Könnun

Hefurđu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Ljóskan í menntamálaráđuneytinu !

23. apríl 2007 klukkan 14:31
Það er auðvitað kristaltært að það er jafn líklegt að það sé þriðjudagur á morgun eins og að vinstri sinnað lið myndi fara hamförum yfir orðum, þá bara...hhmm Davíðs Oddssonar ef hann talaði um Ingibjörgu Sólrúnu sem ljóskuna þarna í formannssæti samfylkingarinnar ! Þannig er nubblega mál með vextina sína að John Bóldvæn fyrrv. leiðtogi vinstri manna á íslandi var staddur í þætti Egils Helgasonar á stöð2 í gær þar sem hann lét þessi orð falla um Þorgerði Katríni Gunnarsdóttir (konu Kristjáns Ara) menntamálaráðherra. Ég sé í sjálfu sér ekkert að þessu, en ljóst er, m.v. það þegar Geir Hilmar Haarde talaði um sætustu stelpuna á ballinu þá létu vinstri menn það líta þannig út eins og Geir hefði framið fjöldamorð ! Mér fannst heldur ekkert að því þá, og heldur ekkert að þessu. En m.v. orð þessa foringja vinstri manna, þá hljóta feministar landsins að mótmæla þessu orðalagi Jóns Balvins.

Annars er fátt að frétta, tæpir 20 dagar í kosningar og samfylkingin með nokkur sannfærandi slagorð "unga ísland" "fagra ísland" og svo e-ð í sambandi við eldri borgara. Lítur allt voða voða fínt út, og hafa þeir verið að mælast yfir 20% undanfarið enda hlaut að koma að því. Kosningasjónvarp, bæði á rúv og stöð2 hafa verið fyrirferðamikil undanfarið og kemur því ekkert til með að linna neitt þangað til búið er að kjósa. Finnst ágætt afþreying að fylgjast með þessum þáttum en eitt þykir mér þó vera leiðigjarnt við þessa þætti. Það eru stjórnendur þáttanna, þeir virðast ekkert ráða við fólk sem grípur frammí fyrir hvort öðru endalaust. En já, samfylkingin virðist vera að rétta úr kútnum eftir frekar slakt gengi undanfarnar kannanir. Það er spái ég m.a. vegna þess að Ingibjörg Sólrún er hætt að hlægja hæðnishlátri af öðrum flokkum, og hætt a.m.k. í bili að tala með hroka og yfirgang. Fylgi við VG er að dala, enda held ég að þegar t.d. Guðríður Lilja, Andrea Ólafs og Sóley Tómasdóttir koma í umræðuþætti þá reita þær fylgið af vg með mjög svo öfgafullum skoðunum sínum á mönnum og málefnum.

Framsókn virðast vera að rétta örlítið úr kútnum, en eru ennþá langt frá kjörfylgi þar sem þeir náðu að ég best man, rúmlega 18%. Frammararnir eru búnir að eyða mestum pening í auglýsingar samkv. gallup. Enda er mig farið að dreyma Jón Sig í sundlaugum, reyndar tók ég eftir því, sem gamall sundgarpur, að Jón kann augljóslega tökin á þessu.

Nýjasta tromp frjálslynda er Grétar Mar, hef tekið eftir því að Magnús Þór sérstaklega er ánægður með sinn nýjasta liðsmann, hampar honum í hástert fyrir framlag hans á ísafirði nú um daginn, og svo aftur núna á sunnudaginn eða laugardaginn á rúv. Eitt mega þeir eiga, þeir frjálslyndu, en það er það að þeir ná að snúa spurningum um bara allt annað en sjávarútvegsmál, einmitt upp í sjávarútvegsmál á 3-5sek. Spurningin er borin fram, segum bara "Hvað finnst þér að betur eigi að gera fyrir fatlaða einstaklinga", þeim Sigurjóni, Magnúsi, Jóni og þá Grétari gætu snúið þesssari spurningu upp í kílóverð á steinbít á já, ca. 5 sekúndum !

En já, læt þetta nægja í bili, þessi færsla var búin til fyrir Dag Svein :)
 
Dagur
Takk fyrir það Ævar minn :) stjórnmálaumræður á bloggsíðum er eitthvað það leiðinlegasta sem ég les en þessi pistill var samt sem áður. Sérstaklega síðasta málsgreinin þar sem þú tókst dæmið um útúrsnúning þeirra frjálslyndu.

Talandi um sund-auglýsinguna með Jóni Sig. Sem íþróttafræðingur þá verð ég að mótmæla örlítið, rennslið á milli taka hjá Jóni er ekki nægilega gott og hann tekur handatökin of snemma :) hehe

Annars ligg ég nú upp í sófa og er að horfa á kosningasjónvarp RÚV (endursýningu). Kolbrún Halldórsdóttir var að koma í mynd rétt í þessu og þar með ætla ég mér að snúa mér að einhverju öðru. Hún, ásamt Ingibjörgu Sólrúnu, eru klárlega tvær leiðinlegustu konur norðan alpafjalla. Ég er að spá í að fara að borða gler í staðin fyrir að halda áfram að horfa á þessar tvær deila um allt og ekkert.
#1
23. apríl 2007 klukkan 15:23
 
Andri Valur
Ég bjóst nú við þessari færslu fyrr. Allir hinir hægri-dindlarnir eru löngu búnir að blogga um þetta ljóskumál. Meir að segja sumir blogguðu á meðan þættinum stóð.

Ég man ekki eftir að hafa tjáð mig eitthvað sérstaklega um orð Geirs á sínum tíma með síðustu stúlkuna á ballinu (hef oft verið í þeirri aðstöðu:). Því sé ég enga ástæðu til að tjá mig um þetta núna. Nema kannski að ég sá þetta ekki en miðað við lýsingarna á þessu þá er þetta bara einhver leiðinda hroki og menn eins og JBH eiga að sjálfsögðu ekki að tala svona um aðra pólitíkusa. Ég myndi til dæmis aldrei kalla Alla Jesú ljósku þó að hann sé með jafn ljóst og sítt hár og ÞKG :)

Það má líka benda á að femínistarnir eru einhverjir búnir að tjá sig um málið og þykir þetta kvenfyrirlitning!!!
#2
23. apríl 2007 klukkan 16:16
 
Ćvar Ţ.
Veit nú ekki hvað þú átt við með þessu Andri "allir hinir hægri-dindlarnir". Ætli megi ekki segja að ég sé svipað dulfarfullur varðandi mitt atkvæði, og þú með þitt :) Hinsvegar rétt að gaman er að spá í að hárið á ÞKG og Alla dísus er mjög svipað !

Það er rétt hjá þér Dagur, sennilega eru handtökin hjá John Sig full snemma tekin :)

Kolbrún Halldórsdóttir er Pétur Jóhann við hliðina á Guðríði Lilju samt Dagur !
#3
23. apríl 2007 klukkan 18:54

Skrifa athugasemd