Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Uppgjör !

24. maí 2007 klukkan 11:44
  Þá er það ljóst, AC Milan urðu Evrópumeistarar í gærkvöldi með ósanngjörnum sigri á Liverpool. Já, hiklaust segi ég ósanngjörnum sigri vegna þess að Milan átti ekkert í leiknum, skoraði heppnismark á 45´mín, eða rétt áður en leikmenn gengu til búningsherbergja. Varðandi seinna markið hjá Inzagi, þá var reyndar lítið við því að segja, en reyndar verður að segjast sem svo að vörnin okkar átti kannski ekki sinn allra besta leik, og kom þar bersýnilega í ljós hversu öflugur, og vanmetin þáttur Sami Hyypia hefur verið undanfarin ár. Ástæða þess að hann er gagnrýndur, er sú einvörðungu að hann sé orðin svo hægur ! Menn geta ekki fundið neina aðra skýringu, en vegna þeirra gagnrýni höfum við haft innanborðs gríðarlega hæga leikmenn á tímabilinu, t.d. er hægt að nefna Zenden, Alonso, svo hef ég ekki tekið eftir þessum ofboðslega hraða sem Carragher ræður yfir. Auðvitað er þægilegt að koma með svona fullyrðingu fram núna eftir leik, en það er bara þannig að fólk með blindrastafi ætti auðvelt með að spila leikmann eins og Inzagi rangstæðan. Svo ákvað dómari leiksins að bæta við 3 mínútum, en þegar klukkan rétt slefaði yfir 92mín ákvað hann bara að hætta þessu, enda er þetta þjóðverjagerpi hálfviti. En jæja, þýðir ekkert að gráta vegna þessa leiks, stórir tímar framundan hjá klúbbnum og fyrsta heila tímabil liðsins framundan, þar sem þeir verða í eigu þeirra Gilletts og Hicks.

Hvað gerist í sumar - Hverjir fara - Hverjir koma ?

Fyrir nokkrum dögum, varð það ljóst að bæði Robbie Fowler og Jerzy Dudek kveðja Anfield í sumar. Ég mun sakna þeirra beggja virkilega mikið, enda báðir á sinn hátt einstakir leikmenn. Robbie Fowler auðvitað með tæplega 200 mörk í úrvaldsdeildinni á bakinu. Svo þakka ég Jerzy Dudek fyrir evróputitilinn fyrir 2 árum, í magnaðasta úrslitaleik í sögu meist.deildarinnar. En já, Mark Gonzalez kveður líka, sem og Bodjewin Zenden, sem er mjög gott ! Zenden er sá leikmaður Liverpool sem ég hef aldrei skilið að sé í sífellu í byrjunarliðinu ! Hann átti ágætis leik gegn Chelsea í seinni leiknum í undanúrslitunum, en þá er framlag hans til Liverpool síðan hann kom þangað, upptalið. Veit svosem ekkert með að selja Riise, en þátttaka hans í velflestum leikjum liðsins, er ávísun á metnaðarleysi. Hann er frekar takmarkaður leikmaður, ekkert sérstakur varnarmaður, á stundum mörk, og þau eru þá reyndar stundum falleg, en sóknarlega séð er hann bara allt í lagi, ekkert meira en það. Ég hef nú í gegnum tíðina verið aðdáandi Xabi Alonso, en svo virðist sem hann hefur eitthvað dalað, sendingarnar hjá honum, sem eiga að vera hans helsta vörumerki, hafa mistekist, skipti eftir skipti hjá honum í vetur. Ég nenni ekki að vera halda enn einn pistilinn um Luis Garcia. Jermaine Pennant virðist vera vaxandi leikmaður, og hefur hann eflst, eftir því sem á tímabilið leið og var bara t.a.m. býsna sprækur í leiknum í gærkvöldi. Hann reyndar, ásamt Mascherano, menn leiksins í gær að margra mati og get ég fyllilega tekið undir það. En jæja, að framlínunni, mér væri svo nákvæmlega sama um það, ef ég læsi um það að öll sóknarlínan hjá Liverpool færi frá Anfield. Craig Bellamy, Peter Crouch og Dirk Kuyt eru bara ekki búnir að standa sig nægjanlega vel á klúbbnum og kæmi mér það verulega á óvart, ef Benitez skipti a.m.k. ekki tveimur af þeim út fyrir nýja menn.

Liverpool hefur gengið frá kaupum á einum leikmanni, sá heitir Lucas og er hann brasilískur landsliðsmaður, spilar sem fyrirliði Gremio. Þessi leikmaður á víst að vera rosalega efnilegur, en hverjir eru það ekki sem keyptir eru þarna frá S-Ameríku til Evrópu. Þeir sem nefndir hafa verið oft og títt undanfarna mánuði, eða síðan Gillett og Hicks tóku við Liverpool, eru m.a. Samuel Eto, David Villa, Fernando Torres og auðvitað talsvert fleiri. Rafael Benitez hefur sagt það að til þess að fá gæðaleikmenn, þarf að klófesta þá strax og er það auðvitað hárrétt hjá honum.
 
Vangaveltur fyrir næsta tímabil

Ljóst er að ef Liverpool fær til sín, e-ð af heimsklassaleikmönnum þá verða þeir í titilbaráttunni heima fyrir næsta tímabil 2007/8. Ég ætla a.m.k. að spá þeim velgengni á næsta tímabili, með breiðari leikmannahóp og sterkari, og "ruslið" verði horfið af braut. Ég spái þeim því englandsmeistaratitli og sigri í deildarbikarnum á næsta tímabili. Því að þrátt fyrir vonbrigðin í gærkvöldi, þá eru bjartir tímar framundan hjá sigursælasta liði bretlandseyja, með tilkomu nýrra eiganda, sem eiga fyrir dýfu á ísinn sinn.
 
Dagur
Af hverju finnst mér ég hafa lesið það nokkrum sinnum í gegnum tíðina að Liverpool maður sé að spá sínu liði Englandsmeistaratitli og það skömmu eftir að tímabili lýkur? Ég held að ég sé búinn að heyra þetta í sautján ár, en ekkert gerist.

Ég skil ekki alveg af hverju Liverpool menn eru svona brjálaðir út í dómar leiksins í gær. OK hann flautaði til leiksloka tuttugu sekúndum áður en uppgefinn viðbótartími var liðinn en hann er klárlega ekki að miða við einhverja vallarklukku. Hann er með sína klukku á úlnliðnum og veit það manna besta hvað tímanum líður. Svo var Liverpool búið að hafa rúmar 90 mínútur til að skora tvö mörk og ég efast um að tuttuga sekúndur hafi ráðir úrslitum í þessum leik. Þess fyrir utan fannst mér hann dæma þennan leik mjög vel.
#1
24. maí 2007 klukkan 16:19
 
Jói Brill
Pennant búin að vera okkar heitasti maður síðustu 2 mán ásamt Mascherano,ekki nokkur spurning...ég hef trú á því að Kuyt verði heitur næst,eða hann fær allavega sénsinn..selja bellamy og crouch,zenden,Gonsalez og svo líka Sissoko..já það er alltaf þessi spurning með Rise..hef aldrei þolað þennan rauðhærða Norðmann sem er svo örfættur í þokkabót...en það er eitthvað,veit ekki hvað en eitthvað er það..látum hann allavega mæta afgangi...það fyrsta sem þarf að gera er að ganga frá kaupum á Javier Mascherano...og það sem þarf að gera þar á eftir er að fara til Gerta og kaupa Teves..svo má fara að skoða það að semja við þessa gauka...
#2
24. maí 2007 klukkan 18:04
 
Ævar Þ.
"Er í lagi að skora mark með hönd" ? Þetta vildi Gylfi Orrason, okkar virtasti og besti dómari landsins undanfarin ár, að fólk myndi spyrja sig að eftir að hafa skoðað mark nr.1 hjá AC Milan. Þetta er auðvitað spurning, sem auðvelt er að svara nei, en auðvitað voru Heimir Karls, Guðni og Hemmi Gunn, allt saman frægir drykkjumenn, búnir að afgreiða með því að fagna Milan sigri. En ég ætla svosem ekkert að fara að afsaka þetta tap um daginn, enda eins og Dagur segir, fékk Liverpool tíma til þess að skora mörk í leiknum. Hinsvegar, þá er það auðvitað ljóst að í aðdraganda næsta tímabils, þá hefur núna stjóri Liverpool úr meirum fjárumunum að spila en venjulega, og ef farið er "rétt" með þá peninga, er ljóst að Liverpool er líklegt til þess að blanda sér í baráttuna um 1.sætið.

Sammála Brillaranum í því að kaupa Tevez yrði ákaflega snjallt "múv" hjá Benitez. Svo er ég búinn að hugsa þetta aðeins varðandi Riise frá því í gær, og komist að þeirri niðurstöðu að sala á honum, yrði mér ekkert áhyggjuefni.
#3
25. maí 2007 klukkan 08:56
 
Dagur
Við skulum nú ekki gleyma því að dómarinn fær bara að sjá þetta einu sinni en við fengum c.a. 15 endursýningar á þessu atviki. Fyrst þegar ég sá þetta mark gat ég ekki séð að hann færi í hendina á hinum magnaða framherja Filippo Inzaghi. Að mínu mati var þetta ekki hendi, því hann setti hendina alls ekki fyrir boltann og eins og Gylfi sagði þá er ekkert í reglunum sem svarar þessari spurningu sem Gylfi varpaði fram.

Gaman að því að þú skulir kalla Heimi, Guðna og Hemma drykkjumenn en málar síðan svona skínandi fína mynd af Gylfa Orrasyni. Gylfi er nefnilega ekki barnanna bestur í þeim málum. Hann er líklega mun verri en Guðni Bergs í þeim efnum.

Varðandi Tevez, þá er ég ansi hræddur um að ef Real Madrid og Chelsea hafa áhuga á honum þá er hann ekki að fara til Liverpool. Því miður fyrir ykkur.
#4
25. maí 2007 klukkan 13:16
 
Jói Brill
Að mínum dómi er ekki hægt að dæma hendi á þetta..en vissulega var þetta algert "skítamark"...já það er orðið þannig í dag að ef að Chelsea og Real eru með augastað þá er hægt að gleyma honum...kannski er Tevez alveg bráðgreindur maður og ákveður að setja stefnuna á Anfield(",)..vona það svo sannarlega því hann er með efstu mönnum á óskalistanum mínum...hef mikla trú á því að meðalmennskan sé að yfirgefa Anfield,Benitez er búin að setja hnefann í borðið..now or never..fá þá strax sem hann vill fá...hver veit,kannski fer þessari 17 ára bið senn að ljúka(",)..eða eru það 18 ár..
#5
25. maí 2007 klukkan 22:25
 
Ævar Þ.
Það er auðvitað alltaf hægt að tala um "hugsanleg" mistök dómara í leikjum í knattspyrnunni, þess vegna er hún svona hrikalega skemmtileg ! Hvort að þetta hafi verið hendi á Inzagi, eða hvort Kuyt hafi verið rangstæður í markinu sínu eru spurningar sem menn velta fyrir sér, sem er vel. Ég held bara, m.v. gang leiksins þá hafi Liverpool alls ekki verið síðri aðilinn, en knattspyrnan snýst jú um að skora mörk, og mörkin urðu fleiri hjá Milan mönnum í leikslok.

Ef að Tevez fer frá West Ham, sem er talsvert líklegt, þá held ég að Liverpool gæti allt eins verið næsti áfangastaður hjá honum, eins og hver annar stórklúbbur í heiminum. Liverpool hefur spilað á s.l. tveimur tímabilum í úrslitum meist.deildar evrópu og er það hugsa ég ágætis mælieining á það hversu stór klúbbur hann er, þrátt fyrir slaka frammistöðu heima fyrir. Ekki skemmtir fyrir að stórvinur hans, Javier Mascherano er á mála hjá Liverpool og kannski að Tevez eigi einhverntíman eftir að lýsa því yfir að ástæðan fyrir komu hans á Anfield, hafi verið að stórum hluta til vegna Mascherano.

En glæsilegt að Bale skyldi hafa valið Tottenham, sem segir okkur það í enn eitt skiptið, að Tottenham er klúbbur sem laðar til sín bestu og efnilegustu leikmenn heims. Ég spái Tottenham 4.sætinu á næsta seasoni.
#6
25. maí 2007 klukkan 23:12
 
Dagur
Ég verð nú að viðurkenna það að ég hef aldrei séð þennan Bale spila. Það hefur nú laðað við Tottenham að kaupa þónokkra pappakassa fyrir hvert tímabil og þessi Bale gæti allt eins verið slíkur. En hver veit??
#7
26. maí 2007 klukkan 01:42
 
Aðalsteinn J.
Þvílíkt og annað eins bull. Ævar nefnir velflesta leikmenn liðsins til sögunnar sem meðalmenn sem muni vafalaust verða seldir í sumar og "heimsklassamenn" á milljón skrilljón pund keypir í staðinn. Djöfull sem þetta mun ekki gerast. Riise verður t.d. pottþétt áfram og fleiri. Ég hugsa að aðdáendur Liverpool séu að ofmeta þessa nýju eigendur stórlega. Þeir sjá fyrir sér að Liverpool séu að taka "Rússland" á þetta og séu á leiðinni að yfirbjóða alla leikmenn til að klófesta þá sama hvað það kostar eins og helvítis Chelsea hafa gert undanfarin ár. Ég efast um það. Einhverjir bandarískir gamlingjar sem ekkert vita um fótbolta eru komnir þarna til að græða pening en ekki til að spila CM eins og Roman nokkur Abramowich. Honum er nokkurn veginn sama hvað þetta kostar en þeir bandarísku vilja fá eitthvað fyrir sinn snúð. Það verður því áfram 6-10 millu kaupstefna í gangi hjá Liverpool. Það mun samt vera nóg til þess að stuðningsmenn liðsins fyllast bjartsýni. Keyptir verða menn sem enginn hefur heyrt talað um frá Spáni og miðevrópu sem allir munu kúka á sig yfir til að byrja með, rétt eins og hefur gerst undanfarin ár.

Skemmst er að minnast þess að eftir tímabilið 2005/2006 sagði einn Liverpoolmaður eftir stórsigur Chelsea í deildinni að landslagið í keppninni það tímabilið hefði orðið allt öðruvísi ef að Mark Gonzalez hefði komið strax, en ekki þurft að spila ár í viðbót á Spáni til að fá atvinnuleyfi. En hann kom og gat ekki blautan skít og er nú á leiðinni frá félaginu. Þetta er saga Liverpoolmanna síðustu 15 árin í hnotskurn. Stöðugir nýir leikmenn, árangur á næsta tímabili - en ekkert gengur.
#8
26. maí 2007 klukkan 12:06
 
Ævar Þ.
Gareth Bale hefur nú þetta tímabilið verið talin eitt mesta efnið í boltanum í dag, og hafa mörg stórlið verið á eftir honum, s.s. Arsenal og Man.Utd. Hann hinsvegar ákvað að taka tilboði Spurs og er það vel. Ég spái því nú reyndar að einhver sjóarinn eigi eftir að finna e-ð að þessum skiptum, hjá Bale.

Ég sagði það nú svosem ekkert að Riise væri að fara, hann ætti bara "allt í lagi" leiki stundum en svo ekki söguna meir, er t.d. beinlínis lélegur varnarmaður. Mér finnst hann svipaður leikmaður og Nemanja Vidic hjá Manchester, á stundum ágætis leiki, svo eftir er tekið, en svo falla þeir niður í algjöra meðalmennsku. Ég er nú ekkert að ofmeta nýja eigendur Liverpool, þeir hafa þó haft fyrir því að mæta á leiki liðsins, á meðan t.d. Glazer veit eflaust ekki að því að hann eigi Man.Utd. En skemmtilega fréttirnar sem Aðalsteinn færði mér símleiðis í dag, að mjög líklegt væri að Glazer-feðgar ætluðu að selja þennan skítaklúbb, og þá eru 2 aðilar nefndir. Fyrst einhver Sheik og svo eitthvað fjárfestingarfélag í Quatar ! Ég veit það bara, að ég væri tilbúinn til þess að myrða fyrir það að vita að Man.Utd væri í eigu fólks fá Quatar ! hahaha

Sá poolari sem hafði svona ofboðslegar mætur á Gonzalez, sbr Aðalsteinn hér að ofan, hefur eflaust farið framúr sér í yfirlýsingum, það kemur fyrir, enda man ég eftir því þegar bóndasonur af Tjörnesinu spáði í það á sínum tíma, þegar Massimo Taibi kom til Man.Utd að húðflúra á sig "Taibi". Það sama reyndar var upp í teningnum þegar Man.Utd keypti Kléberson.
#9
26. maí 2007 klukkan 17:34
 
Aðalsteinn J.
Þetta eru haugalygar! Ég hafði enga trú á þessum mönnum. Hinsvegar var vefstjóri mjög spenntur fyrir Gonzalez og talaði um hann með tárin í augunum af fyrirfram gefnu stolti yfir stórkostlegri spilamennsku. Ég tek það fram að alltaf þegar Liverpool kaupa leikmann ofmeta aðdáendur liðsins þann leikmann við það eitt að hann skrifar undir hjá liðinu, en aldrei hafa þeir farið jafn langt fram úr sjálfum sér eins og í tilfelli þessa Gonzalez gutta sem er álíka góður leikmaður og þessi svarti með dreddanna sem lék í framlínu KR fyrir nokkrum árum.
#10
30. maí 2007 klukkan 20:04

Skrifa athugasemd