Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Örstutt ferðasaga - enski að byrja

11. ágúst 2007 klukkan 12:53
Við komumst heilu og höldnu heim á þriðjudaginn s.l. og til að gera ákaflega langa sögu stutta um dauðadrukkna pólska karlmenn með þykkt og massíft yfirvaraskegg stutta þá gekk ferðin vel í flesta staði. Ferðin var kannski helst til of löng, en fyrir þá sem mig þekkja, þá er ég ákaflega heimakær maður og saknaði víkinnar minnar töluvert þegar var komið á seinni hluta ferðarinnar, enda var ég búinn að flestu sem ég persónulega ætlaði mér, þ.e. að kaupa mér gullkeðjur, fá mér tattoo, og skoða Auswitch. Seinni hluti ferðarinnar fór aðallega fram í íbúðum aldraðra frænkna Aniu og voru þetta meira svona sýningarheimsóknir, þ.e. Ania að sýna þessum frænkum sínum þennan huggulega, massaða, skemmtilega, barngóða mann sinn. Þær áttu það allar sameiginlegt þessar frænkur hennar, að tala sitt tungumál ákaflega hratt, svo hratt að ég skildi bara ekki neitt, en þegar þær svo stoppuðu og að sjálfsögðu brostu hlýtt til mín þá sendi ég þeim á móti fallegt bros eins og ég hafi skilið hvert einasta orð sem þær sögðu. Skoðaði einmitt stærstu útrýmingabúðir nasista og var það mögnuð lífsreynsla, frekar en skemmtileg. Fór ákveðinn hrollur um mann þegar maður var komin niður í kjallarann t.d. En já ferðin gekk vel og ferðalagið til baka, þ.e. þessir rúmu 23 tímar gengu ákaflega vel.

En að enska boltanum, sem byrjar nú í dag, þá er langlíkegast að fólk spái Man.Utd titlinum, enda búnir að eyða miklum fjármunum í leikmenn og því eðlilegast m.t.t. þess og einnig að þeir eru ríkjandi meistarar að spá þeim titlinum á nýjan leik. Liverpool á í dag leik á Villa Park í Birmingham, en þessi tvö lið ákváðu á síðustu leiktíð að spila leiðinlegasta knattspyrnuleik í sögu enska boltans, einmitt á Villa Park en ég spái poolurunum sigri í dag, 0-2 og mörkin skorar Fernando Torres. Annars er spáin hjá mér hérna til hliðar á síðunni svona ef fólk vill ekki þurfa að spá mikið í það sjálft hvernig þetta endar í vor.


 
Tinna
bíddu fáum við ekki að sjá neinar myndir eða.......ég sé þig alveg fyrir mér heilla frænkurnar upp úr skónum:)

p.s. held að sé bráðum ár síðan ég sá þig.....með kannski smá ýkjum!:)
#1
12. ágúst 2007 klukkan 11:59
 
Ævar Þ.
Jú, skelli inn örfáum myndum hérna inn við gott tækifæri :)

p.s. ég held að ýkjurnar séu ekkert svo rosalegar í þessu hjá þér Tinna ! Síðan þá hef ég fitnað, þó ekki mikið, en mamma segir hvort eð er alltaf að ég sé bara krúttulegri svona örlítið bústinn ! :)
#2
13. ágúst 2007 klukkan 10:29

Skrifa athugasemd