Könnun

Hefuršu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglżsing

Jęja, 4 dagar ķ kosningar

08. maķ 2007 klukkan 08:05
Það eru margir sammála um það að kosningabaráttan hefur verið dauf. Ekkert action í þessu, og alltof alltof margir umræðuþættir í kringum þessar blessuðu kosningar. Mér verður bara bumbult af öllu þessu áhorfi á þessa þætti. Hvernig er samt staða flokkanna, nú 4 dögum áður en landsmenn endanlega ákveða sig með atkvæði sínu.

Framsóknarflokkurinn
Þeir voru framan af í baráttunni, að mælast með þetta 6-7% fylgi en náðu sér svo upp úr þeim öldudal, sem skilað hefur þeim fylgi upp á ca.10% undanfarið. Forystumenn flokksins hafa svona "hótað" því að ekki komi til greina að starfa í ríkisstjórn, nema fylgi þeirra mælist ca.17-20%. Það eru til aðilar sem reynt hafa að gera flokkinn ótrúverðugan, og hefur Jónínu-málið svokallaða fengið mikla umfjöllun í fjölmiðlum síðustu vikurnar. Ég get bara sagt vegna þess, að ef stjórnarandstaðan (sem væntanlega inniheldur Guðrúnu Ögmunds t.a.m.) hefur ekki meira á ríkisstjórnina að setja, annað en að tengdadóttir Jónínu Bjartmarz hafi fengið sérmeðferð við afgreiðslu íslensks ríkisfangs, þá er lítið út í ríkisstjórnina að klaga. Nú er ég hinsvegar ekki að segja að "ef" rétt reynist að óeðlilega hafi verið staðið að málum, þá er það auðvitað ekki gott mál. En það að taugaveiklaðir aðilar innan stjórnarandstöðunnar, s.s. Sigurjón Þórðarson sem gengið hefur hvað lengst í gagnrýni sinni á þessa afgreiðslu ætli að gera þetta mál að sínu kosningamáli, vegna þess að kannanir sýna hann ekki á þingi eftir kosningar, þá finnst mér þetta dapurlegt. En ég held að þetta mál hafi skaðað flokkinn, reyndar eins og Landsvirkjunarmálið, þegar Jóhannes Geir eðalframmari var settur af sem stjórnarformaður og Páll Magnússon skipaður í hans stað. Það mál hefur nú ekki skaðað flokkinn eins mikið, enda eru margir aðilar innan stjórnarandstöðunnar, sem meira að segja hafa lýst yfir ánægju sinni með ákvörðunina, telja að nánast enginn sé betur til þess fallinn að sitja sem formaður stjórnar Landsvirkjunar, en Páll Magnússon.

Frjálslyndi flokkurinn
Ekkert virðist ganga hjá flokknum, og ljóst er að Margrét Sverris er ekki alveg sú vinsælasta hjá þeim frjálslyndum. Í þessu kjördæmi (NA) er Sigurjón Þórðar ekki inni, og vekur það heilmikla athygli ! Ég fór á hreint alveg grútleiðinlegan fund um daginn hér á víkinni, þar sem frambjóðendur í þessu kjördæmi voru komnir saman til fundar og umræðna, og þó ég geti seint talist hlutlaus í þessu máli, þá kom Sigurjón verst frá fundinum. Hann virkaði bæði bitur og reiður. Þá er ég ekki að meina það þannig að ég fái eftirfarandi comment (já hann er bara reiður útaf ríkisstjórninni!!!) heldur var hann frekar nasty og ómálefnanlegur í sínum flutningi.

Íslandshreyfingin
Ómar Ragnarsson ætlar, eins og ég hef komið inn á áður, að stytta bílanna okkar, setja alþjóðaflugvöll á vestfjörðum, græja eldvígsgarða út um landið og fleira og fleira. Það sem hægt er að segja um Ómar, er það að hann er samkvæmur sjálfum sér, hann er í þessu vegna hugsjóna sinna um að aldrei megi traðka á græunum blett í framtíðinni. Bæði íslandshreyfingin og VG hafa enn á ný óskað eftir umhverfisumræðu, en sú umræða hefur tröllriðið þjóðinni undanfarna mánuði og nú mega aðrir hlutir komast að. Þeir eru auðvitað nýliðarnir í hópnum, og þurfa því oft að senda í umræðuþætti sem eru í beinni útsendingu, reynslulítið/laust fólk sem hefur átt erfitt með að svara spurningum sem snúa að öðrum málum en umhverfinu. Það er svosem ekkert skrýtið ef út í það er farið, flokkur og flokksmenn hafa kannski ekki náð að "aðlaga sig" að stefnuskrá flokksins, sem er auðvitað ekki fullunnin svona örfáum dögum fyrir kosningar. Nokkrum dögum eftir að Margrét kvaddi frjálslynda sagði hún frá því að fljótlega yrði tilkynnt um nýtt stjórnmálaafl. Ef það hefði verið rétt hjá henni, að þeir hefðu kynnt sig fljótlega eftir það, væri árangur þeirra máske skárri í könnunum. Nýjasta slagorð hreyfingarinnar, er Ómar Ragnarsson og textinn "Ég er ekkert að grínast" og í baksýn er landslag íslands. Svo tók hann dæmi um einhvern foss sem hefði drukknað nú um daginn. Ég sá nú mynd af þessum umrædda foss, og svaf bara með miklum ágætum nóttina á eftir.

Samfylkingin
Eru að rífa sig upp á við í könnunum, og eru búnir að kynna sannfærandi pakka (Unga ísland - Fagra ísland - Frjóa ísland svo dæmi séu tekin) um ýmis málefni. Ingibjörg Sólrún er, eins og ég hef komið inn á áður, hætt að hlægja hrokafullum hlátri í beinum útsendingum þegar stjórnarliðar eru að tala, það fer henni ágætlega. Hún og samfylkingin tala með þeim hætti að allt sé á endastöð komið, ef samfylkingin fær ekki umboð kjósenda til þess að mynda starfshæfa ríkisstjórn. Mér fannst hún nú reyndar komast vel frá "Jónínu-málinu". Eyða á öllum biðlistum sem fyrirfinnast á undarverðum tíma, talað er um að eftir 1 og 1/2 ár, verði aldraðir komnir í glæsileg mál, varðandi húsnæðisvanda. Það vill nú svo til, að þegar R-listinn var og hét, þá var hann af einhverri ástæðu kallaður Biðlistinn.

Sjálfstæðisflokkurinn
Mælast gríðarlega sterkir og eru í könnunum yfir 40%, og greinilegt að þeir mæta sterkir til leiks n.k. laugardag. Formaður flokksins og varaformaður mynda traustvekjandi tvíeyki greinilega. Skemmtileg tilviljun, að þegar sjallarnir í suðurkjördæmi auglýsa fundi o.s.frv. er oftar en ekki mynd af fólkinu sem efst er á listanum hjá þeim. En alltaf er einn skilinn útundan og er það ljótt að skilja fólk útundan, spái því að allir þeir sem nú þegar eru búnir að giska, hafi rétt svar. Hann er alltaf skilinn eftir, Árni nokkur Johnsen ! Ætli það sé að beiðni Geirs Hilmars Haarde ? Veit ekki, en ljóst er að þessi hressi kall sem oftast nær hefur verið andlit sjálfstæðisflokksins í aðdraganda kosninga, fær ekkert að tjá sig fyrir framan cameruna. Árni reyndar, fékk að spjalla málin við Bjarna gorm á Litlu kaffistofunni um daginn. En allavega, þá virka sjallarnir sterkir sem aldrei fyrr og virðast, m.v. fylgið í könnunum, og þeir sem búnir eru að stjórna hérna í ein...hvað 16 ár ! Hvað gæti þetta þýtt ? Ánægja með störf flokksins eða hlægilega slök og léleg stjórnarandstaða. Það er reyndar vandræðalegt fyrir stjórnarandstöðuna að skjóta fast á sjallanna svona í aðdraganda kosninga, ef vera skyldi að þeir vildu fá að vera með í ríkisstjórn, ásamt Haardenum.

VG
Eru að dala í könnunum, enda líka held ég að það hafi verið farið að fara i taugarnar á fólki, þegar Steingrímur frændi minn, Ögmundur og fleiri innan VG voru farnir að tala eins og ráðherraembættin væru jafnlíkleg og að morgundagurinn rynni upp. Svo hefur þessi gríðarlega umhverfisumræða þjaðnað niður og samhliða því, hefur fylgi þeirra mælst minna. Ég ætla að spá því að VG fái ca.14% í kosningunum, sem er nú mjög gott m.v. kjörfylgi þeirra, sem eru rétt um 8%.

Niðurstaðan
Umræðan undanfarnar vikur hefur verið leiðigjörn, og ljóst er, að aðeins 2 flokkar vilja umsvifalaust setja stopp á stóriðjuáform, sem m.a. fyrirhuguð eru hér á bakka við húsavík. Að öðru leyti, ef öllum svona "almennum" áherslum og stefnum flokkanna yrði blandað saman og fólki yrði réttar þær áherslur, þá væri ekki hægt að eyrnamerkja þær ákveðnum flokki. Svo líkar eru margar af þessum tilllögum og áherslum. Svo er einnig athugavert hversu slæma útkomu framsóknarflokkurinn er að fá í könnunum. Það er það sem ég skil ekki, m.v. góða útkomu samstarfsflokksins, Sjálfstæðisflokksins. Ég veit vel um þennan frasa, "allir samstarfsflokkar sjallanna blæða fyrir samstarfið, en fyrr má nú aldeilis vera. Framsóknarflokkurinn hefur fengið alltof stóra sneið af gagnrýniskökunni, á meðan sjallarnir hafa sloppið vel við hana, það gæti stafað að því að framsókn liggur vel við, því framsókn er auðvitað á miðjunni, þegar kemur að þessu fræga, pólitíska litrófi. Á meðan sjallarnir eru til hægri og því auðveldara fyrir þá samfylkinguna og jafnvel VG að ná í fylgi til framsóknarflokksins. Það sem einnig vekur athygli er að Jón Baldvin, fyrrv. leiðtogi vinstri manna á íslandi, getur ekki sagt það hreint út hvað hann ætli að kjósa, og sagðist meira að segja hafa velt því fyrir sér, að ganga til liðs við Ómar og Margréti. Það er augljóst að eitthvað hefur kastast í klekki á milli forystumanna samfylkingarinnar, og Jóns Baldvins því hann hefur verið við það iðinn undanfarið, að skrifa gagnrýnar greinar um Samfylkinguna.

En þetta kemur allt saman í ljós á laugardaginn. Spurning bara hvar maður setur x-ið sitt.
 
Ašalsteinn J.
Ég ætla að setja fram spá!

B:12%
D:39%
F:6%
I:3%
S:27%
V:13%

Næsta stjórn verður S-flokkanna sem mun hafa heil 66% á bak við sig.
#1
08. maķ 2007 klukkan 09:39
 
Andri Valur
Eru sjálfstæðismenn ekki í framboði líka?
#2
08. maķ 2007 klukkan 11:56
 
Ęvar Ž.
Mjög athyglisverður punktur hjá Andra Val. Mér hefur augljóslega yfirfarist að hafa langtstærsta flokkinn með í þessari upptalningu. En mér hefur greinilega ekki fundist það merkilegur flokkur ! :) Bæti úr því núna rétt í þessu....
#3
08. maķ 2007 klukkan 13:29
 
Ašalsteinn J.
Ég hvet menn til að setja fram spá!
#4
08. maķ 2007 klukkan 15:52
 
Andri Valur
Betra að leyfa öllum flokkunum að fljóta með!
Ég þarf aðeins að melta þetta og kem síðan með spá
#5
09. maķ 2007 klukkan 01:56
 
Ęvar Ž.
Sniðug hugmynd frá bæjarfulltrúanum !

Mín spá er eftirfarandi:

B: 15%
D: 39%
S: 25%
V: 14%
F: 5%
I: 2%

Ég notaði mér líkanið á visir.is/kosningar og fékk það út, að hvorki auðvitað frjálslyndir né íslandshreyfingin nái inn manni. Líklegast verður að telja úr þessu, að áframhaldandi samstarf stjórnarflokkanna er framundan, en samanlagður þingmannafjöldi þeirra er 37, á móti 26 hjá Samfylkingu og VG.
#6
09. maķ 2007 klukkan 08:53

Skrifa athugasemd