Gleymdi enska boltanum. Ég spái einnig Liverpool sigri á morgun þrátt fyrir að Arsenal sé búið að skeina Liverpool það mikið á þessari leiktíð að úr blæðir. Liðin hafa mæst þrisvar á leiktíðinni þar sem Arsenal hefur unnið alla leikina og er með markatöluna 12:4 úr þeim leikjum.
Þetta þarf ég reyndar ekki að taka fram þar sem ég geri ráð fyrir að þú lesir DV á hverjum degi, ég gerði einmitt upphitun fyrir leik Liverpool og Arsenal í helgarblaðinu. Mér blöskraði reyndar að lesa í þessum pistli að þú hafir bara tekið með þér Fréttablaðið og Blaðið. Þú gætir alveg eins gripið með þér Hagkaup bæklinginn, þetta er ekkert nema auglýsingar :)
Tók rúnt í bæinn fyrir Dag
30. mars 2007 klukkan 14:36
Jæja, fór einn rúnt niður í bæ og tók stöðuna á þessu sérdeilis fjöruga samfélagi sem Húsavík er !
Ég sá að framkvæmdir við nýja pósthúsið eru á sæmilegri siglingu, sá að 2 smiðir voru staddir fyrir utan að vega og meta aðstæður. Annar þeirra var alveg örugglega frændi minn, hann Brynjar, sem er betur þekktur sem Brynjar "sem gengur bara í buxum sem ná niður að kálfa". Þessu næst hitti ég hana móður mína, sem leit í dag afskaplega vel út, enda sagði ég henni það "mikið rosalega lítur þú nú vel út í dag" sagði ég við mömmu, mamma svaraði "æji ævar þór hættu þessu". Svo keyrðum við og við kvöddumst með einum rembingskossi. Þessu næst sá ég einmitt títtnefndan Reyni í skóbúðinni, en sólstóllinn hans var ekki enn komin út, en alveg er ég viss um að kvöldið í kvöld fer í vangaveltur hjá Reynsa hvort hann eigi að skella honum út á morgun. Svo sá ég 2 stelpur á röltinu, og bætti ég því örlítið á hraðan til þess að líta ´cool´ út fyrir þeim, það vildi ekki betur til en svo að löggan mætti mér þá og þurfti ég því að snarhemla sem virkaði alveg örugglega gríðarlega ókarlmannslegt. Samfylkingin er búinn að koma sinni kosningaskrifstofu fyrir þar sem táin var (við hliðina á leigunni sálugu) og VG tylltu sér einmitt með sína bækistöð í gömlu leigunni. Þannig að þegar nær dregur kosningum má búast við því að sjá Ingólf Freys (xs) og Björgvin Leifs hnakkrífast fyrir utan melluna. Sem minnir mig á það þegar Stjáni Hjaltalín bannaði útlendingunum sem voru að vinna í sláturhúsinu í hittí´fyrra að labba á gangstéttinni sinni fyrir utan melluskotið. Stjáni var örlítið í glasi þarna.
En já, hvað er hægt að nefna fleira, ég kom við í einni búð bæjarins og náði mér í blaðið og fréttablaðið. Keyrði framhjá leikskólanum og sá að þar voru iðnaðarmenn einnig að störfum, augljóslega gríðarleg uppbygging að eiga sér stað hér á víkinni. Ég sá Kristján(krilla) ekki neitt í þessari ferð, en hitti hann þó um daginn, þar sem hann var sérstaklega brosmildur, auk þess var hann nýrakaður kallinn og gott ef hann var ekki búinn að skella á sig rakspíra, rakspíra sem myndi bræða hvaða öfgafeminsta sem fyrirfinnst í heiminum. Man nú ekki eftir fleiru í augnablikinu.
Liverpool sigrar Arsenal á morgun 2-0, ég hef ákaflega blíða tilfinningu fyrir þessum leik og mun rauði herinn hirða þessi 3 stig sem í boði eru. Ætla að fara núna niður í ríki og versla mér kippu af gylltum viking, já, svo er hrönn kára byrjuð að vinna í ríkinu, þá er það komið sem einhverju máli skiptir af húsvískum fréttum held ég Dagur. Vona að þú sért sáttari við þetta en áður.

Dagur
#2
30. mars 2007 klukkan 21:58
Halló Ævar Þór
ég get ekki betur lesið en það sé bara brjálað að gera þarna. þú hefur ekki tekið þér bílrúnt á bryggjuna og hugsað til baka, þegar ég var að passa þig og þú vildi endilega prufa að spranga og dast ofaní græna vatnið við hliðina tánknum hehehe á ég að halda áfram, já verð að gera það. komst svo uppúr hágrengjandi og öskraði: það eru grænar pöddur á mér, taktu þær af mér taktu þær af mér... ooooo þú er yndislegur

#3
30. mars 2007 klukkan 23:58
Ævar Þ.
Sammála því að það er ákaflega hressandi og mannbætandi að fara á pósthúsið hérna á víkinni. Ég spái því að á sínum tíma hafi Krilli bara fengið nóg af kvenþjóðinni, þ.e.a.s. þær hafi orðið of ágengar í samskiptum sínum við golfarann knáa og því hafi hann ákveðið að byrja að stromp-reykja til þess að slá þær af sér, en m.v. síðustu fréttir varðandi aukna notkun rakspíra hjá manninum er ekki loku fyrir það skotið að Krilli verði mættur með kvenmann upp á arminn mjög fljótlega. Það er ekki ennþá búið að koma sillasanum fyrir, en heimildir mínar herma að unnið sé að því mjög hröðum höndum að hann verði komin upp áður en fyrsti túristinn þetta árið mætir vopnaður myndavél. Fín skrif þín varðandi Liverpool vs Arsenal í helgarblaðinu :)
Gaman að sjá þig Edda hérna, en kvikyndislegt af þér að mæta með lítillækkunarsögu af mér frá því að ég var ungur strákur með lítið hjarta. Ég man eftir þessu eins og þetta hefði gerst í gær, var klæddur í Ghostbusters peysuna mína og hún var útötuð í litlum ógeðfelldum grænum pöddum ! En ég jafnaði mig fljótt á þessu man ég eftir, var komin út úr húsi einhverjum 4-5 dögum seinna. :)

#4
31. mars 2007 klukkan 00:50
Tinna
hahahhaha Ghostbusters peysa:)
#5
02. apríl 2007 klukkan 12:11
Melluskotið minnir mig alltaf á Svavar Cesar (meistari Svavar). Hann var eitt sinn svo þreyttur á hávaðanum í okkur í Melluskotinu að hann skvetti sápuvatni á tröppurnar. Svo fór hann eitt sinn út í bíl, stillti sér upp fyrir framan krakkana í Mellunni og lá á flautunni þar til krakkarnir gáfust upp og fóru. hehe Cesarinn er hress :)
Þessi saga af Stjána kemur mér samt ekkert á óvart. Veit ekki af hverju.
Það er nú ótrúlegt að Krilli skuli ekki vera harð giftur, enda þvílíkur snillingur þar á ferð!! Nú sakna ég oft Húsavíkur, en ég held að ég sakni ekki neins eins mikið og Krilla að afgreiða á vídeóleigunni. Með fullri virðingu fyrir Gula sjóaranum þá kem einfaldlega enginn með tærnar þar sem Krilli hafði hælanna!!
Að lokum vil ég þakka þér Ævar fyrir góðan pistil (pistillinn á undan var reyndar góður en þróunin á kommentunum var leiðinleg. Sagan af ykkur Gaupa í barnæsku var t.d. góð :) og einnig vil ég enda á því að skora á Reyni að taka fram sólstólinn, þá veit maður að vorið nálgast. En er búið að reisa stillasa utan á kirkjuna?