Könnun

Hefurđu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Spáin fyrir veturinn.

19. ágúst 2006 klukkan 16:29

Spáin 06/07

1. Liverpool - Sterkasta lið ensku deildarinnar þetta seasonið. Sérstaklega í ljósi þess að liðið hefur sankað að sér heimsklassamönnum á borð við Bellamy, Kuyt, Palletta og Gonzalez. Þáttur Rafael Benitez, besta stjórans í deildinni er einnig risastór, en tak hans á Mourinho (sem oft hefur verið kallaður "litli" Benitez) mun leiða til þess að rauði herinn fagnar titlinum upp í opnum strætó á götum mersey í maí n.k.

2. Chelsea - Ekki mun skilja mikið á milli toppliðsins og Chelsea að þessu sinni, en þeir bláu verða sterkir í vetur, þrátt fyrir að eiga "flopp" tímabilsins (Ballack). Margir góðir farnir frá klúbbnum og nokkrir lykilmenn í fýlu, s.s. William Gallas, sem enn hefur ekki farið frá brúnni, nú þegar tæpur klukkutími (þegar þetta er skrifað) er í að mót hefjist. Mourinho hættir í lok leiktíðar.

3. Man.Utd - Veit ekki alveg af hverju ég set United svo ofarlega, ætli það sé ekki bara af gömlum vana, en ástæðan er svo alls ekki sú hversu góðir þeir eru, miklu frekar seigla í þessu liði. RVN farinn til Madrid, og framherjapar United eru því Louis Saha (einu sinni efnilegur) og Ole Gunnar Solskjaer (útbrunninn) og þá með litla hobbitanum aftan við þá (rooney). 18,6 m.punda maðurinn, Michael Carrick mun ná að sýna sitt rétta andlit allt tímabilið og næstkomandi tímabil með United, þ.e. miðlungsspilamennsku.

4. Arsenal - Ef það er fýla hjá Chelsea, þá hafa þeir smitast af Arsenal. Reyes og Cole grátbiðja drottin á hverju kvöldi eftir faðir vorið um að daginn eftir verði þeir ekki lengur leikmenn Arsenal. Thomas Rocicky er vissulega öflugur leikmaður og mun hann styrkja þetta lið talsvert, en samt ekki, eftir að Bergkamp fór er þetta bara svipað núna og verður baráttan um þetta 4.sæti ofboðslega skemmtileg og í 37.umferð ná skytturnar ósanngjörnum sigri og tryggja sér þar með þetta sæti. Henry fer til Inter eftir tímabilið fyrir 17,5 - 18m.punda.

5. Tottenham - Þetta firnasterka lið mun ná mörgum mögnuðum úrslitum þetta tímabilið, og munu sigrar þess á United verða einkar fallegir, bæði í deild og bikar. Berbatov skorar 26 mörk þetta tímabilið.

6. Newcastle - Þrátt fyrir að Owen sé meiddur og verði það jafnvel allt seasonið þá munu strákar Glenn´s Roader ná þessu sæti, en verða í smá ströggli um jólin en þá kemur hinn sköllótti Sheepard enn aftur með tugmilljónir punda til leikmannakaupa og Roader verður árangursríkari í þeim efnum en Graham nokkur Souness.

7. Blackburn - Gríðarlegur missir í Craig Bellamy til fimmfaldra evrópumeistara, en þeir verða í miðjuhnoði mest allt tímabilið en gott "run" í lok tímabils orsakar það að þeir verða í þessu sæti.

8. Aston Villa - Martin O´Neill mun vinna þrekvirki á Villa Park og sér í lagi með þennan bandaríska auðmann sér við hlið, ekki oft sem O´Neill hefur fengið úr einhverju fjármagni að ráða þegar kaupa á leikmenn en mun hann byrja á því með Aston Villa og verður afraksturinn nokkuð góður. Doug Ellis, andast í bikarleik gegn Birmingham seinna á leiktíðinni.

9. Man.City - Magnaður stjóri, býsna skemmtilegt lið, þrátt fyrir að þeir hafi ekki náð að sýna sitt besta eftir að McManaman hætti. Andreas Isaksson, nýr markmaður hjá City-mönnum og mun hann verða þeim mikill happafengur. Fyrirliði liðsins verður, þó kannski ekki alveg strax Dietmar Hamann, einn af albestu miðjumönnum deildarinnar í mörg ár.

10. West Ham - Voðalega lítið um þetta lið að segja, annað en það að Alan Pardew er skemmtilegur stjóri sem ná mun langt með liðið í einhverri keppninni í vetur, en nær þó ekki ofar en 10.sæti í deildinni.

11. Wigan - Svarta perlan, Emile Heskey er komin á JJB og eftir ca. 50-60 ár mun stytta, honum til heiðurs verða reist við sennilega nýjan leikvang þeirra Wigan manna, fyrir afrek hans á fótboltavellinum með þeim og verður þetta tímabilið sem Heskey nær jafnvel 30 mörkum, bara í deild. Gefin verður út DVD-diskur í lok leiktíðar með mörkum Heskey´s.

12. Fulham - Svolítið veikur fyrir Coleman, en þó nær sá áhugi ekki lengra en það að hann verður með Fulham í hnoði í allt vetur, eitthvað mun hann kynnast botnbaráttunni en nær svo að rétta skútuna við þegar líða tekur á tímabilið. Í janúar kaupir Coleman Lee Carsley frá Everton.

13. Charlton - Djimi Traore fleygir Hreidarssyni út úr byrjunarliðinu á The Valley, og mun hann, eftir nokkra leiki fá afhent fyrirliðaband og mun hann verða til þess að Charlton hreinlega falli ekki.

14. Porstmouth - Skemmtilegt sóknarlið og með nýjan eigenda, og þ.a.l. fjármagni munu strákar Redknapp´s ná þessu sæti að þessu sinni, en á komandi tímabilum verða þeir mun mun ofar í deildinni. Jamie Redknapp spilar nokkra leiki með liðinu áður en hann meiðist, og nær næstum því að skíta upp á axlir á sér, fyrir spilamennskuna.

15. Middlesbrough - Einkar óáhugaverður klúbbur sem mér er svo nákvæmlega sama um, Gareth Southgate verður rekinn í febrúar.

16. Sheff.Utd - Nýliðarnir ná að halda sér uppi en það verður þrautin þyngri því þeir verða í fallsæti mest allt tímabilið.

17. Bolton - Árangri big sam (manninum sem Guðni Bergs hefur sængað hjá) er lokið hjá Bolton. Þetta lið mun vonandi falla með ónefndu liði, en ná því miður að bjarga sér, og á einhvern óskiljanlegan hátt mun stóra sam verða hampað fyrir vikið ! Hann fær 3 menn af free transferi í janúar og verða það Krasimir Balakov, David Platt og Claudio Caniggia.

18. Everton - Það er með mikilli ánægju og raunsæi sem ég set Everton hérna, það er nákvæmlega ekkert varið í þetta lið, þó að Andy Johnson hafi farið til þessa auma klúbbs þýðir það það ekki að þeir nái einhverjum árangri, Johnson meiðist fljótlega og allt hrynur..."bjargvætturinn" Duncan Ferguson verður ekki lengur til taks eftir að hafa gengið svo alvarlega í skrokk á innflytjendum frá asíu að hann fær lífstíðarfangelsisdóm. Spái því líka að Phil Neville meiðist og verði lengi frá.

19. Reading - Því miður fyrir þessa nýliða, þá
verður hlutskipti þeirra að falla niður um deild.

20. Watford - Þrátt fyrir dálæti ýmissa manna á þessum stjóra, Adrian Boothroyd þá sé ég ekki að þeir hafi verið að styrkja sig e-ð að ráði, og slá þeir met í fáum stigum í premíunni frá upphafi.

Besti leikmaður deildarinnar - Sissoko

Vonbrigði deildarinnar (leikmaður) - Michael Ballack

Efnilegasti leikmaður - Mark Gonzalez

Markahæsti leikmaður - Dirk Kuyt

Röðin á þeim 5 þjálfurum sem fá að fjúka ( Nr. 1 er sá fyrsti o.s.frv.)

1. Sam Allardyce í endaðan janúar.

2. Gareth Southgate ( 9.febrúar)

3. Adrian Boothroyd (15-18 mars)

4. Neil Warnock (svipuðum tíma og Boothroyd)

5. David Moyes (þegar 5 leikir verða eftir í deildinni)

 
Gunnţór
Sæll Ævar bara að minna á að Phil Neville var gríðalega góður i dag og ég spái að hann verði besti maðurinn i deildinni i vetur og jafnvel að hann skori nokkur mörk(ekki sjálfsmörk)
#1
20. ágúst 2006 klukkan 00:01
 
Ćvar Ţ.
Blessaður Gunnþór, þessi spádómur þinn er sérstakur að því leytinu til, að hann vekur hjá mér heilmikla kátínu :)

Ef að Phil Neville næði því að verða valinn besti maður í einhverri deild í heiminum, þá yrði það í besta falli í 4-5 deildinni í Afganistan ! (þarna er ég að samt að verja Phil Neville)

Einu mörkin sem "phillarinn" skorar þetta tímabilið verður eins og þú komst inn á, einvörðungu sjálfsmörk ! :)
#2
20. ágúst 2006 klukkan 03:27
 
Jói Brill
Glæsilegt Ævar...ekki byrjaði það bærilega samt..jafntefli við Sheffield..bið að helsa Hjaltalín feðgum
#3
20. ágúst 2006 klukkan 06:25
ó jesús.....lífið getur ekki verið það leiðinlegt að þú bloggir bara um fótbolta.....nei núna segi ég stopp Ævar...taktu þér tak í þínum málum!!!!
#4
21. ágúst 2006 klukkan 19:50
 
Ćvar Ţ.
Nei djói, þetta gat svosem byrjað betur, en það hefur aldrei verið hægt að marka fyrsta leik í deildinni. Rob Styles, hörmulegur dómari leiksins, átti auðvitað að vísa manninum útaf með rautt spjald eftir þessa líkamsárás hans á Gerrard. En það kemur svosem ekkert á óvart að Liverpool þurfi oftar en ekki að kljást við 12 menn, í stað 11 !

Fyrirgefðu Tinna, ég tek þetta til mín og mun framvegis ekki skrifa einvörðungu um knattspyrnu.
#5
22. ágúst 2006 klukkan 05:06

Skrifa athugasemd