Könnun

Hefuršu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglżsing

Djöfull sem Einstein var ofmetin !

23. įgśst 2006 klukkan 06:13
Já halló krakkar

Er búinn að vera að velta ýmsum hlutum fyrir mér upp á síðkastið, hlutum sem alla jafna hafa svosem ekkert verið að berjast við að troða sér inn undir hárið mitt og inn undir skinnið mitt og í hausinn minn en svona er þetta bara, stundum fer maður og hugsar bara fullt af hlutum og stundum bara hættir maður alveg að hugsa um þessa hluti en alltaf poppa þeir upp (samt ekkert orville dæmi samt)

Þessir hlutir eru jafn misjafnir og þeir eru margir, sumir alveg hreint ofboðslega góðir og aðrir af lakara taginu, en eitt er gott við þessa hluti alla saman, en það er það að þeir gera mann gáfulegri...t.d. ef fólk kemur og segir "blessaður"...og ég svona að hugsa ennþá og þá með störu kannski á eitthvað ómeðvitað, og ef ég er heppinn þá er svona þumalputtinn á strjáfi á hökunni og þá er ég viss um að fólkið hugsi "ussss....kjellinn í svona djúpum "þeinkingum"" Þá segir aðilinn aftur "blessaður" og brosir svona og þá hættir maður að hugsa og svona "já, blessaður/blessuð"

Sumir samt hugsa ekki neitt hugsa ég, þeir bara æða áfram í ruglinu og hugsa ekkert fyrir því sem þeir ættu í rauninni að vera að hugsa um og bara framkvæma það sem þeir ættu þá eflaust að hugsa betur um.

Hvað ef t.d., gullfiskar hafa bara ekkert þetta svokallað "gullfiskaminni" sem allir eru búnir að dæma þá til að hafa ! Ég hef fætt og klætt (nánast klætt (hetja)) gullfiska (reyndar líka hákarl hérna einu sinni fyrir talsverðu síðan), og hafði ég gaman af þeim, þeir hétu Steini og Olli, Steini dó langt fyrir aldur fram, vegna frekjunnar í Olla. En já, pointið í þessu er þá það, að þegar fólk segir oft á tíðum "oojj barasta hvað það hlýtur að vera leiðinlegt fyrir hann (gullfiskinn) að synda bara hring eftir hring eftir hring eftir hring í þessu búri" og allir segja bara í svona hæðnistón, "þetta er gullfiskur, hann man aldrei neitt, hann er að sjá þetta allt í fyrsta skipti með hverjum hringnum sem líður !" Hvað ef t.d. gullfiskurinn sem er máske í búrinu þínu, er bara ekkert með þetta ítrekaða gullfiskaminni og hann bara lifir kannski í einhver ár við það að synda bara og synda...synda bara og synda, og fá annars lagið "bank" á glerið frá sykursjúkum börnum...og fiskamat !  Þetta hlýtur að vera það leiðinlegasta sem í veröldinni fyrirfinnst !

Gullfiskar eru svo pottþétt með langtíma-minni held ég ! En það á nú reyndar bara við um gullfiska, t.d. hákarlinn minn sem ég keypti mér um árið, hann lifði hjá mér í held ég slétta 1 viku, þá dó kallinn, hann borðaði ekki neitt, sem endaði svo með því að ég freistaðist til þessa að gefa honum sardínur í dós, og voru það víst sardínur í olíu...hann bara synti og synti og leit ekki við sardínunni sem ég skellti glaðhlakkalega í búrið hans sem endaði svo með ótímabærum dauða hákarlsins míns, kom að búrinu þar sem olíubrákir flögruðu um allt búrið og lág hann á bakinu og var sumsagt búinn að fá kallið sitt. En eflaust líður honum vel núna og hugsar til þess að ég meinti vel með þvi að gefa honum sardínur á sínum tíma.

Svo hef ég einnig verið að velta því fyrir mér hvað það í ósköpunum fær fólk til þess að demba sér í svona guðs-dæmi, fullt af eilífðarölkum fara bara og kaupa sér fullt af hálsfestum með líkan af krossum og tala ekki um neitt annað en boðskap drottins o.s.frv. og drekka ekki neitt en falla svo á prófinu. Náskylt þessari hugsun eru þeir aðilar sem "frelsast". Ég lét "frelsa" mig á poppmessu hérna um árið, á að giska 14-15-16 ára gamall, og fékk ég fullt af bæklingum senda heim um lífið hinum megin, þar sem allt snerist um hvað allt sé, var og verður frábært. Einn aðili, sem Djonn Ársæll tók viðtal við hér um árið, frelsaðist, og sá ég þáttinn, en þar sagði hann (ekki djonn) að það væri honum að þakka að kárahnjúkavirkjun væri að fara af stað, einnig minntis hann á fellibyl einn sem myndaðist hafði í ameríkunni hjá bush og co, sem talinn var lífshættulegur, þ.e.a.s. að hann myndi taka með sér mörg mannslíf. Eitthvað komst þess aðili á snoðir um fellibylinn, og sagði honum bara að hætta...og viti menn, júbbb, hann hætti og þúsundir manna sem eflaust hefðu týnt lífið í þeim náttúruhörmungum sem stafaði af fellibylnum (fékk e-ð nafn, sem ég man ekki hvað var..sennilega britney eða e-ð) létu bara ekki lífið fyrir tilstilli þessa merka íslendings ! Svona er heimurinn lítill.

En jæja, þetta eru sumsagt þeir hlutir sem runnið hafa í gegnum hugan á mér síðustu daga m.a.

Elskið friðinn og munið nr.? boðorðið sem segir manni að glaður skul maður vera ef maður sér Liverpool-A.C. Milan úrslitaleikinn í champ.league !

Ætla að elda mér einhverjar kræsingar á morgun í tilefni af 1-1 jafntefli Liverpool við Maccabi Haifa

Fín sending Stefán

lifið heil
Þú ert með hugmyndaflug á við 15 manns Ævar minn!!! Bara gaman af því en minna gaman að öðru.. hóst, hóst.... mail... hóst,hóst... svikari.... hóst, hóst.... ;)
#1
24. įgśst 2006 klukkan 20:14
 
Ęvar Ž.
Já, ég var barasta búinn að steingleyma því dísa ! Lofa þessu mjög fljótlega :)
#2
25. įgśst 2006 klukkan 16:24
ég byrjaði að lesa....gafst svo upp:) þú ert samt ágætur!!!
#3
26. įgśst 2006 klukkan 07:43
Já hef einmitt oft verið að velta þessu fyrir mér með gullfiskinn líka...eða ekki... Þú ert frábær.
#4
26. įgśst 2006 klukkan 20:29

Skrifa athugasemd