Ég vissi ekki að þú talaðir svona góða sænsku
Þá er búið að minna mann á það að við búum á íslandi ! Fyrir örfáum dögum var ég að týna úr nabblanum mínum kuskið, hérna á pallinum fyrir utan, staddur í sólbaði. Núna er ég klæddur í slydduógeðisveðrabuxurnar mínar og loðfóðruðu úlpuna mína ! Eiríkur Hauks komst ekki áfram í eurovision í gærkvöldi sem er ótrúlegt m.v. hvað flest öll önnur lönd lögðu á það ríka áherslu að komast ekki áfram. En jæja, þýðir lítið að gráta utan í bjössa bónda með það.
Kosningar á morgun og bera allir fjölmiðlar merki þess með gegndarlausum auglýsingum um "allt annað líf" "nýja tíma" "árang áfram - ekkert stopp" "ég er ekki að grínast" "Fagra ísland". Ég verð nú að segja það, svona rétt fyrir kosningar, að ég get með engu móti gert upp hug minn, ég er orðin jafn óákveðin og stelpa að finna árshátíðardress !
Liverpool að kaupa Lucas frá Gremio, landsliðsmann Brasilíu og samkvæmt erlendum miðlum voru flest stórlið í evrópu á eftir kauða. Það er nú reyndar oftast þannig, þegar leikmenn sem koma frá s-ameríku, að flest þessi stórlið, Barcelona - Real Madrid - Bayern - Juventus - Milan - Liverpool - Chelsea - Arsenal eru orðuð við leikmenn þaðan.
Var á bryggjunni áðan, varð þess heiður aðnjótandi að skoða stærsta og besta fiskiskip heims áðan ! Þá er ég að sjálfsögðu að tala um Þórsnes 2, skipið sem náði að laða til sín fyrrverandi videokóng heimsins ! Ég gekk þarna um, líkt og ég væri staddur í hvíta húsinu, slík var virðingin. Samkvæmt heimildum mínum (fyrrv.videokóngur) hefur fiskeríið verið með miklum ágætum. Reyndar er það svo, að þegar sjóararnir eru að segja mér e-ð til um það hvað sé ísfiskstogari, og að þeir séu á netum, en ætli svo á línu, og ætli svo að klára þetta á trolli eða hvað sem þetta heitir, þá gæti ég allt eins verið að botna í því hvers vegna í ANDSKOTANUM RAFAEL BENITEZ ENDURNÝJI EKKI SAMNING FOWLER VIÐ LIVERPOOL !
Var einmitt að komast að því þegar ég kláraði "svo að klára þetta á trolli eða hvað sem þetta heitir". Sko, ég hef lengi haft mikið álit á Rafael Benitez, en þarna gerir hann sig sekan um svo andstyggilega heimskulegan hlut, að traust mitt á þessum stjóra Liverpool hríðlækkaði við þessar fréttir ! Enn á ný, er Fowler rekin á dyr hjá klúbbnum, það er ljóst að áhrif Fowler á liðið er ofboðslegt, þó að margir segi að Gerrard og Carragher séu með Liverpool-hjarta, þá eru þau hjörtu Ískögglar við hliðina á poolara-hjartanu í Fowler. Þessi skrif eru með fyrirvara um það að Fowler hafi hugsanlega sjálfur viljað söðla um, jafnvel á leið til LA og spila þar með Beckham. Hinsvegar, ef þetta er ákvörðun, sem eingöngu er tekin af Benitez, þá er ég verulega svekktur og ekkert annað fjögurra til fimm marka sigur gegn Milan í úrslitunum 23.maí n.k. koma til með friða mig !
En jæja, er á leið á fund hjá "Nigel Worthington" og ljóst er að þetta verður stærsta málið á dagskrá, þ.e. brotthvarf Robbie Fowler, eins merkasta markaskorara í sögu enskrar knattspyrnu frá Liverpool ! Mig langar til að gráta....og ætla að gráta
Næsti pistill hjá mér, verður eyrnamerktur Robbie Fowler, og verður hann í lengra lagi, svo vista ég hann hérna til vinstri á síðunni !
....ætla að fara að jafna mig á þessum ömurlegustu tíðindum sem ég hef lengi fengið
Skrýtið að Andri Valur, sem ætlaði að melta sína spá, hefur enn ekki komið henni hérna inn og kjördagur er í dag. Ég á reyndar eftir að kjósa, en ég er ekki ennþá búinn að komast að niðurstöðu hvar X-ið mitt verður !
Svo má bæta því við, að ég var á mbl.is og skoða hvar allir formennirnir hefðu kosið, og það hefði í einu orði sagt, verið frábært ef fyrirsögn þar hefði einnig verið, "María Óskarsdóttir kaus í Borgarhólsskóla. Á meðfylgjandi mynd er hún að skila sínu atkvæði, ásamt eiginmanni sínum, Einari Kolbeinssyni" !!
Lélegt að bregða sér ekki á leikinn gegn Charlton, reikna t.d. með að Bítlaaðdáendur myndu ekki hugsa sig um ef að nú yrðu auglýstir lokatónleikar þeirra félaga, John, Paul, George og Ringo.