Okey Þrási, getur verið að ég hafi farið örlítið framúr mér varðandi rigningaróskina, en ég get því miður ekki sæst á neitt annað en að það verði þá kalt í reykjavík, og já, ég skal taka til baka ummæli mín, er vörðuðu úrkomuna.
Varðandi þrifin, þá er ég nú bara orðin svo sjóaður í þessum heimilisstörfum að ég þarf enga hjálp við þau. En annars hefði ég pottþétt bjallað í Bellamy, frétti nubblega að hann, Crouch, Garcia, Gonzalez, Palletta, Zenden og Kuyt væru allir að sameina fyrirtækin sín, saman í eitt.
Meðbyr
29. apríl 2007 klukkan 15:40
..já, ákvað að setja hérna niður örfá orð á meðan ég ber á mig sólarolíuna til þess að bruna út á pall aftur. Held að það sé óhætt að segja sem svo að veðrið hérna á víkinni í dag, og í gær sé með besta móti. Búinn að liggja á pallinum í dag og sóla mig, ef frá er talinn klukkutími áðan, þegar ég fylgdist með frambjóðendum í NA-kjördæmi tala á RÚV. Ég er eiginlega komin með örlítinn leiða af þessum fundum öllum, á stöð2 og svo á RÚV. Það er ekkert nýtt sem kemur fram en alltaf eru allir sammála um hin geysi mikla meðbyr sem þeir finna fyrir. Er alltaf að bíða eftir að t.d. bara Jón Jónsson í einhverjum flokki segir, þegar hann er spurður um það hvernig kosningarnar og kannanarnir leggist í hann, og svarið verði þá "Já, mér líst bara ekkert á þetta. Ég hef ekki fundið fyrir neinum meðbyr undanfarið en allur sá byr virðist hafa farið til hinna flokkanna". Sá Ómar Ragnars um daginn í svona viðtali á RÚV og hann má eiga það hann Ómar, að hans hugmyndir eru býsna skondnar og setja þær aukið skemmtanagildi í þessar annars venjubundnu umræður. Ef að skoðanir manna eru einhverntíman krúttlegar, þá fær Ómar þann + hjá mér. Búa til eldvígsgarða, íbúðabyggð á lönguskerjum, alþjóðaflugvöll kannski í súðavík, hafa bara stutta bíla o.s.frv.o.s.frv. En það er eitt sem mér hugnast barasta alls ekki við þá hjá íslandshreyfingunni, en það er Jakob Frímann !
Manchester United er svo gott sem búið að tryggja sér englandsmeistaratitilinn, og ég get alveg sagt það hér, þrátt fyrir að ég þurfi að gráta því frá mér hérna, að þeir eru sæmilega vel að þessum titli komnir. Sá það áðan að ofmetnasti stjóri englands, Sam Allardyce, eða Big Sam sagði af sér stjórastöðunni hjá Bolton. Hann er eins og allir vita, búinn að gráta úr sér augun eftir að hafa ekki verið valinn sem landsliðsþjálfari englands þegar McLaren var ráðinn. Mínir menn töpuðu fyrir Portsmouth í gær, enda með hálfgert varalið inn á, enda stór leikur á þriðjudaginn.
Jæja, horfi út um gluggann og sé bara 22 gráðurnar úti og ætla að fara að leika mér við þær. Vona svo innilega að það sé rigning fyrir sunnan.
Manchester United er svo gott sem búið að tryggja sér englandsmeistaratitilinn, og ég get alveg sagt það hér, þrátt fyrir að ég þurfi að gráta því frá mér hérna, að þeir eru sæmilega vel að þessum titli komnir. Sá það áðan að ofmetnasti stjóri englands, Sam Allardyce, eða Big Sam sagði af sér stjórastöðunni hjá Bolton. Hann er eins og allir vita, búinn að gráta úr sér augun eftir að hafa ekki verið valinn sem landsliðsþjálfari englands þegar McLaren var ráðinn. Mínir menn töpuðu fyrir Portsmouth í gær, enda með hálfgert varalið inn á, enda stór leikur á þriðjudaginn.
Jæja, horfi út um gluggann og sé bara 22 gráðurnar úti og ætla að fara að leika mér við þær. Vona svo innilega að það sé rigning fyrir sunnan.
Ævar Þ.
#2
30. apríl 2007 klukkan 07:35
Þráinn Maríus
Það má vera rigning og rok í reykjavík fyrir mér enn ég vil halda Suðurnesjablíðuni!!!
#3
30. apríl 2007 klukkan 10:27
Tinna
Og pældu í því að nýjustu rannsóknir í stjórnmálafræði sýna fram á það að þessi kosningabarátta í sjónvarpi (bara almennt í heiminum) hefur eiginlega mjög lítil áhrifa á val kjósenda.....því að í dag eru kjósendur orðnir svo vel upplýstir....skemmtilegt að eyða gríðarlegum pening í þetta þá.....en reyndar soldið stuð í þessu:).....það er líka sól hérna í borginni Ævar minn...efast ekki um að ég sé með meiri lit heldur en þú:) hehehehehehe
#5
30. apríl 2007 klukkan 16:34
Hahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahaha!!!!!! Restin af þessu kommenti hjá Tinnu er sennilega það langfyndnasta sem ég hef lesið í dag!!!!:)
#6
30. apríl 2007 klukkan 22:31
Rigningin er mætt ef það gleður þig Ævar minn. Annars sýnist mér nú allt stefna í norðanátt og slyddu hjá þér á næstunni. Spurning með að reyna samt að fara í tan-keppni við Tinnu. Systir þín ætlaði einu sinni að sýna okkur árangurinn úr ljósatíma og setti handlegginn upp við Tinnu til samanburðar svo við sæjum hvað hún væri orðin brún. Sá samanburður virkaði ekki sem skyldi.
#7
01. maí 2007 klukkan 22:50
Ævar Þ.
hahaha ! já, erfitt að gleyma því þegar gudda litla ljóshærða systir mín, kom askvaðandi til Tinnu eftir velheppnaðan ljósatíma og stillti sér rígmontin upp við hliðina á henni, og ætlaði að fara að metast um það við hana hvor væri brúnni !
#8
02. maí 2007 klukkan 09:48
PS: Vantar þig ekki mann til að þrífa hjá Þér? Ég veit um einn!! Bellamy nokkurn!