Ég man skýrt og greinilega þegar þessir vesalingar komu til Liverpool, menn gjörsamlega misstu sig í yfirlýsingum og þ.á.m. var olíufurstinn sem ég held að hafi mígið á sig úr spenningi. Nú er það hins vegar ljóst að þeir geta ekki blautann skít og voru á sínum tíma ofmetnustu leikmenn í heimi. Ég hugsa að þeir gætu ekki spilað góðan fótbolta þó að líf þeirra lægi við.
Annars er ég búinn að tjá mig um þennan Milan leik. Man United átti ekki skilið að vinna þennan leik. Niðurstaðan er sú að enn og aftur mætast lið í úrslitum Meistaradeildar Evrópu sem eru að skíta á sig í deildinni heima fyrir. Það dregur úr verðleikum þessarar keppni, þ.e. hún segir ekkert til um hvaða lið sé best í Evrópu.
Žaš var og...
06. maķ 2007 klukkan 07:43
Liverpool og A.C. Milan mætast í úrslitaleik meist.deildarinnar 23.maí n.k. Þetta varð ljóst eftir að Manchester menn mættu til Mílanó til þess að versla sér föt og skartgripi. Svo droppuðu þeir við á San Síró til þess að skíttapa fyrir heimamönnum 0-3 ! Menn hafa verið að gleyma sér í fagnaðarlátunum yfir Milan, þeir hafi verið svo ofboðslega sterkir o.s.frv. ! Málið er að mínu mati hafi þetta Milan-lið ekkert verið svo sérstakt. Ef við tökum t.d. bara varnarlínuna hjá þeim í þessum leik vs varnarlínuna hjá þeim í úrslitaleiknum 2005 þá er sá samanburður svolítið sérstakur. Varnarlínan hjá þeim núna, innihélt hinn hörmulega lélega Massiom Oddo, Alessandro Nesta var þarna reyndar líka, sem er mjög góður. Svo voru þeir Kaladze og Jankulovski, en árið 2005 var línan Cafu, Nesta, Stam og Maldini ! Einhverntíman hefði stórskotalið Manchester, með þá Rooney, Ronaldo Giggs og Scholes t.d. klárað jafn auma varnarlínu, en sú varð nú aldeilis ekki raunin í þetta skiptið. Milan liðið var bara númeri of stórt fyrir United. Djöfull sem þetta var lélegt hjá United. Því að úrslitaleikur á milli Liverpool og Manchester hefði auðvitað verið mun skemmtilegri og meiri stemmning hefði myndast, svo ef mið er tekið af því hversu marga stuðningsmenn liðin tvö eiga a.m.k. hér á landi. En auðvitað voru þarna heimsmeistarar í Milano liðinu, því eins og velflestir vita eur Ítalir heimsmeistarar í greininni og kom það kannski í ljós þarna. United menn voru smeykir fyrir þennan leik og sögðu frá því grátandi að jafnvel yrðu þeir ekki með, Ferdinand og Vidic. Rio Ferdinand var á bekknum en þessi Vidic spilaði leikinn og átti hann hörmulegan leik. Það sem vakti athygli einnig í leiknum, var hversu frábærlega Kaká spilaði í leiknum, Cristiano Ronaldo sást ekki í leiknum og ljóst er að þarna er leikmaður sem ræður augljóslega ekki við að spila undir álagi. Það eru svona 100% líkur á því að hann verði seldur til spánar innan 2ja ára og spilar þar í 5-6 ár, áður en hann söðlar um á nýjan leik og fer til Inter eða Lazio.
Það er ljóst að m.v. þann metnað sem Alex Ferguson á að hafa, þá skilar hann sér ekki í stærstu keppnina, þ.e. meistaradeildina. Því aðeins einu sinni hafa þeir orðið evrópumeistarar undir hans stjórn, eða frá 1986 ! Það var ´99 þegar United vann heppnissigur á Bayern Munich og jöfnuðu þeir þá Nottingham Forrest í titlum talið í evrópukeppninni. Á meðan 13 ár liðu frá því að Ferguson tókst að landa evróputitlinum, er hægt að telja tímann í nokkrum vikum, þegar spurt er um það hvað það tók Rafael Benitez langan tíma að koma heim með stóra dollu. Svo vita auðvitað allir að það tók Ferguson 7-8 ár að færa þeim englandsmeistaratitilinn. Ég held að nú hafi verið tækifærið fyrir Ferguson að updeita evróputitlasafnið sitt, en fyrst það tókst ekki núna, verður hann að horfast í augu við þann veruleika þegar hann hættir og eldist enn meira, að honum tókst ekki að sigra þessa stærstu keppni knattspyrnunnar nema 1 sinni á þá hvað....21 ári+ sem er auðvitað ekki nægjanlega góður árangur fyrir stóran klúbb.
Ég sagði nú frá því einhversstaðar að ég ætlaði mér að endurskoða spá mína fyrir úrslitaleikinn og ætla að gera það núna. Ég spái því að Liverpool verði í sjötta skiptið "Kings of Europe" eftir tæpa 20 daga. Þetta verður mun auðveldara en fyrir 2 árum. Ætla að spá því að hann fari ekki í framlengingu, heldur klára poolararnir þetta í venjulegum leiktíma 2-1. Það verður Steven Gerrard sem skorar fyrr mark Liverpool og Harry Kewell það seinna, úr vel tekinni aukaspyrnu. Knattspyrnumaðurinn frábæri Gillardino skorar mark þeirra Milano-manna. Það er ljóst að um erfiðan leik verður að ræða, enda eins og fyrr segir, inniheldur þetta Milan-lið nokkra heimsmeistara, en ég hef ákveðið að snúa spánni hjá mér við, og spá mínum mönnum sigri í leiknum.
Aðeins til þess að klára þetta, þá hefur það verið frábært að hitta Manchester menn undanfarið, og hvað þá að sjá skrif eftir þá. En um leið hefur þetta máske verið sorglegt, því þeir auðvitað héldu að þeir styddu besta lið í heimi á tímabili, en Milan-hraðlestin þaggaði niður í þeim svo um munaði. Það er a.m.k. ljóst að ekki verða þeir "Kings of Europe" !

Dagur
#2
06. maķ 2007 klukkan 14:05
sneišin
Ég hefi enga trú á að Kewell spili eina mín í úrslitaleiknum.
Það er gersamlega óþolandi hvað okkar menn eru búnir að vera lélegir í síðustu tveimur deildarleikjum,þarna kom fram það ömurlega metnaðaleysi sem hefur nú yfirleitt loðað við önnur lið að halda að hægt sé að hvíla lykilmenn í tíma og ótíma.
Menn skeggræða um að það muni engu að vera í 3. eða 4. fyrir mér munar það miklu,ég bara get ekki sætt mig við að við lendum neðar en Arsenal útaf einhverjum fíflagangi.
En það breytir ekki þeirri staðreynd að Man Utd eru aumingjar.

#3
06. maķ 2007 klukkan 16:41
Andri Valur
Sammála með Man U og evrópukeppnina. Það hafa verið allt of mörg vonbrigði með árangurinn í evrópu síðustu ár.
#4
07. maķ 2007 klukkan 00:39
Ęvar Ž.
Florent Sinama Pongolle og Anthony Le Tallec voru keyptir af fyrrum stjóra okkar, Gerrard Houllier. Það er auðvitað ljóst, að með nýjum mönnum eru nýjar áherslur. Fínt dæmi um það, er t.d. þegar Michael Owen fór frá Liverpool (sem var einn af betri vinum Houllier) eftir að Benitez tók við stjórnartaumunum á Anfield. Þeir voru kallaðir demantarnir tveir, Pongolle var langmarkahæstur á heimsmeistarmóti U-19 eða 17, og Le Tallec var maður mótsins. Þessi viðurnefni á þá félaga, voru ekkert framreidd af mér upphaflega, allur knattspyrnuheimurinn komst að þessari niðurstöðu. Ef að menn sem vilja láta þekkja sig af því að fylgjast e-ð með boltanum, vita þetta. Svo kom það í ljós, þrátt fyrir gríðarlega hæfileika, að toppstykkið á Le Tallec var ekki ásættanlegt, neitaði m.a. að ferðast með liðinu til USA á sínum tíma í æfingaferð. Skildi aldrei hvers vegna Pongolle fékk ekki fleiri tækifæri með liðinu, en svona er þetta bara. M.v. þessa sölu nú á honum til Recreativo, þá segir það manni það að Benitez fær í hendurnar pening í sumar til þess að versla leikmenn.
En já, Liverpool ekki búið að vera spila neitt rosalega vel undanfarið í leikjum í deildinni, en það er svipaður aðdragandi að úrslitaleiknum í meist.deildinni og fyrir tveimur árum, þar sem við náðum aðeins í 15 stig í síðustu 10 leikjum í deildinni. En við sigrum nú Charlton örugglega í síðustu umferðinni, 3-0.

#5
07. maķ 2007 klukkan 10:15
Ašalsteinn J.
En það sem ég skil ekki er að ef þetta voru "Undrabörn", hvers vegna að selja þá? Það getur hreinlega ekki verið að það séu til betri leikmenn þarna úti en undrabörn? Undrabörn hljóta alltaf að vera með bestu leikmönnum í heimi!
#6
07. maķ 2007 klukkan 13:14
Ęvar Ž.
Æji, ég nenni ekki að búa til langt comment um þá félaga, Le Tallec og Pongolle. Þeir voru samanlagt keyptir á 6 milljónir punda, sem er svona 10 sinnum minni peningur en United verslaði Juan Sebastian Verón. Manchester United aðdáendur voru einmitt svo ánægðir með Verón, af því að hann var "alltlæ" í evrópukeppninni. Florent Sinama Pongolle virðist hæstánægður hjá Recreativo á spáni og er hann að gera fína hluti þar. Því er ekkert óeðlilegt við það að hann vilji vera þar áfram, m.v. fá tækifæri hjá Liverpool. Ég hef, persónulega skilið það illa, hvurs vegna hann hefur ekki fengið fleiri tækifæri með Liverpool í gegnum tíðina. Það er svona svipað mikið í hausnum á Le Tallec og er í hausnum á Hans Alfreð, þannig að ekki er hægt að taka mið af honum.
#7
07. maķ 2007 klukkan 23:01
Dagur
Mér þykir þú nú ekkert sérstakur í stærðfræði Ævar því Veron var alls ekki keyptur á 60 milljónir punda. Hann náði aldrei að borga upp kaupverðið en 60 milljónir voru það ekki.
#8
07. maķ 2007 klukkan 23:51
Ęvar Ž.
Geri mér vel grein fyrir því að Juan Sebastian Verón (sem var uppáhaldsleikmaður minn þangað til hann ákvað að fara á Old Trafford og kúka í þau ár sem hann var þar) kom ekki til Man.Utd á 60m.punda, heldur tók ég nú bara svonad dramatískt til orða. Ef ég man þetta rétt, þá borguðu United rétt tæplega 30m.punda fyrir hann.
#9
08. maķ 2007 klukkan 07:21
En nú er Pongolle seldur frá Liverpool. Ég spyr, HVAÐ ER Í GANGI? Ég man eftir því þegar Ronaldo kom til ManUtd. Þá sagði bensínafgreiðslumaður nokkur: "Það er nú ekkert, við erum búnir að fá UNDRABÖRNIN tvö, Pongolle og Le Tallec". Næstu vikur og mánuði þar á eftir var ekki rætt um bolta við Liverpoolmenn án þess að þeir nefndu þessa tvo leikmenn og yfirleitt alltaf sem "undrabörnin". Nú síðast í haust minntist ég á þá félaga tvo við olíufurstann sem sagðist enn standa við öll þau orð sem hann hafði látið um báða þessa leikmenn (þ.e. undrabörn, tveir bestu leikmenn heims undir 20, svalasta hárið og blotanum o.s.fv.). Nú er semsé búið að selja þennan Pongolle til skítaliðs á Spáni og ég veit ekki einu sinni hvar þessi vesalingur Le Tallec er (sem var einmitt nefndur "næsti Zidane", man ég nú í svipinn). Mig minnir samt að ég hafi heyrt hann orðaðan við Köge. Ég spyr, hvers vegna fá undrabörnin ekki tækifæri, þeir sem eru mun betri en Ekta Ronaldo?