Heimkoma frá dk
Jæja...var að skríða inn í slotið, þreyttur en ánægður með geysilega vel heppnaða Roskilde-ferð !
flaug einmitt út á miðvikudeginum, og flaug ég að sjálfsögðu með icelandair en ég kemur betur að því hér á eftir hvurs vegna ég nefni icelandair sérstaklega !
Rölti inn í vélina, fullur tilhlökkunar og ekki enn fullur af einhverju öðru en tilhlökkun..tyllti mér aftarlega í vélina og fljótlega settust hjá mér 2 miðaldra kóreskar konur sem töluðu non-stop alla leiðina til köben, mig fór fljótlega að verkja mig illilega í hægra eyrað, sat nubblega við gluggann, og tók ég á það ráð að skella bara upp á mig headphoninu og finna mér einhverja góða tónlist til þess að hlusta á, á leiðinni. Eftir talsverða leit að sæmilegri tónlist þá þótti mér af tvennu gríðar illu betra að reyna að skilja e-ð í þeim kóresku og gerði ég það því.
Lentum í köben frekar seint, og þá var maður aðeins byrjaður á þeim gula og man ég hreinlega ekki alveg hvernig ég fór á lestarstöðina í köben, en tók þar lest í roskilde-bæinn og þaðan alveg örugglega taxa á roskilde-svæðið.......þegar þarna var komið við sögu man ég voða voða lítið og daginn eftir, einhvern tíman um hádegisbilið, vakna ég, skil engan veginn í því hvar í skandinavíu ég er staddur, rígheld í lakið sem var á rúminu og reisi mig upp....og sé á vegg leiðbeiningar um kaupmannahöfn...lít til hliðar og sé ýmsar vörur merktar SAS....geri mér þá grein fyrir því að ég var staddur á Radisson SAS hóteli í kaupmannahöfn og bara býsna þunnur ! Fer því næst fram á gang, og niður í lobby, og stelpa ein sem greinilega var að vinna um nóttina örlagaríku þegar ég checkaði mig inn, brosti svona vandræðalega til mín, þannig að ég ákvað, samt ómeðvitað að brosa vandræðalega til baka og spurði hana hvernig á því stæði að ég væri þar sem ég væri..þá kom ég þarna um morguninn með töskuna mína og pantaði mér 2 nætur í gistingu og verðmiðinn á þær nætur, gætu þýtt það að ég væri í starfi sem hægri hönd bill gates og þessarra kalla ! Fór niður í bæ, og í tívolíið og svoleiðis...hringdi svo, semi-skelkaður í himma sem að sjálfsögðu var á roskilde-svæðinu..mikið mikið þunnur, þ.e. himmi sko..og sagði ég honum frá sem gerst hefði síðustu ca. 15 tímana !
En já, til að reyna að gera mjög langa sögu stutta, þá fór ég þann dag aftur upp á roskilde-svæði og tók þar um kvöldið Gunsarana og var það bara frekar skemmtilegt ! Vorum svo þarna á svæðinu, í svona 43 stiga hita í sólinni sem var þarna allan tímann og fórum svo á Dylan daginn eftir sem verða að teljast vonbrigði ferðarinnar !....já, Bob Dylan olli mér og mikið mikið fleirum miklum vonbrigðum en já, þarna...eftir talsverðar vangaveltur, ákvað ég að fara til köben aftur, um kvöldið, sá fyrir mér fallegt krúttlegt hótelherbergi, þó ekki á SAS og hélt ég því með mitt hafurtask í rútu sem flutti mig niður í roskilde bæinn og gekk ég þar um með bakpokann í eina, tjaaa..hvað eigum við að segja...jú, 4-5 tíma og allsstaðar þar sem ég kom, var fullbókað í gistingu (ætlaði nebblega að taka 1 nótt þar, áður en farið skyldi til köben), svo þegar ég var búinn að læra öll götuheiti í roskilde-bænum utanað, þá var ég staddur á lestarstöðinni í roskilde og lestin að fara til köben, þannig að ég steig upp í hana og sofnaði frekar sannfærandi í lestinni og fann þá ásættanlegt hótel og checkaði mig þar inn, og skreið ég upp í rúmið sem var jú bara nokkuð gott !......um miðjan dag, daginn eftir var ég vakinn af einhverri tæju, sem ætlaði að græja herbergið en hún hefur verið með svona 170kr íslenskar á tímann og heyrði ég bara svona "tááá" "tááá" tááá" í einhvern tíma áður en ég rumskaði og leit á hana og sagði henni að hún þyrfti ekki að gera neitt !...ótrúlegt, hvað svona fólk, sbr kóresku sessunauta mína í fluginu til dk, tóna hátt eitthvað !
En já, svo ég fari nú hratt yfir þetta, var ég í köben síðustu dagana og hafði það ofsalega gott í blíðunni og í gær hitti ég þá félaga svo, Himma, Ingvar, Agga og Jóa í köben og vorum við svona að taka okkur til fyrir brottför og tókum við Taxa upp á flugstöð................
Verkfall hjá starfsmönnum vallarins blasti við okkur !!!...ok, kannski ekki verkfall en svona hægjuverkfall ef svo má kalla, fólkið að vinna sína vinnu ákaflega hægt, á svipuðum hraða og Hafliði Bambi þegar hann er að vinna, með dýpstu virðingu fyrir þeim ágæta manni og fylltist flugstöðin af pirruðu fólki, en mestur fór hitinn upp í 144 gráður í flugstöðinni, og rakastigið var þetta í kringum 1000 !! Þetta seinkaði fluginu mínu t.d. um 3 tíma og var það nú aldeilis svekkjandi, en svo fór ég í vélina og sat þar við hliðina á fullum íslending sem var að fara að taka yfir danska rafmagnið, þ.e. svona frekar mikill kall ! Hann reyndar gaf sér tíma í að segja mér frá því hvað fólkið í 1.farrými væri yfir annað fólk hafið o.s.frv. en minnti mig svo á það, að hann væri að fara að eignast danmörk fljótlega !...gaman að þessu :)
Tók bsí rútuna til rvk og sofnaði fljótlega þegar heim var komið, vaknaði um 13 og hélt þá niður á reykjavíkurflugvöll þar sem.....ójú, fluginu var seinkað um ca 45mín, þarna kom sér gríðarlega vel að hafa verið strandaglópur í köben deginum áður í einhverja tíma og tók maður þessu auðvitað með heilmiklu jafnaðargeði !
Varðandi icelandair dæmið þarna áðan, þá má ég til með að geta þess að þeir félagar Pálmar, Himmi og Ingvar flugu með express frá köben til íslands, og komust þeir heilu og höldnu til keflavíkur og fóru þeir svo niður til þess að vitja um töskurnar sínar en svo heyrðist það úr einum litlum ljótum hátalara á gólfinu, að töksurnar hefðu orðið eftir í köben !....þjónustan þarna er auðvitað ekki boðleg !, en ég allavega mætti með mína tösku niður á reykjavíkurflugvöll :)....ath- mér fannst ekkert fyndið að töskurnar þeirra skyldu hafa orðið eftir í köben
Og já, hér sit ég rita þessi orð og orðinn frekar sibbinn, og best ég fari fljótlega að halla mér bara í tilefni þess
Bekkjarmót næstu helgi og verður mikið húllumhæ þar hugsa ég bara :)
Síjú kids
Fín sending Stefán
Hvernig eiginlega í ósköpunum átt þú Hilmar Valur að getað munað eftir einhverju þarna úti, þ.m.t. tímanum með mér þarna
úti, þar sem þú varst, reyndar eins og flestir veðbankar voru búnir að gera ráð fyrir, nökkvafullur langstærstan part
ferðarinnar...!!! :)
Stuðullinn fyrir roskilde um það hvort þú yrðir jafn fullur og raun bara vitni, var 1,05 eða sem samsvarar því að
Brasilíumenn myndu allavega ná tveggja marka sigri gegn Magna !!!
Hvernig í ósköpunum getur þú dæmt um ástand manna á roskilde svæðinu?? Þú vars samtals þarna í ca 11 klukkutíma.
Gott dæmi um ástand þitt í þessari ferð var fyrsta kvöldið og nóttin í DK.
En ég ætla alls ekki að þræta fyrir það að ég hafi verið fallega fullur þarna úti...enda bara hreinlega ekki annað hægt;)
En ég sé ekki ástæðu fyrir þig að vera maka drullu á mig til að fría þig:)
En taskan mín er búin að skila sér og Rikka Bald er langt komin með að þvo upp úr henni!
En ertu ekki annars klár í gallan um helgina??:)
Skítkast og rógburður eru þau 2 orð sem upp komu þegar ég las þetta yfir..... :)
En get svosem alveg játað það, að ég eyddi svosem ekkert öllum dögunum á roskilde-svæðinu.....
Auðvitað hitti ég þig líka Pálmar spálmar í kaupmannahöfn...sorry kúturinn minn...ófyrirgefanlegt að ég skildi ekki hafa minnst
á heiðursmanninn þig í þessari upptalningu :)
En jú, gæti verið klár í gallann um helgina, ef það verður ekki svo kalt, er einmitt búinn að vera að háþrýstiþvo svona 62 hús
á víkinni síðustu 2 daga, og við þær framkvæmdir blotnar maður talsvert og er ég einmitt nokkuð blautur núna, þ.e. í
handleggina en svo ég hætti nú að gráta bjössa bónda með það, þá eru samt talsverðar líkur á því að ég sé bara on með það :)
Er reyndar bekkjarmót á morgun, og svo verður staðan sennilega á sunnudaginn að stærstum hluta þannig, að ástandið mun
sennilega geta verið með betra móti...en bít bara á jaxlinn og skelli camerunni um hálsin og ullarsokkana á fæturna :)
röng og því ekki stafur fyrir neinu að þessu...tók þarna rúnt um strikið og tívolíið í þessa fáu daga sem ég var í köben
og því ekki tími til neins annars
En við verðum endilega að skella okkur aftur saman á roskilde festeval...naut hverrar min með þér þarna á svæðinu, þó svo
að þær hafi ekkert verið voðalega margar!!!!