Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Óheppinn

18. ágúst 2007 klukkan 00:08
Bevítans óheppni var það hjá mér þegar ég komst að því núna áðan að ég kemst ekki á stórskemmtilega ráðstefnu í mývó nú um helgina ! Ég meina, hver er það sem gæfi ekki útlim af sér, til þess að komast á þessa ráðstefnu, sem er fjölþjóðleg ráðstefna um rannsóknir á setningagerð í norrænum málum & mállýskum ? En ég get huggað mig við það að þessi stórmerkilega ráðstefna verður að öllum líkindum gefin út á tvöföldum dvd-disk og líklega komin inn á torrentið hjá mér strax eftir helgi.

Liverpool fá í heimsókn um helgina lið Chelsea. Þeir eru margir sem vilja meina það að ég sé alltaf að baktryggja mig með spám um mitt lið, en enn og aftur sanna ég það að svo er ekki, ég spái Liverpool sumsagt sannfærandi sigri gegn Chelsea, 3-0, þar sem Torres setur 2 og Riise 1.

Annars er fátt merkilegt að frétta héðan af víkinni, hér gengur allt sinn vanagang eins og venjulega. Hitti reyndar túrista um daginn sem hafði virkilega gaman af að keyra hólasand, fyrir þá sem ekki hafa ekið þann veg, er það vegurinn sem er á milli Húsavíkur og Mývatns. Þar er að finna ógeðslega holóttan veg, sem er m.v. lengd með flestu blindhæðir á landinu. Þar geturðu horft á sand allsstaðar, alla leiðina. Hann mátti nú eiga það þessi túristi reyndar, að hann var geysilega sérstakur.

Hitti Greskó í dag, hann er komin með hækju. Hann sagði mér sögu af sér, sem snerist um það að hann hefði dottið þrisvar sinnum og var hann með risastórt sár á enninu. Fyrr í vetur kveiknaði í íbúðinni hans og allt skemmdist, og var það ógleymanlegt þegar mér var sagt að þegar Greskó var fluttur út úr íbúðinni, hafi hann verið skellihlægjandi og búinn að fá sér í allar tær.

Ég gerði mig að eilífðarfífli í kvöld þegar ég renndi upp á golfvöll. Það vildi þannig til að á 2.holu þá var ég á eftir fólki (1 kona og 2 karlmenn) og sló ég ágætt teighögg sem endaði á miðri braut og gekk ég í átt að kúlu og sá að fólkið beið eftir mér, og vissi ég þá að þau ætluðu að bjóða mér að fara framúr. Kaldur svitinn rann um ennið á mér og á báðum hliðum við pungin. Þá sagði einmitt konan, viltu ekki bara fara á undan okkur, ég svaraði því játandi og þakkaði fyrir. Þegar ég svo tók sjö-járnið og tók þessi svakalegu æfingahögg þá var ég tilbúinn í höggið sjálft. Ég ætlaði svo hrikalega mikið að slá kúlunni ofan í holuna og sýna þessu fólki hvað ég væri yfirnáttúrulega sterkur og ævintýralega góður. Svo kom höggið....ég leit að sjálfsögðu upp áður en ég sló, sem þýddi að ég brenndi svo hrikalega á kúluna og þjappaði kylfuhausnum svo langt niður í grasið að ég þurfti að nota báðar hendur til þess að ná honum upp úr grasinu. Ég leit í átt að fólkinu sem leit strax undan (sem þýddi að þau vildu ekki gera mér það að horfa á mig og segja e-ð) sem er svo óþolandi ! Ég auðvitað horfði á kylfuna og velti henni fyrir mér, með þá von að þau væru vangefin og myndu trúa því að kylfan hefði klikkað, en ekki ég. Ég tók svo níu-járn og kom henni að læknum og hjartað í mér hefur aldrei haft svona mikið að gera þegar ég labbaði í átt frá fólkinu. Í þessum skrifuðu orðum er ég þess fullviss að fólkið er að drekka sig blindfullt og hlægja af óförum mínum !

En jæja, best að fara að drífa sig í sturtu og fá sér jafnvel a.m.k. tvo til viðbótar við þá tvo sem ég hef nú þegar fengið mér.

ps. Endilega leggið spána mína á minnið og sjáið hvað ég er merkilega góður spámaður !

Skrifa athugasemd