Styttist í gæsina
14. ágúst 2007 klukkan 01:02
Já, það styttist í gæsaveiðar, núna nákvæmlega, samkvæmt almanakinu eru 6 dagar í fyrsta flug, þ.e.a.s. hægt er að taka t.d. morgunflugið á mánudaginn. Ég sé fram á það að stunda veiðarnar í minna mæli en áður, þar sem minn helsti veiðifélagi Gauji "miða" hyggst ala manninn í borginni stórhættulegu næsta vetur. Það þýðir hinsvegar ekki að við förum ekki í okkar rómuðu langanesferð, þangað sem við höfum farið 1x á ári undanfarin 5 ár. Ég reyndar ligg með tromp upp í erminni með hugsanlega veiðifélaga á þessu seasoni, en það er annarsvegar bæjarfulltrúi í Norðuþing og svo forstöðumaður Katla-vallar, eða golfvallarins í Norðurþing.
En að öðru, út í póllandi fékk ég mér móttakara til þess að ná inn í sjónvarpið mitt erlendum stöðvum, eitt smáatriði beið mín þ.a.l. hérna á klakanum, en það var að fá mér krúttulegan gervihnattadisk til þess að setja hér upp. Eftir þær framkvæmdir (ætla að leyfa mér að kalla það framkvæmdir að setja upp disk, m.v. tímann og þolinmæðina sem ég gaf í þetta) hugsa ég að ég væri líklegri til þess að borða góðan slatta af tánöglum af ókunnugum heldur en að setja upp og stilla disk aftur ! Þetta byrjaði semsagt einn miðvikudagsmorgun þegar ég fór í verslun hér í bæ og pantaði mér meterslangan gervihnattadisk. Morgunin eftir var þessi elskulegi diskur mættur á víkina og stillti ég klukkuna stundvíslega klukkan 08:45 til þess að tannbursta og svo að ná í diskinn, allt gekk vel og ég komst heim með hann þar sem ég byrjaði að setja hann saman, þ.e. festa við sjálfan diskin svona græ eitthvað. Því næst dreif ég mig með hann út og kom honum fyrir á veggfestingu sem ég hafði fjárfest mér í erlendis. Það gerðist að sjálfsögðu aldrei neitt, þannig að ég fór grátandi niður í verslunina og fékk þar til gerðan mæli til þess að stilla gráðurnar og áttirnar, en þar sem ég er svo sannarlega á mjög erfiðum útivelli þegar kemur að gráðum og áttum, þá endaði þetta með símtali við einn félaga minn út í bæ. Ég svosem þarf ekkert að taka það fram en þegar verslunarmaðurinn spurði mig í byrjun hvort ég gæti séð um þetta einn, kom svipur á mig og svaraði ég honum því til að þetta væri nú auðvelt verk. En já, seinna kom maðurinn og mældi þetta allt saman út, þ.e. hvar þessi andsk...gervihnöttur væri, frá mínum bæjardyrum séð var hann örlítið vinstra megin við einn ljósastaur en það þýddi á mælinum 168° í austur eða e-ð svoleiðis. Svo þegar við komumst að því að þessi bevítans gervihnöttur var of "langt til vinstri" vegna handriðisins sem diskurinn var settur á, þurfti ég að bíða eftir næsta degi til þess að lengja veggfestinguna. Það var því gríðarlega pirraður og ofboðslega óþolinmóður maður sem lagðist til hvílu þetta fimmtudagskvöld.(Þar sem bókstaflega allur dagurinn fór í þetta, ég gaf mér korter til þess að borða en svo hélt ég áfram til 21:30 að finna út úr þessu) En ég mætti tvíefldur til leiks með tannburstann klukkan rétt rúmlega átta morgunin eftir, föstudag og ætlaði ég að gleyma "gærdeginum" og fara bara og láta lengja veggfestinguna og gera þetta allt saman aftur og ná þá loksins myndinni í sjónvarpið. Ég fór semsagt heim aftur eftir að hafa græjað festinguna, festi hana á handriðið, skellti disknum á og byrjaði að fínstilla (að ég hélt)...jújú, hann var þarna rétt vinstra megin við ljósastaurinn en ennþá gerðist ekki neitt, bara svartur ljótur skjár á sjónvarpinu hjá mér. Þegar ég fann svo að sá pirringur sem greip um sig hjá mér deginum áður, var á hraðri leið til mín aftur, brunaði ég niður í verslun og dróg verslunarmanninn út og setti hann upp í bíl og sagði honum að prófa þetta. Þessi maður tók upp sama mælinn og ég hafði útilokað sem gallaðan deginum áður, og þennan sama morgun....og hvað gerðist, eftir tæplega 10 mínútur hafði hann náð mynd á skjáinn og allt eins og þetta átti að vera.
Eins mikið og það var frábært að ná loksins mynd á skjáinn hjá mér, þá leið mér frekar illa(stóð út í horni, niðurlútur og otaði stórutá hægri fótar í einhvern skófatnað í forstofunni hjá mér þegar maðurinn var að útskýra hvernig hann hafði gert þetta), mér leið semsagt illa vegna þess að á fimmtudeginum höfðu unnusta mín og fósturbarn horft upp á mig vera að bagsla við þetta, og hafði ég gert þeim grein fyrir því þegar ég "gafst upp" um kvöldið, að þetta verk væri ekki í mannlegu valdi að framkvæma. En hvað kenndi þetta manni ? Jú, ef maður kann ekki eitthvað, en langar ofboðslega að kunna það, og manni er boðin aðstoð við málið í byrjun, þá er best að segja bara "já, endilega hreint, það væri frábært af því að ég hef aldrei gert svona áður og kann það þ.a.l. alls ekki". Í stað þess á ekki að segja eins og ég "neineinei, ég finn auðveldlega út úr þessu"
En nú í dag, er diskurinn enn á sínum stað og gæðin bara í góðu lagi.
En já, Liverpool náði sannfærandi sigri á ofmetnum Aston Villa mönnum um nýliðna helgi, með glæsilegum 1-2 sigri þar sem Steven Gerrard, besti miðjumaður heims undanfarin og komandi ár tryggði rauða hernum sigurinn með hágæða aukaspyrnu. Brynjar Björn hringdi hinsvegar í mömmu sína í breiðholtið eftir leik sinna manna í Reading og sagði henni þar frá því að hans lið hefði fengið 1 stig á Old Trafford.
Bið að heilsa
p.s. í tilefni af umræðunni um gervihnattadiskinn, þá er komin ný könnun sem gott væri að allir svöruðu hreinskilningslega

http://andriv.blogspot.com
Andri Valur
Það vantar valmöguleikann "Nei en ég færi létt með það"... kannski er einhver þarna úti sem treystir sér til að gera þetta án þess að hafa prufað það áður:)
#1
15. ágúst 2007 klukkan 00:38
Ævar Þ.
Mér fannst bara þessir valmöguleikar sem ég hafði, eiga langbest við ! :)
#2
17. ágúst 2007 klukkan 23:28