Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Sumarblogg

06. júlí 2007 klukkan 22:36
Jæja, þá er sumarið hálfnað og ágætt að gera það upp og hvað sé framundan.

Byrjum bara á boltanum. Fernando Torres eða eins og hann er jafnan kallaður "besti leikmaður heims fyrr og síðar" gekk til liðs við Liverpool F.C. nú á dögunum og eru þetta næstum því jafn frábærar fréttir og þegar ég fékk staðfestingu á því að framleiðsla á Basic Instinct 2 væru að hefjast. Ég spái því strax núna að hann eigi eftir að verða markakóngur premier league 2 tímabil í röð. Svo var Andriy Voronin að skrifa undir samning við Liverpool sem er einnig hugsa ég bara ágætt, er nefninlega búinn að vera að velta þessum viðkunnalega síðhærða úkraínubúa fyrir mér undanfarið og komist að því að m.v. að hann kostar ekki neitt, þá skilar hann sínu, u.þ.b. 15 mörk hjá honum í öllum keppnum í vetur. Lucas, fyrirliði u-21 brasilíska landsliðinu gekk einnig til liðs við Liverpool fyrir örfáum misserum og er hann talinn gríðarlegt efni. (reyndar eins og allir brasilíu og argentínumenn sem keyptir eru til evrópu). Svo auðvitað þurfti Benitez að kaupa 20 15 ára stráka svona til þess að 1 þeirra slái í gegn og hann geti á sínum elliárum eignað sér árangur þess stráks.

Það sem hefur verið að gerast utan Liverpool, er auðvitað það fyrst og fremst að Derby County keypti á dögunum eina leikmann Norwich City sem eitthvað varið er í, þ.e. Robert Earnshaw. Það vill nefninlega svo ofboðslega skemmtilega til að fyrir örfáum dögum var haldinn fundur hjá Nigel Worthington og þar mætti ástríðufullur stuðningsmaður Norwich City og var Earnshaw nefndur á nafn og hvort stuðningsmenn fuglanna þyrftu einhverjar áhyggur að hafa að því hvort hann væri á förum frá Carrow. Það stóð ekki á svari hjá fyrrv. videokóng íslands, svarið var nei, og gat hann þess nánast, að það væri jafn miklar líkur á því að Earnshaw færi frá Norwich eins og að Bjarni Fel hætti að halda með Arsenal ! Manchester United fengu krullhærða miðvallarleikmanninn Owen Hargreaves frá Bayern, djöflarnir ákváðu í leiðinni að gefa Bæjurum 17 milljónir punda. Sennilega hefur það verið vegna Hargreaves, þrátt fyrir að hann sé í mesta lagi metin á 1,75-2,5 m.punda.

Sven Göran Eriksson tekin við Manchester City. Það sem hefur komið mér minnst á óvart það sem af er, er hversu óspennandi allt í kringum Middlesbrough er ennþá !

En já, svo við snúum okkur að öðru en boltanum. Ferðalag til Póllands næsta föstudag, mitt annað ferðalag þangað á 1/2 ári sem er hið besta mál. Reyndar erfitt ferðalag framundan, þ.e. fljúga frá egilsstöðum á föst.morgni, fljúga frá Köben á föst.kvöldi og fljúga svo frá Varsjá til Gdansk seinna um kvöldið.

En allt svipað að frétta héðan af víkinni, hugsanlega utan við að Rúnar Ara er að keyra rútu í sumar, en ekki í lauginni ! En ég er svona rétt að jafna mig á því núna.

Læt þetta nægja í bili og get því miður engu lofað um blogg áður en haldið er á vit ævintýranna um n.k. helgi.
 
Tinna
helllúuu....
enn eitt fótboltabloggið....eheheh

ég segi bara góða ferð til Póllands.....og góða skemmtun:)

Rúnar kemur alltaf aftur í laugina....
#1
10. júlí 2007 klukkan 11:51
 
Dagur
Jæja þá er Yossi Benayoun á leið til Liverpool. Stórkostlegur leikmaður þar á ferð sem líklega er sá maður sem Liverpool vantaði til að brúa bilið milli þeirra og Chelsea og Manchester United. NEI!!!

Alltaf gaman að sjá framkvæmdastjóra hjá Liverpool spóla í sömu drullunni og kaupa miðlungsleikmenn (í Guðanna bænum ekki taka þessu þannig að ég sé að segja að Torres sé miðlungsleikmaður, því hann er góður).
#2
11. júlí 2007 klukkan 00:51
 
Ævar Þ.
Þakka þér fyrir Tinna mín :) Ég kem með mjög áhrifaríka og hjartnæma ferðasögu í næsta bloggi og þ.a.l. ekki boltablogg :)

Þó svo að Youssi Benayoun geti seint borið sig saman við Ronaldinho, þá veikir þessi leikmaður a.m.k. ekki liðið og má líta svo á að hann sé að koma í staðin fyrir Zenden/Garcia og eru þau skipti einstaklega vel heppnuð. Svo í dag gengu Liverpool frá kaupum á Ryan Babel, geysilega efnilegum Hollending sem á eftir að verða þess valdandi að t.d. Gary ógeðið Neville hættir knattspyrnuiðkun vegna gráturs.
#3
12. júlí 2007 klukkan 17:04

Skrifa athugasemd