Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Það er best ég svari kallinu

22. apríl 2007 klukkan 10:09
ekkert ólíkt því sem Hebbi Guðmunds gerði hérna um árið. Fínn kall hann Herbert, það eiga sennilega allir til einhverjar sögur af þeim heiðursmanni. Mín er sú að ég hitti hann einu sinni þegar ég var að vinna, hann var að græja eitthvað í símanum sínum, og lítur upp, horfir á mig og hristir hausinn eitthvað. Ég spyr hann hvort allt sé ekki eins og það á að vera, "nei" svaraði hebbi, "ég er búinn að vera hérna í kringum húsavík s.l. 3 daga að selja bændum bækur, og náði ekki símanum í nótt (þetta var laugardagur þarna) og það skilid einhver strákur eftir skilaboð í talhólfinu hjá mér". Ég sagði honum að það kæmi fyrir að fólk skyldi eftir skilaboð ef enginn svaraði í gemsan. Hann beindi því næst símanum sínum að mér og spurði mig hvort ég "þekki þennan gaur". Þegar ég hlustaði á skilaboðin var um að ræða dauðadrukkin ca.15-16 ára strák sem hélt langa ræðu um það hvað Herbert er mikill snillingur og frábær náungi og lét hann það fylgja að hann hafi frétt að Herbert væri góður í rúminu. Eftir ca.3mín talskilaboð sem ég hlustaði á, og tók símann niður þá sagði hebbi "já kallinn minn, við lifum margar kynslóðir, ég og Bubbi !" og fylgdi þessum orðum Hebba gríðarlegt montbros. Ég að sjálfsögðu tók undir þetta hjá honum. Mér fannst ég kannast eitthvað örlítið við þennan strákpjakk sem hringdi þarna í Hebba um nóttina og sagði honum það, vegna þess að hann spurði mig um það. Hann varð allur eitthvað upp með sér, og sagðist ætla að launa svona aðdáendum sínum árituðum disk með sér. Þetta endaði með því þarna, að ég tók niður númerið hjá Hebba og átti að hringja í hann ef ég skyldi muna það, hver það var sem hringdi í goðið. Svo gleymdi ég þessu bara og á þriðjudeginum var hringt í minn síma, eitthvað óþekkt númer og ég svaraði, "já er það ævar?" "já" "blessssssssssaður, hebbi guðmundssss hérna megin"(hann var auðvitað frekar esssmæltur). Hann semsagt útvegaði sér númerið mitt í vinnunni hjá mér og hringdi til þess að athuga hvort ég væri búinn að ráða í þessa krossgátu, ég því miður hafði ekki gert það, hann varð vonsvikinn og hélt sömu ræðu um það og áður, að hann þyrfti að launa aðdáendum sínum hólið. Svo spurði hann mig hvort ég fílaði sig, ég sagði að ég væri oft búinn að stíga trylltan dans við lögin hans, þá sagði hann "heyrðu kallinn minn, af því að þú ert búinn að aðssstoða mig sssvo mikið í þessssu máli, ætla ég að sssenda þér disssk áritaðan af mér" Ég roðnaði heilmikið í kinnunum mínum og gaf honum upp heimilisfangið mitt og allar aðrar nauðsynlega upplýsingar. Þetta gerðist fyrir svona 3 árum síðan og er ég ennþá að bíða. Ég bíð álíka spenntur eins og foreldri að bíða eftir barni sínu sem væri að gegna hernaði í írak.

En já, hef talsverðar áhyggjur af Liverpool. Þeir hafa tekið það upp hjá sér að spila leiðinlegan fótbolta nú upp á síðkastið, eina jákvæða við það er að þetta er svipaður fótbolti og þeir spiluðu í aðdraganda úrslitaleiks meist.deildarinnar 2005. Sá reyndar ekki leikinn í gær, en sá sem spilar víst alltaf svo ofboðslega rosalega vel fyrir liðið skoraði 2 mörk. Man.Utd tapaði stigum í gær, hefðu svo auðveldlega getað tapað 3 stigum, ef dómarinn hefði farið eftir reglum í lok leiks þegar M´boro átti að fá vítaspyrnu. Annars hlýtur það að vera geysilega pirrandi að tapa fyrir M´boro, leiðinlegasta og óáhugaverðasta liðið í deildinni þetta seasonið.

Allt að gerast í pólitíkinni, Ómar Ragnarsson ætlar að fljúga frá einhverjum firði á vestfjörðum til útlanda. Sé þetta fyrir mér þegar maður pantar sér flug, og valið er "frá" A) Reykjavík/Keflavík : B) Akureyri : C) Vestfjörðum ! Fínt að taka 15 tíma akstursferðalag til vestfjarða áður en maður flýgur út í heim. María Óskardóttir, sem hvað frægust er fyrir að vera eiginkona Einars Kolbeinssonar, merkjameistara er í framboði fyrir baráttusamtök eldri borgara og öryrkja. Hún skrifaði harðorða grein í skarp nú á dögunum sem ég las yfir. Ég ætla ekki að kjósa þessi samtök. Nú hlaðast þær inn, skoðanakannanirnar og ef einhver flokkur hækkar up hálft prósentustig kemur frasin, "já, þetta er í takt við þann meðbyr sem ég augljóslega finn fyrir". Ef hinsvegar flokkur lækkar á milli kannana er svarið aldrei "já, þetta er einhver lægð sem við finnum vel fyrir núna". Þá er svarið "Það er nú svo að hér er einungis um að ræða skoðanakönnun og stærsta könnunin er auðvitað 12.maí". En auðvitað reyna þeir að draga úr því þegar illa gengur, og líta á könnunina sem biblíu ef þeir hækka eitthvað, það er eðlilegt.

Æji djöfull sem ég nenni þessi ekki lengur, alltaf nefninlega þegar ég skrifa eitthvað hérna, fer ég alltaf að hugsa út í það, þegar Fóstbræður gerðu grín af fólki hérna um árið !
Hahahaha!!! Hebbi er konungurinn. Ég var einmitt í töluverðu sambandi við hann í vetur. Fengum hann til að skemmta á árshátíð hjá okkur í skólanum. Eftir giggið kom hann til mín og spurði: "jæja, sáttur?" ég sagði: "já maður, þetta var kúl!!" Þá brosti kallinn glaðhlakkalega og sagði "Já vinur minn, ég sagði þér að ég væri alvöru!!"
Konungur Herbert, konungur!!
#1
22. apríl 2007 klukkan 18:47
 
Dagur
Ég lenti einu sinni í því að ýta Lada bifreiðinni hans Hebba út úr skafli á Húsavík á sínum tíma. Ég var nú ekki margra vetra og því er þetta frekar óljóst í minningunni. Man t.d. ekki eftir því hvort Hebbi hafi lofað mér árituðum disk/výnil.
#2
22. apríl 2007 klukkan 23:04
 
Ævar Þ.
hahaha "ég sagði þér að ég væri alvöru" ! Goðsögn í lifanda lífi hann Hebbi

Já það er rétt, Hebbi var hérna stundum á Lödu Sport á vafra hérna um e-ð alltaf, kom m.a. við í einhverju partýi ef ég man rétt :)
#3
23. apríl 2007 klukkan 14:09

Skrifa athugasemd