Gleypt´ann teskeið !
30. maí 2007 klukkan 09:16
Sérstaklega viðburðaríkir dagar undanfarið ! Mikið að gerast í boltanum og Samfylking og Sjálfstæðisflokkurinn að reyna að koma sér saman um málefnin. Samuel Eto mætir ekki í viðtal þessa dagana öðruvísi en að leggjast á hnén, með þá ósk heitasta að Liverpool kaupi hann ! Einnig er líklegt að Florence Malouda, franskur landsliðsmaður hjá Lyon, skrifi undir hjá Liverpool fljótlega. Þannig að spennandi tímar framundan á Anfield í sumar vonandi.
"Það verður okkar fyrsta verk, ef við náum í ríkisstjórn, að ísland verði tekið af lista hinna viljugu þjóða, tengdum árásum bandaríkjamanna á írak" Þetta sagði Samfylkingarforingin Ingibjörg Sólrún í kosningabaráttunni. Nú hinsvegar, stendur snyrtilegum stöfum í stjórnarsáttmálanum, að ákvörðun fyrrv. ríkisstjórnar sé hörmuð. Búið. Einnig, m.v. nýjan samgönguráðherra Kristján Möller, þá má allt eins búast við leiðindum í sumar þegar maður þarf, af einhverjum óþörfum ástæðum að fara til akureyrar, vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng. Kristján Möller, 1.maður á lista Samfylkingarinnar hélt því fram í sínum sannfæringarræðum, að bora í gegnum Vaðlaheiðina, væri svipað einfalt og að anda að sér loftinu. En heyrðu....nú er þessi sami Kristján Möller orðin samgöngumálaráðherra, og er því í bestu hugsanlegri aðstöðu allra íslendinga til þess að standa við þessi fyrri orð sín, en hvað ? Jú, nú eftir kosningar, þá á þarf allt í einu að fara eftir samningum sem búið er að undirrita í vegamálum á íslandi og á meðan hann heldur því fram, horfir hann skömmustulega niður í kjöltu sína, og þæfir málflutning sinn í kosningabaráttunni á þennan hátt. Það er nú hægt að sjá þetta ennþá á www.skarpur.is Kristján vildi hafa þau gjaldfrjáls, og m.v. hvernig hann talaði um hvað það væri sjálfsagt, þá fékk maður það á tilfinninguna, að til þess að veiða fleiri atkvæði, þá var stutt í að Kristján myndi lofa fólki pening ef það færi þarna í gegn. Semsagt, þegar maður kæmi að göngunum, stæði maður með þúsund kall eða e-ð svipað og rétti manni áður en maður færi í gegn. Ég held, utan við Sigurjón Þórðar, að Kristján Möller hafi verið yfirlýsingaglaðasti stjórnarandstæðingurinn á síðustu kjörtímabilum. Þess vegna, verður það bæði ljúft og sætt, að fylgjast með því hvernig Kristjáni farnast í nýja djobbinu.
En já, þetta átti nú ekki alfarið að snúast um þetta hér að ofan. En það blossuðu víst upp slagsmál á bauksa um helgina, og voru okkar menn í s-inu sínu það kvöldið. Við búum við það, húsvíkingar, að eiga fullt fullt af hetjum í okkar röðum, sem tilbúnir eru að fórna sér fyrir málstaðin. Á meðan þeir voru að snúa upp á puttana á aðkomumönnum, þá sló ég til og ákvað að baka, vaknaði líka upp í þessu svakalega bakstursstuði á sunnudagsmorgunin ! Ákvað að gera pizzusnúða, skellti í einfalda uppskrift, en ákvað svo fljótlega, að vel athuguðu máli, að þessir snúðar kláruðust ævinlega á mettíma hjá mér, að "dobbla" hana, og gerði því tvöfalda uppskrift af þessum snúðum, og upphófust þá heilmikil fagnaðarlæti og gestir sem heimsóttu laugarholt 3.c. á sunnudag, fóru pakksaddir af snúðum. Ég þarf nú ekkert að fara neitt leynt með það, en það er mín spá, að eftir ca. 5-7 ár, þá verði vörunúmerið á pizzusnúðunum hjá mér, orðið vinsælla vörumerki en Coca-Cola Company er í dag ! En bakstursverkfærin fóru svo ekkert í þvott eftir þessar aðgerðir, heldur ákvað ég að græja Sjónvarpskökur líka, gerði 2 þannig og ekki urðu fagnaðarhrópin minni þá. Eftir þetta gekk ég gríðarsáttur í sturtu og hugsaði um það hvað ég væri frábær bakari, það tók mig u.þ.b. 30mín. Svo um kvöldið ákvað ég að gera túnfisksalat, frekar stóra uppskrift og bara svo fólk hafi það á hreinu, að þá er túnfisksalat ekki það sama og túnfisksalat ! Ég er með ákveðin hráefni í salatinu, sem gerir það verkum að salatið hjá mér er 3-4 sinnum betra en þau salöt sem fást í matvöruverslunum í dag. En vegna þess að e-ð er þetta farið að spyrjast út, þ.e. hversu frábært brauð það er, sem kemur út úr ofninum hjá mér í sífellu, þá get ég upplýst það hér, að í framleiðslu eru derhúfur sem snúa að bakstrinum hjá mér og er ég vel reiðubúinn til þess að gefa örfáar þannig til útvalda.
En jæja, best að fara að ristað brauð með ost og bláberjasultu, verður að vera búbótarsulta ! Sultan sú ber höfuð og herðar yfir aðrar sultutýpur.
Verið nú góð hvert við annað, og ég fór í golf í gær, nenni svo engan veginn að segja frá því núna, kemur væntanlega golf-pistill bara næst.

Tinna
Hehe....fyndið....yfirleitt þegar ég kem hérna inn á síðuna þina þá ertu að tala um bakstur....og þar sem þú varst að tala um setja vörumerki á snúðana þína...þá vill það svo skemmtilega til að ég er að vinna hjá vífilfelli í sumar....spurning um að við reddum þessu bara...en ég verð samt að fá fullan poka af snúðum sendann....og já líka af skinkusnúðum (sem ég átti að fá sent fyrir löngu) og ef mér líkar bragðið þá skal ég tala við hann "Dodda" (Þorsteinn í coke) vin minn:) heheh
#1
01. júní 2007 klukkan 11:26
Dagur
Talandi um hetjur sem tilbúnar eru að fórna sér fyrir málsstaðinn. Voru ekki einhverjar slíkar að taka til hendinni á sjómannahófinu? Það hefur nú oft loðað við slíkt hóf.
#2
03. júní 2007 klukkan 23:56
Ævar Þ.
Tinna mín, þú færð sendinguna fljótlega upp í vífilfell :)
En jújú, fullt fullt af hetjum samankomnar á hófinu um helgina, það er á þannig stundum sem ég óska mér ekkert heitar, en að mæta þangað með u.þ.b. 30-35 ára reynslu af sjónum, líkamin sneisafullur af tattoo-veruðum akkerum og ég væri dauðadrukkinn og að slást !

#3
04. júní 2007 klukkan 10:16