Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Örlitlar vangaveltur

21. mars 2007 klukkan 14:10

Í þessum skrifuðu orðum hefur Ingibjörg Sólrún sagt að hún muni reyna "samningaleiðina" ef að Hafnfirðingar samþykkja deiliskipulagið nú um mán.mótin sem gerir ráð fyrir stærra stærra álveri í straumsvík. Þetta þýðir á mjög augljósu máli, að ef hafnfirðingar stækka, og Ingibjörg Sólrún kemst til valda (ólíklegt þó vegna smæðar flokks hennar í könnunum undanfarið) þá verði sett stopp á fyrirhugaða stækkun í straumsvík af hennar hálfu, það á að bíða, við skulum bara bíða og sjá eru skilaboð formanns Samfylkingarinnar. Gegndarlausar framkvæmdir á sv-horninu hafa í verulegum mæli komið á fót þennslu, mér liggur við að segja að ekki séu nema ca. 100mtr á milli byggingarkrana á sv-horninu. Hvað vilja menn gera, hvað vill bæjarstjórnin í hafnarfirði gera, jú, ýta í enn frekari mæli á þennsluna, með því að stækka álverið í straumsvík ! Hvað vilja menn eins og Örlygur Hnefill, Einar K, Kristján Möller og samfylkingarfólk hér á víkinni gera, jú, að hér rísi álver við bakka.

Allt þetta byrjaði auðvitað á því, þrátt fyrir gefin loforð við sína heittelskuðu kjósendur í rvk um að hún sæti sem borgarstjóri það kjörtímabilið til enda, á því semsagt að hún gekk á bak orða sinna við þá reykvíkinga og fannst tilvalið að bjóða sig fram til alþingis ! Enda var hún gerð að forsætisráðherraefni flokksins og leit þetta allt saman huggulega út, fylgið var þetta í kringum 32-37% og allir vegir færir fyrir samfylkinguna. Ingibjörg hafði það á orði að kosning undir 35% að mig minnir, væri ekki ásættanlegt fyrir flokkinn og hélt svo út í slagsmálin sem kosningabaráttan er. Samfylkingin slefaði rétt yfir 30% markið og lengi leit út fyrir það að ISG væri inn á þingi en því miður, úppps, komst ekki inn og flúði lands til Englands og var þar í einhverja mánuði á eftir. Hún var gerð að varaformanni svona til þess að hún hefði eitthvað starfsheiti, því ekki dugði það að vera bara fyrrv. forsætisráðherraefni flokksins. Spurt var um daginn í fréttablaðinu, hvaða stjórnmálaleiðtoga fólkið treysti best, Ingibjörg Sólrún, formaður jafnaðarmannaflokksins á íslandi hlaut upp úr krafsinu 12,1% ! Veit reyndar fyrir víst að Kristján J. kaus Össur sem formann flokksins en hann hlýtur engu að síður að bakka sinn formann upp. En já, svo ég svari spurningarmerkjum Kristjáns frá commenti hans og örlítið reyni að leiðrétta manninn með örfáum orðum, þó erfitt sé að ræða við reiða menn (sem ég skil auðvitað mjög vel, sbr skoðanakannanir undanfarið)

Þetta comment hans byrjar auðvitað á því að hann reynir að kenna ríkisstjórninni um að hann hafi tekið sér yfirdrátt á einhverjum tímapunkti í sínu lífi og er það frekar dapurlegur málflutningur. Ég ætla, vegna skrifa Kristjáns um það hversu slæm kárahnjúkavirkjun er, að minna hann á það að Ingibjörg Sólrún, þá í ráðhúsinu samþykkti kárahnjúkavirkjun eins og meirihluti þingmanna samfylkingarinnar. Nú er ég ekkert að segja að mig dreymir hverja nótt um álver við bakka, en virðist vera sem svo að mikið af fólki á víkinni, vill fá e-ð þá í staðin fyrir álver, hvað á það að vera Mr. Júlíusson ? Hinsvegar held ég að við séum nú ekkert svo hróplega ósammála um marga hluti, munurinn er sá að þú sérð einungis svartnættið framundan á meðan ég reyni nú að líta á það jákvæða einnig ! Tökum dæmi um jákvæða punkta eftir setu þessarar ríkisstjórnar:


Ætla að byrja á því að nefna það að áður en þessi ríkisstjórn tók við völdum, og raunar frá því að Sjálfstæðisflokkurinn kom í ríkisstjórn, þá var gengisfelling daglegt brauð, verðbólga há, og lítill sem enginn kaupmáttur til í landinu ! Þetta var á tímum gömlu flokkana, þeirra á meðal sem nú heita Samfylking. Íslenskur fjármálamarkaður nýtur sín sem aldrei fyrr, og fjármálageirinn kemur t.d. með meira af pening inn í þjóðarbúið heldur en sjávarútvegurinn. Ætlar þú einnig að fara í hótunaraðgerðir gagnvart bönkunum t.a.m. eins og idolið þitt, hann Össur gerði ? Búið er að lækka tekjuskatt á fyrirtæki úr 30% í 18%. Nýlega hefur svo matarskattur verið lækkaður úr 24,5% og 14% niður í 7%. Þrátt fyrir þessar ábendingar, og eru þær brotabrot af fleiru jákvæðu sem hægt er að nefna, þá munu skuldir á árunum 2006 og í ár lækka um 25 milljarða íslenskra króna ! Ragnar Árnason, hagfræðiprófessor telur að heildartekur allra tekjuhópa hafa vaxið gríðarlega undanförnum árum.


Kristján spyr mig hvort ég viti hvað Kyoto-bókunin er, svarið við þeirri spurningu er já. Ef mig misminnir ekki var það skamkomulag gert árið ´99. Þar eru t.d. að finna heimildir sem kunna að koma okkur íslendingum til góða varðandi áframhaldandi uppbyggingu orkufreks iðnaðs. Varðandi Draumalandið eftir Andra Snæ, þá hef ég ekki lesið þá bók, enda legg ég það ekki í vana minn að taka mark á

öfgafullum skoðunum manna, og núna þýðir ekki að hrópa "hvernig veistu að hann er öfgafullur ef þú hefur ekki lesið bókina hans!", ég hef heyrt og lesið ýmis viðtöl við þennan annars geðþekka náunga og fæ ekki betur séð en að hann er a.m.k. pínulítið öfgafullur.


Til þess að klára þetta allt saman, þá get ég vel sagt það hér, að ég er ekkert sérstaklega rosalega æðislega obboðslega hrikalega spenntur fyrir því að álver rísi hérna við bakka. Ef Bill Gates kæmi hérna við á morgun og segðist vilja nýta þá tæru orku sem við höfum upp á að bjóða hérna á svæðinu, tæki ég þeim fregnum eflaust fagnandi ! Það bara þýðir ekkert fyrir fólk, að taka mark á því þegar forseti lýðveldisins fer á stuttan fund með Bill og þar komi fram hvað Bill þyki ísland fallegt land og ísland sé með hreina orku. Ég hef töluverða tilfinningu fyrir því að ef af því yrði, þá værum við að tala um áratugi, en árétta, að þetta er einungis tilfinning. Vona að þetta svari spurningum þínum á einhvern hátt, og þér til eflaust mikillar gleði og ánægju, mun ég, að öllum líkindum skella inn pistli sem snýr að Samfylkingunni og allt sem snýr að henni varðandi kosningarnar í vor. Þá væri gaman ef þið, flokksbundnu Samfylkingarmenn, þ.e Kristján og Andri sæuð ykkur fært að mæta á þennan vettvang og upphefja allt það frábæra sem Samfylkingin hefur fram að færa.

Varðandi Straumsvík, þú mátt liggurvið copy/paste skoðanir mínar varðandi álver á bakka, eins með hugsanlegt álver í helguvík, þorlákshöfn eða hvern og einn stað sem nefndir hafa verið. Ég er sömu skoðunar varðandi alla þessa staði.

Ég er síður en svo að kenna öðrum um að ég taka lán eða yfirdrátt. En það sem ég átti við (ég vona að þú hættir eitthverndaginn að reyna að snúa út úr) er að ríkisstjórninni átti að beita aðhaldsaðgerðum á meðan byggingu Kárahnjúkaverkjunnar stóð, reyna að fá heimilin í landinu til að gera það sama, beita hvetjandi sparnaðar aðgerðum.
90% húsnæðislán eru ekki sparnaðarkvetjandi, enda sagði Framsókn að þetta væri gert til að hjálpa ungu fólki til að kaupa sér sína fyrstu íbúð, sem er rétt, það hjálpar, og hvetur fólk til að EYÐA en ekki að SPARA eins og ríkisstjórnin átti að gera.
Ég trúgi ekki öðru en svona velgefinn strákur eins og þú, Ævar skiljir þetta.

Mér er alveg sama hversu margir þingmenn úr þingflokk Samfylkingarinnar samþkktu Kárahnjúka. Ég hef alltaf staðið fastur á mínni skoðun, það er því miður meira en hægt er að segja um suma (og er ég þá að gagnrýna bæði minn flokk og fleyri.
Ég ætla að vona að þú, þessi klári strákur sért ekki svo þröngsýn að halda að Álver á bakka sé það eina sem geti bjargað Húsvíkingum.
Það er til svo margt annað (þá er ég ekki að meina fjallagrös), fjöldinn allur af iðnaði sem þarf gífurlegt magn af orku, tildæmis Interentið. Ég veit að netfyrirtæki eins og t.d. Yahoo eru að leita að stöðum fyrir sína starfsemi.
Að sama skapi eru alver ekki slæmur valkostur, þar eru há laun og þetta er iðnaður sem þarf mikið af þjónustu. "ekkert er hættulegra en hugmynd, ef hún er eina hugmyndin" ég man ekki hver sagði þetta, ég var töluverðan tíma að fatta þennan málshátt sem datt úr einu páskaeggi, en ég held að þessi málsháttur eigi svo sannarlega við um þessa álvershugmyndir. Þegar menn helda að það eina sem geti bjargað einu byggðarlagi sé eitt stórt álver.

Það er eitt, ég er ekki alveg viss hvað þú ert að meina, þ.e.a.s. þegar þú segir áður en þessi ríkistjórn tók við, ertu þá að meina alveg frá 1945 og til 1995 eða svona aðeins nærtækara?
Allavegana, ég ætla að svara báðum valmöguleikunum.
Frá 45 til 95. Þetta er einmitt það ástand sem við verðum að forðast að haldi áfram, það hefur því miður haldið áfram þá að bjargvættisríkistjórnin þín tók við. Þá er ég að meina hoppið á krónunni, hún hefur hoppað upp og niður, rétt eins og jójó. Það er það sem er að hrekja stórfyrirtækin úr landi, og eða fá þau til að gera upp í annarri mint. Verðbólgan á þessum tíma hefur verið bæði há og lá, þennslan líka, það var góðæri áður en þessir bjargvættir þínir komu til sögunar. Gengisfellingin var gerð til að hjálpa sjávarútveginum. Ert þú kannski á móti því?
Núna í dag getum við ekki gengisfellt, veistu afhverju það er?
Það eina sem gerist er kækur sem seðlabankinn hefur, þ.e.a.s. hækka vextina í hverjum mánuði, til að berjast við verðbólguna sem er fylgifiskur þennslunnar. Vaxtahækkunin hækkar vextina á lánunum, því þau eru flest öll með svokalla verðtryggingu, sem þú veist hvað er.

(Framsókn er með svo gáfaðann formann að hann segir að ekki sé hægt að afnema verðtrygginguna, ert þú sammála því? Rök hans eru þau að þá myndi myndast tvöfallt kerfi næstu 40 árin. Nú ætla ég að segja þér, (það sem þú vonandi veist) að þú getur labbað inn í banka og tekið lán með eða án verðtryggingar og í raunninni í hvaða erlendu mynt sem er... það er s.s. 3falt kerfi. Þannig að það væri mjög gott ef þú gætir útskýrt hvað Jón(flón) er að meina.)

En þú talaðir um virðisaukaskattslækkunina, hvaða flokkar gáfu loforð um þessa lækkun ef þeir kæmust til valda? Það var meðal annars samfylkingin, Davíð var á móti, ég man ekki hvað Framsókn sagði, en allavegana komst þetta ekki inn í stjórnarsáttmálan, En hvar eru t.d. barnakortin? ert þú með eða á móti þeim? afhverju gleymdiust þau?

Gott að þú vitnar í Ragnar Árnason. afhverju vitnar þú ekkert meira í þann ágæta mann og flyri svipaða. Gæti verið að hann hafi sagt eitthvað fleyra sem má kannski ekki minnast á hér á síðunni, því þá gætu speglar bortnað og þú stæðir uppi með brotan glansmynd af bjargvættisríkistjórnni.

Ég skora á þig að lesa draumalandið, ég skal senda þér upptöku af upplestri bókarinnar þannig að þú getir hallað þér aftur í stofunni og ítt á play. Ég verð því miður að viðurkenna að mér finnst Andri ekki öfgamaður, ég lít á sjálfan mig sem öfgamann, og þig reynar líka, en ég er ekki sammála um þér varðandi Andra.

Annars er þetta örugglega orðið ágætt í bili, held að ég sé nánast kominn í gegnum þetta blogg þitt, á þá bara hitt (efra) bloggið eftir. þarf að fara að vinna og verð að svara því þegar vinnulýkur.
#1
21. mars 2007 klukkan 17:27
 
Andri Valur
Er ekki bannað að skrifa athugasemd sem er lengri en bloggið???
Heyrðu ég nenni nú ekki að skrifa neinn langhund hérna, á hinn pistilinn eftir eins og Kristján. Bara tveir punktar sem ég vildi koma að.

Upphafið að þessu góðæri sem þú talar um – endalok gengisfellingar og það allt – var þegar svokölluð Viðeyjarstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks var við völdin. Þjóðarsáttin hafði nýlega náðst, meirihlutinn tók til í rekstri ríkisins og síðast en ekki síst gengu Íslendingar í EES sem markaði mikil tímamót og gerði Íslendingum kleift að hefja þessa svokölluðu útrás. Þar komu vinstri menn svo sannarlega við sögu.

Það er búið að lækka ýmsa skatta sem er gott mál. Hins vegar eru flestir hagfræðingar (og Davíð Oddson) sammála um að þetta hafi sjaldnast verið heppilegar tímasetningar á skattalækkunum (nema kannski tekjuskatti á fyrirtæki). Ríkisstjórnin hefur alls ekki sýnt næga aðgæslu í fjármálunum og oft tekið ákvarðanir á röngum tíma. Meir að segja idolið þitt hann Davíð Oddsson hefur gagnrýnt þetta.
#2
21. mars 2007 klukkan 19:28
 
Ævar Þ
Sælir höbbðingjar ! (innskot - var að komast að því að ég hafi unnið 5.147.- á lengjuna)

Kristján heldur áfram heift sinni í garð núverandi ríkisstjórnar, hann fer að minna mig á pabba, reyndar með aðeins öðruvísi skoðanir á hlutunum, og það var reyndar þegar pabbi var talsvert undir 150 kílóunum ! :)

En já, svo ég byrji einhversstaðar, enn á ný er það forræðishyggjan sem einkennir málflutning Kristjáns varðandi EYÐA og SPARA umræðu.

Það er frábært ef þú ert búinn að heyra í þeim google mönnum með að þeir séu að leita að staðsetningu fyrir sína starfsemi, tæki ég henni fagnandi ef þeir yrðu þeir sem myndu nýta þá orku sem er að finna hérna. Það var góðæri áður en þessi ríkisstjórn kom til valda er það sem þú segir ef ég skil þetta rétt ! Það er gott Kristján minn að þú sért ekki enn búinn að týna húmornum :) Vissulega hoppar krónan og er ég ekkert sérstaklega sáttur við það, og svaraði ég því í commenti hér í pistli að ofan.

Ef það er þín meining að ég sé öfgamaður, en Andri Snær það ekki, þá er það næsta sem þú skalt gera, að taka hausinn á þér upp úr sandinum og hreinsa eyrun á þér með hágæða eyrnapinna.

Ég hef aldrei nokkurn tíman sagt að vinstri menn séu alslæmir, svo langt í frá, þeir hafa margt gott gert og sömuleiðis orðið á í messunni eins og aðrir menn. Davíð Oddsson er ekkert idol hjá mér, svo ég komi þessu nú enn einu sinni frá mér, sbr svar í pistli hér að ofan. Ítök hans í ríkisstjórnina núna eru talsverð að ég tel, og augljóst mál að Árni Matt fjármálaráðh. er í speed dial hjá seðlabankastjóranum !
#3
22. mars 2007 klukkan 00:03
Ef að núverandi ríkisstjórn hefur komið í kring eina góðæri íslandssögunar að þínu mati er það algjör misskilningur að mínu mati, hvað kallar þú þá uppgangin í kringum Síldaræfintýrið á sínum tíma og svo má líka nefna uppgangin í kringum herinn í seinni heimstirjöldinni. Er forræðishyggja eingöngu slæm?
Eg er búinn að finna gamla góða húmorinn aftur eftir smá þunglyndi eftir jól, en það er allt önnur saga og kemur þess spjalli okkar ekkert við. Okey, það má velvera að Andri Snær sé öfgamaður, ég ætla ekki að fara að rífast við þig um það, ég dæmi hann af verkum hans, þú ert hinsvegar öfgamaður, reyndu að finna eitthvern málsmetandi mann sem heldur því ekki fram. Þú gegur ekki undir nafninu Æbbi Sleggja að ástæðulausu.
#4
22. mars 2007 klukkan 00:40

Skrifa athugasemd