25 ára strákurinn !
29. mars 2007 klukkan 08:46
Já, var rétt í þessu að hringja austur á land og óska einum manni til hamingju með 25%-in úr öldinni við fremur dræmar undirtektir. En semsagt, fyrir 25 árum síðan, kaldan vetrarmorgun 1982 heilsaði lítill strákpjakkur heiminum, strák sem engum grunaði þá, að ætti eftir að leggja stund á vélstjórn seinna í lífinu. Ég man það eins og það hafi gerst í gær þegar ég fór í barnaskólann í fyrsta skipti og var á leið í kaffitíma, sem fór þannig fram að krakkarnir settust á óþægilegt þunnt teppi og drukku og borðuðu nestið sitt. Ég man að ég ráfaði þarna um líkt og nýfæddur bambi og var mér strax litið á frekar feiminn, feitlagin og útundan strák í horninu og tyllti ég mér því hjá honum og spurði hann hvað hann væri að drekka, "gagó" svaraði hann til, þannig hófst þetta hjá okkur sem hefur þróast úr því að vera nördar, sem söfnuðum flugum og ormum í krukkur og yfir í það að vera bestu gæsaskyttur S-þingeyjarsýslu. (reyndar að hans sögn eingöngu). Talsvert magn af vatni hefur runnið í sjóinn sinn síðan þetta var og er hann sem stendur að flýta fyrir álversframkvæmdum fyrir austan fjall, sem gengur svo ég þekki til, bara mjög vel. Maðurinn sem um ræðir hefur á sínum ferli kallað sig ´Alfreð Gíslason´ ´Jón Odd´ ´Casanova´ ´Larry Bird´ ´Ronald Koeman´og miklu fleiri nöfnum en hans raunverulega nafn er. En við óskum honum að sjálfsögðu til hamingju með daginn, já og reyndar Krissu líka, en hún er einmitt Kristjana Magnúsdóttir sem á afmæli sama dag og fyrrgreindur aðili.
En já, oft heyrir maður klisjur í stjórnmálamönnum fyrir kosningar og hverjar eru þær, jú, "við ætlum sko að bæta velferðarkerfð, menntakerfið, gera vel við aldraða, barnafólk hafi það betra" o.s.frv.o.s.frv. Lengst gekk þessi klisjuumræða nú í gær þegar íslandshreyfingin sagðist ætla að gera lífið skemmtilegra, já það er nú ekki ónýtt að kjósa flokk og fólk, sem ætlar að gera líf manns skemmtilegra. Þessi umræða minnir á "óháðu" umræðuna, þ.e. flokka sem aðhyllast einnig að "óháðu" fólki. Fyrir síðustu sveitastjórnarkosningar kom Samfylkingin held ég fyrst fram með framboð sitt merkt, "Samfylkingin og óháðir", svo fylgdu frammararnir, sjallarnir og vg í kjölfarið. Algerlega ómarktækt. Svo þegar svokallaðir "óháðir" aðilar sitja á listum fólks, því er ekki að neita að sú umræða fer ´nett´ í taugarnar á mér.
Ég lýsi því hér með yfir að ég er búinn að æla tvisvar sinnum vegna baugsmálsins, það hefur semsagt komið fyrir tvisvar að þegar þessi "setti ríkissaksóknari" Sigurður Tómas hefur birst á skjánum þá hef ég hlaupið inn á baðherbergi og ælt, í seinna skiptið náði ég því varla og þurfti ég að eyða góðum tíma í að bóna klósettsetuna hjá mér.
Íslendingar töpuðu fyrir spánverjum í gær 1-0 á mallorca í vægast sagt leiðinlegum leik hef ég heyrt. Landsliðsþjálfarinn okkar, ofmetni Skagfirðingurinn Eyjólfur Sverrison, sagði fyrir leikinn að verið væri að spila við íslenskar aðstæður, rok og rigningu. Reka Eyjólf og ráða Gauja kóng strax !

Erla Björk Guđjóns
Ævar þið eruð án efa bestu gæsaskyttur S-þingeyjarsýslu!!! ;)
#1
29. mars 2007 klukkan 13:11
Ađalsteinn J.
Hei! Við vorum ekkert óháðir!!! Bara 200% framsóknarmenn á okkar lista og engar skræfur sem þora ekki að koma fram undir merkjum!
#2
29. mars 2007 klukkan 15:12
Sæll gósi... Sleggju tilþrifin halda áfram.
Ég er alveg viss um að Ómari takist að gera lífið "Skemmtilegra.
Önnur góð dæmi sem þú nefndir reyndar ekki eru tildæmis, ónafngreindur hæfrisinnaður flokkur lofaði hagvexti, annað lítill flokkur lofaði einusinni nokkurþúsund nýjum störfum á kjörtímabilinu, báðir stóðu við sitt, það hefði verið jafn auðvelt að lofa því tré og gras yrði aftur grænt eftir veturinn eða að loðnukótinn yrði aukinn í lok verktíðar.
Kannsi ættuð þið gágnaljósin, þú og Aðalsteinn að telja upp þau loforð sem ekki ekkert varð af, s.s. barnakrotin, 4% skattalækkunin og fleyra...

#3
29. mars 2007 klukkan 18:07
Ađalsteinn J.
Ekki veit ég hvers vegna ég ætti að telja upp eitt eða neitt.
Ég minnist þess ekki að hafa sýnt því minnstan áhuga á að ræða við þið stjórnmál Kristján! Samt sérð þú ástæðu til þess að draga mig inn í umræðuna hér á undan, og það með talsverðum hroka og tilheyrandi.
Ekki það að ef mig langaði gæti é g svo sem alveg rætt þessi mál við þig, en ég hef bara engann áhuga. Svona hrafnaspark á netinu er vita tilgangslaust að mínu mati og því algjör tímasóun. Ég gæti allt eins sólundað tíma mínum á umræðuhorni Skarps.
En ef þig langar endilega að ræða þessi mál, þar sem þér virðist liggja afar mikið á hjarta, er þér velkomið að hringja í mig í síma 8636629.

#4
29. mars 2007 klukkan 20:14
Ćvar Ţ.
Augljóst mál að hér skrifar á undan Aðalsteini, bitur stuðningsmaður stjórnmálaflokks sem mælst hefur undanfarnar kannanir undir 20% !
Talandi um loforð, veit ekki betur en að foringjaefni þíns flokks hafi svo sannarlega lofað borgarbúum því á sínum tíma að sitja í stól borgarstjóra út kjörtímabilið. Svo gafst henni tækifæri á að verða forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar og hún auðvitað greip það á lofti og gaf borgarbúum fingurinn og stóð upp úr stólnum fyrrnefnda. Við þetta má svo bæta að hún komst svo eftirminnilega ekki á þing, þrátt fyrir dramatísk fagnaðarlæti fram undir morgun á þeim tíma !

#5
29. mars 2007 klukkan 23:11
Má þá ekki segja hið sama um nafna minn Kristján Þór Júlíusson. Ég sé að Steini forðast það eins og heitann eldinn að ræða efnislega um þetta, það er auðvitað gott mál, brent barn forðast eldinn. Sé bara einganveginn hvar ég á að hafa verið hrokafullur, ég var bara að bæta inn dæmum til að stiðja dæmi Ævars, hefði líka getað nefnt dæmi frá Danmörku, þar sem einn flokkur lofaði meðbyr á reiðstígum.
Ævar stingur líka hausnum í sandinn, hver er munurinn á því sem Ingibjörg gerði og því sem Kristján Þór er að gera núna.
Það sem ég var eiginlega að reyna að koma inn í umræðuna var að það er kannski betra að lofa aðeins minna, dæmi, barnakort og 4% skattalækkun, þá þarf maður ekki að hafa áhuggjur og svitta út kjörtímabilið, einnig mætti nefna stjórnarskrábreytinguna um auðlyndir þjóðarinnar.
Annars tel ég það gott mál að framsókn og frjálslyndir séu að mælast við útrímingarmörk í stjórnmálum...

#6
30. mars 2007 klukkan 00:37
Ćvar Ţ.
Enn á ný heldur Kristján áfram. Skal nú reyndar viðurkenna það að ég var í örlitla stund að skilja það hver Steini væri, en komst þá að því að þarna átti hann við Aðalstein, eða Alla eins og hann er jafnan nefndur. Ekki fæ ég það séð að Aðalsteinn sé að forðast umræðuna eins og heitan eldin, hann meira að segja gefur þér upp símanúmerið sitt svo þú gætir slegið á þráðinn til hans. Svo skil ég ekki með að sleggjutilþrifin haldi áfram hjá mér, mér fannst þetta frekar veikburða athugasemdir hjá mér um stjórnmál, a.m.k. í þessum pistli sem er hér að ofan.
Hvar eiginlega í ósköpunum var ég að afsaka eða verja Kristján Þór Júlíusson ? Fannst mér það bara gott ´múv´ hjá honum, en ekki Ingibjörgu ? Þannig að sú sandgryfja sem þú rekur hausnum ofan í er erfiðari viðureignar en mín held ég. Varðandi skoðanakannanir undanfarið, þá hefur framsóknarflokkurinn verið að mælast alltaf hærri og hærri og var síðast í 10,eitthvað. Kannanir hafa hinsvegar sýnt Samfylkinguna (gleymum því ekki að þegar lagt var upp í þessa ferð þeirra á sínum tíma, átti flokkurinn að verða mótvægið við Sjálfstæðiflokkinn) með svipaða prósentutölu og framsókn hlaut í síðustu kosningum.

#7
30. mars 2007 klukkan 08:58
Ađalsteinn J.
Ég man ekki eftir því að hafa nokkru sinni sóst eftir "efnislegri" umræðu um nein einustu mál við þig Kristján, stjórnmál eða önnur. Þess vegna er það mér gjörsamlega ofar skilningi hvers vegna ég er allt í einu orðið "brennt barn" þar sem ég hef samkvæmt þeim skilningi aldrei komið nálægt eldinum.
Hrokinn felst í því t.d. að titla okkur Ævar "gáfnaljós" með niðrandi hætti, rétt eins og þú vitir eitthvað sem við vitum ekki. Svona svipað og við vesturlandabúar mundum tala um frumbyggja. Þetta er sérlega athyglisvert þar sem ég hafði aldrei tekið þátt í þessu orðaskaki ykkar félaganna þriggja á þessari síðu.
Að lokum minni ég þig á Kristján, að ef þú hefur einhvern sérstakan áhuga á að ræða við mig stjórnmál eða önnur mál, er ég yfirleitt nálægt símanum mínum. Þar get ég tekið við þig efnislega, málefnanlega, vitsmunalega, upplýsta umræðu eða hvað sem þú vilt kalla þetta tilgangslausa raus.

#8
30. mars 2007 klukkan 09:34
Aðalsteinn
Ef að Ævar er svo væminn að taka orðið gafnaljós nærri sér, þá er ég 99% viss um að hann myndi treysta sér til að segja mér það sjálfur... kannski tókst þú það nærri þér að vera kallað gáfnaljós. En ef þú ert ekki að sækjast eftir því að tala við mig, hversvegna svarar þú mér þá alltaf aftur. Í commentinu þínu frá 29. mars 2007 klukkan 15:12, sagðist þú vera Framsóknarmaður, og ég veit að Ævar er svolítið veikur í hnjánum fyrir þeim flokki, þannig að ég ákvað að nefna ykkur báða... Hinnsvegar fyrst þú ert svona viekur fyrir gagnríni á netinu, þá skal ég bara senda þér sms eða hringja næst þegar ég hef eitthvað út á bullið í þér að setja....
Ævar...
Ég sagði aldrei að þú hefðir verið að verja K.Þ.J...

#9
30. mars 2007 klukkan 09:56
Dagur
Þessar leiðinlegu umræður voru í boði Glitnis.
Ég er alveg að missa þolinmæðina á þessu bloggi. Undanfarna daga hefur aðeins verið rætt um hundleiðinlega pólitík og nú er ekki bara rætt um pólitík heldur í ofaná lag eru menn komnir í sandkassaleik af bestu gerð.
Ég er kominn með drullu af pólitík út af þessum helvítis kosningum, ég er með æluna í hálsinum útaf þessu Baugsmáli sem enginn veit lengur hvað snýst um og auðlindafrumvarpið er álíka merkilegur pappír og Litla gula hænan, enda veit enginn um hvað málið snýst. Þetta er það sem ég hef til málanna að leggja.
Í lokinn fer ég fram á það að síðustjórinn skipti um umræðu efni. Hvað er t.d. að gerast á Hú? Hvar er Krilli? Er Reynir í Skóbúðinni búinn að setja sólstólinn fyrir framan búðina? Er stillasinn kominn utan á kirkjuna? Er Jónína enn með Alla bæs? Og síðast en ekki síst, þínar hugmyndir um Liverpool og enska boltann??

#10
30. mars 2007 klukkan 11:09
Ađalsteinn J.
Ég tek heilshugar undir með þér Dagur. Umræður um pólitík á vefjum sem þessari eru hundleiðinlegar og gjörsamlegar tilgangslausar. Endar hef ég aldrei, ALDREI, stóst eftir slíkum umræðum en hef verið dreginn inn í þær hér á undan, gegn vilja mínum. Kunnugir vita að ég hef bannað umræður um pólitík á minni eigin síðu sem sýnir mitt viðhorf príðilega til svona hjals.
Annars fannst mér þessi pistill síðustjóra ágætur. Þar er aðeins talað um pólitík en aðalmálið er 25 ára afmæli Gaupa. Einhverra hluta vegna var salur fyrir því hjá einhverjum að draga fram þennan stutta pólitíska pistil til umræðu. Ég persónulega hefði haft mun meiri áhuga á fleiri sögum úr barnæsku Ævars og Gaupa......
Djöfull er gaman að kalla Guðjón gælunafninu Gaupi.

#11
30. mars 2007 klukkan 11:50
Ćvar Ţ.
Sælar, get alveg tekið undir framangreinda gagnrýni að vissu leyti. Hinsvegar kaus ég að fara mjög varlega í þessa pólitísku athugasemd, þar sem ég einmitt vildi ekki að umræður þar á eftir yrðu á þeim nótum. Ég ætla t.d. núna að skreppa aðeins út, og ég skal koma með úttekt á því ´skreppi´ hér á eftir.
Gaman af síðustu setningu Aðalsteins, því að kalla hann Gaupa er svipað og segja við hann að maður hafi sofið hjá mömmu hans, slík verður reiðin !

#12
30. mars 2007 klukkan 12:07