeirra konur komist að því og verði því sárar út í karlanna sína.

Ég einmitt las það að Sharon Stone hefði átt að vera tilnefnd til óskarsins í nótt en hún afþakkað það vegna veru sinnar í S-Afríku en þar var hún að aðstoða munaðarlaus börn. Þarna er enn eitt dæmið um einnig gott hjartalag þessarar frábæru konu :)
#9
26. febrúar 2007 klukkan 08:23

Skrifa athugasemd