Könnun

Hefuršu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglżsing

Liverpool vs ?

02. maķ 2007 klukkan 10:23

Jæja, kemur í ljós í kvöld hvort það verður Milan eða Man.Utd sem verða evrópumeistarar 2007, eftir að Liverpool komst í úrslitin í annað skiptið á þremur árum í gærkvöldi. Leikurinn magnaður, glæsilegir stuðningsmenn Liverpool á Anfield sem gerðu útaf við þessa ömurlegu leikmenn Chelsea. Núna er 3 leikmenn í Chelsea sem ég mun einbeita mér að því að þola ekki á næstu árum. Leikmennirnir eru John Terry, en Terry er orðinn einn af ömurlegri knattspyrnumönnum heimsins. Það að heimski Steve McLaren hafi valið hann sem fyrirliða Englands er honum til háborinnar skammar, enda verður hann ekki í þessu stjórastarfi lengi spái ég. Næsti stjóri englands mun hinsvegar gera það að sínu fyrsta verki að rétta Steven Gerrard fyrirliðabandið um leið og hann hrækir í átt að Terry. John Terry er orðin meiri "vælari" en C.Ronaldo ! Ef það er brotið á leikmanni Chelsea, þá er þessi nöturlegi leikmaður fyrstur á svæðið til þess að heimta spjald á leikmanninn o.s.frv.o.s.frv. En já, ætla ekki að eyða þessum pistli alfarið í John Terry. Næsti leikmaður er Didier Drogba ! Drogba gæti mjög líklega tekið þátt í sterkasta manni heims, en um leið og einhver nálgast hann fellur hann niður og heldur um hnéð á sér og grætur og lætur mann halda það að þetta sé hans síðasta. Svo er hann auk þess mikill vælukjói. Þriðji í röðinni er Frank Lampard. Það er svo fáránlegt hvað allir eru að tala um hvað hann sé góður, hann er búinn að vera spila örlítið yfir getu undanfarin ár, en hefur nú á þessu tímabili sýnt hvað í hann er spunnið, þ.e.a.s. alls ekki neitt. Hann er semsagt ofmetinn og "dirty player" verð ég að segja, svo eru endalausar vangaveltur um það hvort hann sé ekki að fara til Barcelona ! Fáránlega heimskulegar vangaveltur.

Það sem hinsvegar er staðreynd er það, að á síðustu 3 árum, hafa Liverpool komið sér í úrslitaleik meist.deildarinnar tvisvar sinnum. Í þessum útsláttarkeppnum hafa þeir slegið út m.a. Barcelona, Juventus, Chelsea(2x) og Milan ! Frábær árangur hjá frábærum knattspyrnustjóra Rafael Benitez og ljóst er að árangur hans í þessari keppni er hreint út sagt, stórkostlegur ! Núna erum við komnir í úrslit og mætum þar annaðhvort Milan eða Man.Utd. Ég tel líkurnar á því að Liverpool hampi titlinum 23.maí n.k. verulega litlar, enda 2 frábær lið að keppa í kvöld. Til þess að rökstyðja það, þá er auðvitað ljóst að ef Milan slær United út í kvöld og mæta Liverpool, verða þeir ekki búnir að gleyma því sem gerðist fyrir 2 árum. Svo er líka ákveðin biturleiki í þeim vegna frádrátt á stigafjölda á ítalíu, og mun það efla leikmenn liðsins þegar komið er í úrslitaleikinn gegn Liverpool. Ef hinsvegar leikurinn í kvöld fer þannig, eins og ég spái, að Man.Utd taki hann, þá er United auðvitað mun sigurstranglegra lið í úrslitaleiknum. Þá er nóg að horfa í úrslit liðanna undanfarin ár og sjá þar að United fær þar + í kladdann. Ótrúlegur sigur þeirra í 8-liða úrslitum gegn Roma er einnig hrollvekjandi fyrir önnur lið að búa við, sem mæta þeim í úrslitum.

En glæsilegur árangur Liverpool engu að síður staðreynd, tvisvar sinnum á þremur árum í úrslitum meist.deildarinnnar og með 50% vinningshlutfall í þeim úrslitaleikjum !

En varðandi einstaka leikmenn Liverpool í gærkvöldi, þá kom það mér á óvart hvað Zenden var ágætur í leiknum. Steve Finnan er auðvitað að sanna sig enn á ný sem besti h.bakvörður í heiminum. Jamie Carragher og Daniel Agger mynduðu sterkt miðvarðapar, og ljóst er að þeir eru búnir að fylgjast vel með því sem miðvarðakóngurinn á Anfield hefur kennt þeim, Sami Hyypia ! Riise átti ágætan leik. Miðjan var nokkuð öflug, með þá Mascherano sem sinn besta mann, það að West Ham hafi ekki notað hann er með ólíkindum og ekkert skrýtið að Eggertinn hafi losað sig við Pardew m.t.t. þess. Jermaine Pennent komst ágætlega frá þessum leik, sýndi oft á tíðum fína takta. Steven Gerrard, ásamt fyrrgreindum Mascherano dróg vagninn eins og sönnum fyrirliða sæmir. Peter Crouch var svipaður og hann hefur verið, skoraði ekki mark í leiknum. Dirk Kuyt brenndi auðvitað af gullnu tækifæri í framlengingunni eftir að Guð Álmáttugur (sem þá var nýkomin inná) lagði upp það færi fyrir hann. Það er auðvitað svo, að auðvelt er að segja að Pepe Reina hafi verið maður leiksins, en ósanngjarnt þykir mér að taka ekki þá leikmenn 2, Gerrard og Mascherano, og setja þá í pott ásamt Reina og draga um það hver var MOM.

Læt þetta duga í bili og spái United sigri í kvöld 2-3 í skemmtilegum leik, spái því reyndar að Ronaldo fái gult fyrir leikaraskap, sem þýðir að hann verði í banni í úrslitunum.

 
Andri Valur
Eitt með Drogba. Hefurðu tekið eftir að hann meiðist illa í næstum hverjum leik? Alltaf skal hann liggja illa meiddur og haltra síðan megnið af leiknum! Aldrei neitt að honum og aldrei tekinn út af. Skil þetta ekki.

Annars held ég að þetta hafi bara verið sanngjarnt. Fannst Chelsea ekki hafa mikinn áhuga á að vinna þennan leik, kannski á smá tímabili í framlengingunni, en annars ekki neitt.

Leikurinn varð ekki jafn leiðinlegur og margir voru búnir að spá. Fór þó í vító eins og jafn margir voru búnir að spá.
#1
02. maķ 2007 klukkan 12:47
Nú er ég orðinn jafn pirraður á þessum baktryggingum þínum og þeir félagar Jesú og Dagur!
Það er með ólíkindum að lesa þetta!!!!
Þetta er einn fótboltaleikur á milli tveggja liða og þessi tvö lið hafa nákvæmlega jafn mikla möguleika á að vinna leikinn. Það að þú sért búinn að ákveða það núna, ca 3 vikum fyrir leik, að Liverpool tapi þessu er með ólíkndum.
Ég er alls ekkert að segja að ég sé viss um að Liverpool vinni þennan leik, en tel ca 50 % líkur á því;)
#2
02. maķ 2007 klukkan 18:36
 
Dagur
Hef ég einhvern tímann verið með baktryggingar Himmi??
#3
03. maķ 2007 klukkan 14:47
Ég held að Hilli litli sé að verða jafnpirraður og þú Dagur VEGNA baktrygginga Ævars.

Annars finnst mér þessir þrír leikmenn sem fara svona ofboðslega í skapið á þér Ævar, algjör jólahátíð miðað við úrhrakið og liðleskjuna Joe Cole. Það eitt að hann er í landsliðinu er orsök þess að England vinnur ekkert á stórmótum. Hann er vælukjói, ofmetið og ofdekrað smábarn sem væri ekki einu sinni tekið eftir í 1.deildinni. Frekar vildi ég sjá Elton John í landsliðinu en þennan djöfulsins ómaga sem ekki er einu sinni búið að finna stöðu við hæfi.

Joe Cole er aumingi.
#4
03. maķ 2007 klukkan 19:16
 
Ęvar Ž.
Sammála því að Joe Cole sé aumingi.

Sammála því að Didier Drogba "meiðist" óvenju oft í leikjum. Það bara hlýtur að vera pirrandi fyrir lækni liðsins og þurfa endalaust að hlúa að honum í leikjum. Hann hlýtur bara að fara að segja við hann þegar hann joggar inn á völlinn "æji Drogba, það er ekkert að þér!"

Ég er nú enginn baktryggingarmeistari, svo mikið er víst. Ég hef spáð Liverpool sigri í leikjum, sem og tapi. Stundum heppnast spárnar, stundum mistakast þær eins og gengur. En eins og fyrr segir, þá spái ég þeim sigrum líka.
#5
03. maķ 2007 klukkan 22:14
 
Dagur
Hehe Las auka RA á eftir þeir í setningu Hilla litla.

Ævar, það er alveg tilgangslaust fyrir þig að mótmæla þessu. Dæmin hafa margoft sannað að þú spáir þínum mönnum ALLTAF tapi í leikjum gegn stórliðum. Það þykir ekki til tíðinda þegar þú spáir Liverpool sigri gegn Watford svo dæmi sé tekið, enda er enginn að tala um þá leiki.
#6
03. maķ 2007 klukkan 23:25
Gott Dagur að þú sért búinn að lesa þeta betur yfir:)

Algjörlega sammála ykkur með Joe Cole.

Ævar, ég verð kominn norður fyrir leikinn...þannig að við verðum að horfa á hann saman. Það er bannað að fara í körfubolta í hálfleik!!!!! Og svartsýni er illa séð.
#7
04. maķ 2007 klukkan 10:41
 
Ašalsteinn J.
Er opinber spá þá ekki örugglega 3-1 fyrir Milan Ævar?

Bara fá þetta á hreint - svona til að hafa þetta skalfest.
#8
04. maķ 2007 klukkan 15:52
Alli, á ekkert að fjalla um leikinn á síðunni þinni?
Það hefur ekki staðið á umfjöllun og fullyrðingum þar undnafarið, en svo núna, þegar manure skeit fallega á sig þá er bara talað um ofvaxna ánamaðka og skótísku????
#9
04. maķ 2007 klukkan 17:22
 
Gušrśn Marķa
Hæhæ, ertu að vinna laugardaginn 12 maí ?
Let me know..
#10
04. maķ 2007 klukkan 17:45
 
Ęvar Ž.
Spái því að Dagur hafi truflast þegar hann las yfir commentið frá Himma og í hita leiksins skellt commenti strax við ! haha

Annars hef ég ákveðið að taka mér tíma í að spá fyrir um Liverpool vs Milan. Einhversstaðar var ég búinn að spá fyrir um þann leik en ég mun endurskoða þá spá. Þá mun ég auk þess gera það í næsta pistli að ræða niðurlæginguna sem United varð fyrir á miðvikudag ! Djöfull sem ég hefði verið til í að mæta þeim í Aþenu ! En svona er bara lífið, það rætist ekki allt. En svo er þetta líka spurning um að tapa leikjum, og að skíttapa leikjum. Manchester United skíttapaði þessum leik gegn Milan ! hahahaha

A.C. Milan vs Manchester United 3-0 !!! hahaha Glæsilegur Gillardino !
#11
05. maķ 2007 klukkan 00:30
Tíhí:)
#12
05. maķ 2007 klukkan 11:19
 
Dagur
Ég skal vera fyrsti maðurinn til að viðurkenna að Man United átti alls ekki skilið neitt eftir frammistöðuna gegn AC Milan. En að tapa fyrir AC Milan er sigur miðað við það að tapa fyrir Fulham!!!
#13
05. maķ 2007 klukkan 17:27
 
Ęvar Ž.
Þetta tap gegn Fulham er svipað og ef maður væri búinn að borða sig pakksaddann af góðu nautakjöti og svo væri manni boðið í pizzu með ananas og papriku (sem eru báðar vondar áleggstegundir) og maður myndi að sjálfsögðu neita sér um það.

En gudda litla systir, ég er í fríi þann dag :)
#14
06. maķ 2007 klukkan 07:15

Skrifa athugasemd