Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Jafnaðarmannaflokkur Íslands !

21. mars 2007 klukkan 16:01
Fyrri nokkrum árum síðan ákváðu flokkar sem ekki höfðu náð þeim árangri sem til stóð, að sameinast. Nokkrir aðilar úr þessum flokkum, þó sérstaklega Alþýðubandalaginu ákváðu þó að stofna sín eigin stjórnmálasamtök, vegna þess að þeir áttu ekki samleið með þessum nýja flokk, sem skírður var Samfylkingin.

Í fyrstu vildi enginn stýra skútunni, fáir um hituna og var því Össur Skarphéðinsson sjálfkjörin formaður flokksins í upphafi og hélt hann þeim titli í verulegan tíma eða þangað til vonarstjarna jafnaðarmanna á íslandi, Ingibjörg Sólrún gerði tilkall í formanninn. Hún sigraði Össur með yfirburðum í formannskjöri flokksins ekki fyrir margt löngu. Þessi flokkur átti að vera mótvægið við Sjálfstæðisflokkinn sem annar valkostur og gerði Samfylkingin mikið úr því að valið stæði einungis á milli tveggja flokka, annarsvegar íhaldsins eða þessa frjálshyggja jafnaðarmannaflokks. Við fyrstu sýn stóð þetta allt, Samfylkingin hefur síðan þá verið næststærsti flokkur landsins eða allt þar til núna í vetur, þegar margítrekaðar kannanir sýna að flokkurinn rétt slefar yfir 20% á meðan Vg, "hinn" vinstri flokkurinn hefur verulega verið að sækja á. Margir vilja meina að ástæða þessa fylgistaps sé vegna þess hve orðóheppin formaður flokksins er. "Flokkurinn of pólitískur" "Þjóðin treystir ekki þingflokknum" o.s.frv.o.s.frv. Össur Skarphéðinsson er svona sprellikarl sem náði til margra þeirra sem "ég veit ekki hvað ég kýs" fólk á meðan Ingibjörg Sólrún er of umdeild á meðal þeirra sem ekki vita í hvorn fótinn þeir eiga að stíga. Talað hefur verið um að stefnufesta sé einn af akkilesarhælum flokksins, þ.e. að þeir eiga erfitt með að vera á sama máli á ólíkum fundarstöðum. Þá kemur frasin "Samfylkingin er stór flokkur sem inniheldur fólk með ólíkar skoðanir" en ljóst er að t.d. álversumræður hafa verið fyrirferðamiklar undanfarið, m.t.t. orða formannsins um álverið í straumsvík, svo einnig dularfulla þögnin um fyrirhugað álver hér á bakka við húsavík. Einnig er ekki annað hægt en að líta um öxl með bros á vör þegar bændur á íslandi áttu erfitt með svefn á tímabili, vegna tilllagna Samfylkingarinnar varðandi búvörumál. "Fagra Ísland" er slagorð sem er í fyrsta lagi ófrumlegt, en þarna á að vera hægt að finna áherslur flokksins í umhverfismálum, sem eru einmitt svo ofboðslega vinsælar í dag.

Ljóst er einnig, að stuðningsmenn Össurar í formannskjörinu síðasta, eru í einhverri nöp við formanninn. Við sjáum nú þegar örfáir dagatugir eru í kosningar að t.d. Hrafn Jökulsson, í gegnum tíðina verið mikill Samfylkingarmaður sat andspænis Hannesi Hólmsteini í Kastljósþætti nú á dögunum og gerði lítið annað en að vinna Samfylkingunni mein. Oft er það svo að Hannes Hólmsteinn vill eiga síðasta orðið og vera með orðið, en þarna sá maður bara hvað prófessorinn sat rólegur og kinkaði kolli yfir því sem Hrafn hafði að segja um stöðu síns flokks og þá síns formanns. Eins og kom fram í síðasta pistli þá sjáum við bæjarstjórarnn í Hafnarfirði, Lúðvík Geirsson setja ofan í við Ingibjörgu er hún hóf að ræða um málefni álversins á þeim bænum.  Ég hef sagt það áður, og segi enn, að ef Samfylkingarfólk nær ekki einhverri samstöðu um sinn formann þá kemur kosningin til með að líta illa út í vor.

Sjarmi Samfylkingarinnar hefur dofnað verulega undanfarið, fáir eru þeim sammála í evrópuumræðum, en frammararnir hafa þó verið gjarnir á að ræða aðild að þeim félagsskap, en þá hafa reyndar jafnharðan sjallarnir komið og tekið í hálsmálið á þeim og rifið þá inn og skammað þá fyrir umræður um evrópusambandið. Eins og kom fram í síðasta pistli þá vitna ég í könnun fréttablaðsins um vinsældir Ingibjargar og ekki eru það vinsældir til að hrópa húrra fyrir, en seinna var hún rendar í rúv-könnun komin upp í 16 eða 17% en það eru auðvitað ekki nærri því eins og gott og menn í þessum ofboðslega jafnaðarmannaflokki vilja hafa. Geir Hilmar Haarde mælist þetta með 40-50% í sömu könnunum og er hann einmitt í "hinni blokkinni" !

Forvitnilegt verður að sjá hvort Samfylkingin nái að stilla saman strengi sína og þó að vika sé langur tími í pólitík eins og einhver sagði, þá mega þeir fara að hysja upp um sig buxurnar fram að kosningum, ef ekki á illa að fara. 
Mjög skemmtilegur pistill, þeir mættu vera fleyri svona, frálslega farið með staðreyndir, skáldað í eyðurnar og svo framvegis... endilega meira af þessu!

Svona til að byrja með, það var Össur ekki sjálfkjörinn, það skipir í sjálfum sér ekki öllu máli, en rétt skal vera rétt...
Hefur þú lesið stefnuna, Fagra Ísland?
Hver er stefna Ævars Þór í umhverfismálum? Skjóta fyrst og spurja svo?
Þú nefnir samstöðu, ég ætla bara að minna á að Sjálfstæðismenn höfðu 3 skoðanir í auðlindarmálinu, þannig að samstaðan er ekki meiri en svo, svo til að benda á annað, þá hafa sjálfstæðismenn felt tillögur eigin þingmanna, eins og t.d. um sölu á Rúv. mikil samstaða á þeim bænum.
Ég man ekki hver kenndi þér málfræði í skóla í den, en allavegana hefur sá kennari gleymt að kenna þér slatta, þá er ég ekki að tala um stafsetningu, heldur munin á orðunum treystir og treysta, byggir á orðinu traust. Ég vona að þú skiljir mig, I.B.S. sagði "kannski treysti þjóðin ekki þingflokknum" s.s. í den. Hefði hún sagt "kannski treystir þjóðin...." þá væri það annað mál. I.B.S. átti við að hún ætlaði sér að reyna að byggja um traust á þingflokkinn. Ég get ekki treyst flokki eins og X-D sem hefur 3 skoðanir á einu máli. Treystir þú svoleiðis þingfokki? hver af 3 skoðunum X-D í auðlindarmálinu er þín skoðun, ert þú kannski með skoðun nr.4?
Hver er þín skoðun á ESB og Everunni? Varst þú með eða á móti ESS samningnum? ert þú ánægður með þá staðreynd að heilbryggðiskerfið okkar sé að færast frá því formi sem gengur og gerist á norðurlöndunum og yfir í gjaldheimtukerfið í USA?
Hvar eru t.d. barnakortin? Afhverju var hætt við þau?
Ert þú sáttur við að nær allar veiðiheimidlir sem voru tengdar Húsavík einusinni séu kominn eitthvert allt annað? og að Skari sé stæsti útgerðarkallinn á víkinni? gæti ekki verið að kótakerfið hafi haft eitthvað að segja um það hvernig komið er fyrir Húsavík? Hæti verið að X-D og X-B hafi gleymt ykkur í þau 12 ár sem þeir hafa verið við völd? verðbólgan var um 3% 1988, hún er yfir 10% nú í dag, sýnir það hagstórnar-snild finna manna?
ég gæti haldið endalasust svona áfram... en Andri var óbeint að gagnrína mig fyrir að vera með Comment sem er lengra en bloggið, þannig að ég segi STOPP í bili!!
Kveðja frá Suður-austurlandi
Kristján
#1
21. mars 2007 klukkan 20:13
 
Ævar Þ
Óttaleg reiði býr innra með þér Kristján ! Ég auðvitað skil það vel þegar mið er tekið af könnunum undanfarið. Þú segir að ég fari frjálslega með staðreyndir ! Yfir 10% verðbólga núna !! Þú ert ekkert fluttur af íslandi er það nokkuð ?!? Stefna mín í umhverfismálum á sviði orkumála, er að nýta þá orku sem fyrirfinnst á klakanum og nota hana sem best, ekki ætla ég að samþykkja það að henni sé best borgið í höndunum á amerískum auðjöfrum. Hvar hef ég verið að verja auðlindafrumvarp ríkisstjórnarinnar ? Geturðu sagt mér það ? Ég get nú bara sagt þér það að, að sá gjörningur í kringum það mál olli mér pínulitlum vonbrigðum og fór alltof mikill tími, í greinilega ekki neitt ! Skemmtilegt að sjá hvernig þú reynir að afsaka "reyna að treysta" umræðuna hjá ISG ! Þú veist það jafnvel og ég, og ert ekki það staurblindur að sjá að þetta var frekar aumt útspil hjá henni á opinberum vettvangi, hún hefði mátt vita það að fjölmiðlar og andstæðingar gripu þetta á lofti. Hún meinti auðvitað vel en þetta voru svona "byrjendamistök"

3 skoðanir á einu máli nefnir þú að sjallarnir hafi haft. Hversu margar skoðanir ríkja í samfylkingunni nákvæmlega núna varðandi álversvirkjanir ? Ég er ekki að segja að það sé slæmt að hafa 2-3 skoðanir áður en afstaða er tekin, hvort sem við ræðum um xd eða xs. Ég var ánægður með að Jón Baldvin hafi m.a. fært okkur EES samningin. Ég get einnig sagt þér það að ég er hlynntur evrópubandalaginu og að taka hér upp evru. Þess vegna skil ég ekki hvurs vegna þú sért augljóslega búinn að gera þér það í hugalund að ég kjósi sjálfstæðisflokkinn ! Ég er ekki nægjanlega sáttur við heilbrigðisráðherra. Varðandi barnakortin, þá hef ég ekki kynnt mér það nógu vel til þess að vera blaðra e-ð um þau, en mun gera það um leið og tækifæri gefst til. En talandi um börn, þá er ég auðvitað sáttur við það, og þú hlýtur að vera það einnig, nýkomin með lítið kríli, að lög um fæðingarorlof hefur gjörbreyst í tíð núverandi ríkisstjórnar ? Veiðiheimildir húsvíkinga, já, með dýpstu virðingu fyrir þeim aðilum tengdum Dalaröstinni, þá er það slæmt mál að útgerðir, sbr langanes er farin úr bænum. En það er nú gott starf unnið hérna einnig, hef ágætis heimildir fyrir því að ný "Karólína" sé á leiðinni til Húsavíkur með kvóta. Nú svo má auðvita einnig nefna vöxt GPG, en þeir stjórnendur sem þar eru, eiga auðvitað ekki upp á pallborðið hjá þér, þannig að illa gengur að ræða þá við þig.

Auðvitað gætirðu haldið endalaust svona áfram Stjáni, ég gæti sagt tröllasögur í marga daga án þess að stoppa. En hér eftir, kýs ég að þú takir þér ekki það leyfi í hönd, að líma mig við einhvern flokk ! Ætla jafnvel núna að færa mig neðar í pistla og reyna að svara ykkur jafnaðarmönnunum þar.
#2
21. mars 2007 klukkan 23:44
Ævar ef þú heldur að ég sé reyður eða æstur þá er það ekki svo, jafnvel þó þú vonir það jafnvel innst í hjarta að þú hafir náð að æsa mig upp, þá gengur það því miður ekki. Jú ég skal eta það ofan í mig að verðbolgan er ekki fyrir 10%, samkvæmt fréttum á Vísi.is síðan 21 mars er spáð að raunverðbolgan verði 7,7 prósent, þessi spá er frá greiningardeild og er því allsekki 100% örugg. ´
Ég hef hvergi séð þig verja eða tala fyrir auðlyndarfrumvarðinu, ég spurði bara einfaldlega um þína skoðun. Þú spyrð um skoðannafjöldann innar samfylkingarinnar varðandi álversvirkjanir, í fljótu bragði myndi ég segja 2, sumir með, aðrir á móti. jafn margar og eru í öllum flokkum, nema kannski hjá vinnsti-grænum.

Ég vissi ekki að þú værir svona mikill Evrópu-sinni, það gleður mig, personulega vill ég að við förum í viðræður og sjáum hversu langt þær skila okkur, svo fari málið í þjóðaratkvæði, þjóðin mun því að lokum ráða því hvort við förum inn og þá hvort við munum taka upp evru. Ég vill líka að við reynum að valda okkur við hagstjórnina þannig að við náum efnahagsmálunum í þann classa svo við getum tekið upp evru, það þarf nefnilega eins og þú veist að uppfylla mörg skilyrði áður en hún er tekin upp, og eins og staðan er á klakanum þá er það ekki beint að takast, og ekki mun það ganga betur ef Idol-stjarnan Davíð tekur uppá þeim ósköpum að hækka stýrivextina enn eitt skiptið núna um mánaðarmótin.
En Ævar, þú varst aldrei búinn að svara þeirri spurningu afhverju við getum ekki gengisfellt lengur... Idol-stjarnan sagði í fréttaviðtali að við yrðum að halda í krónuna til að geta gengisfellt, (þetta sagði hann á síðast ári, dagsettningu og fjölmiðil er ég því miður ekki með) ég bíð spenntur eftir svari og því hvort þú ætlir að leyðrétta Idolið. Ég veit að þú hefur kosið X-D, þessvegna geri ég mér upp þær hugmyndir að þú gerir það áfram, ég er mjög sáttur við það að þú sért ósáttur við þróunina í heilbrigðismálum, velkomin í lið með vinnstiflokkunum. Ég bíð spenntur eftir skýrslu varðandi barnakortin,
en já,
Fæðingarorðlofið, það eru smá vankanntar sem þarf að snýða af því annars ágæta kerfi, stjórnarflokkanir fá annars * í kladdann fyrir þetta mál. En vankanntanir eru þeir að menntamaður sem hefur unnirð mjög lítið fær rétt innan við 50.000kr á mánuði í orðlofi, sá sem hefur unnið eitthvað, minnir að það séu 6 mánuðir áður en orðlofið byrjar fær um 87.000kr og og hafir þú unnið eitthvað meira færðu 80% af laununum (samt aldrei undir 87.000kr) Það þarf að hækka þessa greyðslur að mínu mati, 50.000 krónur með lítið barn er ekki nokkur skapaður hlutur, þið skilið þegar þið hafið prófað á egin skinni.
Veiðiheimildir Húsvíkinga, það eru fleyri en bara langanes sem er farið, Geiri P er farinn, útgerðin sem fristihúsið var með, júlli og kolbeinsey í den, svo nýrri skip það á eftir, hvað ætli það hafi verið margar fjölskyldur sem höfðu háseta um borð á þessum skipum og eru farnar frá húsavík nú í dag? Mergur málsins er að kótakerfið hefur ekki veirð vinur Húsvíkinga, svo má nefna allar trillukallana sem vonu í denn, maður sér varla trillu fara á sjó þegar maður er í heimsókn.
Gott að þú nefndir GpG, þegar maður vinnur svona eins og kakkalakki þá á maður til að missa af einu og einu blaði, sá einmitt réttáðan mynd af Gulla á forsíðu fréttablaðsins, en hvaða spjót hef ég í síðu Gulla, ég er bara ekki alveg með á nótunum, ég veit að maðurinn er Leddsari, en boy O boy, ég fer ekki að erfa það við hann, ekki heldur að hann sé Sjalli, ekki er ég að erva það við þig þá þú sért inn við beinið sjalli...

Eitt máttu bóka, Guttormur Þór Ævarsson, hér eftir mun ég líma þig við alla þá flokka sem ég hef skömm á, bara til að reyna að pirra þig.
#3
22. mars 2007 klukkan 06:38
 
Ævar Þ
Ætla að reyna að halda þessum umræðum á sama stað. En sú forræðishyggja sem þú leggur upp með, er að mínu áliti slæm. En þú hlýtur nú reyndar að vera sammála Katrínu frænku þinni, með að leyfa sölu á léttvíni og bjór í matvöruverslunum ? Ég er ekki hrifin af forræðishyggju stjórnmálamanna og mun sennilega seint verða.

M.v. stærð Sjálfstæðisflokksins er ekkert skrýtið að 3 skoðanir séu á málinu, fullt af stjórnmálamönnum, þ.a.m. í Samfylkingunni sem botna hvorki upp né niður í þessu frumvarpi og ekki ásaka ég þá fyrir það, þvert á móti. Annar eins gjörningur og leikþáttur um e-ð mál, man ég vart eftir(reyndar ennþá kornungur) En varðandi evruna, þá er það auðvitað hárrétt hjá þér að ef okkur skyldi detta í hug allt í einu á morgun að langa í evruna, þá er þetta ekkert eins og að kaupa sér kók og prins. Það þarft ýmislegt að gerast, til þess að þau skilyrði skapist svo hægt sé að taka þann gjaldmiðil hér upp og ganga í evrópusambandið, þá getum við kvatt seðlabankastjórana 3, þá Davíð, Eirík og Ingimund.

Varðandi fæðingarorflofið þá er það fyrirbæri fyrst og síðast frábært. Svo ef rýnt er ofan í það, hvernig greiðslum er ráðstafað, sbr menntamanni(konu) þá er auðvitað hægt að gera betur, en allsstaðar er hægt að gera betur og dreg ég það ekki í efa að Magnús Stefánsson, núverandi en alls ekki verðandi félagsmálaráðherra (m.v. kannanir) reyni betur í dag en í gær.

Rétt er það hjá þér, að einu sinni var þetta gjöfull sjávarútvegsstaður, þegar Höfði, Langanges, Korri og allir þeir trillukarlar sem fyrirfundust neðan við bakkann höfðu störf. Rækuvinnslan var í blóma, þangað til ekkert verð fékkst fyrir rækjuna, aðkoma Húsavíkurkaupstaðar (nú Norðurþing) að Fiskiðjusamlaginu var sérstök og eru þeir enn þann dag í dag að kenna hvor öðrum um hvernig fór, þ.e. íhaldið og kratarnir. Ánægjulegt að sjá að þú virðist vera þá væntanlega ánægðan með uppgang eins stærsta saltfisksverkanda í heimi, sem GPG er orðin.

En af því að við erum komnir á víkina með umræðuna, þá er hér nú ekki allt alslæmt, þrátt fyrir 8 ára setu H-listans með tilheyrandi spillingu og valdhroka. Nú gefum við nýjum meirihluta tíma til þess að sanna sig og dæmum verk hans eftir á, nákvæmlega eins og bæjarbúar gerðu í kosningunum nú í vor. Við höfum hérna talsvert öfluga ferðamennsku sem inniheldur m.a. hvalaskoðun. Heyrðu já, ert þú fylgjandi Hvalveiðum okkar íslendinga, eins og margir sjóarar og sjóarasynir eru hérna á víkinni ? Reyndar höfum við ekki lengur neina Video-leigu en það hafa staðir eins og Þórshöfn og Vopnafjörður ! Blómlegt atvinnulíf er hér á svæðinu, þó sérstaklega auðvitað á sumrin. Það eru t.d. margir iðnaðarmenn og iðnverkamenn sem njóta góðs af framkvæmdunum fyrir austan, m.a. vélstjóri einn sem við báðir þekkjum nokkuð vel.

En já, komin örlítið út fyrir efnið á upphaflegum pistli þar sem ég gerði Samfylkinguna og formanns þess flokks að umtalsefni, en endaði svo þetta comment á að tala um Video-leigur á Vopnafirði og Gauja ! :)

ps. Ítreka samt spurningu mína við hvalveiðarnar, og væri þá gott ef þú gætir fært rök fyrir máli þínu.

pps. Það er ekkert sem þú getur pirrað mig með, eina sem pirrar mig í lífinu er það þegar Luis Garcia er í byrjunarliðinu !
#4
22. mars 2007 klukkan 09:21
 
Áhorfandi
Sæll Ævar. Ég er búinn að vera að lesa yfir ágætar greinar þínar um pólitíkina, en það sem ég átta mig ekki á, er sú biturð sem þú hefur í garð Frjálslynda flokksins. Hvaðan kemur sú biturð ? Gæti kannski verið, að með tilliti til aðstæðna hjá þér, sértu jafnvel vanhæfur til þess að fjalla um frjálslynda vegna stefnu þeirra í ákveðnum málaflokki ? Ég minnist þess nefninlega ekki að þú hafir látið þá ´hafa það´ svona áður.
#5
22. mars 2007 klukkan 12:44
 
Aðalsteinn J.
Ég get borið vitni um að Ævar var byrjaður að láta Frjálslynda flokkinn "hafa það" löngu áður en að "aðstæður" hans breyttust.

Enda ekki undarlegt þar sem Frjálslyndi flokkurinn er án vafa lélegasta stjórnmálaafl síðara tíma hérlendis.
#6
22. mars 2007 klukkan 15:52
 
Ævar Þ.
Eins og Aðalsteinn nefnir hérna, þá var ég fyrir löngu áður en aðstæður breyttust hjá mér, farinn að gagnrýna þennan þorsksflokk. Annars finnst mér athyglisvert að sjá hvað þú ert hugaður, kjarkaður, áræðinn og ósérhlífinn að rita nafn þitt ekki við þetta comment.

Einnig get ég upplýst um það hér, að þó ég væri með fjallkonunni þá væri ég með sömu umræður um frjálslynda og ég hef áður haft.
#7
22. mars 2007 klukkan 17:41
 
Dagur
Djöfull er þetta hryllilega leiðinleg umræða!!!
#8
22. mars 2007 klukkan 23:00
Sæll Fjallkóngur... hélt reyndar að þú værir með fjallkonunni... En já, forræðishyggjan er skrítin, Ævar er á móti henni ef hún er notuð til að reyna að fá fólk til að spara, eyða ekki um efni fram og fara á yfirdrátta og lána fillerý. En Ævar er hlinntur henni ef forræðishyggjuna á að nota til að fá feður í fæðingarorðlof... Ég botna bara hvorki upp né niður í þessu, jafnvel þó ég sé með greind yfir meðallagi.

En þú ert að reyna að draga uppúr mér eitthvað um hvalveiðar.
þá ætla ég að benda þér á pistil á blogginu mínu frá 25/10 2006. held að ég svari mjög mörgu þar.
Ef ég á að hlaupa í gegnum skoðanir mínar, þá eru þær eitthvað á þann veginn, það þarf að grisa hvaðastofnanna. Það er staðreynd að hvalir borða of mikið, sjáfarfuglar eru farnir að svelta, fiskveiðar íslendinga eru farnar að líða fyrir fjölda hvala í sjónum. En eigum við að líta á hvali sem mat eða meindýr? Eigum við að láta Kristján Loftson eða Árna Loga sjá um málið? Það gegnur ekkert að selja klötið, það liggur allt í frosti, ég veit ekki hvernig gengur með ransóknirnar sem áttu að taka 6 mánuði. Okkur lá í raunninni ekkert á að veiða fyrr en þeim væri lokið, og við farin að selja, þá má veiða. við veiðum ekki til að geyma í frysti alla ævi...
Annað er það varðandi þetta mál, það eru alþjóðasamningar, rétt eins og með norsk-íslensku syldina, þá eru veiðar úr sameiginlegum stofnum, sameiginleg ákvörðun, við eigum hvalinn ekki ein. Ég held að það hafi eiginlega allt klúðrast sem klúðrast gat varðandi þetta mál. Það var ekki einusinni samstaða um málið í ríkisstjórn. Mín skoðun: veiðum hval, en gerum það eins og menn en ekki eins og klaufabárðasamkoman í stjórnarráðinu. Að endingu spái ég enneinu hvalaskoðunarmetinu í sumar.

En hvernig gengur að svara spurningunni um "hversvegna við getum ekki gengisfellt lengur"

Kveðja frá suðurlandi
Kristján
#9
23. mars 2007 klukkan 09:57
 
Dagur
Guð minn góður. Ætlar þetta engan endi að taka??!!
#10
23. mars 2007 klukkan 21:02
 
Ævar Þ.
Efnahagsstjórnin er í molum og þess vegna ekki hægt að fella gengið stjáni minn, vona að þetta svar kæti þína litlu sál.
#11
26. mars 2007 klukkan 10:54

Skrifa athugasemd