Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Amerískar bíómyndir !

08. ágúst 2006 klukkan 07:56
Var að klára að horfa á bíómynd rétt í þessu...horfði á myndina "In good company" með ekki ómerkari leikurum en Dennis Quaid (held það sé skrifað svona) og einhverjum svona huggulegum gaur held ég. En já, @ líst þá er það þannig að á þeim dögum sem er einstaklega sólríkt, og klukkan einhversstaðar á bilinu 11:00 - 16:00 get ég horft á bíómyndir sem bannaðar eru yngri en 16, þó á þetta sér í lagi við bíómyndir sem eru svona "spúggí" e-ð. En svona á kvöldin fá þessar "rómantísku gamanmyndir" og "gamanmyndir" einungis að vera á skjánum hjá mér, horfði t.d. á mynd um daginn með Heather Locklaer í aðalhlutverki en myndin snerist um mægður, semsagt ein móðir ásamt tveimur dætrum.

Skil ekki alveg hvað þetta er hjá manni, man eftir því að einu sinni (og er það nú kannski vegna þess að ég átti á þeim tíma heima hjá foreldrum mínum) þá þótti það nú ekkert tiltökumál fyrir hrollvekjuáhugamanninn æbba að leigja sér þessar myndir þið vitið "scream" "freddie-dæmið" "i still know what you did last summer-myndirnar" og fleiri og fleiri svona sem falla undir hrollvekju/hryllingsmyndir en þegar árin líða og ég svona einn á kvöldin með litla Tuma minn (litli bangsinn minn) í sófanum þá þoli ég illa einhverjar horror-myndir. Svo er líka óþolandi, þegar myndir sem maður býst nú fastlega við að endi svona "fallega" (Nicholas Cage leikur oft í þannig myndum...sbr könnunin hér til hliðar) en t.d. þessi mynd "In good company" endaði bara ekkert vel, samt sem ætti ekki að hafa þær afleiðingar að ég ímyndi mér skrímsli undir rúminu eða martraðir tengdar myndinni, heldur endaði myndin ekki svona fallega þið skiljið, kallinn flutti bara og þau enduðu ekkert saman ! En myndin með Heather endaði reyndar nokkuð vel og sofnaði ég vel eftir hana, þetta eru nú bara smá vangaveltur.

En já, þar hafið þið það, er sumsagt frekar mikil skræfa í bíómyndum (samt les ég fullt af bílablöðum og klámblöðum sko) en stundum finnst mér að ég ætti að athuga kynfærin á mér þegar maður næstum því tárast yfir myndum á borð við Titanic, Notebook, The Green Mile og fleiri myndum. (samt ekkert illa meint sko gagnvart kvenkyninu) Samt þegar ég fer í bíósali þar sem alvöru sound er og stórt tjald og það kemur svona "hrökkviatriði" þá "bregður" mér nánast aldrei og þá er nú gott að horfa á þann sem við hliðina á manni er, og glotta svona yfir hans "bregði" og horfa hrikalega svalur og karlmannslega á myndina áfram.

Svo reyndar hittir þetta þannig á stundum að maður skiptir yfir á einhverja rás og einhver mynd nýbyrjuð sem merkt er með "rauðu" merki upp í hægra horninu en maður þekkir ekki myndina og ákveður eftir talsverðan tíma (þetta á bara við ef maður er í fríi daginn eftir, ef vera skyldi að maður næði ekki að sofna strax og myndi maður þá vakna frekar geðstirður daginn eftir), já semsagt, ákveður það að horfa á myndina og hún byrjar bara vel en svo um miðbik myndarinnar fara að gerast einhverjir "hættulegir" hlutir en maður getur ekki hætt því maður var þá hvort eð er búinn að sjá einhverja "spúggí" hluti í myndinni og maður kastast upp úr sófanum og kveikir á öllum þeim ljósum sem fyrirfinnast í íbúðinni hjá manni og maður þarf að sofna við kveikt ljós og helst að taka ein 3-4 andrésblöð áður en maður sofnar !

Dæmi um myndir sem hægt væri auðveldlega að horfa á rétt fyrir svefninn eru:

Dumb & Dumber - Ace Ventura - 40 year old virgin - Dalalíf - Nýtt líf og fleiri svona gamanmyndir

Dæmi um myndir sem ekki væri hægt að horfa á rétt fyrir svefninn eru:

Shining - Scream myndir - The 6th Sense - Titanic (nefninlega sannsöguleg sem endar átakanlega) - Anthony Hopkins í mannætumyndunum - Rock (ef maður á ekki frí daginn eftir) - Löggulíf (gömlu konurnar í þeirri mynd eru e-ð svo "krípí") og eflaust fleiri myndir sem maður man ekki alveg í augnablikinu.

Jæja...þá er þetta komið og tími komin á að halla sér og vonandi að þið hafið það bara óvenju gott bæði í leik og starfi það sem eftir lifir vikunnar.

Fín sending Stefán
 
lesandi ;)
hvað var eiginlega um karlmennskuna Ævar minn ? ;)
#1
09. ágúst 2006 klukkan 00:46
 
Ævar Þ.
Karlmennskan er ennþá svo sannarlega til staðar, skoða 2-3 í mánuði bílaauglýsingar í fréttablaðinu, horfi talsvert á fótbolta (og þá annars lagið með ölkrús í annarri), spila e-ð af golfi þannig að þó ég fíli einhverjar myndir með Heather Locklear þá þýðir það ekkert að karlmennskan sé á bak og burt ! :)
#2
09. ágúst 2006 klukkan 18:00
 
Silvía
Ég get nú fullyrt það að þú ert algjör SKRÆFA þegar hryllingsmyndir eru annars vegar, það er eins og mig rámi í það að þurfa að athuga hvort að það væri nokkuð skrímsli undir rúminu áður en þú sofnaðir. En þetta kannski lagast með aldrinum:)
#3
10. ágúst 2006 klukkan 03:57
hahahah góður Silvía....ég sé þetta alveg fyrir mér....Ævar að skíta í buxurnar og segir "æji Silvía ertu nokkuð til í að kíkja undir rúmið og gá hvort að skrímslið sé nokkuð þar...ég get nefnilega ekki sofnað" ahhahaha.....en já afhverju Tinna í Jörva?
#4
10. ágúst 2006 klukkan 16:51
 
Ævar Þ.
Reynist erfitt fyrir mig að bera e-ð á móti þessu með skrýmslið...en svo ég árétti það, þá hef ég mikinn áhuga á bílablöðum - klámblöðum - fótbolta - skotveiðum - golfinu og fleiri svona þvílíkt karlmannslegum hlutum :)

Tinna í Jörva er tilkomið vegna þess að amma mín heitin fór reglulega niður á Mararbraut í old days og heimsótti þar m.a. Tóta gamla í Jörva og Mögdu og hef ég bara alltaf haldið að þau væru e-ð skyld þér :) Ef það er hinsvegar ekki rétt, þá er þetta líka bara töff...sé þetta alveg fyrir mér ef þú ert á leiðinni t.d. í partý og fólkið að bíða og spyr hvar í ósköpunum "Jörvastelpan" sé ? :) skothelt dæmi :)
#5
10. ágúst 2006 klukkan 18:08
jú þau voru sko skyld mér....alveg besti langafi og langamma í heimi...ég er sátt með þetta....Jörvastelpan....:)
#6
10. ágúst 2006 klukkan 23:01
 
guðrún maría
á ekkert að fara að blogga maður ??? ;0)
#7
15. ágúst 2006 klukkan 04:07

Skrifa athugasemd