Líf manns væri svo mikið mikið einfaldara ef væri ekki fyrir.....
21. júlí 2006 klukkan 19:25
Trampolín og barnasundlaugar !
Já, búinn að þurfa að þola undanfarin mánuð a.m.k. 1000 krakka hér á lóðinni hjá mér (sem er btw í línu við stofugluggann minn) dag eftir dag þar sem þau hafa verið að leika sér að hoppa á trampolíni ! Fyrsta minningin um þennan skaðræðishlut var þegar ég kom heim, eftir ákaflega erfiðan vinnudag, og fleygði mér í sófann og kveikti á sjónvarpinu og setti á textavarpið og sofnaði værum svefni upp úr því og vaknaði heldur betur snögglega og reis upp, gekk á hljóðið, sem kom frá stofuglugganum....leit út og við mér blasti svona í alvöru talað 25-30 krakkar hoppandi á nýuppsetta trampolíninu sem ábúandinn fyrir ofan mig hafði fjárfest sér í ! Þrátt fyrir að loka gluggum í íbúðinni dundu þessi óhljóð enn á glugganum hjá mér sem þýddi að ég þurfti að skríða inn í rúm til þess að leggja mig ! (hef haft þann vana að leggja mig alltaf bara í sófanum, sofa á nóttunni í rúminu mínu)
....en já, þegar ég var búinn að ímynda mér það að ég byggi á Times Square á gamlárs og náð að venjast því með alla krakkana þarna fyrir utan á krúttlega trampolíninu sínu, þá tók ekkert betra við ! Kom heim, heyrðist ég heyra (nú er það) í áberandi fleiri krökkum en ég hafði vanist s.l. 2-3 vikur, þá fór ég inn, leit út um stofugluggann og sá þar, að ekki var nóg með að trampolínið var þarna, heldur var einnig komið á lóðina frekar stór barnasundlaug, og var hún ca. 2 metra frá glugganum og buslugangurinn eftir því...krakkarnir semsagt stukku á trampolíninu og fóru svo og kældu sig niður eftir hamaganginn þar í sundlauginni o.s.frv. !
Þegar ég var yngri, þá þótti nóg að fara bara í fallna spýtu, skotbolta, á róló, í parís, feluleik, eltingarleik, leika sér í hjartar-garði og svona þessa heilbrigða leiki fyrir krakka...en neinei, núna þarf að versla handa þessum krökkum dýra hluti svo þau geta leikið sér, sbr trampolínið, ps2, pc tölvur og rándýra leiki svo dæmi sé tekið.
En já, að allt öðru, tókst að sannfæra sjálfan mig áðan að fresta tiltektinni um óákveðin tíma, mátti ekki "missa af" opna breska meistaramótinu í golfi sem sýnt er nú í sjónvarpi allra landsmanna, svo er aldrei að vita nema maður taki eins og einn hring á eftir þannig að tiltektin fær að bíða (alltaf svo frábært þegar maður nær að sannfæra sjálfan sig um svona hluti)
Komin ný könnun, en flestum fannst það bara ofboðslega krúttlegt ef karlmenn færu í handsnyrtingar o.þ.h. aðgerðir á snyrtistofum, get samt fullyrt það hér að ég hef ekki farið, og mun að öllum líkindum ekki fara í slíka snyrtingu allsgáður.

Lét hér fylgja með 2 íþróttamyndir af ferð okkar gauja upp á katlavöll í gærkvöldi þar sem við spiluðum hringinn bara virkilega vel, urðum jafnir með 51 högg.
Ína og hljómsveit, eða Ína og rabbi eins og ég hef viljað kalla hljómsveitina verður á sölku um mærudagana og hefners verður sama kvöld á bauknum...vandi er um víst að spá á hvorum staðnum maður kemur sér fyrir en þar sem ég vill ennþá vera svona ungur í anda þá þykir mér Salka ákjósanlegri staður fyrir ungt fólk en allt það mun nú koma betur í ljós
Ætla að biðja ykkur að hafa þá góðu tilvitnun bak við eyrað um helgina að öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir.
pé ess
Þá eru nokkrar myndir hér að ofan til vinstri, m.a. úr ofangreindri íþróttaferð, sem og nokkrar af kobba hjaltalín frá í ásbyrgi

Birkir Vagn
Asnalegir á þessari mynd!!!!!
#1
24. júlí 2006 klukkan 00:35
Ævar Þ.
Það er ekki okkur að kenna bibbi þó þú náir ekki sveiflunni, þrátt fyrir stífar æfingar
undanfarið...m.a. í básum !
undanfarið...m.a. í básum !
#2
24. júlí 2006 klukkan 18:17
Birkir
Að heyra þetta. ég er nú aðalega að spila með mönnum af toyota mótaröðinnni:)
#3
24. júlí 2006 klukkan 22:29
Ævar Þ.
"Toyota mótaröðinni" sjensinn !......í allra mesta lagi þá sem Caddy ! :)
#4
25. júlí 2006 klukkan 17:21