Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Kiddi

26. mars 2007 klukkan 11:22
Djöfull sem Kiddi Björns komst vel frá kastljósþættinum s.l. þriðjudagskvöld. En Kristinn þessi, er einmitt fyrrv. forstjóri Skeljungs, viðskiptafélagi Manúsar Kristinssonar, útgerðarmanns úr vestmannaeyjum. Eiginkona Kidda er Sólvegi Pétursdóttir sem lauk þingferli sínum nú á dögunum sem forseti alþingis. En á sínum tíma, þegar umræðan um meinta spillingu olíufélaganna stóð sem hæst, var hún dóms- og kirkjumálaráðherra m.a. !

En já, íslandshreyfingin orðin að veruleika og Hannes Smárason að fjármagna framtíðarlandið samkvæmt slúðursögum laugavegsins. Ómar og Margrét komin upp í 5% samkvæmt fyrstu könnun eftir að þau kynntu framboð sitt, og Ómar hæstánægður með niðurstöðuna. Samt frábært að undanfarin ár, og í aðdraganda ákvörðunarinnar um kárahnjúkavirkjun o.s.frv. var Ómar Ragnarsson að fljúga með fáfróða íslendinga yfir þetta svæði (sem að 10% landsmanna hefur séð) og segja þeim hvað þetta væri allt saman frábært. Hann má eiga það, að hann reyndi eftir sinni bestu getu að halda aftur af sér, varðandi hlutleysi og hlutdrægni. Svo brast stíflan, og Ómar gekk á fund útvarpsstjóra og sagðist ekki lengur, skoðana sinna vegna, geta flutt fréttir af stóriðju hverskonar. Eftir það fór hann að mála árabát og sigla í lóninu og mynda það þegar aðalbláber fóru undir vatn. Því næst arkaði hann niður laugaveginn í svona "gay-pride" göngu og söng "ísland er land" þitt og fleiri þjóðlög við mikinn fögnuð allskonar listamanna. Annars er Ómar fínn náungi held ég, sprellikarl og húmoristi, góður að lýsa boxbardögum, auk þess er hann fínasti textahöfundur. Svolítið dapurlegt að andlit þessarar hreyfingar m.a. skulu vera þau Margrét Sverrisdóttir og Jakob Frímann, aldrei sannfærandi eða trúverðugt þegar stjórnmálamenn taka þátt í prófkjörum þar sem þau sækjast eftir ákveðnu sæti en tapa þeim svo, þá hlaupa þau í burtu og segjast ekki eiga samleið o.s.frv.o.s.frv. Reyndar er Margréti Sverris vorkun, eftir dramað allt saman í kringum hennar fyrrverandi flokk, Frjálslynda flokkinn. En Jakob Frímann ! Jesús jesús, skil ekki af hverju hann er alltaf fenginn í svona umræðuþætti. Egill Helgason hefur t.a.m. verið ófeiminn við að fá hann í þáttinn sinn, til þess að fá hans afstöðu og hans skoðanir í hinum ýmsu málum. Aldrei verið hrifin af Jakobi og var það gríðarlega farsælt fyrir Samfylkinguna að sjá á eftir honum.

Fylgið við Vg að mælast minna núna en áður, og mældust þeir í 23% nú síðast og Samfylkingin örlítið að færast upp á við. Framsókn að sækja örlítið í sig veðrið þrátt fyrir stanslausar árásir stjórnarandstöðuflokkanna á hendur þeim. Það jákvæðasta við síðustu könnun var að sjá fylgi frjálslyndra er í 4,4%. Kosning í firðinum eftir ca 5 daga held ég, og öll spjót farin að beinast að því hvað Alcan sé að kosta miklu í herferðina ! Sól í straumi held ég að samtökin heita sem berjast gegn því að þetta deiliskipulag verði samþykkt, benda á það í nýrri tölvuteikningu Alcan af stærra álveri vanti einhverja turna, og svo sem fyrr segir, að Alcan sé að eyða alltof alltof alltof miklum pening í þessa herferð sína.

Djöfull sem ég nenni ekki lengur að skrifa hérna núna, en get þó bætt þeirri sorgarfrétt við hérna að einn dyggasti stuðningsmaður Vg (m.a. fyrrv. stjórnarmaður húsavíkurfélags vg) ætlar að leggja sjó undir fót og fara að veiða fisk en samt meira kannski að elda hann, eða meira kannski að elda kjöt. Verður gríðarleg eftirsjá af honum, og eru stuðningsmenn hans búnir að ákveða að koma saman á fjögurra daga fresti upp á svokölluðum Gónhól á meðan á dvöl hans út á hinu stóra hafi stendur, og syngja nokkra valinkunna sjóaraslagara.
 
Ævar Þ.
Til að bæta aðeins við þetta varðandi síðustu málsgreinina, þá spái ég því að sá aðili sem um ræðir, verði orðinn ráðandi hluthafi í Samherja áður en langt um líður !
#1
26. mars 2007 klukkan 11:24
 
Andri Valur
Það verður eiginlega að fá að fljóta með að Maggi Halldórs sigldi þarna með Ómari. Einn af örfáum Íslendingum sem hefur siglt þessa leið!

Hins vegar skil ég ekki þennan punkt hjá þér:
"...var Ómar Ragnarsson að fljúga með fáfróða íslendinga yfir þetta svæði (sem að 10% landsmanna hefur séð) og segja þeim hvað þetta væri allt saman frábært."
Þetta er svo hrokafullt að þetta er nánast ekki svara vert!
Einnig með þessi "rök" að það hafi svo fáir séð þetta. "Hvernig getur fólk verið á móti því að sökkva þessu landi þegar það hefur nánast enginn Íslendingur séð þetta, og alls ekki þetta fólk?".
Þá spyr ég á móti: "Hvernig er hægt að vera hlynntur því að sökkva landi, undir uppistöðulón, sem maður hefur aldrei séð?".


Ótrúlegt líka að það sé fyrirtæki á Íslandi að eyða tugum milljóna í kosningabaráttu! Reyndar er það ekkert óþekkt þannig séð, en yfirleitt er það þá gert á bakvið tjöldin.
Samt skrítið að fyrirtæki sé með áróðurshóp að berjast fyrir því að fá stærri lóð undir starfsemina!
#2
26. mars 2007 klukkan 13:37
 
Ævar Þ.
Skil ekki hvað var svona hrokafullt hjá mér, ég nefndi það að fólk, sem vissi ekki neitt um þetta svæði (enda aldrei komið þangað), var boðið í útsýnisflug frá Ómari, m.a. þingmenn og ráðherrar. Hann er yfirlýstur náttúruverndarsinni og því finnst mér líklegt að hann hafi haldið ræðu um það hversu fallegt er þarna.

"Hvernig er hægt að vera hlynntur því að sökkva landi, undir uppistöðulón, sem maður hefur aldrei séð?" spyr Andri. Svar mitt er að finna í svari Samfylkinarmannsins (leiðréttið mig ef ég fer rangt með) Smára Geirssonar sem sat fyrir svörum í hádegisviðtalinu á stöð2 s.l. föstudag. Hann var nú kannski ekki spurður nákvæmlega þessarar spurningar en það er óhætt að mæla með þessu viðtali við mann sem þekkir mannlífið þarna fyrir austan manna best, að ég tel.

Varðandi það hvað þér þykir ótrúlegt hvað fyrirtæki eins og þá Alcan væntanlega, sé að eyða tugum milljóna í kosningabaráttu, þá hljóta hafnfirðingar að brosa yfir öllum þeim fjármunum sem fyrirtækið skilar inn í bæjarapparatið ! Hvað í ósköpunum er svona skrýtið við það að starfsmenn Alcan séu að vinna í því að tryggja "þeim" sitt atkvæði ? Að sjálfsögðu gera stjórnarmenn Alcan sitt besta til þess að tryggja að þetta verði samþykkt, þá með auglýsingaherferð t.d.
#3
26. mars 2007 klukkan 15:25
 
Aðalsteinn J.
Ég vil koma því á framfæri að gífurleg eftirsjá er af umræddum stuðningsmanni Vg út á sjó.

Ég man eftir því þegar ég var lítill þá fór ég alltaf með faðirvorið áður en ég fór að sofa. Ég man ekki hvenær ég hætti þessu en sjálfsagt hefur það verið í kringum fermingu, raunar ótrúlegt hvað maður hélt þetta lengi út miðað við að vera efasemdarmaður að eðlisfari.

Nú er ég hinsvegar að spá í að taka þennan sið upp aftur, eða næstum því. Ég ætla að vísu ekki að fara með faðirvorið heldur þylja upp "Stolt siglir fleyið mitt" til heiðurs Vg manninum annálaða.
#4
26. mars 2007 klukkan 20:46
 
Ævar Þ.
Ég vill koma því að hér, að mér áskotnaðist sá heiður að vera viðstaddur þegar umræddur "sjóari" fór og fjárfesti sér í sjóbúning. Fyrst mátaði hann sjóbuxur og smellpassaði hann svona líka í þær, og svo á eftir var honum réttur stakkur sem fór honum einkar vel, svo að ferðin og mátunin gekk í alla staði frábærlega ! Þarna enn á ný sýnir það sig, að stundum er maður á réttum stað, og það á hárréttum tíma !
#5
27. mars 2007 klukkan 14:37
 
Erla Björk Guðjóns
Vildi bara kvitta fyrir mig Ævar minn,,á eftir að sakna þess að vinna ekki með þér í sumar og hlusta á allar þessar málefnalegu umræður þínar;)
#6
28. mars 2007 klukkan 15:09
 
Andri B
Ussss hvað Jakob Frímann er leiðilegur.... þessi flokkur væri sennilega betur settur án hans!
#7
28. mars 2007 klukkan 18:25
 
Ævar Þ.
Sömuleiðis Erla, það hefði verið gaman ef við hefðum nú tekið sumarið en svona er lífið stundum ósanngjarnt :)

Já Andri, Ómar hlýtur barasta að sjá eftir því hverja einustu kvöldstund að hafa tekið Jakob með sér í þetta eldvígsgarðaframboð sitt !
#8
29. mars 2007 klukkan 08:08

Skrifa athugasemd