Könnun

Hefurđu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Erann ađ takann

11. apríl 2007 klukkan 13:21
Já, þá er þessari frábæru páskahátíð lokið þetta árið. Semsagt páskunum hjá mér árið 2007 verður ævinlega minnst sem páskana sem ég innbyrti hátt í 300 parkotín forte töflur ! Ófáir eru þeir sem búnir eru að slá á þráðin til mín yfir páskana og taka stöðuna og færi ég þeim hugheilar þakklætiskveðjur fyrir það. Var samt skemmtilegt að tala við suma, sumir hringdu með heilmikinn ekka í hálsinum sínum og voru búnir að frétta að ég gæti aldrei í þessu lífi gengið á nýjan leik. En þeir sem til mín þekkja, vita auðvitað að ég hef yfir að ráða geypilega sterkum beinum sem brosa yfir þessum eimslum. Það sumsagt myndaðist bara sprunga í hryggjarlið nr.12 hjá kallinum og eyddi ég stórum parti af skírdeginum á FSA sem var nú  sérdeilis skemmtileg reynsla. Svo tók ég með mér í nesti heim á víkina, troðfullt hanskahólf af fyrrgreindum töflum, þ.e. parkotín forte.

En já, það var eins og örlögin hefðu tekið málin í sínar hendur fyrir páskana, því ég fjárfesti mér í sjónvarpsflakkara, sem er núna að mínu mati mun gáfulegri uppfinning en rennilás. Búinn að ná í fullt fullt af klámmy....nei fræðsluþáttum og heimildarmyndum um ýmsa hluti, m.a. í morgun horfði ég á heimildarmynd um engisprettur sem ég var búinn að setja inn á flakkarann hjá mér.

Manchester sigraði Roma í gærkvöldi 7-1 á Old Trafford. Ágæt úrslit hjá United sem verða að teljast sigurstranglegir í keppninni eftir þessi úrslit í gær. Mínir menn að klára PSV í kvöld, og mæta þá í undanúrslitum Chelsea. Ég spái því að Chelsea sigri þá rimmu.

Ég hef lengi ekki skilið það hvað maður eins og Sigurjón Þórðarson (x-f) er að gera á Alþingi íslendinga ! Hann hefur semsagt haft það ákaflega notalegt í dágóðan tíma í sæti nr.1 hjá mér yfir þá stjórnmálamenn sem ég kann hvað síst við. Nú hinsvegar eru breyttir tímar, því hann deilir nú sæti nr.1 og 2 með einni konu sem virðist leggja það á sig í hvert skipti sem hún talar, að reyna að vera óþolandi. Það eru auðvitað allir heilbrigðir aðilar búnir að sjá hvaða konu ég er að tala um (nei ég er ekki að tala um kolbrúnu halldórs), þetta er engin önnur en daddaradadada...Guðríður Lilja held ég að hún heiti, vinstri græna skákkellingin þarna á suðurlandinu ! Á næstu dögum og vikum munu þau tvö semsagt berjast um efstu sætin. Það er allt í lagi að það komi fram svo hér, hver það er sem trónir í þriðja sætinu, en það er Jón Magnússon (x-f). Ef flett er í orðabókum hverskonar og farið í tjeið(T) og flett upp á orðinu Tækifærissinni þá er Jón Magnússon þar við hliðina með feitletruðu.

Jæja, læt þetta nægja í bili og bið ykkur vel að lifa og gangið hægt um dyrnar frægu.
 
Dagur
Það kemur mér nákvæmlega ekkert á óvart að þú skulir spá Chelsea sigri í rimmunni við þína menn. Eins og allir sem þig þekkja þá ert þú heimsmeistari í baktryggingum. Ég tek undir það að mínir menn í Manchester United eru sigurstranglegir í þessari keppni, jafnt sem öðrum. Ég geri líka þá kröfu til míns liðs að það vinni allar þær keppnir sem það tekur þátt í.
#1
11. apríl 2007 klukkan 20:45
 
Dagur
Það átti nú að standa þarna: Eins og allir sem þig þekkja VITA þá ert þú heimsmeistari í baktryggingum. Það leiðréttist hér mér.
#2
11. apríl 2007 klukkan 20:47
Já... þetta er skuggalegt... Við Selma vorum að spá í þessum 12 hryggjarlið... telur þú þetta eins og hæðir í húsi, (þ.e.a.s. 12 hryggjarliður neðanfrá)
Veit svosem ekki hvort það skipti eitthverju máli en já... var eitthvað í sérstakt í bjórnum hjá fólki um páskana? það gekk eitt og meira til á fyrir sunnan líka... menn misgáfulegir...

Vona bara að þú verðir árganginum ekki oftar til skammar
#3
11. apríl 2007 klukkan 21:49
 
Dagur
Ævar varð sér að sjálfsögðu alls ekki til skammar með þessu athæfi. Þarna framkvæmdi hann það sem margir hafa látið sér dreyma um. Ég er samt nokkuð viss um að það verða ekki margir sem láta draum sinn rætast eftir þessar raunir hans Ævars.

Ég er stoltur af þér Ævar!! ;)
#4
11. apríl 2007 klukkan 22:24
Tek undir með Degi, er ákaflega stoltur af því að vera vinur þinn. Hef oft látið mig dreyma um að gera þetta, en núna eftir að þú ert búinn að því þá er það deginum ljósara að ég geri þetta við fyrsta tækifæri!!

Fly on the wings of love....
#5
11. apríl 2007 klukkan 23:05
 
Ćvar Ţ.
Vísa því nú á bug að ég sé einhver heimsmeistari baktrygginga. Spái einfaldlega Chelsea sigri í þessari rimmu, eftir að hafa séð seinni hálfleikinn í Valencia-Chelsea og svo í kvöld skelfilega leiðinlegan leik Liverpool-PSV. En ég þakka þér Dagur fyrir uppbyggileg orð í minn garð :)

Talandi um að ég sé árgangnum okkar til skammar Kristján J. ! Talandi um hryggjaliði og íbúðarblokkir í sömu setningunni ! Hvað er það eiginlega sem þú átt við ?

Takk Himmi minn, vissi vel af bakköpinu þínu, mæli með þessu, fínn kjúllin sem ég fékk á FSA á skírdag :)
#6
11. apríl 2007 klukkan 23:28
Vona að þú berir ekki varanlegan parkódin skaða, gangi þér annars bara vel með 12. hryggjarliðinn.
#7
12. apríl 2007 klukkan 16:08
það sem ég átti við og bjóst við að skarpur maður eins og þú myndir að sjálfsögðu fatta var í hvora áttina þú taldir hryggjaliðina... var þetta 12 hriggur talið neðanfrá rassgati og upp eða var þetta 12 hriggjarliður talin frá heila og niður... (málið með blokkir er ósköp einföld... neðsti hriggjarliður (rassgatsmeginn) væri þá 1 hæð og svo framvegis) -

En já, það er greinilegt miða við orð Dags að Húsvíkingum dreymir um eitt og annað, misgáfulegt, mig hefur allavegna aldrei dreymt um veggjaklifur í skipasmíðastöðinni, hvað þá um að enda á sjúkrahúsi eftir slíka ferð... ég skil vel að Ævari dreymi um álver og að Liverpool vinni eitthverntíman aftur Ensku Deildina...
#8
12. apríl 2007 klukkan 17:59
hae hae..:) aetladi bara ad kvitta fyrir mig í thetta skiptid..:)

Lísa litla kvedur..:);)
#9
18. apríl 2007 klukkan 19:19
 
Dagur
Ég veit ekki um aðra fastagesti þessarar síðu en mig er farið að lengja eftir pistli.

Ævar, hysjaðu nú upp um þig brækurnar og ritaðu nokkur vel valin orð hérna inná þessa síðu :)
#10
22. apríl 2007 klukkan 01:12

Skrifa athugasemd