Fyrirsögn
Liverpool vann auðvitað Chelsea í leiknum um góðgerðaskjöldin og skoruðu hverjir aðrir en Riise og Crouch mörk rauða hersins !! Jose Mourinho var eins og fýldur unglingur á bekk Chelsea með nýju snoðklippinguna sína. En þessi úrslit þurfa ekki að koma fólki neitt á óvart, ég var svona hóflega bjartsýnn fyrir leik en svo endaði þetta semsagt 2-1. Mark Chelsea gerði Andriy Shevchenko.
Úrslitin í skoðanakönnuninni á síðustu síðu hjá mér fór þannig að flestir þeir sem kusu ætluðu sér að fara upp á fjöll með kristalin sinn og þamba hann þarna uppfrá, færri ætluðu sér að vera töff og fara á fyllerí. Alltof fáir ætluðu sér að berjast fyrir jöfnum launum kynjanna.
Ísbíllinn, bíll sem á heita svona krúttlegur bíll með litlu bjölluna sína, akandi hérna um þessi barngóðu hverfi með litla íspinna handa stilltum og þægum krökkum var tekinn um daginn. Eitthvað fannst fólki hann vera heldur seint á ferðinni með ísinn, því eins og flestir vita stekkur fullorða fólkið ekkert til og hleypur út með þúsundkallinn og hleypur á hljóð ísbílsbjöllunar, heldur er markhópur svona ísbíls frekar krakkar sem í þessu tilviki voru flestir sofnaðir. Fóru rannsóknarlögreglan af stað og grandskoðaði svo bílinn sem endaði svo með því að eitthvað af dópi fannst í bílnum !
Ef einhver þarna úti, er alvarlega að velta því fyrir sér hvort hann eigi að fara í golfið þá er til sölu golfsett hjá einum aðilanum hérna í bænum. Ástæða þess að Wilson-settið er til sölu hjá manninum er tilkomin vegna þess að hann fór einn mývatnshring nú um daginn og heimildarmenn mínir segja mér að spilamennskan hjá honum (þrátt fyrir að teljast nýliði) hafi verið skelfileg ! Hitti einn bolta eitthvað að ráði á vellinum, en það var þegar verið var að ganga frá settunum í skottið og hafi maðurinn séð eina fimmu þarna (fótbolti) og hafi hrifsað þann bolta til sín og í bræðiskasti sínu kastað honum í loftið og sparkað honum langar vegalengdir um leið og upphófst mikið öskur...heeeelvííííítiiiiis ! Þegar keppendurnir voru svo á leið til síns heima frá mývatnssveit hafi verið grafarþögn í bílnum alla leiðina, eina sem sagt var, var það þegar umræddur spilari sagðist hafa golfsett til sölu ! Fékk það svo staðfest í gær, að umrætt Wilson-sett, fínt byrjendasett er semsagt til sölu og er verið að tala um einhvern skitin fimmtánþúsundkall fyrir settið. (Peningin á að nota í góðgerðastarf, þó ekki Sölku heldur eitthvað svona barna-dæmi)
Ég sjálfur er einmitt að gæla við það að taka einn hring nú uppúr hádeginu og berjast við forgjöfina hjá mér, sem er sem stendur ca 24.
Gæsin að byrja eftir nákvæmlega 5 daga, og væri ég að ljúga ykkur stútfull að því ef ég segðist ekkert vera spenntur, því ég hef komist að því að ekkert sé betra en að liggja í einhverjum þægilegum skurði með góðum félaga/félögum og heyra eingöngu í gæs gargandi í órafjarlægðum. Ekki enn komin fram með einhver markmið varðandi þetta tímabil, en þó það að stunda andaveiðarnar í frekari mæli en verið hefur undanfarin ár.
En jæja þá eða well well eins og kaninn segir...ætli sé ekki langbest að fara að uppfæra ísskápinn hjá sér e-ð með kræsingum á borð við bláberjasultu og fleiru góðmetinu.
Vona að þið hafið það bara ofboðslega gott og viðurkennið bara að ykkur sé skítsama um þessi átök þarna í líbanon og ísrael, mér verður bara óglatt af fréttum af þessum svæðum þarna, í hverju og einum einasta fréttatíma þarf að koma eitthvað frá þessum svæðum ! Ef að einhver Hizbollah-leiðtoginn fer í krummskó er dagskrá á öllum fjölmiðlum rofin og sagt frá því ! Sérstaklega ef þarna rauði kross íslands maðurinn á 365 er að lesa fréttir, þá gleymir hann sér í ruglinu af fréttum þaðan !
En já, ætla að fara að taka til tíin mín og golfpeysuna og bruna þarna uppeftir og slá nokkra bolta.
Fín sending Stefán