Könnun

Hefuršu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglżsing

Nehei !

27. febrśar 2007 klukkan 07:57
Þangað þyrftirðu sko að bera mig inn !

Þannig hljómaði svarið hjá mér við einn viðmælenda minn nú um daginn þegar ég var að kvarta yfir kvefinu mínu, en hann spurði hvort ég ætlaði mér ekki bara ´uppeftir´ og láta athuga þetta. Veit ekki hvað það er, en mér fannst þetta gríðarlega svalt, ég er búinn að heyra nokkrar hetjur segja svona varðandi spítala, og hafði mig í langan tíma langað að svara svona spurningu á þennan hátt. En inn í mér grét ég, vegna þess að kvefið hafði ákveðið að gera sér að leik að fara líka upp í vinstra eyrað á mér með þeim afleiðingum að ég átti erfitt með heyrn. Það getur verið mjög vont, sérstaklega ef maður ætlar að reyna að losa um það með því að halda fyrir nefið með lokaðan munn og blása. Við það myndast heilmikill þrýstingur sem er gríðarlega sársaukafullur.

En já, ekki mikið búið að gerast síðan Anna Nicol kvaddi þennan grimma heim. Liverpool sigruðu auðvitað Sheff.Utd og leikmenn Arsenal og Chelsea urðu sér til heilmikillar skammar. Þetta virðist engan endi ætla að taka hjá Wenger, er viss um að ef hann væri íslenskur pabbi, þá væru synir hans Lalli Johns og Annþór handrukkari.

Nú ætlar frændi minn úr þistilfirði, Steingrímur J. að setja upp netlöggu ! Jájá, seigur kallinn. Annars held ég að aðilar innan vébanda VG séu haldnir einhverri sjálfspíningarhvöt. Þeir eru undanfarna mánuði búnir að mælast þetta 20-24% í könnunum en svo núna upp á síðkastið hafa komið fram tilllögur sem mælast ekki vel fyrir hjá a.m.k. mér. Mér finnst sem þeir kunni ekki við að hafa svona góðan meðbyr og ætli sér að saxa einhver prósentustig af þessum tölum sem kannanir sýna. En eitt er það sem VG má eiga, sem enginn annar flokkur getur sagt um sig, en það eru náttúrumálin. Þeir eru í raun eini flokkurinn sem kemur til dyranna eins og þeir eru klæddir varðandi þann málaflokk. Aðrir flokkar, sérstaklega samfylkingin, tala í endalausa hringi varðandi ást sína á náttúru íslands, en svo vilja þeir virkja en svo ekki o.s.frv. Samfylkingin stofnaði meira að segja flotta fyrirsögn á náttúrumálin sín, eða "Fagra Ísland". Samt helvíti heppnir að Jakob Frímann skyldi hafa sagt sig úr flokknum, hef aldrei haft góða tilfinningu fyrir þeim tónlistarmanni. Nú er ég einn af þeim sem annars lagið kíkir á Alþingi-rásina og fylgist með þingstörfum og m.a. í gærdag horfði ég á umræður sem snerust um Fundarstjórn forseta. Annan eins skrípaleik hef ég sjaldan orðið vitni að. Solla forseti þurfti að hafa sig alla við að negla hamarnum í bjölluna margoft. En gaman að þessu.

Næst á dagskrá hjá mér, fyrir utan skinkuhornin sem ég ætla að baka á eftir er að fjárfesta mér í sjónvarpsflakkara. Löngun mín í svoleiðis grip er komin á það stig að ég á erfitt með að sofna á kvöldin !

Annars er allt svipað að frétta héðan af vík, Reynir ennþá í skóbúðinni, Jón Arnkells ennþá að rafvirkjast e-ð, Siggi píp á fullu bara í pípunum, Þorgrímur er enn í landsbankanum o.s.frv.o.s.frv.
 
Tinna
Bíddu voðalega vaknar þú snemma....og þú ert bara alltaf að baka skinkuhorn....:) hvernig væri að senda poka af þeim til fátækra námsmanna í borg svifryksins?
#1
27. febrśar 2007 klukkan 11:04
 
Ęvar Ž.
Það er von að þú spyrjir Tinna mín, en ég hef lagt það í vana minn, nú í að verða á þriðja ár, að vakna ævinlega 06:45. Þetta hefur reynst mér ákaflega vel, ég er allur miklu hressari fyrir vikið :)

En hætti reyndar snögglega við skinkuhornin í morgun, en bakaði í staðin Sjónvarpsköku. En drjúgur hluti úr næstu skinkuhornsuppskrift verður stílaður á þig, láttu bara kærastann ekki borða allt frá þér :)
#2
27. febrśar 2007 klukkan 14:19
 
Tinna
hahahhahah oki Ævar minn!!!
#3
27. febrśar 2007 klukkan 14:32
Lengi lifi VG! Framsæknasti stjórnmálaflokkur landsins. En segðu mér annars Ævar; Varstu búinn að sjá þetta?
http://www.visir.is/article/20070227/LIFID03/70226103

Þetta er rosalegt og hlýtur að kremja hjartað!

- oj
#4
27. febrśar 2007 klukkan 17:45
 
Jói Brill
talandi um að allir séu á sínum stað..hvar er Krilli ???
#5
27. febrśar 2007 klukkan 18:32
Það væri gott að fá oftar svona updeit hvort allir séu ekki örugglega á sínum stað þarna á Hú.
Annars væri fínt að fá netlöggu, þá kæmist loksins upp um þig og þína starfsemi;)
#6
28. febrśar 2007 klukkan 19:38
 
Ęvar Ž.
Okey Tinna, ég vakna kannski ekki alltaf klukkan 06:45, stundum ákveð ég að vera kærulaus og fer ekki framúr fyrr en um 07:30 ! :)

Skreppur seiðkarl - Þetta var nú rætt í seinasta pistli mínum að ég held og svaraði ég þessu mjög vel þar og kom með útskýringar á þessu vali, á mjög sanngjarnan og raunsæjan hátt.

Talaði við Krilla nú um daginn, og er hann að koma rafmagninu á sjúkrahúsinu á réttan kjöl, og enginn betur til þess fallinn en að sjálfsögðu Kristján (krilli)

Þórdís Edda Jóhannesdóttir ! Hvað áttu eiginlega við, ef þú ert að tala um þessar 3 heimatilbúnu klámmyndir mínar, þá eru þær löngu komnar úr umferð :)
#7
01. mars 2007 klukkan 08:08
 
Andri B
Gæti ekki verið meira sammála þér með Jakob Frímann.... hef íllan bifur á þessum manni svo ekki sé talað um Stuðmenn...ullabjakk...
#8
01. mars 2007 klukkan 14:41
 
gušrśn marķa
takk fyrir heimsóknina á laugardaginn, alltaf gaman að fá góða gesti
#9
05. mars 2007 klukkan 16:50
 
Ęvar Ž
Sorry Gudda mín, var staddur á hringtorginu hjá dominos þegar ég fékk heldur leiðinlegt símtal sem orsakaði það að ég keyrði beinustu leið yfir skarðið. Gæti þó verið ferð á morgun og þá hitti ég á þig elsku besta yngri systir :)
#10
06. mars 2007 klukkan 11:01

Skrifa athugasemd