Ekkert įlver !
Var svolítil frétt hérna um daginn, þegar smáralind gaf út sinn venjubundna bækling og framan á honum var stelpa að teygja sig eftir loðfóðruðum bangsa. Allt ætlaði um koll að keyra þegar fólk rak augun í þessa "klámmynd", en hún átti að þýða það að karlmenn ímynduðu sér það að lille venn kæmist vel fyrir á ákveðnum stöðum þarna, og einnig væri mjög hentugt að stunda kynlíf standandi, og þá erum við að tala um kynlíf svona aftan frá. Ég held að þegar fólk er farið að lesa svona klámmyndir út úr fermingarbæklingum, þá sé það næsta sem það gerir, að fara og athuga á sér toppstykkið. Meira að segja var þetta ekki bara einhver djonn djonnsson út í bæ, heldur var þetta víst virðulegur kennari við HÍ. Það er aðili, Anna katrín heitir hún að mig minnir, sem er talsmaður feminista sem reyndi að klóra í bakkann með þetta hjá kennaranum. Sagði sem svo að hugsanlega hefði þessi kennari farið fullgeyst í yfirlýsingarnar varðandi þetta mál, annars væri allt í lagi að benda á þetta. Eva Dögg, markaðseitthvað smáralindar sagði sem svo að það hlyti bara að vera sjúkt fólk sem læsi svona hluti út úr fermingarbæklingum.
Allir ræða álverið, það kemst enginn að í umræðum liggur við, nema að hafa skoðun á álveri hérna á bakka (og þá helst að vera því fylgjandi). Álverið á að bjarga heiminum frá endalokum að mati margra. Fullt fullt af fólki búið að versla íbúðarhúsnæði og annað misgáfulegt með það fyrir augum að hér rísi álver, annars deyja allir. Núna er eins og allir vita í gríðarlegri tísku að þykja vænt um tréð sem stendur fyrir utan húsið þitt og helst verða menn að safna hári, setja á sig skærlitt ennisband, reykja hass og kaupa sér bol með andliti Steingríms J. framan á. En ef maður gefur sér það, að ekkert álver rísi hérna, allt verði sett á hold(sem þýðir í raunninni ekki álver) og hvað þá. Ég sé þetta mjög greinilega fyrir mér, á kannski sunnudegi verður það uppgefið að ekkert álver muni rísa við bakka á húsavík í nánustu framtíð (15-20 ár, og svo auðvitað ekkert eftir það) og fólk tilkynnir sig veikt í vinnu á mánudag (nema Bjöggi Leifs og Trausti Aðalsteins). Svo tekur maður rúntinn niður í bæ og sér þar starfsmenn öryggis sem mættu í vinnu að rífa niður nýja merkið sitt utan á búðinni, og Oddur Örvar sem dansaði svo eftirminnilega upp á borðum á bauknum fyrir u.þ.b. ári síðan (þegar tilkynnt var um að húsavík hefði verið valið í NY) keyrir um snöktandi yfir þessum tíðindum. Svo keyrir maður í sjoppuna og kaupir sér pulsu með öllu og eyðir svo afgangnum í hús sem hafði hrunið niður um 250% í verði á sunnudeginum. Trausti Aðalsteins valhoppar um bæinn og bendir á álverssinna "ha-ha". Talsverður fjöldi af þeim sem keyptu sér hús í tilefni af "væntanlegu" álveri kveikja í húsum sínum. Nóg verður að gera hjá sýslumanni í að afgreiða skilnaðarpappíra. Björgvin Leifs rúntandi um með bagatellóin sinn og syngjandi með U2, lagið "Beautiful day". Sr. Sighvatur þarf að kalla út auka presta vegna þess að hann ræður ekki við allan þann fjölda fólks sem þarf að leita sér aðstoðar.
Svona gæti þetta litið út í smátíma en svo gleymum við þessu, og förum að búa til parket aftur.
En já, ég hreinlega gréti mig í svefn á hverju einasta kvöldi næstu 50 árin, ef ég myndi missa af afa þínum Jónasi hlaupandi um bæinn veinandi um af gleði ! :) Veit ekki alveg með dagsetninguna á þessum fundi.
Held reyndar að husnæði og önnur markaðsvara geti ekki lækkað um 250% í verði, nema jú að fólk borgi þá þokkalega með viðkomandi vöru, Viddi hefði kannski átt að fara betur yfir þetta með þér í stæ. í den.
Annars held ég að álver eftir 15 ár á Húsavík yrði mjög gott mál, þá væri hagkerfið kannski búið að jafna sig eftir skandalaséringu Davíðs "gúngu-druslu" Oddsonar og félaga hér síðustu ár. Hagkerfið verður þá vonandi komið í þann toppklassa sem hagkerfi víðast í nágrannalöndum og samanburðarlöndum eru í, vaxtamunurinn kannski búinn að minka um 10%, verðbólgan kominn í manneskjulega tölu og svo framvegis. Ef Húsvíkingar geta ekki beðið í 15 ár eftir álveri þá munu heimilin, fyrirtækin og samfélagið gjalda fyrir það, sprotafyrirtækin verða á minnjasafni rétt eins og Geyrfuglinn, stór-fyrirtækin verða farin til nágrannalandana því jójó ástandið hér á landi verður ólíðandi fyrir þau, vaxtamunurinn verður örugglega kominn uppí 20-30% (hann er um 0,5 í Japan) skuldir þeirra fyrirtækja og ríkissinns í erlendri mynt verða magfallt stjarnfræðilegri en þau eru nú í dag, skuldir heimilana sem nú þegar eru í heimsklassa tölu, verða búin að stinga önnur lönd af)
Ég held að það væri betra að þið víkinganir myndu grenja í einn dag á ári út af sviknum loforðum frá NY, heldur en sú auðn sem aukinn þennsla ofan á aukna þennslu myndi skila þjóðfélaginu yrði meira um álvers-þvælu á næstunni
Kveðja frá Suðurlandi
vil ég kannski fresta, hætta við eða hefjast handa strax? Ég vill fresta þeim, það kom fram í commentinu mínu (lastu það kannski ekki?), ég sagði "Annars held ég að álver eftir 15 ár á Húsavík yrði mjög gott mál" - þetta er eins skýrt og greinilegt eins og helst verður á kosið.
Þennslan er að stórum hluta úr þínu kjördæmi, hagstjórnarmistök "þinnar" ríkisstjórnar á meðan á byggingu kárahnjúkavirkjunar stóð yfir eru skelfileg. Allir fjármálasérfræðingar sögðu að ríkið og heimili yrðu að halda að sér höndum á meðan þessi stærsta framkvæmd íslandssögunar stæði yfir. Var það gert? Svar nei! hvað var gert?Ríkið hefur verið rekið með halla á hverju ári, reyndar síðustu 10 ár, þannig að skuldir ríkissinns eru vaxandi, svo til að bæta gráu ofan á svart, 90% húsnæðislán, heimilin sem áttu að halda að sér höndum rétt eins og ríkið, fóru á lána og yfirdráttarfillerý og eru heimilin núna þau skuldugustu í heimi. þetta er þveröfugt á við það sem sérfræðinganir sögðu okkur að gera! Það má svo geta þess að á þessu kjörtímabili hefur viðskiptahallinn við útlönd aldrei verið meiri í sögu landssins, má að mestuleiti skrifa það á kárahnjúkavirkjun, það var reyndar vitað um það. Ríkið gat reyndar slegið á hann hefði verið samið við íslendinga um að byggja mannvirkið, í staðinn fyrir að skuldsetja sig gífurlega til að borga erlendum skíthausum það sem við getum gert (hverjir gengu í ábyrð fyrir mannvirkinu?).
En já, aftur til húsavíkur, Það sem hagkerfið þarf á að halda er róandi aðgerðir, við gerum það ekki með því að byggja eitt álver á bakka við húsavík og virkja allar finnannlegar orkuauðlindir sem finnast í þyngeyjarsýslum, heldur þú kannski að viðskiptahallinn við útlönd á meðan á því stendur verði bara viðskiptahalli húsavíkur við útlönd??? nei, þetta verður viðskiptahalli ÍSLANDS við útlönd. Ég vil minnka verðbolguna, vaxtamuninn í bönkunum, róa niður hagkerfið (það er bara eitt hagkerfi á íslandi, þau eru ekki 2, eitt fyrir höfuðborgarsvæðið og annað fyrir landsbyggðina) - ef þú getur sagt mér hvernig það á að róa hagkerfið með því að byggja álver og virkjanir þá bíð ég spenntur eftir því svari, ég held að það gæti verið mjög spennandi.
2 spurningar í viðbót.
veistu hvað Kyoto-bókunin er, og hvað fellst í henni? (íslendingar eru búnir að skamþykkja hana)
seinni spurningin er sú hvort þú hafir lesið Draumalandið eftir Andra Snæ?
Kveðja
Kristján
Að endingu legg ég til að Kristján Júlíusson verði gerður að einræðisherra á klakanum, er viss um að vandamál samfélagsins sem við búum í, yrðu úr sögunni ef sonur Júlla á björginni tæki við búllunni ! :)
Ég myndi segja að staðan væri 1-0 fyrir Stjána...
Kveðja af Suðurlandinu
Kristján
En þú verður þá að fyrirgefa mér að þær upplýsingar mun ég ekki fá á síðunni þinni, www.egelskasamfylkinguna.is
Kveðja í þenslusamfélagið fyrir sunnan