Könnun

Hefuršu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglżsing

Liverpool vs Milan - Stjórnarmyndunarvišr.

21. maķ 2007 klukkan 14:38
Eftir aðeins 2 daga og 5 tíma ca. hefst leikur Liverpool og Milan í úrslitum meist.deildarinnar ! Ljóst er að þetta er stærsti leikurinn, hugsanlega utan við úrslit í HM, sem leikmenn spila og er spennan að stigmagnast. Samkv. heimsíðu Milan dæmir þjóðverji þennan leik, en sá hefur dæmt nokkra poolara leiki, og hafa Liverpool aldrei farið með sigur af hólmi í þeim leikjum, hinsvegar hefur hann dæmt 5 leiki með Milan, og hafa þeir Milano-menn sigrað þá alla ! Þessi staðreynd fer í "afsökunarbankan" ef illa fer á miðvikudagskvöldið. En samt spái ég auðvitað Liverpool sigri í þessum leik, og stend við það, hvar og hvenær sem er, að Milan liðið í dag, er slakara en það var fyrir 2 árum síðan. Líklegt byrjunarlið að mínu áliti, verður að Reina stendur markið, arbeloa, agger, carra og riise í vörninni, á miðjunni verða þeir Mascherano, Gerrard, Alonso, Pennant og Kewell. Einn frammi verður svo Dirk Kuyt. Ég þykist vita að þetta er nú svona meira þráhyggja, varðandi Kewell en m.t.t. þess hversu öflugur hann er að koma til baka ástralinn, þá sé ég ekki af hverju hann ætti ekki að verða á vinstri vængnum á mið.kvöldið, enda langbesti vinstri kantmaður í heiminum.

Það er auðvitað öllum ljóst að frammararnir voru skildir útundan í umræðum við sjallanna og hafa þeir allir, ef frá er talin kannski Björn Ingi verið að gagnrýna fyrrv. samstarfsflokk sinn allsvakalega, og þung orð látin falla, sbr Guðni varaformaður. Annars las ég það einhversstaðar, að græðgin hjá Ingibjörgu Sólrúnu í völd eru slík að hún sé tilbúinn að beygja sig fyrir öllum áformum Sjálfstæðisflokksins, til þess eins að verða ráðherra í nýrri ríkisstjórn. Á sunnudaginn þurfti ég að skoða nafnskírteinið mitt til þess að vera alveg örugglega klár á því, að ég heiti það sem ég heiti, þegar Hannes Hólmsteinn Gissurason tilkynnti það opinberlega í Silfri Egils að hann væri skotin í Ingibjörgu Sólrúnu. Álit Hannesar í gegnum tíðina á Ingibjörgu hefur verið svipað og upplifun venjulegs manns á rottum. Svo opinberar hann það, í Silfrinu, sem fyrr segir að Ingibjörg Sólrún sé reynslumikill og góður stjórnmálamaður ! Annars er það að frétta af þessum umræðum, þessara flokka á milli, að 2 mál séu að velkjast e-ð fyrir flokkunum, mitt ofboðslega pólitíska nef segir mér það að þau mál séu þá nr.1 Evrópumál, og svo nr.2 Umhverfismál. Það verður einnig skemmtilegt að fylgjast með því hvort sú ósk Ingibjargar rætist, um að leggja niður landbúnaðarráðuneytið, eins og hún nefndi hér um árið. Svo ef hún fær að ráða öðru, þá verður samgönguráðherra úr reykjavíkinni, það nefndi hún einnig fyrir þarsíðustu kosningar (2003). Það vilja margir meina að Framsókn hafi verið haft að fífli í kjölfarið á kosningunum, ég ætla nú ekki að ganga svo langt með þá fullyrðingu, en ljóst er, m.v. upplýsingar frá m.a. Þorgerði Katríni að mig minnir, þá höfðu formenn D og S verið í einhverju símasambandi áður en D og B ákváðu að leggja ekki upp í aðra ríkisstjórn. Guðni landbúnaðarráðherra var með ansi hreint langsótt samsæri í kastljósinu um daginn, sem var skemmtilegt að fylgjast með. Held bara að Guðni sé búinn að horfa á allt-alltof margar sakamálamyndir í gegnum tíðina. Samfylkingarfólk bendir á VG og segir að það sé þeim að kenna, að ekki sé hægt að stilla upp vinstri stjórn í landinu og þeir neita því auðvitað. Það var samt gaman að sjá ljósmynd af þeim Geir og Ingibjörgu á þingvöllum nú á dögunum, þau litu út eins og eldri bóndahjón í einhverjum firðinum þarna fyrir vestan, þetta var í besta falli krúttleg mynd af þeim.

En jæja, ætli sé ekki best að fara að drífa sig í sturtu og syngja eins og 2-3 lög á meðan.
 
Kristjįn J
jæja gosi, saknaði þess að þú skildir ekki standa við stóru orðin og koma á djammið eins og þú lofaðir að gera fyrst hórurnar í Chelsea unnu Man U á Wembley...

Ég var að velta því fyrir mér meðan ég las pistillinn þinn hvort þú værir að skrifa sem sjalli eða frammari..
ertu búinn að gera uppvið þig hvort þú munir stiðja stjórnarhjónarband XD & XS eða ætlar þú að fera fúll á móti?
#1
21. maķ 2007 klukkan 20:56

Skrifa athugasemd