Könnun

Hefuršu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglżsing

Hann baša afbušša foskaheftur

17. jślķ 2006 klukkan 05:48
Já, eftir ítrekaðar barsmíðar á hurðum og gluggum hérna hjá mér í dag og í kvöld í takt við trommusláttinn hef ég ákveðið að blogga aðeins !

Lítið að segja samt sem áður...hef lítið verið að spá í árásir ísraelsmanna í beirút og það allt saman undanfarið...nýskriðinn heim úr golfi með gauja, stóð mig með miklum ágætum, þrátt fyrir arfaslaka mætingu í sumar, tókum púttkeppni sem ég sigraði naumlega en sigur engu að síður.

Lögðum næstum því af stað í byrgið í gær, búnir að taka til tjaldvagninn og það alle sammen bara en á allra síðustu stundu var ákveðið að skila honum af bílnum og bruna í mývatnssveitina en höfum heyrt að hún sé æði og vildum sannreyna það...og sannfærðumst við um það svona nokkurn veginn, var allhvöss s-átt en engu að síður fín ferð, en notuðum við hana í golf..en mun þetta hafa verið fyrsta skiptið okkar beggja á þeim ágæta velli og virkaði hann bara nokkuð vel á keppendur. Brunuðum síðan heim á víkina og ætluðum að grilla okkur hrefnukjöt en biðum með það og opnuðum við því bara fyrsta bjórinn og leið tekin á bauksa og rættist nú heldur betur úr því sem þar var, byrjaði rólega en sneisafullur staður fljótlega og þegar svo ber undir, þá er tekin ákvörðun um það að opna ekki báða barina, heldur hafa alltaf bara einn bar opinn þegar það er fullt þarna inni !! Fór svo heim frekar snemma bara og sofnaði fljótlega.

Grilluðum hrefnuna í kvöld og ekki skil ég hvað er svona óskaplega rosalega frábært við hrefnukjöt ! Ef hrefnukjöt væri kjöt sem væri að dýri sem væri ekkert ósvipað og t.a.m. rollu, þá væri þetta ekki vinsælt hugsa ég ! Það er reyndar eitt sem hægt er að gagnrýna, og það eru þessi einnota grill svokölluðu, tók mjög samviskusamlega plastið utan af grillinu og undir grindinni er e-ð svona spjald sem á kvekja í, og þá á samkvæmt öllu eðlilegu að koma hiti á kolin sem undir spjaldinu en það bara gerðist svo alls ekki...til að bæta steingráu ofan á kolsvart var mikið rok hérna í göngunum fyrir framan sem þýddi það að ég þurfti að kveikja í þessu hérna inni í forstofunni og þegar ég var búinn að því og búinn að búa til hrottalega lykt hérna inni þá óð ég út í hvassviðrið og fljótlega fór háværasti reykskynjari í sögu mannkyns í gang, og sá ætlaði svo aldeilis að standa vaktina og kallaði hann lengi og vel þrátt fyrir svo ótrúlega ítrekaðar tilraunir mínar við að slökkva á honum en það hafðist á endanum og hefur hann verið þægur síðan. Reykskynjarar eiga að verja híbýli manna frá eldsvoðum, og eru þeir vel til þess fallnir sérstaklega þegar fólk er t.d. sofandi, en ef ég gleymi að slökkva undir hellunum (sem gerist stundum)  og ég fer að sofa, og eldur myndast og reykur og svona græ og þessi fer af stað, tel ég vera svona 75-80% líkur á því að maður steindrepist við að vakna við hann.....en það gæti einmitt verið hlutverk þessa reykskynjara, að láta mann bara drepast snögglega í staðin fyrir að stikna til dauða í eldsvoða ! Enduðum einmitt á því að stekja þetta bara á pönnu og heppnaðist sú eldamennska bara vel, köld piparsósa og kartöflu-gratín var meðlætið að þessu sinni.

Stefnt á að taka "Hertoginn af Þverá" næstu helgi og eru menn svona að gera sig klára í gallanna og er keppnisandinn það ríkur í mönnum að menn eru hættir að taka síma hjá hvor öðrum og æfingar fara ekki lengur fram þar sem allir eru saman, prógrammið er stíft fram að móti og ákveðið hefur verið að farið verður á 3 bílum en ekki saman í 1 bíl, en keppendur eru einmitt 3, undirritaður Æbbi 'Parnevik', svo Alli 'Els' og svo að endingu nýliði á þessu móti, en það er Daddi 'Ragnhildur Sigurðar' og eru styrktaraðilar mótsins ekki af lakara tagi að þessu sinni, en það eru Cult-Video, Garðaþjónusta Þuru Þrása, Ruslatínsla Bamba ehf., GÞÞS (Gluggaþvottaþjónusta Sverris), Bónstofa Olla og einhverjir aðrir sem ekki telur að nefna hér á nafn. Búið er að koma fyrir áhorfendabekkjum við nokkrar holur og erum við að tala um allt í allt tæplega 500 sæti og sætið er á einhvern skitin 14.000 kjell þannig að óhætt er að hvetja fólk til þess að mæta og sjá alvöru golfara sýna listir sínar. Gæti farið svo að einn keppandi bætist við þessa 3 fyrrnefnda, en Gauji 'Páll Ketils' mun kannski láta til skarar skríða.

Hugsa að ég láti þetta gott heita í bili...gott í bili...geðveikur brandari hérna á ferðinni, maður er bara í massastuði og tilbúinn hérna á kantinum í að sleikja hamsturinn maður !...æji neinei, þetta var nú frekar aumt e-ð, samt gaman ef svo færi að maður myndi einhverntíman í framtíðinni kunna svona fullt af töff hugtökum o.fl.

Hafið það öll ofboðslega gott í vikunni nú sem framundan er, og munið að eftir einn ei aki neinn og ekki láta það pirra ykkur hvað veðurfréttakonan á channel 2 stamar mikið og virðist oft eiga í heiljarmiklum vandræðum með að koma því sem henni langar, út úr sér....

Minnist einnig forfeðra ykkar með þakklæti í huga og munið hvað það þarf lítið að gera fólk ánægt, hlægja af t.d. slökum bröndurum fólks getur gert fólk virkilega hamingjusamt

Fín sending Stefán 

 
Tinna
haha þú kannt bara ekkert að grilla/elda hval/hrefnu....ég skal kenna þér það....er orðin ágæt í þessu:)
#1
18. jślķ 2006 klukkan 19:44
 
Ęvar Ž.
Já Tinna...þú ferð yfir þessi helstu atriði í eldamennskunni...bíð spenntur eftir því...sbr eldhús-sögurnar sem maður fær frá Þórdísi á hennar síðu... :)
#2
19. jślķ 2006 klukkan 22:29
 
Tinna
Hey eftir að Þórdís fór þá breyttist ég í þvílíkan kokk...lærði líka af henni....hehe not....hef ekki notað ofninn minn og pottana og pönnurnar síðan hún fór...og þá er ég sko ekki neitt að ýkja....en ég veit samt hvernig á að elda Hrefnukjöt...ég þarf að svar þessari spurningu 2 sinnum á dag í vinnunni:)
#3
20. jślķ 2006 klukkan 17:06

Skrifa athugasemd