Jú, ég myndi nú geta staðfest það bara held ég
05. ágúst 2006 klukkan 03:14
Jæja..verslunarmannahelgin komin, en þetta nafn á þeirri ágætu helgi er einmitt tilkomið vegna þess að á mánudeginum er frídagur verslunarmanna sem er auðvitað fáránlegt ! Eina fólkið sem vinnur þá eru jú einmitt verslunarmenn, allir aðrir í fríi o.s.frv. en það þýðir víst lítið fyrir það fólk að grenja e-ð í bjössa bónda með það og horfa upp í sólina bara og brosa
Eins og sést hér neðst í færslunni er klukkan þetta um 22:00 og föstudagskvöld og er ég að ritla þessi örfáu orð hér niður sem segir fólki það að þetta fös.kvöld er einkar óáhugavert, býst fastlega við því að gera barasta ekki neitt, en útibú innipúkans á norðurlandi er víst hjá einsa beinsa og gæti vel farið svo að maður rölti til frænda og taki þar eins og 1-2 öllara í mesta lagi, ákvað nefninlega að vera bara dannaður þessa helgina, af öllum helgum en eins og amma mín heitin orðaði það svo skemmtilega haustið ´99 við mig, að þá þarf maður ekkert að verða blindfullur til þess að skemmta sér og var það alveg hárrétt hjá henni með það.
Gæti engu að síður farið svo að maður kíki inneftir á morgun, bara svona til þess eins að rækta fjölskylduböndin með systur og litlu stelpunni hennar. Þær stöllur eru einmitt búnar að vera hérna í l3c í vikunni og höfðu það gott.
Sigurrós að spila í byrginu í kvöld, og fóru víst einhverjir þangað...merkilegt hvað þeir eru vinsælir ef mið er tekið af því hversu leiðinlega og þunglyndislega tónlist þeir flytja. Sérstaklega eru þeir félagar vinsælir þegar þeir fljúga frá íslandi og byrja að gaula eitthvað, sem á ekkert að þurfa að koma fólki á óvart. Hvað er t.d. Björk, ef ég sæji auglýsingu í skránni um að Björk Guðmundsdóttir væri að spila með einhverja demanta framan í sér á bauknum einhverja helgina, færi ég fyrst og tékkaði á sjónvarsdagskránni. Bæði Sigurrós og Björk eru fín dæmi um tískufyrirbrigði, í dag er ofboðslega "cool" að fíla Sigurrós og geta sagt félögunum að maður eigi disk með þeim, helst verður maður að vera ákaflega sérstakur karakter til þess að fá að halda upp á þá. Því eins og allir vita sem það vilja, þá flytja þeir ekki tónlist, meira svona....já e-ð gaul...gaula bara í "mækin" og allir standa og horfa og þykjast hafa rosa rosa gaman af þessu. Meira að segja Ríkissjónvarpið, stofnun sem ég er tilneyddur til þess að borga í, rauf magnaða dagskrá sína nú fyrir skömmu til þess að senda beint út frá þessum "tónleikum" þeirra Sigurrósamanna.
En já, Liverpool tapaði í kvöld fyrir liði sem gerði markalaust jafntefli við Keflvíkinga fyrir nokkrum mánuðum síðan, og þeir bara töpuðu ekki, heldur ákváðu að drulla svo ærlega upp á herðar, en þeir töpuðu fyrir Mainz 0-5 í kvöld !!
En jæja krúttin mín, ætla að fara fleygja mér í sturtu og taka stöðuna á þeim félögum þarna niður frá.
Hafið það bara ofboðslega gott og munið að vera góð við hvert annað
Fín sending Stefán
ps - Sigraði gauja í golfi í gær með 1 höggi sem segir okkur það að í síðustu þremur hringjum hef ég sigrað tvisvar en gauji "því miður" bara einu sinni

Ævar Þ.
Hæ gudda systir...maður fer nú bara nánast hjá sér eftir slíkan systkina-ást-lestur og situr maður hérna nánast klökkur eftir þetta en gott að þið hafið haft það gott og eruð þið alltaf velkomnar aftur...bara reyna samt að lækka aðeins í þeirri litlu þegar ég sef.......! :)
#2
08. ágúst 2006 klukkan 04:46
gudda sys
Hehe.. Ekki málið ;0)
#3
08. ágúst 2006 klukkan 20:01
vildi bara þakka þér fyrir að hýsa okkur Maríu í síðustu viku, var ekkert smá næs að vera hjá þér í laugarholtinu.
Annars alltaf gaman að lesa bloggið þitt, þú ert svo góður penni, hlýtur að vera í ættinni ;0)
Knús frá eyrinni*