Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Þú ferð bara að heyja ?!?

14. júlí 2006 klukkan 02:07
Jæja börnin góð...talsvert vatn runnið til sjósins síns síðan síðast, ef frá er talin fréttin um að Ítalía séu heimsmeistarar, og það er þrátt fyrir að sumir menn séu búnir að bíta það í sig, mjög gott mál, því vissulega spiluðu þeir skemmtilegan fótbolta á mótinu...sem á endanum tryggði þeim heimsmeistaratitilinn ! :) Er einnig búinn að ákveða mig, er varðar næstu treyju sem ég fæ mér, en það verður Ítalska landsliðstreyjan, með Materazzi aftan á. En þetta hatur manna almennt á Ítölum er svosem skiljanlegt annars lagið, en jesús minn og allir náskyldir þeim ágæta manni ! Ítalía spilaði svo langt frá því leiðinlegan bolta á þessu nýafstaðna móti, frakkarnir t.d. spiluðu ömurlegan bolta, sömu sögu má segja af portúgölum en þetta almenna hatur manna á ítölum "af því að þeir spila leiðinlegan bolta" er ástæða sem ekki lengur verður tekin gild ! Til hamingju knattspyrna með glæsilega sigurvegara á HM :)

En já, haldið var bekkjarmót um s.l. helgi sem fór að mínu áliti bara nokkuð vel fram og haldið var svo á ball á bauknum þar sem Ína og hljómsveit var að spila en sú hljómsveit inniheldur m.a. eilífðarrokkarann Rafnar, en listamannanafnið á honum verður pottþétt Rabbi...og var svona heldur betur góð stemning á því balli og skemmti fólk sér held ég bara svona almennt talið vel.

Nýtt orð í málningarbransanum poppaði upp nú fyrir skömmu þegar eigandi og framkvæmdastjóri the tone í hei eff sagði mér að fara að heyja !! (þarna hélt ég að hann væri að grínast með það hvursu arfaslakur málari ég væri og benti mér á hin góðkunnu bóndastörf) og var ég svona frekar hissa á svipinn, svipaður og þegar mamma sagði mér á sínum tíma að ég ætti bara sjálfur að laga til í herberginu í fyrsta skipti ! En orðið heyja, er einmitt þýðing á því að betrum bæta sprungur og svona græ í veggjum og gerði ég það að sjálfsögðu með stakri prýði (þó ekki saumastofan prýði..hahaha)

Annars er maður bara í chillinu þessa daganna, sumarið auðvitað alltof alltof alltof fljótt að líða og hefur maður ekki farið í neina útilegu enn sem komið er, en stefna er tekin á slíka legu nú um helgina, þegar skunda á með emil (hahaha)...neinei, skunda á í ásbyrgi með vonandi einn tjaldvagn í eftirdragi og golfkylfur og fleira sniðugt :) Ferðalangar eru ekki alveg á komnir á hreint en allavega munu það verða ofanritaður og viðhaldsmaðurinn í fjörfisk (þá er ég ekki að tala um fjölfisk, sem margir ruglast á...bara svo fólk hafi það á kristaltæru að ég og simmi the kræm erum ekki að fara saman í ásbyrgi).

Var spurður að því í dag hvað ég ætlaði að verða þegar ég yrði stór...tók spurningunni vel og velti því fyrir mér í talsverða stund hvað mig hafði alltaf langað að vera svona í gegnum tíðina ! Fyrst um sinn langaði mér að verða einmitt starfsmaður Olís, en það var bara þegar nammiborðið var, langði svo ofboðslega mikið að setja nammi í poka fyrir óákveðna krakka...tókst það næstum því, nammiborðið var farið. En svo fór mig að langa talsvert að verða Kristján Arason, það tókst heldur ekki...svo svona á þessum seinustu og verstu tímum sé ég e-ð við flugmenn, þegar maður bíður eftir flugi, og þeir rölta svona framhjá með litla krúttlega ferðatösku (á hjólum) í uniforminu...já það er e-ð við þetta allt saman !...svo langaði mig reyndar einhverntíman á bilinu 13-16 ára að verða söngvari í hljómsveit, en bara ef æðarnar í hálsinum á mér sæjust þegar ég syngi...ekkert varð úr því, reyndar þegar ég er að keyra einn einhversstaðar á þjóðvegum landsins, þá prófa ég mig áfram í því...en engar æðar og vonbrigðin talsverð. Svo hefur mig líka eflaust langaði að verða þetta klassíska einhverntíman, lögga, slökkviliðsmaður og svoleiðis græ e-ð...mér stóð nú reyndar til boða að fara í skátana á sínum tíma, en ég, ólíkt öllum strákunum held ég bara í bekknum mínum, ákvað að sleppa því, svo var einnig í tísku að fara í björgunarsveitina...en sleppti því einnig, hafði eflaust svo ofboðslega mikið að gera í manager o.fl.

En jæja...hugsa að ég láti þetta gott heita...skellti í vél áðan og ætla svo sannarlega að muna eftir að hengja upp eftir hana, hún hefur reyndar verið óvenju lengi núna...hún er svo garanterað að reyna að láta mig gleyma sér, eins og hún á reyndar til blessunin en ég hugsa bara hreinlega að ég hafi vinningin í þetta skiptið...en hún er að snýta mér í þeirri keppni !

Munið bara eftir gamla fólkinu, fólkinu sem byggt hefur upp þetta land, sem samanstendur af mikilli hagsæld, góðæri og öllu því góða heiminum, það sögðu allavega dóri og dabbi

Síjú kids

Fín sending Stefán
 
Guli Videkongurinn
Rétt aðeins smá athugasemd varðandi fyrstu málsgreinina, þ.e.a.s. HM. - Haltu kjafti! ;)
#1
14. júlí 2006 klukkan 15:47
 
Guli Videkongurinn
Smá viðbót við fyrri athugasemd. - Þú hefur aldrei haft vit á fótbolta!
#2
14. júlí 2006 klukkan 15:47
 
Ævar Þ.
Kemur ótrúlega ekkert á óvart að videokóngurinn skuli commenta með þvílíkum látum hér eins og raun ber vitni ! :)

Það er ekki ítölum að kenna að Úkraína hafi skitið upp á herðar í mótinu, reyndar snýttum við þeim auðvitað 3-0 en það
þarf ekki að ráðast svo harkalega á Ítali, eins og þú hefur verið iðinn við undanfarið, í orðum og skrifum !

Gæti verið að fyrst ég nefndi lið nr.2 hjá þér í keppninni á nafn í pistlinum, þ.e. Portúgal, þá hafi það e-ð pirrað þig,
en það er nú engu að síður bláköld staðreynd að Portúgalarnir viðhöfðu leikaraskap út í gegn í keppninni, og ef þú
ert fylgjandi þannig fyrirkomulagi, sbr Leon McKanzie í Norwich, þá verður bara svo að vera, en lið sem sækir einungis
á 2-3 mönnum vinnur ekki neitt, og það er það sem gerðist nákvæmlega fyrir litlu krúsídúllurnar þínar frá Portúgal ! :)
#3
15. júlí 2006 klukkan 01:34
 
Guli Videkongurinn
Í guðanna bænum ekki bendla mig við Portúgal. Þeir hafa aldrei og mun aldrei vera í neinu uppáhaldi hjá mér og þú ættir að vita betur! Portúgal var ömurlegasta lið þessarrar keppni! Eintómir andsk vælukjóar. Meira að segja ömurlegri en Ítalía. En Ítalía er ömurlegasta lið til að verða heimsmeistari og það ekki bara einu sinni heldur tvisvar, bæði ´82 og í ár!

Hvað varðar að draga McKenzie inn í þetta botna ég ekki?! Er hann hlyntur leikaraskap? Eða er hann þekktur fyrir leikaraskap? Hvað áttu við? Ef þú ætlar að halda því fram þá sannast bara það sem ég viðhafði hér að ofan. McKenzie er sko aldeilis ekki maðurinn til að ásaka um leikaraskap á vellinum. Þú gast ekki tekið verra dæmi!
#4
15. júlí 2006 klukkan 16:12

Skrifa athugasemd