Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Ég ætla bara að bíða

16. júní 2006 klukkan 05:14

Já hæ...nýtt og ferskara look orðið staðreynd og er það hugsa ég bara hið besta mál, þetta blog.central dæmi er einfaldlega bara barn síns tíma og þrátt fyrir að hafa reynt við annað, þ.e. blogspot dæmið þá hef ég ákveðið sumsagt að gera enn eina tilraunina til þess að lífga upp á síðuna og er þetta liður í því og nú eru útskýringarnar á þessu orðnar frekar leiðinlegarog svo er þetta líka orðin alltof löng setning !

Enn fækkar dögunum í roskilde og gæti ég seint neitað því þó einhver stæði með 2-3 randaflugur fyrir utan íbúðina og hótaði því að hleypa þeim inn, að mér hlakki ekki til ! Er svona nokkurn veginn búinn að ákveða ferðatilhögun á þessari ferð en hún er e-ð á þessa skemmtilegu leið

- Fljúga frá sandgerði norðurlands, þ.e. akureyri
- Fljúga svo til Köben frá köflavæk
- Opna fyrsta bjórinn minn á danskri grund minn eigi síður en 15mín eftir lendingu
- Fara á roskilde-svæðið í stuttbuxum og með cameru utan um hálsin
- Horfa á HM á einum af 4 eða 5 risaskjáum sem staðsettir eru á roskilde-svæðinu
- Kaupa mér candy-ís í tívolíinu og hlusta mjög gaumgæfilega og í stöðugu ástandi á Bob Dylan og Gun´s N Roses
- Fá mér danske pölse
- Hitta skemmtilegt fólk
- Vera skemmtilegur við skemmtilega fólkið
- Segja nei við fíkniefnadjöflinum
- ...þangað til ég verð beittur hópþrýsting frá spítturunum
- Ætla semsagt ekki "að bara bíða" eins og litlu krúttlegu íslensku krakkarnir í auglýsingunum
- Ætla að verða hæfilega mildur svona mestmegnis
- Fljúga heim aftur á mánudeginum...þá sennilega útúrdópaður og komin með tattoo af akkeri á upphandlegginn á mér og annað af skútu á neðrihandlegginn
- Sjá svo eftir því að hafa fengið mér skútuna...gæti vanist akkerinu
- Fara á þriðjudeginum í laugardagslaugina og láta bera talsvert á tattoounum og fá mér bæjarins bestu á eftir
- Fljúga svo til ´sandgerðis´ og einhver skemmtilegur sækir mig nú vonandi
- Hitta síðan mömmu og pabba og gefa þeim styttur af hafmeyjunni
- útskýra fyrir þeim tattooin...mamma gæti orðið erfið, kem færandi hendi til pabba með appelsín og hann gleymir tattoounum á syninum fljótlega og fer jafnvel að langa í tattoo sjálfum, þá af Hector sennilega
- Fara svo heim og sofa eftir já, ég hugsa það bara....geðveikan túr til kóngsins köben !

Já, þetta verður sennilega lýsingin á þessum 6-7 dögum..virkilega spennandi &&

Er búinn að vera að vinna eins og mófó síðustu daga eins og væntanlega flest ykkar vita, munurinn á mér t.d. og Sveini Freyssyni er sá að Svenni sem gamall sjómaður finnur ekkert fyrir þessari vinnu á meðan ég byrja öll mín samtöl við fólk á því "hvort sé nóg að gera" og vonast ég þá eftir spurningunni á móti og get ég þá sagt fullur montni og hetjudáð "klikkað..er að vinna svona fram að miðnætti hvert kvöld, og við byrjum þetta í kringum hálf sjö - sjö" Flestir eru ofsalega samúðarfullir segja bara "haaaaaa", þá reyni ég að fela brosið svona lúmskt, og segi bara "jájá, en hvað segirðu, e-ð annars að frétta" svona eins og ég sé ekkert ósvipaður og Mel Gibson í Braveheart !

En jæja...ætli það sé nú ekki bara allavega sæmó hugmynd að fara að sofa, orðin frekar sibbin, enda sagði áðurnefnd móðir mín mér það í kvöld að fyrst ég væri að vinna svona rosalega mikið þá þyrfti litli einkasonurinn hennar á hvíld að halda...ég var svona hársbreidd frá því að spyrja hana hvort hún væri ekki til í að kíkja á mig, sökum aðstæðna í vinnunni og taka jafnvel upp moppuna og allt þetta drasl og svona aðeins að strjúka yfir þessa helstu bletti, þ.e. bakvið ísskápin o.s.frv. en svo rann það allt í einu upp fyrir mér að ég er 24 ára, þarf ekki fyrir neinum að sjá, svo ég ákvað að ég myndi bara gera það sjálfur á milli leikja um helgina.

En talandi um svona þrifnaðargræ e-ð, þá talaði ég nú ekkert lítið um þvottavélina sem ég keypti mér á dögunum, eyddi einmitt heilli kvöldstund í að koma henni af stað, og man ég að ég sofnaði gríðarlega sáttur og sá ég fram á að ég yrði óhemju "aktívur" í þvottinum vikur og mánuði....það entist í ca. 2 vikur, síðan þá hef ég oftar en ekki þurft að byrja allavega í annað skiptið á sama þvottinum !!....ég meina, það er árið 2006 og þetta á að heita digital þvottavél frá risanum í þvottavélum, þ.e. Electrolux og væri það nokkuð mál fyrir þessa kaggla að hafa það þannig að þegar vélin væri búin að láta hana bara bíba !? Fer að sofa, vakna svo um morgunin, einkar ánægður með að fara að vinna, snúsa svona 20x, fer fram í millitíðinni og slekk á háværu vekjaraklukkunni og drulla mér svo á lappir og tek teygjuæfinar og fer svo inn á bað til þess að bursta, lít út um gluggann og sé að veðrið er svona oftast nær mjög gott, sný mér við og við mér blasir þvottavél með þvotti í, sem hafði verið í frá deginum áður ! Ég hreinlega í augnablikinu man ekki eftir meira pirrandi hlut, nema ef vera kynni það þegar Þorsteinn J. með HM þátt !

Núna t.d. er ég orðinn frekar tæpur á að hugsa um þetta...og tel það því frábæra hugmynd að fara bara og halla mér, vinna *hóst*sex*hóst* í fyrramálið.....ha ? Jáá, jú sex í fyrramálið !

Hafið það gott og gaman að því að þetta sé fyrsta færslan á þessu nýja stað mínum í bloggheiminum

Kjellinn....djöfull verður óskaplega gaman á roskilde..ha??
Við verðum samt að vera edrú mestanpart hátíðarinnar...bara til að muna eftir öllu!
Ok?...díll?
#1
17. júní 2006 klukkan 03:31
 
Ævar Þ.
Jújú, þetta verður örugglega í keyinu bara hugsa ég !
Við verðum í mesta lagi temmilegir kannski 1-2 kvöld þarna...annars bláedrú spái ég, lofaði mömmu því nebblega
þannig að ég geng að þessum díl, verðum bara að halda aftur af Ingvari spái ég enda klikkaður með víni !!
#2
18. júní 2006 klukkan 00:56
 
Þórdís
Já einmitt, ef ég þekki ykkur rétt þá verðið þið örugglega bláedrú allan tímann...
#3
18. júní 2006 klukkan 20:32

Skrifa athugasemd