Íslenska landsliðið í sæti nr.109 !
13. júní 2007 klukkan 12:46
Jæja, er ekki bara komið gott af Eyjólfi Sverrissyni. Það er nú bara þannig að þegar þjóðir eins og Lichtenstein og Haiti, Bahrain, Gabon eiga að teljast sterkari en íslenska landsliðið í fótbolta, þá er eitthvað mikið að. Ég er bara búinn að fá leið á þessum vælukjóa sem Eyjólfur Sverrison er. Hagnaður KSÍ undanfarin ár gerir það að verkum að auðvelt ætti að vera fyrir sambandið að horfa út fyrir landsteinana þegar leita á að þjálfara. Það kæmi hinsvegar 0% á óvart ef að KSÍ teldi það best fyrir landsliðið að halda Eyjólfi. Það er í lagi að nefna stjóra eins og Gerard Houllier, nú eða Roy Evans, sem ég er viss um að næði glæstum árangri með landsliðið. En já, þjóðir sem telja sig eiga sjens í okkur í fótbolta, geta verið, samkvæmt nýjum FIFA-lista, Sudan, Malta, Kazakhstan Taíland og fleiri þjóðir.
En jæja, eins og væntanlega flest ykkar hafa frétt, þá er ég komin á fullt í golfið og búinn að fá símtöl hvaðanæva af landinu, frá virtum golfklúbbum sem berjast um að fá plattan sinn, á Dunlop settið mitt. Ég hinsvegar, gaf klúbbnum mínum loforð, þ.e. GH um að ég yrði a.m.k. þetta seasonið skráður hjá þeim. Er einmitt að fara að taka þátt í móti í kvöld, landsbankamótinu sem verður svipað auðvelt og að drekka kók. Ætli ég taki ekki 2-3 æfingahringi núna svona rétt til upphitunar, en sérstaklega vegna þess að Geoff McKinley ritstjóri golftímaritsins, WorldWide Golf, sem er söluhæsta golftímarit í heiminum í dag verður á katlavelli á eftir og vildi e-ð fá að ræða við mig um völlinn og bara velli almennt í heiminum.
Bið að helsa Nonna

Ævar Þ.
Já, sennilega er það rétt hjá þér Dagur að við fyrsta högg hjá þér í mótinu, þá hugsa aðrir íþróttafréttamenn að þetta sé aðeins upphafið af einhverju stórkostlegu ! :) (þú ræður hvaða merkingu ég legg í þessar vangaveltur) :)
#2
14. júní 2007 klukkan 14:44
Kristján J
Blessaður gosi... var að koma hingað inn í fyrstaskipti í langann, langann - lengri tíma... fór á hraðferð yfir bullið í þér.... svo sá ég allt í einu að þú varst að tala um leik AC Mílano og Liverpool... þá rámaði mig í bjórinn sem samið var um og að það var gjörsamlega vonlaust að ná í þig dagana eftir leikinn... vona að þú sért ekki búinn að gleyma þessu...
#3
15. júní 2007 klukkan 20:41
gmaría sys
hey pant fara með þér í golf þegar ég kem á víkina !
#4
15. júní 2007 klukkan 21:58
Dagur
Fréttatilkynning:
Á föstudaginn síðasta fór fram geysisterkt golfmót á golfvellinum á Vatnsleysuströnd. Til að gera langa sögu stutta þá má greina frá því að sigurvegarar mótsins voru þeir Dagur Sveinn Dagbjartsson, blaðamaður DV, og Hjalti Þór Hreinsson, blaðamaður Fréttablaðsins. Sigur þeirra var aldrei í hættu. Leikið var með Texas-scramble (veit ekkert hvernig það er skrifað) fyrirkomulagi. Dagur var sá óvani en Hjalti er með 18 í forgjöf. Athygli vakti þó að blaðamaður DV þurfti oft að scheina Hjalta og umtalað var hversu vel Dagur var að pútta á mótinu. Greinilegt að minigolfið í Munaðarnesi hafi verið að skila sér með ágætum. Þeir Dagur og Hjalti voru í holli með Þorsteini Guðmundssyni og Valtý Birni Valtýssyni. Skemmst er frá því að segja að þeir Þorsteinn og Valtýr sáu aldrei til sólar þrátt fyrir að vera báðir með í kringum 25 í forgjöf. Verðlaunin voru ekki af verri endanum, út að borða fyrir tvo í Bláa lóninu og ekki laust við það að tilhlökkun sé að sporðrenna einni steik eða svo.
dagur@dv.is

#5
18. júní 2007 klukkan 13:25
Ævar Þ.
Gudda, við reynum að koma því að, taktu bara miða dúllan mín og ég reyni að nota samböndin til þess að koma þér sem fyrst að :) Stjáni, síminn hjá mér bilaði rétt fyrir leik og hef ég ekkert getað notað hann síðan fyrir stuttu síðan.
Til hamingju með glæsilegan árangur Dagur, og verð ég að segja að mér finnst það afar jákvætt að þú skyldir bera sigurorð af Þorsteini ! :)

#6
18. júní 2007 klukkan 16:34
Dagur
Las þessa skemmtilegu frétt á visir.is:
http://www.visir.is/article/20070702/IDROTTIR0102/70702045/-1/IDROTTIR
Þetta kemur mér nákvæmlega ekkert á óvart, löngu útbrunninn vesalingur þarna á ferð. Hins vegar er hinn 41 árs gamli snillingur Teddy Sheringham að velja úr hvert hann eigi að fara. Þetta er einfalt dæmi um muninn á gæðum þessara tveggja leikmanna.
Teddy = enn góður
Fowler = útbrunninn

#7
02. júlí 2007 klukkan 18:41
Ég er að fara að taka þátt í mínu fyrsta golfmóti á morgun. Þá fer fram golfmót Samtaka íþróttafréttamanna. Ég geri mér ekki vonir um glæstan árangur, enda mótið fyrst og fremst haldið til að hittast og hafa gaman. Ég hef samt trú á því að þetta sé upphafið á einhverju stórkostlegu :)